Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 12
12 ÞRIÐ JUDAGUR 18. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lágfargjaldaflugfélagið Go byrjar áætlunarflug til Islands 26. mai
Helmingur
flugsæta
seldur á 10
þúsund kr.
BRESKA flugfélagið Go byrjar
reglubundið áætlunarflug til Islands
26. maí nk. en flogið verður fjórum
sinnum í viku í sumar á milli Kefla-
víkur og London. Go, sem er dóttur-
fyrirtæki British Airways, er svo-
kallað lágfargjaldafélag og mun
flugfarið kosta á bilinu 10-24 þúsund
krónur fram og til baka en að sögn
Davids Maglianos, sölu- og markaðs-
stjóra Go, er meiningin að um helm-
ingur allra flugsæta verði seldur á
lægra verðinu.
Fulltrúar Go eru hér á landi um
þessar mundir til að kynna starfsemi
fyrirtækisins en að sögn Maglianos
hófst sala flugmiða í Bretlandi þegar
í mars. Viðbrögðin hafa verið afar
góð og segir Magliano þar margt
spila inn í. „Sú staðreynd að Reykja-
vík er menningarborg Evrópu í ár
hefur haft áhrif og breskir fjölmiðlar
hafa líka fjallað mjög mikið um borg-
ina undanfarin misseri og hún hefur
það orð á sér að vera „heit“ um þess-
ar mundir,“ segir hann.
Islendingum mun bjóðast flugmiði
til London á tíu þúsund krónur báð-
ar leiðir með sköttum og er þetta
lægsta verðið sem í boði verður fyrir
flugsæti. Um helmingur allra sæta
verður seldur á þessu verði, að sögn
Maglianos, en skilyrðin eru þau að
menn bóki fyrirfram og að þeir
dvelji aðfaranótt sunnudags. Enn-
fremur er ekki hægt að gera breyt-
ingar á pöntuninni eftirá.
I boði verða hins vegar einnig dýr-
ari flugsæti fyrir þá sem vilja meira
frelsi, þ.e. að geta breytt dagsetn-
ingum, hætt við ferðina og sleppt þvi
að dvelja sunnudagsnóttina erlendis.
Dýrasta flugfargjaldið kostar þó
ekki meira en 24 þúsund krónur með
sköttum.
Öllum rekstrarkostnaði
haldið í lágmarki
Svonefnd lágfargjaldafélög hafa
verið við lýði í Bandaríkjunum um
tuttugu ára skeið en einungis nýver-
ið tekið að hasla sér völl í Evrópu.
Magliano segir skýringuna þá að
Evrópusambandið haíl rofíð þær
hömlur sem giltu um flugrekstur ár-
ið 1997 sem olli því að flugfélög geta
nú flogið til þeirra áfangastaða sem
þau kjósa og sett upp þau verð sem
þeim sjálfum sýnist. Tók British
Airways þá ákvörðun 1998 að stofna
dótturfélag sem myndi svara kröfum
um aukið framboð ódýrra fargjalda,
en Go er þó rekið sem sjálfstætt fyr-
irtæki og er óháð rekstri BA.
Magliano segir ástæðuna fyrir því
að Go getur boðið svo lág flugfar-
gjöld þá að öllum kostnaði er haldið í
lágmarki hjá fyrirtækinu. Fargjöld-
in eru seld beint til viðskiptavinanna,
annaðhvort á netsíðu fyiirtækisins,
www.go-fly.com, eða í síma 44 1279
666388.
Ekki verður sett á laggirnar skrif-
stofa hér á landi, fremur en annars
staðar þar sem Go hefur komið undir
sig fótunum, og allir þeir sem kaupa í
gegnum síma þurfa að hringja til
Bretlands. Skrifstofu- og stjórnun-
arkostnaður er því mjög lítill hjá Go.
Farþegar Go fá ekki heldur fríar
máltíðir um borð í flugvélum þess
eða yfirhöfuð nokkum skapaðan hlut
gefins og segir Magliano að kannan-
ir hafi einfaldlega leitt í ljós að far-
þegar kæri sig ekkert endilega um
ókeypis dagblöð, teppi, kodda eða
máltíðir á flugferðum sem eru styttri
en þrjár klukkustundir, ef flugmið-
inn er keyptur sanngjörnu verði.
Magliano tekur hins vegar fram að
boðið sé upp á léttar veitingar gegn
vægu verði í flugvélunum.
