Morgunblaðið - 18.04.2000, Page 10
10 ÞRIÐ JUDAGUR 18. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Össur Skarphéðinsson og Tryggvi Harðarson formannsefni
Samfylkingarinnar á opnum fundi í Reykjavík
Morgunblaðið/Ásdís
Tryggvi Harðarson og Ossur Skarphcðinsson svara spurningum á opnum fundi á Hótel Sögu á laugardag.
„Bjartir tímar
framundan hjá
Samfylkingunni“
Formannsefni Samfylkingarinnar, þeir Össur Skarphéðinsson og
Tryggvi Harðarson, hafa kynnt áherslumál sín á opnum fram-
boðsfundum víða um land síðustu tvær vikurnar. Arna Schram
fylgdist með framboðsfundi þeirra í Reykjavík um helgina og reif-
ar hér það helsta sem fram kom á þeim fundi.
TVEGGJA vikna fundar-
ferð þeirra Össurar
Skarphéðinssonar al-
þingismanns og Tryggva
Harðarsonar, bæjarfulltrúa í Hafn-
arfirði, formannsefna Samfylking-
arinnar, lauk nú um helgina með
líflegum fundi í Sunnusal Hótel
Sögu á laugardag. Eftir að for-
mannsefnin höfðu kynnt stefnumál
sín í stuttu máli og hugmyndir sín-
ar um hinn nýja flokk, Samfylking-
una, sem formlega á að stofna
fyrstu helgina í maí nk. hófust fjör-
ugar umræður með spurningum úr
sal og frá fjölmiðlamönnunum; Agli
Helgasyni á Skjá einum, Friðriki
Þór Guðmundssyni frá Degi og
Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur frá
Frjálsri verslun, sem sátu við pall-
borð.
Egill Helgason á Skjá einum bar
upp fyrstu spurningu fundarins og
laut hún að trúverðugleika fram-
boðs Tryggva Harðarsonar. „Er
framboð þitt í fullri alvöru,“ spurði
Egill og minnti á að Tryggvi væri
náinn vinur Guðmundar Arna
Stefánssonar alþingismanns sem
um tíma íhugaði formannsframboð
í Samfylkingunni. Þegar svo Guð-
mundur Árni hefði tekið þá ákvörð-
un að bjóða sig ekki fram hefði
Tryggvi komið fram á sjónarsviðið.
„Með fullri virðingu fyrir þér má
ætla að 95% þjóðarinnar hafi ekki
vitað hver þú varst fyrir tveimur
vikum,“ sagði Egill.
í svari sínu kvaðst Tryggvi
spyrja að leikslokum. „Menn hafa
stundum ýjað að því hvort ég hafi
farið fram fyrir Guðmund Árna en
nei, svo var ekki. Ég hef skýrt frá
því á opinberum vettvangi að ég
hafi tilkynnt honum um framboð
mitt að morgni þess dags sem
framboðsfrestur rann út. Þegar ég
greindi honum frá ákvörðun minni
sagði hann eitthvað á þessa leið:
„Þú ert brjálaður drengur en ég
styð þig samt.“ Þannig að þetta var
mín ákvörðun. Ég taldi það vera
Samfylkingunni til góðs að ég byði
mig fram og síðan læt ég á það
reyna hversu mikinn stuðning ég á.
Við erum búnir að fara víða um
land, ég og Össur, með framboðs-
fundi og hef ég fundið að ég á góð-
an hljómgrunn. En hvað það nær
langt ætla ég ekki að fullyrða um.“
Guðrún Helga Sigurðardóttir
átti næstu spurningu: „Mig langar
til að spyrja ykkur út í bláu hætt-
una, þ.e. Davíð Oddsson,“ sagði
hún. „Nú hafa stjórnmálaforingjar
og kannski sérstaklega í Samfylk-
ingunni lent í vandræðum með það
hvernig þeir eigi að svara [...] Dav-
íð Oddssyni í kosningabaráttu.
Hvernig teljið þið rétt að taka á
þessari hættu?“
Össur varð fyrri til svara: „Það
er enginn maður sem lendir undir
með Davíð Oddssyni og lendir í
þrætum þegar hann á við hann
orðastað yfir borð, vegna þess að
hann forðast það að horfast í augu
við annan stjórnmálamann, hann
fer ekki í þætti með öðrum stjórn-
málamönnum, hann skýtur alltaf
þegar hann er í hæfilegri fjarlægð,
þannig hefur hann verið."
Guðrún Helga ítrekaði hins veg-
ar spurningu sína og spurði á
hvern hátt Össur ætlaði að ná yfir-
höndinni.
„Það sem ég ætla auðvitað að
gera,“ sagði Össur, „er að benda
honum á hin augljósu mistök sem
hafa orðið í stjórnarstefnu Davíðs
Oddssonar og hans ríkisstjórnar.
