Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 33 VORTONLEIKAR hann nyti að vísu einhvers góðs af hlutfallslega hæn-i meðalaldri en hinir. Stjórnandinn hélt fullum töglum og högldum frá orgelinu, og luku Langhyltingar fremur stuttu en bráðvel fluttu prógrammi á afar frumlegu og tilkomumiklu litlu kanadísku nútímaverki (nöfn titils og höfundar skiluðu sér því miður ekki til undimtaðs), sem kór og organisti fluttu með glæsibrag. Tónninn úr lengst að komnum gestum mótsins, Unglingakór Sel- fosskirkju, var töluvert frábrugðinn Gradualekórnum; skærari og með minni fyllingu í alt (e.t.v. færri og yngri en i GKL), en engu að síður tandurhreinn og sérlega vel mótað- ur í hæðinni, auk þess sem hend- ingamótun almennt var streymandi mjúk og eðlileg. Verkefnavalið var óvænt ferskt og leitandi; hófst á kvennakórslagi úr fangabúðum nazista sem um hefur verið gerð kvikmynd, og tefldi m.a. fram tveim fyiirtaks íslenzkum þjóðlaga- útsetningum eftir Victor Urbancic, skemmtilegu lagi eftir Tryggva Ungar raddir TÓNLIST II a 11 g r í m s k i r k j a KÓRTÓNLEIKAR Ymis inn- og erlend lög. Barna- og Unglingakórar Hallgrímskirkju u. stj. Bjarneyjar I. Gunnlaugsdóttur; Graduale-kór Langholtskirkju u. stj. Jóns Stefánssonar; Unglingakór Selfosskirkju u. stj. Margrétar Bóasdóttur; Kór Snælandsskóla u. stj. Heiðrúnar Hákonardóttur. Orgelundirleikur: Hörður Áskels- son, Jón Stefánsson og Jörg Sond- ermann. Laugardaginn lö. aprfl kl. 15. UNDIR yfirskriftinni Vorsöngur í Hallgrímskirkju hélt Barnakór og Unglingakór staðarins tónleika á laugardaginn var ásamt ofantöldum gestakórum. Þar eð tónleikarnir teygðu sig yfír á fjórðu klukku- stund með tveim hléum var fjöldi viðfangsefna eftir því mikill, og hef- ur því að líkindum verið tekið til bragðs að prenta aðeins tímaáætl- un kóranna í tónleikaskrá (ekki einu sinni nafna stjórnenda var get- ið) og láta nægja að kynna atriðin munnlega. Því miður er hætt við að margt hafi þar með farið á mis við hlustendur, enda hljómburður og núverandi hátalarakerfi kirkjunnar ekki beinlínis hliðhollt töluðu orði. Þegar við bætist téður lagafjöldi verður því að stikla mjög á stóru. Það var ánægjulegt að sjá þann mikla fjölda unglinga saman kom- inn sem nútíma kirkju- og grunn- skólakórstarf getur laðað, og ekki síður að heyra þann athygliverða árangur sem það hefur skilað á seinni árum og sem vissulega mætti gefa meiri gaum en verið hefur, enda að mörgu leyti sam- bærilegt við kórstarf fullorðinna, með eðlilegum fyrirvara vegna ald- ursmunar og þroska. Að enginn kóranna skuli kalla sig stúlknakór, þrátt fyrir litla eða jafnvel enga þátttöku drengja, er kannski jafn- framt einkennandi fyrir von aðstandenda um betri tíð framund- an, þegar knattspyrna og tölvuleik- ir hætta að „fífla ungu hjörtun og deyfa andans glóð“. Yngstu þátttakendur mótsins í Barnakór Hallgrímskirkju sungu fyrst nokkur einrödduð lög hreint og fallega. Þar var endað á afrísku sálmkeðjunnni Zum gali gali og Fræ í frosti sefur, síðasttalda með þátttöku Unglingakórsins. Sá söng síðan hátt á annan tug laga, og mætti m.a. nefna þjóðlagaútsetn- ingar Jóns Asgeirssonar á Gloria tibi og Hjálmars H. Ragnarssonar á Víst ertu Jesú kóngur klár sem vel heppnuð dæmi. Þá var og nokk- uð um glettilega góðan smáhópsöng og einsöng kórstúlkna, t.d. í aríu eftir Hándel og í Quia respexit úr Magnificati Bachs. Óvænt þroskuð söngrödd heyrðist í Pie Jesu Faur- és, og aftur (sú sama) - með jafnvel