Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 47 ---------------------------<■. Verðþróun á íslensku grænmeti - Bakarinn og smiðurinn í Morgunblaðinu hinn 12. apríl s.l. birtist viðtal við Guðmund Ól- afsson hagfræðing þar sem fjallað var um þró- un matvöruverðs hér á landi sl. 20 ár. Enn- fremur var viðtalið efni í leiðara Morgunblaðs- ins þann 13. apríl sl. Samband garðyrkju- bænda vill koma á framfæri leiðréttingum og ábendingum varð- andi ofangreind skrif. Búseta grænmetis- framleiðenda í viðtalinu kemur eftirfarandi fram varðandi fjölda ársverka í grænmetisframleiðslu, sem sögð eru vera 400: „Verndar- stefna í landbúnaði eða byggða- stefna á því ekkert við þarna enda býr stór hluti þessa ágæta fólks í þéttbýli." Það er sem sagt mat Guð- mundar að lítið vandamál sé að fá grænmetisframleiðendur til að hætta sínum atvinnurekstri, enda búi þeir flestir í þéttbýli, m.ö.o. ef þú ert garðyrkjubóndi í þéttbýli þá get- ur þú bara hætt og farið að gera eitt- hvað annað. Til samanburðar er gert ráð fyrir að 360 þús. tonna álver á Reyðarfirði skapi um 570 ársverk í framleiðslunni fyi-ir utan margfeldis- áhrif. íslensk grænmetisframleiðsla fer að mestu leyti fram á Suðuriandi og í Borgarfirði. Flúðir, Laugarás og Reykholt eru þéttbýliskjarnar í upp- sveitum Ámessýslu með um 500 íbúa. Þessir kjamar hafa myndast m.a. vegna þess að garðyrkjan er þar til staðar. Með því að leggja fram- leiðsluna niður á þessum stöðum er verið að gefa þeim samfélögum ekki tvöfalt kjaftshögg heldur rothögg og því fólki sem við greinina starfar. A þessum svæðum er ekki unnt að hverfa að öðmm atvinnurekstri líkt og víða annars staðar á landinu og því úr vöndu að ráða. Verðþróun á grænmeti Verð á grænmeti hefur vissulega hækkað undanfarin ár, en til þess að ræða það hverjir era að hagnast og hverjir ekki á slíkri þróun þá er grandvallaratriði að hafa forsend- urnar á hreinu. Það er nefnilega hér sem henging bakarans í stað smiðs- ins fer fram. Það sem skín í gegnum viðtalið er að grænmetisframleiðendur séu í skjóli verndartolla að taka meira og meira til sín með hækkandi vöru- verði. Þetta er ekki rétt. Á myndinni, sem sýnir þróun verðs á tómötum á árunum 1995- 1999, á þeim tíma þegar íslensk framleiðsla er á markaði, kemur í ljós að hlutdeild framleiðenda hefur nánast staðið í stað á sama tíma og smásöluverslunin hefur aukið sinn hlut. Hlutur tómataframleiðandans (dökkbláa svæðið) hefur til dæmis farið úr 170 kr. árið 1995 í 172 kr. ár- ið 1999. Heimild: Samband garðyrkju- bænda. Á verðlagi ársins 1999. Hlutdeild smásöluaðila (ljósbláa svæðið) hefur hins vegar vaxið á sama tíma, farið úr 68 kr. árið 1995 í 113 kr. árið 1999. Það er því ljóst að hlutdeild garðyrkjubænda í vöru- verði hefur nánast verið óbreytt undanfarin ár meðan smásalan hefur aukið sinn hlut. Það sem hagfræðingar og neyt- endafrömuðir ættu e.t.v. að skoða er sú krónutala sem verslunin er að taka fyrir hverja afurð. Erlendir tó- matar era e.t.v. ódýrari en innlendir, en það þýðir líka að verslunin tekur fleiri ki'ónur til sín af þeirri íslensku þar sem um hlutfallstölu er að ræða. Fyrirhöfnin er engu að síður sú sama, þ.e. að afhenda vörana yfir borðið. Hvers vegna íslensk garðyrkja? Ef við sem sjálfstæð þjóð viljum skoða hvort betra sé að hafa inn- lenda framleiðslu í bland við innflutning eða eingöngu innflutn- ing verðum við að skoða forsendur máls- ins. Unnsteinn 1. íslensk garðyrkja Eggertsson skapar, beint og óbeint um 1.500 störf í land- inu. Þessi störf eru flest hver unnin í sveitum landsins sem teljast verður jákvætt í umræðunni um byggðamál. 