Ég ætla ekki að ráðast á hann
persónulega eða benda á eitthvað
sem mér finnst vera
miður í fari hans sem
einstaklings. Hann hef-
ur marga góða kosti og
marga galla líka.“ Össur
kvað það hins vegar sína
skoðun að það sem
stæði upp úr í þessum efnum væri
sú staðreynd að þjóðfélagið „gæti
verið að sigla inn í langt velsældar-
skeið,“ eins og hann orðaði það en
sökum mistaka í efnahagsstjórn
Davíðs Oddssonar og Geirs H. Ha-
arde fjármálaráðherra værum við
að glutra því tækifæri niður.
Þegar Tryggvi var spurður þess-
arar sömu spurningar um hvaða
aðferð hann myndi nota í kappræð-
um við Davíð Óddsson benti hann á
að stjórnmálaumræðan snerist að
hans mati of mikið um Davíð Odds-
son og sjálfstæðismenn. „Ég ætla
ekki að vera að eltast við einhverja
flokka úti í bæ og við það hvað þeir
eru að gera. Auðvitað gagnrýnum
við það sem okkur þykir miður í
þeirra fari en ég er ósammála því í
grundvallaratriðum að menn séu
alltaf að eltast við eitthvað sem
heitir Sjálfstæðisflokkurinn eða
Davíð Oddsson.11 Sagði hann að
umræðan ætti miklu fremur að
snúast um það hvað Samfylkingin
ætti að gera og hvernig hún ætti að
setja sér skýrari línur þannig að
valkostirnir milli flokka væru ljós-
ari.
Styðja ekki sölu bjórs og
léttvíns í matvöruverslunum
Spurningarnar á fundinum sner-
ust því næst um það hvort Össur
teldi koma til greina að mynda rík-
isstjórn með Sjálfstæð-
isflokknum, en rétt er
að taka fram í þessu
sambandi að Tryggvi
hafði áður vikið að því
að samstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn kæmi
alls ekki til greina nema sem al-
gjört neyðarrúræði. „Ég get ekki á
þessu stigi þremur árum fyrir
kosningar að ég hygg útilokað rík-
isstjórn með Sjálfstæðisflokknum,“
sagði Össur en bætti því við að um
þessar mundir væri það fjarlægur
og kannski sísti kosturinn.
Friðrik Þór Guðmundsson lagði
fram nokkrar einfaldar spurningar
fyrir frambjóðendur og kom m.a.
fram í svörum þeirra að þeir hefðu
hvorugir sagt sig úr gagnagrunni á
heilbrigðissviði, að hvorugir styddu
þeir hugmyndina um að selja bjór
og léttvín í matvörubúðum og að
báðir teldu þeir að til væri fátækt á
íslandi. Þegar Friðrik spurði að
því í hvaða hlutafélögum þeir hefðu
fjárfest kvaðst Össur einu sinni
hafa fjárfest í Vaka og auk þess átt
í „nokkrum fiskeldisfélögum", en
Tryggvi kvaðst almennt hafa haft
afskaplega lítið fjármagn til að
fjárfesta fyrir. Þá kvaðst Tryggvi
aðspurður styðja aðskilnað ríkis og
kirkju en Össur kvaðst því mótfall-
inn.
Síðar voru frambjóðendurnir
spurðir um afstöðu sína til Atlants-
hafsbandalagsins og veru varnar-
liðsins á Islandi og sagðist Össur
m.a. ekki vera þeirrar skoðunar að
ísland ætti að ganga úr NATO.
Um herinn sagði hann að afstaða
sín væri svipuð og komið hefði
fram í tveimur síðustu ríkisstjórn-
um Alþýðubandalagsins: „Ef ég
kemst í ríkisstjórn ætla ég ekki að
reka herinn,“ sagði hann. „Það er
ekkert sem kallar á það að hann
verði rekinn endilega núna. Ég
held hins vegar að staðan sé þann-
ig í alþjóðamálum að á næstu ára-
tugum mun verða vaxandi þrýst-
ingur frá Bandaríkjamönnum
sjálfum að flytja sig um set eða
breyta sínu vægi hér.“
Um þessi mál sagði Tryggvi að
það hefðu átt sér gríðarlegar
breytingar á sviði öryggis- og
varnarmála á undanförnum árum
og taldi hann að íslendingar ættu í
þeim efnum að líta til aukinnar
samvinnu við Evrópu. „Ég held að
við ættum að skipa okkur á bekk
með öðrum Evrópuþjóðum í örygg-
is- og varnarmálum.“
Að síðustu voru frambjóðendur
spurðir að því hvern þeir hygðust
styðja í stöðu varaformanns Sam-
fylkingarinnar. Össur sagði að á
meðan enginn gæfi kost á sér ann-
ar en Margrét Frímannsdóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
myndi hann styðja hana. Tryggvi
benti á hinn bóginn á að framboðs-
frestur væri ekki útrunninn og að
hann myndi taka afstöðu þegar þar
að kæmi.
Hafnar samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn
Undir lok fundarins héldu fram-
bjóðendur þriggja mínútna ræðu
um helstu sjónarmið sín og lagði
Tryggvi þar m.a. áherslu á mikil-
vægi þess að Samfylkingin mark-
aði sér skýrar línur. „Við stöndum
á tímamótum í dag. Það
eru árþúsundaskipti og
við erum að stofna nýj-
an flokk; flokk jafnaðar-
manna, sem rúmar bæði
kvenfrelsi og félags-
hyggju undir sínum
hatti. Það sem ég hef lagt áherslu á
er að þessi nýi flokkur verði að
marka sér skýra sýn. Hann á ekki
að spyrja hvað hinir eru að gera
heldur spyrja sjálfan sig að því:
„Hvað vil ég gera og hvernig vil ég
starfa." Það er lykilatriði."
