Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 49
4
i
i
i
_________UMRÆÐAN________
Mikilvægt skref fyrir
foreldra á vinnumarkaði
RÍKISSTJÓRNIN kynnti fyrir
stuttu að hún myndi leggja fram
frumvarp að nýjum lögum um fæð-
ingar- og foreldraorlof. Jafnframt
var aðilum vinnumarkaðarins kynnt
meginefni væntanlegs frumvarps.
Óhætt er að fullyrða að verði frum-
varpið, eins og það hefur verð kynnt,
að lögum felur það í sér mikilvægar
réttarbætur fyrir þungaðar konur og
foreldra á vinnumark-
aði. Mikilvægt er að ný
löggjöf um fæðingar-
og foreldraorlof verði
afgreitt á yfirstandandi
þingi og að þær réttar-
bætur sem þar er að
finna komi sem fyrst til
framkvæmda.
Barátta ASÍ skilar
árangri
Rétt er að hafa í
huga að frumvarp rík-
isstjórnarinnar nú fell-
ur ekki af himnum of-
an. Alþýðusamband
íslands hefur síðustu
misseri beitt sér sér-
staklega fyrir úrbótum
í réttindamálum foreldra og þung-
aðra kvenna á vinnumarkaði og sett
fram heildstæða stefnu á því sviði.
Réttindamál foreldra voru meðal
þess sem Alþýðusambandinu var af
aðildarsamtökum sínum falið að
ræða sérstaklega við stjórnvöld í
tengslum við gerð kjarasamninga
nú. I framhaldi af kröfu ASÍ var í yf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10.
mars sl. heitið endurbótum í þeim
málaflokki. I þvi frumvarpi sem rík-
isstjómin hefur kynnt er í öllum
atriðum komið verulega til móts við
sjónarmið og áherslur Alþýðusam-
bandsins. Það er mikilvægur áfangi í
þá átt að bæta réttindi þungaðra
kvenna, foreldra á vinnumarkaði og
bama þeirra. Jafnframt liggur iyrir
að gera þarf enn betur á næstu áram.
Réttindi þungaðra kvenna
og kvenna með barn á
bijósti loks tryggð
Af hálfu ASÍ hefur verið lögð rík
áhersla á að treysta réttarstöðu
þungaðra kvenna á vinnumarkaði.
TOskipun Evrópusambandsins nr.
92/85 um réttindi þungaðra kvenna
og kvenna með böm á brjósti er ætl-
að að tryggja tiltekin lágmarksrétt-
indi í þessum efnum á öllu Evrópska
efnahagssvæðinu. Gildistaka tilskip-
unarinnar hér á landi var hins vegar
ófullnægjandi og því kærði Alþýðu-
sambandið hana á síðasta ári til Eft-
irlitsstofnunar EFTA.
í því framvarpi sem nú hefur verið
kynnt hefur ríkisstjómin tekið að
fullu tillit til kæraefna og athuga-
semda ASÍ. Með samþykkt frum-
varpsins era réttindi þungaðra
kvenna og kvenna með börn á brjósti
treyst og verða í samræmi við það
sem gerist í nágrannalöndum okkar.
Launafólk og samtök þess hljóta að
fagna þessum réttarbótum sérstak-
lega.
Lengra og sveigjanlegra
fæðingarorlof tengt tekjum
Af hálfu ASÍ hefur verið lögð meg-
ináhersla á að auka rétt beggja for-
eldra, lengja fæðingarorlofið, að
greiðslur í fæðingarorlofi verði
ákvarðaðar sem hlutfall af heildar-
launum og að mögu-
leikar foreldra á sveigj-
anleika við töku
orlofsins verði auknir
veralega, auk þess sem
réttindi foreldra í fæð-
ingarorlofi verði treyst.