Loks nefnir Magliano að Go geri
starfsemi sína út frá Stansted-flug-
velli en ekki Heathrow. Þar séu að-
stöðugjöld lægri en á Heathrow auk
þess sem flugumferð er þar mun
minni, sem aftur veldur því að minni
tími fer til spillis á jörðu niðri hjá
flugfélögum sem byggja rekstur
sinn á því að nýta flugvélarnar sem
best.
Andlát
GRIMUR EYSTUROY
GUTTORMSSON
GRÍMUR Eysturoy
Guttormsson, kafari
og skipasmiður, lést í
gær. Hann var fæddur
í Færeyjum 28. júlí
árið 1919, yngstur í
hópi ellefu systkina.
Foreldrar hans voru
Guttormur Eysturoy,
stundum kallaður hinn
færeyski Sókrates, og
Sara María Jonson.
Afi Gríms var einn af
forystumönnum í
sjálfstæðisbaráttu
Færeyja á síðustu öld.
Að loknu barna-
skólanámi fór Grímur í iðnnám og
varð fyrstur Færeyinga til að ljúka
prófi í skipasmíði. Hann starfaði
við skipasmíðar í Færeyjum frá
1936-1945, en hann fluttist til ís-
lands árið 1945 og hóf störf við
skipasmíðar. Á stríðsárunum kaf-
aði hann mikið fyrir breska herinn
pg þegar hann kom til
íslands var hann fljót-
lega beðinn að taka að
sér verk á sviði köfun-
ar. Hann tók þátt í að
byggja upp slipp í
Reykjavík og á Norð-
firði. Hann vann lengi
við köfun við hafnar-
gerð og vann samtals
við gerð 22 hafna víða
um land. Meðal þess
sem Grímur fékkst við
var að bjarga olíu úr
olíubirgðaskipinu E1
Grillo sem fórst í
Seyðisfirði. Við það
verk fór hann 81 ferð niður að skip-
inu og bjargaði úr því 4.500 smá-
lestum af svartolíu.
Grímur tók þátt í að stofna Kaf-
arafélag íslands og sat í fyrstu
stjórn þess. Forseti íslands sæmdi
hann heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu um síðustu áramót.
Morgunblaðið/Ásdís
David Magliano, sölu- og markaðsstjóri Go, kynnir áætlunarflug félags-
ins á milli London og Keflavíkur í sumar.
Öryggis- og gæðastaðlar
háir þrátt fyrir lág verð
Magliano segir að um 50% við-
skiptavina Go kaupi farmiða sína á
Netinu og búist sé við að hlutfallið
hækki enn frekar á næstunni. „En ef
þú vilt ekki bóka á Netinu verður þú
að hringja í okkur beint í Bretlandi.
Þú bókar sætið þitt í gegnum símann
og greiðir miðann strax með
greiðslukorti. Við gefum ekki út
flugmiða en sendum þér hins vegar
staðfestingu á viðskiptunum og
ferðatilhögun þinni,“ segir hann.
„Þessi staðfesting er einungis hugs-
uð þér til þæginda og virkar ekki
sem flugmiði. Það skiptir t.d. engu
þó að þú gleymir henni heima, það
eina sem viðskiptavinurinn þarf að
hafa meðferðis þegar hann heldur af
stað í ferðalag sitt er vegabréfið."
Go mun fljúga frá London til
Keflavíkur öll mánudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og sunnudags-
kvöld og strax til baka, og er brottför
frá Keflavík kl. 2 um nótt. Magliano
segir þessa flugtíma auðvitað ekki
henta öllum en það sé hins vegar
m.a. þeirra vegna sem hægt sé að
bjóða upp á svo ódýr flugfai’gjöld.
Hann leggur hins vegar áherslu á
að þó að Go bjóði upp á ódýr flugfar-
gjöld séu öryggis- og gæðastaðlar
þeir sömu og hjá British Airways.
Lögð sé áhersla á að áætlanir stand-
ist og reyndar sé það lykillinn að
allri starfsemi fyrirtækisins. For-
senda þess að Go geti skilað hagnaði
sé nefnilega eins mikil notkun á flug-
vélum fyrirtækisins og mögulegt er,
en til þess að það geti gengið upp
þurfi menn ávallt að halda áætlun.
Flugfloti Go eru þrettán Boeing
737-300-flugvélar og taka þær 148
farþega í sæti. Sex vélanna eru
glænýjar, að sögn Maglianos, og
engin flugvélanna er meira en tíu ára
gömul. Hefur félagið vaxið mjög
hratt og flutt um 2,5 milljónir far-
þega síðan það tók til starfa árið
1998. Það flýgur nú til 18 áfanga-
staða og má þar nefna Kaupmanna-
höfn, Prag, Edinborg, Róm, Feneyj-
ar, Mílanó, Flórens, Madrid,
Barcelona og Lissabon.