2. íslensk garðyrkja er ein þeiira búgreina á íslandi og reyndar í Evrópu allri sem ekki njóta fjárfest- ingastyrkja og/eða niðurgreiðslna á vöraverði, heldur hafa allar sínar tekjur frá markaðinum. Til saman- burðar má geta þess að íslenskir skattgreiðendur þurfa að greiða mjólkur- og sauðfjárframleiðendum framlög á ári hverju. Þess má einnig geta að styrkir ESB til landbúnaðar- mála á þessu ári nema um 50% af heildarútgjöldum þess eða samtals 3200 milljörðum króna! Það hlýtur því að vekja spumingar hvers vegna Grænmeti Samvinna með stjórn- völdum, afurðasölufyrir- tækjum og versluninni er mikilvæg til þess, segir Unnsteinn Eggertsson, að koma á sambærilegum rekstr- arskilyrðum. Skipting neylendaverðs mllll framleHSenda, heildsala, smásala og riklsins i tómötum mai sept 1995 -1999 i«is nae t«>? tasa isso ráðist er ítrekað á íslenska garð- yrkju, nema ef vera skyldi vegna þess að hún er markaðstengd og óniðurgreidd og þar með sýnilegri almennri umræðu. 3. íslenskir garðyrkubændur, eins og margir aðrir, telja sjálfstæði hverrar þjóðar m.a. felast í því að framleiða sínar eigin matvörur með eigin auðlindum. Islenskt grænmeti er 85-90% íslenskt að upprana, þ.e. nær allir framleiðsluþættir þess era íslenskar auðlindir; jarðhiti, ferskt vatn, raforka o.fl. 4. í ylrækt era eingöngu notaðar lífrænar varnir í stað vamarefna. 5. Mengun frá íslenskum garð- yrkjustöðvum er afar lítil m.a. vegna notkunar á heitu vatni til upphitunar gróðurhúsa og garða í stað kola, gass eða olíukyndingar, líkt og í Evrópu, sem er koltvísýringsmengandi. 6. Ferskt hreint vatn til vökvunar á plöntum í stað margnotaðs hreins- aðs vatns. 7. Fallvötn til framleiðslu raforku til raflýsingar. Víða í Evrópu era notast við olíu, gas, kol eða kjarn- orku til framleiðslu á raforku með tilheyrandi mengun og hættu á al- varlegum umhverfisslysum. 8. Neysla á grænmeti á sér ekki jafn ríka hefð á íslandi og í nágr- annalöndum okkar auk þess sem veðurfar hefur áhrif. Þetta hefur áhrif á samanburð. Neysla á græn- meti hefur þó farið vaxandi hér og slík þróun er væntanlega gleðiefni fyrir hollustustefnu stjórnvalda. Neysla á íslenskum gúrkum hefur t.d. farið úr rúmum 500 tonnum árið 1995 í tæp 1.000 tonn árið 1999. Eins og lesa má hér að framan þá nýtur íslensk garðyrkja mikillar sér- stöðu vegna þeirra framleiðsluþátta sem hér era til staðar. Ef ræða á um lækkað neytenda- verð á grænmeti verðum við að gera upp við okkur hvort sé betra: a) að ganga sama veg og í Evrópulöndun- um með því að niðurgreiða vöruverð á grænmeti í formi stuðnings til at- vinnugreinarinnar líkt og nú er gert í mjólkur- og sauðfjárrækt hérlendis og leggja þar með af innflutnings- tolla. Eða b) að halda áfram þeirri stefnu sem verið hefur með GATT- tollunum og nota þá leið til að jafna samkeppnisskilyrðin. Samvinna me^ stjórnvöldum, afurðasölufyrirtælq- ' um og versluninni er mikilvæg til þess að koma á sambærilegum rekstrarskilyrðum. Eitt er víst að hvor leiðin sem er valin, a eða b, þá era þær báðar til þess fallnar að hafa skilyrðin sam- bærileg. Öll umræða verður að taka mið af þessu ellegar verður hún bæði ómálefnaleg og ómarkviss. Höfundur er framkvæmdastjðri Sambands garðyrkjubænda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.