Morgunblaðið - 26.03.2000, Qupperneq 12
12 E SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SJ Ú KRAH Ú S
REYKJAVÍ KU R
Skurðlækningasvið
Hjúkrunarfræðingar
Hinn 1. mars síðastliðinn var opnuð ný æða-
skurðlækningadeild á gangi B-4 í Fossvogi.
Deildin er sjálfstæð eining sem þjónar sjúkling-
um með slagæða- og bláæðasjúkdóma af öllu
landinu. Legupláss verða 12.
Við leitum eftir áhugasömum hjúkrunarfræð-
ingum og hjúkrunarnemum (3. árs), bæði ífast-
ar stöður og sumarafleysingar sem vilja taka
þátt í þróun og uppbyggingu hjúkrunar á nýrri
deild. Starfið er kjörið tækifæri fyrir þá sem
ekki hafa unnið við hjúkrun í einhvern tíma.
Taktu þátt í að þróa nýja deild, ótal verkefni
og skemmtileg vinna framundan.
Allar óskir um vinnutíma verða skoðaðar. Um-
sóknarfrestur er til 10. apríl nk.
Upplýsingar veita:
Magnea Vilhjálmsdóttir aðstoðardeildar-
stjóri í síma 525 1407.
Netfang: maaneav@shr.is.
Gyða Halldórsdóttir sviðsstjóri í síma
525 1305. Netfang: qvdah@shr.is.
Myndgreininga- og rannsóknasvið
Starfsmenn
Starfsmenn óskast á röntgendeild Fossvogi.
Hér er um er að ræða aðstoðarstarf í afgreiðslu
og umsjón með kaffistofu, vinnutími 8—16.
Einnig vantar starfsmann við almenn aðstoðar-
störf á rannsóknastofum í dagvinnu með
gæsluvöktum. Umsóknarfrestur ertil 10. apríl
nk.
Upplýsingar veitir:
Jóhanna Boeskov deildarstjóri í síma
525 1445. Netfang: iohannb@shr.is.
Lyflækningasvið
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða vantar á allar
vaktir á B-7, sem er blönduð hjarta- og almenn
lyflækningadeild. Allar óskir um starfshlutfall
og vinnutíma verða skoðaðar. Umsóknarfrestur
er til 10. apríl nk.
Upplýsingar veita:
Anna Sigríður Þórðardóttir hjúkrunar-
deildarstjóri í síma 525 1587.
Netfang: annasth@shr.is.
Margrét Tómasdóttir sviðsstjóri í síma
525 1555. Netfang: marqt@shr.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi fjármálaráðherra og við-
komandi stéttarfélags. Umsóknareyðublöð fást hjá starfs-
mannaþjónustu Landspítala Landakoti og hjá upplýsingum
f Fossvogi.
Afallavinna
erlendis
Rauði kross ísiands auglýsir eftir sérfræðingum
á sviði geðheilbrigðis og/eða áfallavinnu til að
vinna að ráðgjöf fyrir hópa i erlendum sam-
félögum sem lent hafa í hamförum.
Leitað er m.a. eftir sálfræðingum, félags-
ráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum og læknum.
Skilyrði er að umsækjendur
hafi mjög gott vald á ensku.
Grunnnámskeið fyrir umsækjendur verður
haldið 14. - 19. maí n.k.
Umsóknum skal skilað til Rauða kross íslands,
Efstaleiti 9, 103 Rvk fyrir 3. aprfl n.k. merkt
„Alþjóðadeild - Áfallavinna erlendis".
Frekari upplýsingar veitir Nína Helgadóttir hjá
Alþjóðadeild f síma 570 4000. Einnig er hægt að
senda tölvupóst á centraHSredcross.is.
Rauði kross íslands
www.redcross.is
LANDSPÍTALI
hAskölasjúkrahOs
Deildarstjóri/
Ijósmóðir
óskast á nýjz deild, Hreiðrið, á kvenlækninga-
sviði. Þar verður starfrækt MFS-einingin, LMT-
Ijósmæðrateymi og fjölskyldumiðuð sængur-
lega.
Deildarstjóri ber m.a. ábyrgð á:
- Daglegum rekstri.
- Stefnumótun.
- Áætlanagerð.
- Starfsmannahaldi.
Leitað er að áhugasamri Ijósmóður með hjúkr-
unarpróf og a.m.k. 5 ára starfsreynslu. Æskileg
reynsla af stjórnunarstörfum og/eða viðbótar-
menntun. Mikil uppbygging erframundan.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf berist skrifstofu hjúkrunarforstjóra fyrir
10. apríl 2000.
Upplýsingar veita Guðrún Björg Sigur-
björnsdóttir yfirljósmóðir/hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, gudrbsig@rsp.is, og Anna Stef-
ánsdóttir hjúkrunarforstjóri,
annastef@rsp.is, sími 560 1000.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á eftirtaldar lyflækningadeildir Land-
spítala Hringbraut:
Deild 14 - E hjartadeild.
Deild 14 - G gigtar- og nýrnadeild.
Deild 11 - B 5 daga rannsóknardeild.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Bergdís Kristjánsdótt-
ir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 560 1300,
netfang bergdkri@rsp.is.
