Morgunblaðið - 26.03.2000, Qupperneq 14
14 E SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
í Ráðhús Reykjavíkur
I Kjaraþróunardeild
Verkefnisstjóri
starfsþróunar og
símenntunar
Kjaraþróunardeild óskar að ráða sem fyrst
verkefnisstjóra sviði starfsþróunar og
símenntunar.
Helstu ábyrgðarsvið eru:
1. Undirbúningur stefnumótunar í starfs-
þróunar- og símenntunarmálum starfs-
manna Reykjavíkurborgar og daglegur
rekstur verkefnisins.
2. Ráðgjöf og aðstoð við stofnanir og
fyrirtæki borgarinnar, m.a. varðandi þarfa-
greiningar og starfsþróunaráætlanir.
3. Upplýsingabrunnur/vefur um starfs-
þróunar- og símenntunarmöguleika
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Verkefnisstjórinn tekur þátt í teymisvinnu
með öðrum sérfræðingum kjaraþróunar-
deildar við úrlausn vandasamra verkefna.
Reynsla af starfsmannamálum og mann-
auðsstjórnun auk kennslufræðilegrar þekk-
ingar er æskileg. Samstarfslipurð, tungu-
málakunnátta, gott vald á íslensku og
leiðtogahæfilekar eru sömuleiðis æskilegir
eiginleikar, svo og vefsíðugerð. Gerð er krafa
um háskólamenntun og framhaldsmenntun
á fagsviði er æskileg.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum hlutað-
eigandi stéttarfélags.
Umsókn er tilgreinir menntun og fyrri störf skal
skilað tii kjaraþróunardeildar, Ráðhúsi Reykja-
víkur. Auk þess geri umsækjandi grein fyrir
hvernig hann sér fyrir sér starfsþróunarmál
Reykjavíkurborgar og hvaða áherslur hann telur
mikilvægar í þessum efnum.
Upplýsingar um starfið veitir Grétar Jónasson,
lögfræðingur, í síma 563 2243 netfang:
gretarj@rhus.rvk.is. Umsóknarfrestur er til og
með 31. mars n.k.
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN'J
BLÖNDUÓSI
Læknar
Lausertil umsóknar staða heilsugæslulæknis
við Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi frá og
með 1. sept nk. Æskilegt er að viðkomandi hafi
sérfræðimenntun í heimilislækningum. Um-
sóknarfrestur ertil 10. apríl nk. Stöðunni fylgir
embættisbústaður.
Um er að ræða stöðu sem skiptist í 65% stöðu
á heilsugæslusviði og 35% stöðu á sjúkrasviði.
Þá er jafnframt laus til umsóknar staða afleys-
ingalæknins í eitt ár frá og með 1. júní nk.
Umsóknarfrestur og starfshlutföll eru þau
sömu og að framan greinir. Stöðunni fylgir
embættisbústaður.
Stofnunin skiptist í tvö svið, sjúkrasvið og
heilsugæslusvið. Sjúkrasviðið starfar sam-
kvæmt lögum sem almennt sjúkrahús og veitir
sérfræðiþjónustu á sviði handlækninga og lyf-
lækninga. Undir sjúkrasviðið heyrir einnig
rekstur hjúkrunar- og dvalardeildar. Heilsu-
gæslusviðið veitir íbúum héraðsins heilbrigð-
isþjónustu í samræmi við ákvæði heilbrigði-
slaga um starfsemi heilsugæslustöðva. Þrír
læknar starfa við stofnunina.
Umsóknir skulu sendar til Péturs Arnars Péturs-
sonar framkvæmdastjóra á sérstökum eyðu-
blöðum sem fást hjá Landlæknisembættinu.
Upplýsingar um störfin veita Páll N. Þorsteins-
son yfirlæknir og framkvæmdastjóri í
síma 452 4206.
Sumarvinna
Gardyrkjudeild Kirkju-
garda Reykjavíkurpró-
fastsdæma leitar að rösku
fólki til sumarstarfa
Um er að ræða störf í eftirtöldum kirkju-
görðum: Fossvogskirkjugarði, Gufunes-
kirkjugarði og Suðurgötukirkjugarði.
Garðarnir eru alls um 63 hektarar að
stærð.
Leitað er að starfsfólki í almenn garð-
yrkjustörf, í flokkstjórastörf og einstakl-
ingum með dráttarvélaréttindi. Laun eru
greidd samkvæmt taxta stéttarfélagsins
Eflingar, auk þess er greiddur kaupauki
eftir vinnuhvetjandi kerfi, sem hefur
gefið góða raun fyrir báða aðila.
Þeir, sem hug hafa á að sækja um sum-
arvinnu hjá kirkjugörðunum, athugi eft-
irfarandi skilyrði fyrir ráðningu:
• Umsækjandi sé fæddur árið 1983 eða
fyrr.
• Umsækjandi eigi lögheimili í Reykja-
vík, Kópavogi eða á Seltjarnarnesi.
• Skrifleg umsókn berist Skrifstofu kirkju-
garðanna í Fossvogi fyrir 15. apríl
2000.
