Morgunblaðið - 26.03.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MARS 2000 E 7
Aðalbókari
Bókari
Flugfélagið Atlanta hf. auglýsir
eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Ætlar þú þér langt?
Aðalhókari / bókari
Búnaðarbankinn hefur vaxið
hratt á undanförnum árum.
Verðbréfasvið Búnaðarbankans var stofnað fyrir þremur árum og ■
eru í dag um 65 starfsmenn á sviðinu, flestir með háskólamenntun °
Mikil aukning hefur orðið á allri
starfsemi bankans og hefur
markaðshlutdeild og hagnaður
aukist ár frá ári.
á sviði viðskipta, verkfræði og hagfræði. Sviðið sér um og ber
ábyrgð á starfsemi bankans á hinum ýmsu mörkuðum, svo sem
á markaði fyrir skuldabréf, hlutabréf, gjaldeyri og afleiður auk
starfsemi á peningamarkaði.
Búnaðarbankinn er skráður á
Verðbréfaþingi íslands og var
metafkoma af rekstri bankans
á síðasta ári. Arðsemi eigin fjár
var hæst hjá Búnaðarbankanum
af íslensku viðskiptabönkunum.
Verðbréfasjóðir bankans hafa
nær allir skilað hæstu ávöxtun
miðað við sambærilega sjóði
samkeppnisaðila.
Fyrirtækjaráðgjöf
Búnaðarbankinn Verðbréf leitar að framúrskarandi starfsfólki sem ætlar
sér langt í íslensku atvinnulífi. Eingöngu er leitað að einstaklingum sem eru
nákvæmir, hugmyndaríkir og geta starfað sjálfstætt.
Störfin fela í sér alhliða ráðgjöf til stórra og meðalstórra fyrirtækja, þ.m.t.
ráðgjöf um hvernig fjármagnsskipan fyrirtækja skuli háttað, ráðgjöf við
samruna og yfirtöku fyrirtækja svo og undirbúning að skuldabréfa- og
hlutafjárútboðum. Um er að ræða fjölbreytileg störf sem gefa réttum
einstaklingum tækifæri til að sanna sig í ört vaxandi fyrirtæki og spennandi
starfsumhverfi, auk þess að gefa góða reynslu til frekari frama í íslensku
atvinnulífi.
Leitað er að einstaklingum með háskólamenntun á sviði viðskiptafræði,
hagfræði eða verkfræði. Umsækjendur þurfa að vera talnaglöggir,
þjónustulundaðir og skipulagðir.
Upplýsingar veita Atli Atlason /síma 525 6371
og Bergþóra Sigurðardóttir í sima 525 6374.
Netföng: atiia@bi.is og bergsig@bi.is.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
byggir á trausti
FlugfélagiðAtlantahí var stofnað árið 1986. Félagið sérhæfir sig
í leiguverkefnum og er með starfsemi víða um heim. Velta félagsins
var rúmir 10 milljarðar á síðasta ári.
n
Um er að ræða krefjandi starf í alþjóðlegu umhverfi.
í starfinu felst meðal annars:
• Yfirumsjón með og ábyrgð á færslu og vinnslu
bókhalds.
• Afstemmingar, uppgjör, áætlanagerð og frágangur
bókhalds í samvinnu við forstöðumann
reikningshalds- og eftirlitsdeildar.
• Skýrslugerð, upplýsingavinnsla og innra eftirlit.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt, hafa góða
bókhalds- og tungumálakunnáttu og eiga auðvelt
með mannleg samskipti. Viðskiptafræðimenntun af
endurskoðunar- eða fjármálasviði er nauðsynleg.
Starfsreynsla af endurskoðunarstofu er æskileg.
Um er að ræða krefjandi starf við margvísleg verkefni
í bókhaldi ásamt því að aðstoða aðalbókara við
uppgjör.
Hæfniskröfur:
Víðtæk bókhaldsreynsla og/eða
viðskiptafræðimenntun.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til
PricewaterhouseCoopers merktar viðkomandi störfum
fyrir 4. apríl n.k.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Netfang: katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com
PrICEWaTeRHOUsE(OOPERS 0
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is
SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA
FATLAÐRA - REYKJAVÍK
Dagvistun fyrir
ungt fólk
Á vordögum opnar Svæðisskrifstofa fatlaðra
í Reykjavík nýja og glæsilega dagþjónustu í
Grafarvoginum, fyrir ungt fatlað fólk.
Markmið staðarins er að veita einstaklings-
bundna fjölbreytta þjónustu í samvinnu við
marga aðila varðandi menntun, atvinnu og
frístundir þessa unga fólks.
Við leitum að áhugasömum einstaklingum
sem óska eftir að vinna á fjölbreyttum vinnu-
stað. Við leggjum áherslu á hæfni í mannleg-
um samskiptum og þekkingu á málefnum
fatlaðra. Um er að ræða heilar stöður og hlut-
astörf.
Óskað er eftir þroskaþjálfum og öðru uppeldis-
menntuðu fólki, iðjuþjálfa/tómstundafulltrúa,
matráði og stuðningsfulltrúum.
Umsóknir skulu berast Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni. Launakjöreru samkvæmt kjarasamning-
um ríkisstarfsmanna. Umsóknarfrestur er fram-
lengdur til og með 31. mars 2000. Þær umsókn-
ir er þegar hafa borist gilda áfram. Allar nánari
upplýsingar um störfin veitir Dagbjörg Bald-
ursdóttir forstöðumaður í síma 533 1388.
Stuðningsfjölskyldur
Leitað er eftir traustu og jákvæðu fólki sem
ertilbúið að verja hluta af tíma sínum í sam-
skipti við börn og unglinga.
Leitað er eftir einstaklingum eða fjölskyldum
til að gerast stuðningsfjölskylda fyrir börn að
18 ára aldri nokkra daga í mánuði.
Hlutverk stuðningsfjölskyldu hjá Svæðisskrif-
stofu Reykjavíkur er að taka fatlað barn í umsjá
sína í þeim tilgangi að veita því tilbreytingu
og létta álagi af fjölskyldu þess. Hér er um að
ræða mjög gefandi og skemmtilegt starf.
Greiðslur fyrir viðkomandi starf eru verktaka-
greiðslur.
Hringið í síma 533 1388 eða komið í heimsókn
til okkar á Svæðisskrifstofu Reykjavíkur og fáið
nánari upplýsingar. Þar munu Sverrir Óskars-
son félagsráðgjafi og Ásdís Sigurðardóttir full-
trúi liðsinna ykkur.
Sambýli
Óskum eftir þroskaþjálfum, fólki með uppeldis-
menntun og öðru starfsfólki í heilar stöður og
hlutastörf á sambýlum. Störfin eru mjög
áhugaverð og krefjandi.
Sumarafleysingar
Óskum eftir körlum og konum í vaktavinnu
á sambýli, við umönnun fatlaðra. Um er að
ræða heilar stöður og hlutastörf. Æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu af störfum með
fötluðum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni. Launakjör eru samkvæmt kjarasamning-
um ríkisstarfsmanna. Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Guðmundsdóttir launafulltrúi í síma
533 1388.
Umsóknarfrestur ertil 10. apríl nk. en umsóknir
geta gilt í allt að 6 mán. Skriflegar umsóknir
sendist Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
www.radning.is