Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Okkar ástkæra, NÍNA BJÖRK ÁRNADÓTTIR skáld, Flyðrugranda 6, dó í Reykjavík sunnudaginn 16. apríl. Ari Gísli Bragason, Sigríður Hjaltested og Ragnheiður Björk Aradóttir, Valgarður Bragason, Ragnar ísleifur Bragason, Bragi Kristjónsson, Lára Hólmfreðsdóttir, Ólafur Þór Árnason, Halldór Gísli Guðnason. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN HALL, Vesturgötu 52, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Fossvogi mánu- daginn 17. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Hannes Hall, Herdís Hall, Sigurður Hall, Kristján Hall, Ragnar Halldór Hall, Steindór Hall, Gunnar Hjörtur Hall, María Björk Skagfjörð, Ingi Ú. Magnússon, Elisabet Gígja, Elsa Hall, Guðríður Gísladóttir, Sigurveig Alfreðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona min, fósturmóðir okkar, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR frá Flateyri, lést á Landspítalanum laugardaginn 15. apríl. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. apríl kl. 15.00. Jarðsett verður frá ísafjarðarkirkju laugar- daginn 22. apríl kl. 14.00. Kristján V. Jóhannesson, Jóhannes Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir, Ásgeir Magnússon, Svanfríður Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar kæri mágur og svili, MARVIN MINSKE, Waseca, Minnesota, lést fimmtudaginn 13. apríl. Alda Gísladóttir, Brynleifur Sigurjónsson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem !_ sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, fóstur- föður, tengdaföður, afa og iangafa BJÖRGVINS LÚTHERSSONAR, Básbryggju 51, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins og til lækna og starfsfólks göngudeildar krabbameins- lækninga Landspítalans. Bogga Sigfúsdóttir, Eydís Rebekka Björgvinsdóttir, Þröstur Ólafsson, Rikharð Björgvinsson, Björgvin Björgvinsson, Sigurður Lúther Björgvinsson, Steinar Björgvinsson, Sólrún Björk Björgvinsdóttir, Ásta Björgvinsdóttir, Anna Björgvinsdóttir, Auðunn Þór Almarsson, Gunnar Steinn Almarsson, Sigurður S. Almarsson, Kristín Hjartardóttir, Kristín Marja Baldursdóttir, Hrafnhildur Gísladóttir, Kristín Röver, Michael L. Hunt, Páll Heiðar Jónsson, Halldór Þorsteinsson, Þórey Eyjólfsdóttir, Kristín Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÞORSTEINN HÖRÐ- UR BJÖRNSSON + Þorsteinn Hörð- ur Björnsson vélfræðingur fædd- ist í Reykjavík 2. júní 1926. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 28. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Björn Krisfján Gottskálks- son, útgerðarmaður, fæddur á Stakk- hamri í Miklaholts- hreppi 1. október 1896, d. 5. janúar 1974, og Laufey Guð- mundsdóttir, fædd á Stokkseyri 14. júlí 1904, d. 7. febr- úar 1993. Stjúpfaðir hans var Ein- ar Oskar Þórðarson, húsgagna- smiður, fæddur á Súgandafirði 20. nóvember 1905, d. 13. júlí 1979. Þorsteinn Hörður ólst upp á heim- ili móður sinnar og sfjúpföður, sem reyndist honum hinn besti fað- ir og einkenndist samband þeirra af virðingu og vináttu. Systkini Þorsteins Harðar eru Þórir Ein- arsson, f. 1933, Sigríður Erna Ein- arsdóttir, f. 1937, Gottskálk Þor- steinn Björnsson, f. 1935, og María Sesselja Björnsdóttir, f. 1937, d. 1941. Þorsteinn Hörð- ur kvæntist, 21. júní 1947, Arnheiði Einar- sdóttur, f. 10. ágúst 1922, á Búðarhóli í Austur-Landeyjum, foreldrar hennar voru Einar Högnason bóndi þar, fæddur á Núpi í Fljótshlíð 16. júní 1887, d. 20. júní 1931, og kona hans Jónheið- ur Einarsdóttir skreð- ari, fædd á Arngeirs- stöðum í Fljótshlíð 11. september 1884, d. 20. október 1968. Börn Þorsteins Harðar og Arn- heiðar eru: 1) Eyrún, f. 1945, henn- ar maður Guðmundur Hanning Kristinsson, synir þeirra Högni, f. 1970, Kristinn Hörður, f. 1972, Arnþór, f. 1974 og barnabörnin eru fjögur. 2) Heiður, f. 1949, hennar maður Guðmundur J. Ein- arsson, börn þeirra, Þorsteinn Örn, f. 1966, Garðar Örn, f. 1974, Arnheiður, f. 1977, Einar Örn, f. 1980 og barnabörnin eru tvö. 3) Einar, f. 1950, lést af slysförum 6. janúar 2000, dætur hans og Vil- borgar Elínar Kristjónsdóftur eru Elsku afl í Bugðulæk. Núna ert þú kominn þangað sem allir fara á endanum. Mig dreymdi svo failegan draum um þig nóttina eftir að þú fórst. Þú sagðir mér að nú væri allt miklu betra og því trúi ég alveg. Þú varst okkur krökkunum svo mikið. Þegar þú og amma fóruð með okkur upp í Skorra, mig, Jónheiði, Jaokb Árna, Arnheiði, Einar Örn og Ömu Dögg. Ohh! Við skemmtum okkur alltaf svo vel. Þú varðst aldrei þreyttur á að fara með okkur í sund eða í