I framvarpi ríkis-
stjómarinnar er komið
til móts við þessar
áherslur með afdrátt-
arlausum hætti. Fæð-
ingarorlofið verður 9
mánuðir þegar lögin
era að fullu komin til
framkvæmda, 3 mán-
uðir bundnir móður, 3
mánuðir bundnir föður,
og þremur mánuðum
geta foreldrar ráðstaf-
að sín á milli að vild. Með þessu er
stigið róttækt skref í að jafna rétt
foreldra til fæðingarorlofs um leið og
vonir standa til að þessi ráðstöfun
leiði til jafnari stöðu og jafnari mögu-
Frumvarp
*
I frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar, segir Halldór
Grönvold, felast mikil-
vægar réttarbætur
fyrir foreldra á
vinnumarkaði.
leika kynjanna á vinnumarkaði.
Körlum er gert mögulegt að axla
meiri ábyrgð á bömum og heimili og
atvinnurekendur eiga síður að geta
gengið að því vísu, eins og nú er, að
konurnar beri jafnan ábyrgð á að
annast bömin en karlamir taki yfir-
leitt starfið fram yfir fjölskyldu-
ábyrgðina.
Sveigjanleikinn er aukinn og gert
er ráð fyrir því að foreldrar geta tek-
ið fæðingarorlofið í einu lagi eða tek-
ið það í áföngum og/eða samhliða
skertu starfshlutfalli. Þessi sveigjan-
leiki er eitt af því sem ASÍ lagði sér-
staka áherslu á. Fæðingarorlof má
nýta allt til 18 mánaða aldurs bams-
ins og lengur ef um er að ræða ætt-
leiðingu eða varanlegt fóstur.
Framvarpið gerir ráð fyrir að
greiðslur í fæðingarorlofi miðist við
80% af heildarlaunum, en ekki að
fullu. Þetta þýðir mjög mikla réttar-
bót fyrir þorra foreldra á almennum
vinnumarkaði frá því sem nú er um
leið og tryggt er að enginn tapi á frá
því sem nú er. Þá er ekki síður mikil-
vægt að fólk heldur áfram að ávinna
sér öll réttindi á vinnumarkaði með-
an á orlofstökunni stendur. Má nefna
sem dæmi lífeyrisréttindi, ýmis rétt-
indi tengd starfsaldri og réttindi til
töku orlofs. Þá er vemd foreldra
tengd töku fæðingar- og foreldraor-
lofs treyst enn frekar.
Foreldraorlof -
framtíðarverkefni
Auk fæðingarorlofs er í framvarp-
inu kveðið á um rétt foreldra til töku
foreldraorlofs, í allt að 13 vikur fyrir
hvort foreldri, vegna fæðingar,
framættleiðingar eða töku bams í
varanlegt fóstur. Foreldraorlofið
verður hægt að taka allt til átta ára
aldurs barnsins. Hér er um algera
nýjung að ræða hér landi en til
grandvallar liggur skylda stjórn-
valda og alþingis til að lögleiða
Evróputilskipun þessa efnis. Tilskip-
unin um foreldraorlof er árangur af
starfi evrópskrar verkalýðshreyfing-
ar og samningum um þetta efni á
Evrópuvettvangi sem ASÍ tók þátt í
að gera á árinu 1995. í reynd verður
sameiginlegur réttur foreldra til or-
lofstöku vegna fæðingar- og for-
eldraorlofsins þannig 15 mánuðir
vegna bams, í stað 6 mánaða nú. Af
því er með framvarpinu aðeins
tryggður réttur til greiðslu í 9 mán-
uði.
ASI hefði kosið að framvarpið
tryggði foreldrum einnig rétt til
greiðslu í foreldraorlofi og hefur
haldið því sjónarmiði til haga í allri
umræðu. Það náðist hins vegar ekki
fram að þessu sinni, en hlýtur að
vera sjálfsagt næsta skref í frekari
úrbótum á réttindakerfi fyrir for-
eldra á vinnumarkaði og börn þeirra.