Meta forsendur áframhaldandi
áætlunarflugs síðsumars
Áætlunarflug Go milli Keflavíkur
og London stendur frá 26. maí til 27.
september en Magliano segir að
síðsumars ættu menn að geta lagt
mat á hvort forsenda sé fyrir áfram-
haldandi flugi hingað til lands. Hann
segir Go verða að sýna varkárni þeg-
ar flugfélagið færi sig inn á nýjan
markað en þar á bæ geri menn sér
engu að síður miklar vonir um
árangur á Islandsmarkaði.
„Við gerum ráð fyrir að fá til okk-
ar viðskiptavini af þrennum toga,“
segir hann. „Fyrst er að nefna yngra
fólk, e.t.v. námsmenn sem einfald-
lega eiga ekki of mikið af peningum
og vilja komast til London fyrir eins
Ktinn pening og hugsanlegt er. Síðan
er um að ræða sumarleyfisferða-
mennina sem e.t.v. vilja eyða helgi í
London til að versla, fara á tónleika
eða horfa á knattspyrnuleik. Þetta
fólk á í mörgum tilfellum peninga, en
það vill bara ekki eyða þeim í flug-
fargjaldið. Þvert á móti vill það hafa
meira fé handa milli til að versla eða
búa á góðu hóteli og geta leyft sér að
borða á dýrum veitingahúsum.“
í þriðja lagi segist Magliano
reikna með að margir íslendingar
muni vilja nýta sér ódýrt tengiflug
með Go en félagið flýgur til átján
borga í Evrópu eins og áður sagði.
Ennfremur segir hann það reynslu
þeirra að sjálfstæðir atvinnurekend-
ur og minni fyrirtæki, sem þurfi að
huga vel að útgjöldum sínum, hafi
beint viðskiptum sínum í nokkrum
mæli til Go.
Ný heilsugæslustöð
rís í Grafarvogi
SAMNINGUR um byggingu nýrr-
ar heilsugæslustöðvar í Grafarvogi
hefur verið undirritaður og er
stefnt að því að hún verði tekin í
notkun vorið 2001. Heilsugæslu-
stöðin verður byggð sem einka-
framkvæmd og mun Þyrping hf. sjá
um byggingarframkvæmdir og leig-
ir Heilsugæslu Reykjavíkur hús-
næðið til 25 ára, en að þeim tíma
loknum hefur heilsugæslustöðin
forleigurétt á húsnæðinu. Nýja hús-
næðið verður 1.500 fermetrar og
verður á verslunar- og þjónustu-
svæðinu Spönginni í Grafarvogi.
Leigan er rúmar 1.100 þúsund
krónur á mánuði og er reiknað með
að húsnæðið verði tilbúið næsta vor.
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Heilsugæslunnar í Reykjavík, segir
að reiknað sé með að þarna verði
starfandi tíu heilsugæslulæknar,
auk hjúkrunarfræðinga og annarra
starfsmanna, þegar húsnæðið verð-
ur komið í fulla notkun. í núverandi
heilsugæslustöð Grafarvogs eru
starfandi fimm læknar, en að sögn
Guðmundar er reiknað með að
fjölgað verði strax um tvo til þrjá
lækna þegar flutt verður í nýja hús-
næðið.
í dag eru um 17.000 íbúar í Graf-
arvogi og segir Guðmundur að yfir-
leitt sé talið æskilegt að einn læknir
sé fyrir hverja 1.500 íbúa.
„En það er alltaf svolítill munur á
því hvenær fólk byrjar að sækja
þjónustu á heilsugæslustöð í hverf-
inu eftir að það flytur þangað. Það
er þó greinilegt að það þarf meira í
framtíðinni en þessa tíu lækna stöð,
en vonandi dugir hún næstu árin.
Níu af hundraði allra barna yngri
en fimm ára eiga heima í Grafar-
vogi, þannig að það er ekki seinna
vænna að auka þjónustuna þarna,“
segir Guðmundur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðmundur Einarsson, forstjdri Heilsugæslu Reykjavíkur og Ingibjörg
Pálmaddttir heilbrigðisráðherra handsala samninginn, en Sigurður
Gísli Pálmason hjá Þyrpingu hf. fylgist með.
I
I