• Umsækjandi skili meðmælum eða
mætingarvottorði frá skóla með
umsókninni.
Umsóknareyðublöð eru afhent á Skrif-
stofu kirkjugarðanna í Fossvogi og þar
er hægt að fá upplýsingar um starfið.
Skrifstofusími 551 8166. Myndsími
562 0244. Heimilisfang Vesturhlíð 8, 105
Reykjavík.
Nánari upplýsingar um kirkjugarðana
má nálgast á netinu og þar er hægt að
prenta út umsóknareyðublöð:
http://www.kirkjugardar.
Garðyrkjudeild kirkjugarðanna.
Almannavarnir ríkisins (AVRIK)
Sviðsstjóri
áhættugreiningar
Ný staða sviðsstjóra á sviði áhættugreiningar
er laus til umsóknar. í starfinu felst m.a.:
• Gagnasöfnun og -úrvinnsla um byggð og
vá í landinu.
• Greining á áhættu og afleiðingar hamfara.
• Náið samstarf við vísindamenn, skipulags-
stofnanir o.fl.
• Tengsl við almannavarnanefndir.
• Áætlanagerð og skipulagsvinna í samvinnu
við framkvæmdastjóra.
• Dagvaktarstörf (tengist viðbraðgsþjónustu
stofnunarinnar).
Einnig mun viðkomandi vinna að verkefnum
á öðrum sviðum stofnunarinnar skv. nánari
fyrirmælum framkvæmdastjóra.
Æskileg menntun er byggingarverkfræði.
Um er að ræða heilsdagsstarf sem heyrir undir
framkvæmdastjóra. AVRIK eru viðbragðsstofn-
un og allir starfsmenn bera símboða.
Laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningnum
við fjármálaráðherra f.h. ríkisins.
Samkvæmtforsendum í aðlögunarnefndar-
samningi raðast starfið í ramma C.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf fljót-
lega.
Umsóknir skulu berast skriflega til Almanna-
varna ríksins, Seljavegi 32, 101 Reykjavík, fyrir
3. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veita Sólveig Þorvalds-
dóttir eða Erna Antonsdóttir í síma 552 5588.
RANNÍS
Deildarsérfræðingur
vísindasviðs RANNÍS
Rannsóknarráð ísiands óskar eftir að ráða
í stöðu deildarsérfræðings vísindasviðs
RANNÍS.
Starfssvið
Starf deildarsérfræðings á vísindasviði felur
í sér sjálfstæð störf undiryfirstjórn forstöðu-
manns vísindasviðs. Deildarsérfræðingur hefur
m.a. umsjón með framkvæmd úttekta á vís-
indasviðum eftir ákvörðunum Rannsóknarráðs
íslands og sér um framkvæmd á mati á hluta
umsókna sem koma til sjóða ráðsins. Þá mun
deildarsérfræðingur sjá um framkvæmdahlið
á tilteknum alþjóðlegum samstarfsáætlunum
og samskipti við norrænar/evrópskar sam-
starfsstofnanir, sem Rannsóknarráð íslands
á aðild að eða samskipti við.
Hæfniskröfur
Krafist er vísindalegrar sérmenntunar á fag-
sviði hug- eða félagsvísinda. Áhersla er lögð
á góða samskiptahæfileika, nákvæmni og
metnað til að beita vönduðum vinnubrögðum.
Góð kunnátta í íslensku er áskilin svo og færni
í ensku og einu Norðurlandamáli. Haldgóð
tölvuþekking er nauðsyn.
Laun samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags.
Þess er vænst að umsækjandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra Rann-
sóknarráðs íslands, Laugavegi 13, 101 Reykja-
vík, eigi síðar en 7. apríl. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verður svarað. Nánari upplýsingar
veitir Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri RANNÍS, og Kristján Kristjánsson, for-
stöðumaður vísindasviðs RANNÍS.
Laus störf í grunnskólum Reykjavíkur
skólaárið 2000-2001
Kennarar
Hlíðaskóli, sími 552 5080
Almenn kennsla
Ölduselsskóli, sími 557 5522
Tónmenntakennari
í skólanum er mjög góð aðstaða til tónmennta-
kennslu og eindreginn vilji til þess að gera tón-
mennt að veigamiklum þætti í skólastarfinu.
Upplýsingar gefa skólastjórar og aðstoðarskóla-
stjórar.
Umsóknarfrestur ertil 24. apríl nk.
Umsóknir ber að senda í skólana.
Laun skv. kjarasamningum kennarafélaganna og Launanefndar
sveitarfélaga.
Önnur störf
Ölduselsskóli, sími 557 5522
Við skólann eru lausar nokkrar stöður starfs-
fólks til að hafa umsjón með nemendum í
kennsluhléum og aðstoða við ýmis tilfallandi
verkefni o.fl. Vinnutími erfrá kl. 08.00 til 16.00.
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjórar.
Umsóknir ber að senda í skólann.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar-
félög.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavik, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is