smá sveifluvotti - í skemmtilegri útsetningu á He had to run úr negrasálmasyrpu UH í lokin. Syrp- an tókst mjög vel, sérstaklega áð- urnefnt lag, Mary had a baby (þrátt fyrir glissandóið sem átti lík- lega að vera „blá“ nóta) og hið sí- hressa Joshua fit de battle ob Jer- icho (þó að fingrasmellirnir hefðu betur átt heima á 2. og 4. slagi í stað 1. og 3.). Um pósitíforgelundir- leik sá Hörður Askelsson af öryggi og smekkvísi. Hljómur kóranna var skemmti- lega ólíkur, og mótaðist sjálfsagt töluvert af ólíkum persónuleikum stjórnenda. Graduale-kór Lang- holtskirkju var þannig með lang- opnasta tónblæ allra og virtist í heild lengst kominn í þjálfun, þótt SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. fsafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavlk: BG bllakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrismýri 5, slmi 482 37 00. Baldvinsson og öðru ekki síðra eftir Selfyssinginn Elínu Gunnlaugsdótt- ur, sem kórinn söng sérlega vel. Um undirleik sá enginn verri en kirkjuorganisti staðarins, Jörg Sondermann, og lukkaðist framar vonum í Tryggva, þótt ekki hefði verið samæft áður með orgeli að sögn stjórnandans. Yngsti kórinn í starfsárum talið var ef að líkum lætur Kór Snæ- landsskóla, sem kom fram síðast á dagskrá, næst á undan samsöng allra kóranna. KS kvað aðeins fjög- urra ára gamall, en hætti sér þrátt fyrir það út á djúpt með því að syngja allra kóra mest a cappella án stuðnings frá orgelinu. Það var ekki lítil áhætta því samfólgin í gímaldi Hallgrímskirkju, sem krefst verulegrar staðarreynslu af jafnvel langsjóuðu söngfólki, enda átti kórinn framan af í vandræðum með inntónun einkum neðri radda, mest í Maístjörnu Jóns Asgeirsson- ar, auk þess sem stjórnandinn virt- ist taka fermötugrúa séra Bjarna í Island farsældar frón fullbókstaf- lega. En allt fór þó þokkalega vel að lokum, ekki sízt að meðtöldum snotrum einsöngsþætti í Augun mín og augun þín (JA). Tónleikunum lauk á fyrrtöldum samsöng allra kóranna undir hand- leiðslu stjórnendanna til skiptis, þar sem ungmennin náðu skínandi fallegri hæð í Sumarsálmi og mjúkri lokalendingu í tveim rúss- neskum þjóðlögum. Ríkarður Ö. Pálsson Rangæingakórsins í Reykjavík Rangæingakórinn í Reykjavík heldur sína árlegu vortónleika í Seltjarnarneskirkju í kvöld þriðjudaginn 18. apríl, kl. 20.30. Efinisskrá tónleikanna mun einkennast af íslenskri tónlist, m.a. tónlist af nýútkomnum geisladiski kórsins „TÍMINN LIÐUR“ Stjórnandi kórsins er Elín Úsk Óskarsdóttir og undirieik á tónleikunum annast Hólmfríður Sigurðardóttir. Kórinn á 25 ára aímæli á þessu ári og af því tilefni bjóða kórfélagar tónleikagestum sínum i afmæliskaffi að tónleikum loknum. !'li. Þorbergur Guomundsson Sölustjóri Hefurbu prófað SUZUKi Grand Vitara dísil? Dísilvélin í Grand Vitara er 2 lítra meö afar gott tog, 216 á 2000 snúningum, sem gefur mjög skemmtilega vinnslu í öllum hefðbundnum akstri. Ef þú keyrir mikið að jafnaði (meira en 20 þús. km á ári) er dísilvél mun hag- kvæmari en bensínvél. Grand Vitara dísil er afar vel búinn staðalbúnaði og aksturseiginleikarnir frábærir, hvort sem þú ekur innanbæjar eða um hálendið. Þér liður vel um leið og þú sest inn, hann er mjúkur í fjöðrun, sæti eru þægileg og þú hefur gott útsýni til allra átta. $ SUZUKI ✓4» Grand Vrfara - Þægilegi jeppinn TEGUND: VERÐ: GR. VITARA 2,0 L dísil 2.395.000 KR. Sjálfskipting 150.000 KR. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.