Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR N ína Bj örk Arnadóttir » Ljóð Nínu eru ljóðræn og gædd hrynjandi sem naut sín af hennar eigin vörum. Þau þóttu stundum einum of viðkvæmnisleg og döpur, vígð sorginni. 44 eftir Jóhann Hjálmarsson EGAR ég hitti Nínu Björk Árna- dóttur síðast var það við útför Guð- rúnar Nielsen, móður Alfreðs Flóka. Um Flóka, vin sinn, skrifaði Nína að honum látnum Ævintýrabókina um Alfreð Flóka (1992). Ljóst var að heilsu Nínu hafði hrakað. Hún sagði: „Nú get ég ekki meira.“ Þótt Nína væri þrátt fyrir allt kraftmikil eins og verk hennar leiða í ljós, var hún brot- hætt og átti oft í erfiðleikum með að sinna kröfum lífsins. Eftir hana liggja margar Ijóðabækur, skáldsögur, smásögur og leikrit. Fyrsta bók Nínu voru Ung ljóð (1965). í ljóðinu Núna stendur m.a.: „Eg var ungt blóð og undraðist að sjá þig7 Ég var ungt blóð og tært og ég beið þín. Ég var ungt blóð og bylt- ist og bað þig um líf.“ í Ungum ljóðum er eftirvænting ungrar stúlku sem er lögð af stað út í lífíð og skáld- skapinn og hefur líka fundið óttann sem átti ekki eftir að yfirgefa hana: „Ottinn bíður mín þama inni./ Fingur myrkursins fálma um axl- ir mér./ Ætti ég kannski að kalla til ykkar/ sem eruð að dansa í hringnum." Ung ljóð var hikandi ferð Nínu Bjarkar Árnadóttur inn í skáldskapinn, ljóðið, hið vandmeðfarna form. Hún efaðist um getu sína. En það var fljótlega ljóst að Nína átti er- indi og sína eigin rödd. Næst kom Undarlegt er að spyrja mennina (1968) og með henni og Börnunum í garðinum (1971), Fyrir börn og fullorðna (1975) og Mín vegna og þín (1977) var Nína orðin þekkt og virt skáld. Ekki spillti framhaldið, enn sjálfstæðari tónn með Svörtum hesti í myrkrinu (1982) og bókunum sem fylgdu í kjölfarið, Hvíta trúðn- um (1988) , Engli í snjónum (1994) og Alla leið hingað (1996). Ég hygg að leikrit Nínu hafi verið nokkuð vanmetin og sama er að segja um skáldsögur hennar sem eru athyglisverðar og vel skrif- aðar. Nína þýddi líka, einkum verk danskra rithöfunda. Hún hafði numið leiklist og var ágætur upplesari. Ljóð Nínu eru ljóðræn og gædd hrynjandi sem naut sín af hennar eigin vörum. Þau þóttu stundum einum of viðkvæmnisleg og döpur, vígð sorginni. Þetta var þó ekki alltaf þannig. í Borgara- legum athugasemdum í Börnunum í garðin- um og fleiri ljóðum er Nína raunsæisleg og skarpur athugandi. Hún getur jafnvel verið vandlætingarfull í anda gömlu spámannanna. Kristileg efni sóttu líka á hug hennar. Tök Nínu á ljóðrænu og einföldum mynd- um hversdagsins gerðu ljóð hennar sérstæð. Hún var líka eitt þeirra skálda sem voru ófeimin við að hleypa frásögn inn í ljóðin, opna þau að hluta. Þetta gerði hún í ljóðum um staði, til dæmis Flatey á Breiðafirði. Það einkenndi ljóð Nínu að hún beitti oft endurtekningum. Hljómur málsins, stundum leikur, mótaði bækur hennar. Þegar Nína setti saman bókina um Flóka og leitaði til margra vina hans til að fá krydd í frásögnina, voru ýmsir í vafa um aðferð hennar en létu samt tilleiðast. Sjálf orti hún mikið í bókina. Þetta voru tækifærisljóð en einlæg. Nína kemur fram í þeim eins og hún var. Ég er fegin þvi að Nína skrifaði þessa bók. Án hennar skorti margar heimildir um Flóka og ýmsar hefðu glatast. Við Nína unnum saman við Ijóða- og jass- dagskrár ásamt öðrum skáldum og tónlistar- mönnum. Nína var mjög áhugasöm og las af þrótti. Athygli vakti að mörg ljóðanna sem hún flutti undir lokin voru minningaljóð, eft- irmæli um vini. Hún vildi heiðra minningu fólks sem hafði skipt hana máli og gefið henni góðar gjafir lífsins. Það var engu síður áber- andi að hún virtist altekin af hugsunum um dauðann. Lífið varð æ torsóttara og hún gat ekki fótað sig í hversdagsleikanum. Jafnvel skáldskapurinn og líka trúin gátu ekki hjálpað henni. Hún sá aðeins svartan hest í myrkrinu. Freistandi er að grípa til einkunnarorða eftir J. P. Sartre úr Börnunum í garðinum: „Það er kalt. Þetta er ekkert vor fremur en vanalega." Kór Snælandsskóla heldur til Bandaríkjanna á morgun á Alparósarhátíðina. Kór Snælandsskóla