Tryggvi minntist einnig á stöðu
Samfylkingarinnar á hinum svo-
kallaða vinstri/hægri ás stjórnmál-
anna: „Össur hefur stundum talað
um að það væri nauðsynlegt fyrir
Samfylkinguna að sækja inn á
miðjuna. Ég hafna því alfarið. Ég
segi ef við ætlum að sækja sérstak-
lega inn á miðjuna þá verðum við
ekki trúverðugur jafnaðarmanna-
flokkur. Ef við keyrum fast á þau
gildi sem við trúum á, flest okkar
held ég, munum við fá gildi frá
vinstri, frá miðjunni og alls staðar
að. Það hefur sýnt sig að þar sem
A-flokkarnir hafa verið sterkir í
einstökum sveitarfélögum, hefur
það ekki verið í skjóli þess að þeir
hafi verið að sækja svona mikið inn
á miðjuna. Það hefur verið gert í
skjóli þess að kjósendur hafi vitað
að hverju þeir gengju. Þeir vissu
að það væri ekki um að ræða sam-
starf milli jafnaðarmanna og
íhaldsins."
Fullyrti Tryggvi að ef Samfylk-
ingin ætlaði að biðla til Sjálfstæðis-
flokksins myndi hún aldrei ná
þeirri fótfestu sem hún þyrfti. „Þá
munum við aldrei ná því að verða
40 til 50% flokkur eins og ég vil,
þannig að ég hafna allri samvinnu
við Sjálfstæðisflokkinn að svo
komnu máli en neyðarréttur gæti
hugsanlega brotið það, en það á að
vera skýr valkostur, menn eiga að
fá að velja um það hvort jafnaðar-
menn stjórna íslandi eða hvort það
er íhaldið sem stjórnar."
Með hundrað
kflóa þunga
Össur fór í upphafi lokaorða
sinna m.a. yfir fundarferð þeirra
félaga um land allt síðustu tvær
vikurnar. „Það sem stendur upp úr
er það hversu góðar viðtökur þær
hugmyndir fá sem við höfum verið
að færa fram. Við erum búnir að
fara í flesta framhaldsskóla á land-
inu. Það er ótrúlegt en þó satt að á
þessum 10 til 20 dögum sem við
höfum verið að þvælast í þessa
skóla hefur félögum í Samfylking-
unni á aldrinum 16 til 25 ára fjölg-
að um næstum því 1.000. Það sýnir
þann jarðveg sem er fyrir hug-
myndir okkar.“
Kvað Össur ákaflega margt
benda til þess að bjartir tímar
væru framundan hjá Samfylking-
unni og benti m.a. á nýlegar skoð-
anakannanir m.a. hjá Gallup og Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla Is-
lands sem birtist í Morgunblaðinu
á laugardag. Samkvæmt hinni síð-
arnefndu er Samfylkingin orðin
næst stærsta stjórnmálaaflið.
„Staðan er einfaldlega þannig að
Framsóknarflokkurinn er í erfiðri
klemmu. Hann hefur tapað sinni
sérstöðu. Finnur fór með kjark
Framsóknarflokksins yfir í Seðla-
bankann. Vinstri-grænir eru eins
og þeir eru, þeir eru að reyna að
taka á sig kufl Framsóknarflokks-
ins og við eigum þess vegna bráð-
um við að glíma tvo Framsóknar-
flokka í landinu. Og síðan er það
Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur
fitnað eins og púkinn á fjósbitanum
vegna þess að hann hefur ekki
burðugan andstæðing. En nú er sá
burðugi andstæðingur að verða til.
Við sjáum það að forysta Sjálf-
stæðisflokksins virðist á köflum
ekki bara þreytt á flokknum heldur
einnig þjóðinni. Við sjáum það líka
í skoðanakönnuninni í dag [á laug-
ardag] að þjóðin er að verða þreytt
á Sjálfstæðisílokknum.“ Að síðustu
sagði Össur að í byrjun maí myndu
samfylkingarmenn kjósa sér for-
ystu. „Ég heiti ykkur
því að verði ég kjörinn
formaður Samfylkingar-
innar mun ég leggja alla
mína orku og öll mín
hundrað kíló í það að
rífa þennan flokk upp.
Ég mun leggja allt mitt í það að
færa ykkur sjálfstraustið og færa
ykkur sjálfsvirðinguna og leiða
ykkur til þeirra áhrifa í íslenskum
stjórnmálum sem þið, sem við, sem
Samfylkingin á skilið og sem ís-
lensk stjórnmál eiga skilið."
„Hann skýtur
alltaf þegar
hann er í hæfi-
legri f]arlægó“
„Framsóknar-
flokkurinn hef-
ur tapað sinni
sérstöðu“