Borgames. Þá var alltaf hægt að plata þig til að kaupa eitthvað Gróðrarstöðin ™ \ zmúÐ Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480 :iiiiiiiiiiiiiii:£ H H H H H H H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 TTITl ITTTTTT T T T il Blómastqfa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. mjög mjög ómissandi að okkar mati. Sem var ef til vill sunddýr eða snúður með súkkulaði. Einnig eru þær minningar ofar- lega í huga mér þegar ég kom í heim- sókn á Bugðulækinn og fann kæfu- lyktina út á tröppur. Þá stóðst þú inni í eldhúsi og varst að hræra í stóram potti. Kæfan dugði svo í mörg mörg ílát og alltaf fengu allir afakæfu með sér heim, bestu kæfu í heimi. Minningarnar era ótal margar og eiga eftir að skjóta upp kollinum svo lengi sem ég lifi. Afi minn hafðu það gott. Guð geymi þig, ömmu og okkur öll í fjölskyldunni. Þín afastelpa, Bergrún. Hún var Þorsteinsdóttir, en samt hét pabbi hennar Haddi. Skn'tið, svona var það ekki í sveitinni minni. En Haddi var Haddi, þó öll væru börnin hans Þorsteinsbörn. Arna og Haddi, alltaf nefnd í einni andrá, allt- af eitt í nær sextíu ár. Það þýddi ekk- ert að reyna að fá já hjá öðra hefði hitt sagt nei. Þannig voru þau. Varanleg minning er meitlub ístein. Skemmuvegi 48, 200 Kop. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is Helga Hrund, f. 1969, Arnheiður Dögg, f. 1978, og barnabörnin eru tvö. Sonur Einars og Ásu Kristínar Knútsdóttur er Iijalti Knútur, f. 1990, og fósturdætur hans, dætur Ásu, eru Þuríður Annabel Tix, f. 1983 og Yvonne Dorothea Tix, f. 1985. 4) Laufey Hrönri, f. 1952, hennar maður Isleifur Árni Jak- obsson, börn þeirra Jónheiður, f. 1977, Bergrún, f. 1979 og Jakob Árni, f. 1983. 5) Hörður, f. 1957, sambýliskona hans er Margrét Þór. Synir hans og Erlu Bjargar Sigurðardóttur eru Daníel Þór, f. 1974 og Guðfinnur Ýmir, f. 1988. 6) Arna Björk, f. 1960, hennar maður Jóhann Thorarensen, börn þeirra Salka, f. 1990, og Jökull, f. 1992. Þorsteinn Hörður lærði vélvirkj- un í Vélsmiðjunni Steðja, fór síðan í Vélskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi úr rafmagnsdeild 1950. Eftir það starfaði hann á skipum Eimskipafélags Islands um tveggja ára skeið. Haustið 1952 hóf hann störf í Áburðarverk- smiðju ríkisins í Gufunesi, fyrst við uppsetningu verksmiðjunnar og eftir að framleiðsla hófst árið 1954 tók hann við stöðu vaktstjóra og gegndi því starfi þar tii hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Utför Þorsteins Harðar fer fram frá Laugameskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er Arna ein, en hvernig er hægt að minnast hans eins? Það get ég ekki. Arna og Haddi vora ungir foreldrar og gerðu annað með börn- um sínum en gamlir foreldrar gerðu, þó frábærir væra. Það var upphefð að fá að tilheyra barnahópnum þeÚTa að nokkra í síðbemsku og á unglings- áram, það var dýrmætt, ég þakka það. Þar vora alltaf margir saman. I minnistæðu ferðalagi um Suðurnes voram við sex krakkar (Arna Björk var ekki fædd) í aftursætinu á bílnum og það fór bara ágætlega um okkur. Þau munaði ekkert um að bæta sjötta krakkanum við hópinn sinn. Þannig vora þau. Hefði einhver annar en Haddi nennt og treyst sér til að hafa tvær tólf ára stelpur með sér í vinnuna í hættulegri verksmiðju? Hefði nokk- ur annar en Haddi treyst telpukorn- unum til að verða sér ekki að voða og hefði nokkur annar lagt það á sig að gera þeim ljóst hvað mátti þar og hvað ekki? Hann treysti börnum. Hann gerði okkur ljóst að ábyrgðin væri okkar. I vinnunni hjá Hadda heimsóttum við karlana, og það var komið fram við okkur eins og full- orðnar manneskjur, mikilvægar manneskjur, vegna hans. Þar kynnt- umst við Gunnari, sem var hættur að kenna á bíl að mestu, en kenndi okk- ur samt - fyrir Hadda. Haddi vann á millilandaskipum í fríum. Hann keypti tískuföt á fram- burð sinn og aðkomna örverpið, tískuföt, sem voru hreint ekki af veni endanum og nánast nákvæmlega eins og við höfðum óskað okkur. Þessu hélt hann áfram fram á menntaskóla- ár okkar. Hann var smekkmaður. Helgar raddir héðan burt þig kalla. Herrann leggi þig að brjósti sér. Vertu sæll, já sæll um eilífð alla. Englar Drottms stöðugt fylgi þér. (B.B.) Með þessum orðum og minninga- brotum kveð ég mann, sem alltaf sýndi mér föðurlega umhyggju. Elsku Ama og Eyrún mín, Heiður, Einars fólk, blessuð sé minning hans, Hrönn, Hörður og Arna Björk, svo og aðrir aðstandendur. Samúð mín er hjá ykkur. Blessuð sé minning Þor- steins Harðar Björnssonar. Þórey Guðmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.