Tryggjum framgang
frumvarpsins
Auk þess sem að framan segir er
með framvarpinu stefnt að einni lög-
gjöf fyrir alla foreldra á vinnumark-
aði. Með því er stigið mikilvægt skref
í því að jafna réttindi foreldra og
barna þeirra óháð því hvort þeir
starfa á almennum vinnumarkaði
eða hjá hinu opinbera eða stéttarfé-
lagsaðild. Mikilvægt er að þessu
markmiði verði náð enda með öllu
óviðunandi að stjómvöld mismuni
þegnunum á grandvelli gamallar
skiptingar launafólks í opinbera
embættismenn og almennt launa-
fólk.
Að lokum skal áréttaður stuðning-
ur við meginefni framvarpsins um
leið og því er fagnað sem mikilvæg-
um áfanga í réttarbótum fyrir for-
eldra á almennum vinnumarkaði og
böm þeirra. Jafnframt hlýtur verka-
lýðshreyfingin að áskilja sér rétt til
að koma með ábendingar og breyt-
ingartillögur við einstök efnisatriði
framvarpsins þegar það kemur til
umfjöllunar á Alþingi.
Höfundur er skrífstofustjóri
Alþýðusambands Islands.
Halldór
Grönvold
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarssun
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 13. apríl lauk
tveggja kvölda páskaeggjatvímenn-
ingi með þátttöku 18 para og fóra
leikar þannig:
Ragnar Bjömsson - Sigurður Siguijónss.
390
Erla Siguijónsd. - Dröfn Guðmundsd. 372
Sigtryggur Jónsson-FriðjónVigfússon 363
Inga Lára Guðmundsd. - Unnur Sveinsd.347
Þrjú efstu pörin unnu sér inn veg-
leg páskaegg í verðlaun og að auki
vora dregin út tvö pör sem unnu
aukaverðlaun í formi páskaeggja og
æxlaðist það þannig að pör númer
fjögur og sex, Inga Lára og Unnur
og Freyja og Jón Steinar fengu þessi
veglegu aukaverðlaun.
Fimmtudaginn 20. apríl verður
ekki spilað vegna páska.
Fimmtudaginn 27. apríl hefst
þriggja kvölda vortvímenningur
Nestlé í boði Gunnars Kvaran ehf. og
mun íyrirtækið gefa rausnarleg
verðlaun í formi veglegra matar-
karfna.
Bridsfélag Kópavogs vill óska öll-
um landsmönnum gleðilegra páska.
Heimamenn sigruðu í svæðis-
móti Norðurlands eystra
Svæðismót Norðurlands eystra í
tvímenningi var spilað 8. apríl á
Húsavík með barometer-fyrirkomu-
lagi. Sigurvegarar urðu Guðmundur
Halldórsson og Hlynur Angantýs-
son, B.H. sem hlutu 37 stig. Pejg^
unnu sér rétt til að spila í úrslitum
Islandsmótsins í tvímenningi næsta
haust. í 2.-3. sæti urðu Sveinbjörn
Sigurðsson og Hans Viggó Reisen-
hus, B.A og þeir Hákon Sigmunds-
son og Kristján Þorsteinsson, B.D.Ó.
með 29 stig. Þórhallur Hermannsson
og Sigurður Marteinsson urðu
fjórðu með 22 stig.
Páskaeggjatvímenningnr
á Akureyri
Þriðjudaginn fyrir páska kl. 19:30
(í kvöld) verður spilaður tvímenning-
ur í Hamri við Skarðshh'ð á veguwj—
BA. með viðeigandi verðlaunum.
Allt bridsfólk er velkomið og beðið
að mæta tímanlega til skráningar.
vg> mbl.is
-4Í.Í.7MF eiTTHVPKÐ tSiÝTT
Úr 1. málsgrein
28. greinar umferðartaga
nr. 50/1987
Lögreglan
í Reykjavík
• Eigi má stöðva ökutæki
eða leggja því á gang-
braut eða í minna
en 5 metra fjarlægð áður
en að henni er komið.
||| Bílastæðasjóður
Skeifunni 11 - Sími 58Ö 9890 - Veffang orninn.is Opið kl. 9-18 virka daga og kl. 10 16 laugardaga