Sjúkraliðar
óskast á ýmsar deildir spítalans, bæði í fast
starf og sumarafleysingar. Nánari upplýsingar
veitir Bergdís Kristjánsdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, netfang bergdkri@rsp.is, sími
560 1300.
Meinatæknir
óskast sem fyrst á vefjarannsóknadeild Rann-
sóknastofu Háskólans í meinafræði við Baróns-
stíg. Um er að ræða 75% stöðu við almennar
vefjarannsóknir.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2000.
Nánari upplýsingar veitir Kristrún Ólafsdóttir
yfirmeinatæknir í síma 560 1939,
netfang kristrol@rsp.is______________
Laun samkv. gíldandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi
Landspítala, Þverholti 18, á heimasíðu www.rsp.is, í upplýsingum
á Landspítala við Hringbraut og á job.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
. hefur verið tekin. ,
Frá Höfðaskóla á Skagaströnd
Lausar kennarastöður
skólaárið 2000-2001
Æskilegar kennslugreinar; almenn kennsla
yngri barna og á miðstigi, tölvufræði, heimilis-
fræði, hannyrðir, sérkennsla, tónmennt, íþróttir
og kennsla á unglingastigi.
Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er
til 14. apríl nk.
Höfðaskóli ereinsetinn grunnskóli. Nemendur
eru 115. Skólinn er vel búinn til kennslu, með
skólabókasafn, tölvuverog nýtt íþróttahús.
Vinnuaðstaða kennara er mjög góð.
Við bjóðum launabætur, flutningsstyrk, hag-
stæða húsaleigu og gott samstarfsfólk.
Skagaströnd er kauptún með um 620 íbúm. Aðalatvinna er sjávarút-
vegur og tengdar greinar. Góður leikskóli, heilsugæsla, almenn
þjónusta og félagslíf. Aðeins eru 260 km til Reykjavíkur og 160 km
til Akureyrar.
Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmunds-
son, skólastjóri, vs. 452 2800, hs. 452 2824 og
Ólafur Bernódusson, aðstoðarskólastjóri,
vs. 452 2800, hs. 452 2772.
KÓPAVOGSBÆR
Sumarstörf 2000
Kópavogsbær auglýsir eftirfarandi
sumarstörf laus til umsóknar:
Vinnuskóli
Yfirleiðbeinendur sem hafa umsjón með
fjölda vinnuflokka, ákveðnum verkefnum og
svæðum.
Leiðbeinendur (flokkstjórar) til að vinna með
og stjórna vinnuflokkum unglinga.
Umhverfisfulitrúi sinnir umhverfisfræðslu
fyrir unglingana ásamt tómstundamálum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í
verkstjórn og að starfa með unglingum.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður.
Skólagarðar og smíðavellir
Leiðbeinendur í skólagarða. Æskilegt er að
umsækjendur hafi reynslu og áhuga á
ræktun og að starfa með börnum. Um-
sækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
Aðstoðarmenn í skólagarða og smíðavelli.
Til aðstoðar leiðbeinendum. Umsækjendur
þurfa að hafa áhuga á að starfa með
börnum. Umsækjendur skulu vera 18 ára
eða eldri. Reyklaus vinnustaður.
Sundlaug
Afleysingamenn. Góð sundkunnátta áskilin.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
Sundlaugin er reyklaus vinnustaður.
íþróttavellir
Flokkstjórar og verkamenn í almenna hirð-
ingu og gæslustörf.
Gæsluvellir
Afleysingamenn í 70 % starf. Æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu og áhuga á að
starfa með börnum.
Áhaldahús
Flokkstjórar og verkamenn í garðyrkju-
störf, grasslátt og almenn verkamannastörf.
Flokkstjórar skulu hafa reynslu í verkstjórn
og garðyrkustörfum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Tækni-
deild Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 570 1550
kl. 9.00-15.00.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til
14. apríl 2000.
Vantar þig hlutastarf?
Við höfum það!
Ræsting ehf. hefur fengid nafnid ISS ísiand.
Hjá ISS ísland starfa yfir 500 manns á aldrinum 17—80
ára. Starfsmenn fá kennslu og þjálfun og bestu áhöld
og efni sem völ er á. Einnig fá starfsmenn stuðning
frá ræstingarstjórum og flokksstjórum.
Hjá okkur er gott að vinna!
Föst afleysingastörf við ræstingar
• Þegar starfsfólk í daglegum ræstingum
forfallast þá mæta afleysingastarfsmenn í
staðinn. Afleysingastarfið er því fjölbreytt
starf þar sem farið er á mismunandi staði.
Vinnutíminn er frá kl. 16. Nauðsynlegt er að
hafa bíl til umráða.
Alls konar hlutastörf við ræstingar
• Við sjáum um daglega ræstingu í fjöl-
mörgum fyrirtækjum og stofnunum á öllu
höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að velja um
2—5 tíma vinnu á dag. Störf á morgnana
hefjast um kl. 8, síðdegisstörf á bilinu kl.
15—17 og næturstörf um kl. 22.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá starfs-
marmastjóra. Vid erum íÁrmúla 40, 3. hæd.
Sími 580 0600. Netfang: erna@iss.is
IHÍsland