Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 84
4 Netþjónar og tölvur COMPAa Hefur þitt fyrirtæki efni á að eyða tíma starfsfólksins í bið? Þeiá cr dyrt rui IMo starfsfólkið biða! Tölvukerfi sem virkar 563 3000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG:RmTJgMBUS, AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. HEKLA — íforystuánýrriöldt Aðgerðir rfkisstjórnarinnar í skattamálum kynntar Persdnuafsláttur og skattleysismörk hækka Morgunblaðið/Golli Ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sínar í skattamálum á fundi með fulltrúum Flóabandalagsins og fleiri félaga inn- an ASI. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson sitja gegnt Grétari Þorsteinssyni, forseta ASÍ, Halldóri Björnssyni, formanni Eflingar, Rannveigu Sigurðardóttur, hagfræðingi ASI, og Hervari Gunnarssyni, varaforseta ASÍ. RÍKISSTJÓRNIN kynnti aðgerðir sínar í skattamálum til að greiða fyrir kjarasamningum í gærmorgun á fundi með fullti'úum Flóabandalags- ins og fleiri félaga innan Alþýðusam- bands Islands. Felast þær m.a. í að skattleysismörk fylgi launaþróun, tekjutenging bamabóta minnki og tekjuskerðingarmörk hækki, greiðsl- ur almannatrygginga hækki í takt við laun, fæðingarorlof lengist og í tengslum við það verði réttindi jöfnuð *^*og samræmd. Þá var kynnt sérstök athugun sem ríkisstjórnin hyggst láta fai-a fram á næstu mánuðum á tekju- skatti einstaklinga og staðgreiðslu- kerfinu í því skyni að fá fram kosti þess og galla að fjölga skattþrepum. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði eftir fundinn ljóst að útgjöld ríkissjóðs myndu aukast um nokkra milljai-ða vegna þessara aðgerða. Sá stöðugleiki sem fengist hins vegar með friði á vinnumarkaði vægi upp á móti þeim þensluáhrifum sem þetta t útsnil kynni að hafa í fór með sér. Ríkisstjórnin hafði lýst því yfir að hún myndi ekki kynna fyrirhugaðar aðgerðir sínar fyrr en komið væri samkomulag milli Flóabandalags og SA. Forsætisráðherra viðurkenndi að hann hefði ekki átt von á að það myndi takast fyrr en eftir helgina, en skákin hefði greinilega spilast hratt í Karphúsinu, eins og hann orðaði það. „Það er Ijóst að barnabætumar einar munu auka útgjöld ríkissjóðs um einn og hálfan milljarð - sérstak- lega mun upphafshækkun kosta okk- ur töluvert mikla peninga, á heilu ári um tólfhundruð milljónir eða svo. Þannig að við erum að tala um nokkra milljarða í aukin útgjöld,“ sagði for- sætisráðherra og taldi ekki að með ***‘þessum aðgerðum væri verið að stefna stöðugleikanum í hættu. Hann benti á að væntanlegir samningar Flóabandalags og SA fælu í sér lengsta samningstímabil sem hann þekkti í íslenskri sögu. Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra sagði ljóst að bæði yfirlýsingin og samningamir byggðust á vem- legri bjartsýni. „Þeir byggjast á þeirri bjartsýni að hér verði áfram- haldandi hagvöxtur. Þess vegna er náttúrulega afar mikilvægt að við höldum áfram atvinnuuppbyggingu og sá hraði, sem er í þjóðfélaginu, haldi áfram,“ sagði hann. Halldór Bjömsson, formaður Efl- ingar og helsti talsmaður Flóabanda- lagsins, sagði eftir fundinn í gær að nú þegar útspil ríkisstjómarinnar lægi íyrir væri unnt að skrifa undir nýjan kjarasamning. „Ríkisstjómin lofaði að skila svona yfirlýsingu og það hefur hún nú gert. Fyrir það er- um við henni mjög þakklát," sagði Halldór og taldi Ijóst með yfirlýsing- unni að Flóabandalagið og ASÍ hefðu náð fram markmiðum sínum. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sagði í gær að við ríkjandi aðstæður væri það mat sitt að rétt hefði verið hjá ríkisstjóm- inni að greiða fyrir kjarasamningum með þessum hætti. „Það er afskaplega mikilvægt að endurnýja langtímahugsunarhátt í þjóðfélaginu, ná verðbólgunni niður og varðveita þannig stöðugleikann sem nú virðist vera í hættu,“ sagði Ari. ■ Aðgerðir stjórnvalda/42-43 Leggja af stað á pól- inn í 45 stiga frosti FJÖRUTÍU og fimm stiga frost, hægur vindur og bjartviðri beið norðurpólsfaranna Haralds Arnar Ólafssonar og Ingþórs Bjarnasonar á Ward Hunt-eyju á 83. breiddar- gráðu er þeir stigu út úr Twin Ott- er-skíðaflugvél, sem flutti þá frá eskimóaþorpinu Resolute til Ward Hunt-eyju. Þaðan var reiknað með að gangan á norðurpólinn hæfist á miðnætti. Vélin lenti um klukkan 21 að ís- lenskum tíma í gærkvöldi, eða um klukkan 15 á Ward Hunt og héldu þeir félagar út á ísinn með sleða sína í eftirdragi að lokinni losun vélarinnar og annarri umsýslu. Að sögn Ólafs Amar Haralds- sonar föður Haralds, sem var í sam- bandi við son sinn í gær þegar milli- lent var í Eureka á Ellesmerey, var hljóðið gott i Haraldi. Sagði hann að þeir Ingþór hefðu aðlagast kuldan- um vel og allur búnaður væri heill. Rjósmynd/Ólafur Öm Haraldsson Norðurpóllinn er í um 800 km fjarlægð frá byrjunarreit á Ward Hunt- eyju. Myndin var tekin við æfingar á Baffinslandi fyrir nokkrum dögum. Flugið frá Resolute tók sex klukkustundir og samferða Islend- ingunum vom þrír Svfar, sem hyggjast ganga á norðurpólinn á 50 dögum. Svíarnir eru með nærri því helmingi léttari sleða en Haraldur og Ingþór og bera hluta byrðanna á bakinu. Samanlögð þyngd farang- urs þeirra er um 95 kg á móti 120 kg hjá Haraldi og Ingþóri. íslend- ingarnir hyggjast ná norðurpólnum á 60 dögum. Haraldur og Ingþór hafa með- ferðis Iridium gervihnattasfma sem þeir nota til að gefa skýrslu um stöðu mála á ferðalaginu. Fjárhags- erfiðleikar framlciðandans gætu hugsanlega sett strik f reikninginn, en Haraldur og Ingþór gerðu í und- irbúningnum ráð fyrir fleiri Qar- skiptamöguleikum, m.a. Argos senditæki, sem gerir þeim kleift að koma frá sér upplýsingum til bak- varðasveitar sinnar á Islandi. Að auki hafa þeir sinn neyðarsendinn hvor. ? MITSUBISHI i LRNW Skrifað undir í skugga deilna SKRIFAÐ verður undir lqara- samning Samtaka atvinnulífs- ins og Flóabandalagsins á morgun. Þetta varð ljóst í gær- morgun eftfr að ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sínar í skatta- málum. A sama tíma dregur til tíð- inda hjá landsbyggðarfélögum innan Verkamannasambands- ins, VMSI. Formenn sam- bandsins og Landssambands iðnverkafólks hittust til skrafs og ráðagerða í gær, en formleg- ur fundur þeiira er á dagskrá fyrir hádegi í dag. Þar verða ákveðin næstu skref í ijósi þess að tjögur stór félög innan VMSI, sem saman mynda Flóa- bandalagið, hafa náð samning- um á meðan landsbyggðarfélög undirbúa verkfallsátök. Forystumenn landsbyggðar- félaganna, sem margir hverjir höfðu gagnrýnt nýgert sam- komulag Flóabandalagsins og SA harkalega, vildu í gær ekk- ert tjá sig um þann ágreining sem kominn er upp innan VMSÍ. Hið sama gilti um Bjöm Grétar Sveinsson, formann VMSÍ. Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, sagði ágreininginn í gær vera áhyggjuefni, en VMSI er stærsta landssam- bandið innan Aiþýðusambands- ins. Halldór Björnsson, formaður Eflingar og talsmaður Flóa- bandalagsins í samningavið- ræðunum, sagði í gær að ef brúa ætti þá djúpstæðu gjá sem komin er upp yrðu þeir sem kveiktu eldana að slökkva þá. „Það er alveg á hreinu,“ sagði Halldór. ■ Djúpstæð gjá / 4 Framarar fínna gögn um eign félagssvæðis FRAMARAR hafa fundið gömui skjöl sem þeir telja sanna að íþróttasvæði félagsins við Safa- mýri sé allt í þeirra eigu. Eins og staðan er nú er ekki til formlegur lóðarsamningur á milli Fram og borgarinnar um svæðið. „Það sem komið hefur upp úr krafsinu er formleg lóðarúthlut- un á svæðinu til okkar frá árinu 1958,“ segir Sveinn Andri Sveins- son, formaður Fram. Þar öðlaðist félagið rétt til lands beggja vegna Miklubrautar. Hann segir að eft- ir niðurstöðu viðræðna við borg- ina um lóðina megi vænta tíðinda af framtíðaráfonnum félagsins, t.d. samstarf við Fjölni eða Þrótt. ■ Þrýst/14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.