á Alparósarhátíðina Leikhúsdagur í Borgarfirði SVEINN Einarsson, leikstjóri og rithöfundur, mun halda fyrirlestur í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 18, í safn- aðarsal Reyk- holtskirkju. Fyr- irlesturinn, sem fengið hefur heit- ið „Spjall um Loft“, er liður í svokölluðum Fyrirlestrum í héraði á vegum Snorrastofu. Sveinn var feng- inn til að sækja Snorrastofu heim í tilefni af uppfærslu á Galdra-Lofti á vegum Ungmennafélags Reykdæla í félagsheimilinu Logalandi í Reyk- holtsdal. Eftir fyrirlesturinn verður leikrit- ið sýnt en einungis eru fimm sýning- ar eftir, sú síðasta annan í páskum. Yorinu til dýrðar BLESSAÐ vor er yfirskrift vortónleika Samkórs Selfoss sem haldnir verða í Selfoss- kirkju annað kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20.30. Tónleik- arnir eru liður í undirbúningi fyrir ferð kórsins til Ung- verjalands í sumar. Á efnisskránni má m.a. sjá Silunginn eftir Schubert sem sunginn er í 10 tilbrigðum Franz Schöggl í stíl hinna ýmsu höfunda við texta Hjart- ar Þórarinssonar. Stjómandi Samkórs Selfoss er Edit Molnar og undirleikari Miklós Dalmay og munu þau hjón leika fjórhent á píanó. KÓR Snælandsskóla í Kópavogi heldur kveðjutónleika í Hjalla- kirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20, en kórinn fer til Norfolk í Bandaríkjunum til að taka þátt i menningarhátíðinni Alparósar- hátíð á miðvikudag. Hátíðin er haldin á hverju ári og er ávallt ein NATO-þjóðanna í heiðurssæti. í ár eru það Islendingar sem verma það sæti og er ferð kórsins hluti fram- lags íslendinga til hátíðarinnar. Á tónleikunum í kvöld verður frumflutt lag sem sérstaklega var samið af þessu tilefni. Lagið er eft- ir Ilildigunni Rúnarsdóttur við ljóðið „Móðir blómanna" eftir Sig- rúnu ísleifsdóttur. Sigrún er kórfé- lagi og samdi ljóðið fyrir þremur árum, þá 12 ára, en Sigrún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir ljóð sín. Hjallakirkja kostar verkið og sýnir þannig stuðning sinn við kórinn. Undirleikarar á píanó á tónleik- unum eru þau Kristinn Örn Krist- insson og Lóa Björk Jóelsdóttir. Stjórnandi kórsins er Heiðrún Há- konardóttir og hefur hún starfað með kórnum síðustu fjögur árin. Kórinn mun einnig syngja á nor- rænu víkingasýningunni sunnu- daginn 30. apríl sem opnuð verður 27. apríl í Smithsonian-safninu í Washington. í ferðinni mun kórinn kynna íslenska tónlist frá ýmsum tímum. í Snælandsskóla starfa 110 börn í ýmsum kórum eftir aldri, þau yngstu eru 9 ára og þau elstu eru nú útskrifuð úr skólanum. Kórinn fór í sína fyrstu ferð til útlanda ár- ið 1998, á norrænt barna- og ung- lingakóramót, Norbusang 9, í Stav- anger í Noregi. Árið 1999 gaf kórinn út gcisladiskinn „Fagur er Fossvogsdalur", en nafn disksins er dregið af samnefndu lagi sem Mist Þorkelsdóttir tónskáld samdi fyrir kórinn í tilefni 25 ára afmælis skólans. Vorsýning Listdans- skóla Islands VORSÝNING Listdansskóla ís- lands verður á Stóra sviði Borgar- leikhússins á morgun, miðvikudag, kl. 20. Á sýningunni koma fram allir nemendur skólans og hafa þeir verið á annað hundrað í vetur. Á sýning- unni verður sýnd sú breidd í dansin- um sem skólinn kennir: klassískur listdans, nútíma listdans, djass, karakterdans og spuni. Frumsamin verk eftir kennara skólans verða ílutt ásamt atriðum úr ballettinum Svanavatninu. Nemendaflokkur skólans fer til Avignion í Frakklandi í ágúst og bor- ist hefur boð frá Nuuk á Grænlandi um að koma með nemendahóp í júlí í sumar á unglingamót og koma þeir til með að sýna í menningarhúsi Grænlendinga. ----f-4-*--- Vortónleikar Rangæinga- kórsins RANGÆINGAKÓRINN í Reykja- vík heldur tónleika í Seltjarnarnes- kirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Einsöng með kórnum syngja Elín Ósk Óskardóttir, Kjartan Olafs- son og Gissur Páll Gissurarson. Undirleikari á píanó er Hólmfríður Sigurðardóttir og á þverflautu Marí- anna Másdóttir. Á efnisskránni eru íslensk kóra- lög. Stjórnandi kórsins er Elín Ósk Óskarsdóttir Sveinn Einarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.