Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 37

Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 37
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ IMtfjguiMjifeifr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VELFERÐ BARNA OG UNGLINGA ÆSKAN er fjöregg lands og þjóðar og því skiptir öllu máli, að vel sé búið að börnum og unglingum og vel- ferð þeirra tryggð. Þeirra er framtíðin og hlutverk full- orðinna er að sjá til þess, að þau geti gengið^ fram á veg sem frjálshuga og sjálfstæðir einstaklingar. Urslitum um gæfu þeirra og gengi ræður fjölbreytt menntun, vinnu- semi og tækifæri til sköpunar. I uppeldi barna og unglinga er fátt mikilvægara en öryggi og festa og reyndar góðvilj- aður agi. Þessi sannindi þurfa þeir fullorðnu að hafa í huga, jafnt foreldrar sem kennarar og aðrir þeir, sem koma að uppeldi og þroska barna og ungmenna. Alþingi setti á fót fyrir fimm árum embætti umboðs- manns barna og er tilgangurinn að sjálfsögðu að bæta stöðu þeirra í síbreytilegum heimi og tryggja réttindi þeirra í þjóðfélaginu. Umboðsmaður barna hefur verið frá upphafi Þórhildur Líndal. Hún segir, að í málefnum barna standi Islendingar sig að mörgu leyti ágætlega á ýmsum sviðum, en séu nokkrir eftirbátar á öðrum. Þar nefnir hún sérstaklega, að ennþá vanti hér á landi opinbera heildar- stefnu í málefnum barna og ungmenna. I kjölfar slíkrar stefnumótunar þurfi síðan að koma áætlun til nokkurra ára af hálfu stjórnvalda um framkvæmd þeirrar stefnu. Nú sé komin fram á Alþingi tillaga þessa efnis, sem allir þingflokkar standi að, og bindur umboðsmaðurinn vonir við að tillagan fái brautargengi í þingsölum. Með því væri stórt skref stigið. í viðtali við Þórhildi Líndal í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag kemur m.a. fram, hvaða mál það eru, sem mest brenna á börnum miðað við reynslu embættisins. Þar ber hæst einelti, sem þau verða fyrir af öðrum nemendum í skólum og jafnvel einstökum starfsmönnum, svo og erfiðleikar barna vegna skilnaðar eða sambúðarslita foreldra. Loks nefna börnin til virðingarleysi, sem þeim er sýnt af hálfu fullorðinna. Umboðsmaður leggur mikla áherzlu á, að börn eigi mannréttindi sem aðrir og að tekið sé tillit til skoðana þeirra í málum er þau snerta. A því telur hún mis- brest. Til að tryggja öryggi þeirra telur hún koma til álita, að leiðbeinendur barna sýni sakarvottorð við umsókn um starf. Þórhildur segir m.a. í viðtalinu: „Eg tel mig merkja, að hér á landi hafi á undanförnum árum orðið nokkur hugar- farsbreyting í málefnum er tengjast börnum. Við eigum þó langt í land með að viðurkenna börn sem sjálfstæða einstaklinga með sín eigin réttindi og sem okkur ber að sýna virðingu. Það að hlúa vel að æsku landsins er fjár- festing til framtíðar,“ og að lokum segir hún: „Viðhorf okkar þurfa að breytast á þann veg að sýna í verki, hvers virði börnin eru okkur í raun og sannleika.“ Undir það skal tekið. KONUR OG FORYSTUSTÖRF ISIÐUSTU viku var undirritaður samstarfssamningur um þriggja ára átaksverkefni, sem hefur það að markmiði að fjölga konum í forystuhlutverkum í þjóðfélaginu og jafna kynjaskiptingu í náms- og starfsvali. Verður verkefnið í hönd- um Jafnréttisnefndar Háskóla íslands og Jafnréttisráðs ís- lands í samvinnu við stjórnvöld og ýmis fyrirtæki. Meðal annars verður gert átak í að jafna kynjaskiptingu í raunvísindum og tæknigreinum og undirbúa konur í öllum deildum háskólans undir ábyrgðarstörf. í Morgunblaðinu á laugardag sagði Páll Skúlason háskóla- rektor m.a. að mjög brýnt væri að fá verulega aukinn fjölda fólks inn á starfssvið, þar sem reynir á þekkingu í verkfræði og raungreinum. Þetta sé því ekki síður efnahagslegt hags- munamál en jafnréttismál. Þetta er athyglisvert verkefni, þar sem farnar eru nýjar leiðir til að reyna að rétta hlut kvenna í þjóðfélaginu. Það er staðreynd að jafnvel þótt kveðið sé á um jafnan hlut kvenna og karla í allri lagasetningu lítur raunvenileikinn stundum öðravísi út. Nauðsynlegt er að brjóta niður þær hefðir og þá huglægu múra er beina ungum konum inn í ákveðinn farveg „kvennastarfa“. Líkt og fram kemur í orðum háskólarektors, er nauðsynlegt fyrir þekkingarsamfélag að nýta til fulls allan þann mannauð er við höfum yfír að ráða. Það er því rétt að líta ekki einungis á það sem hagsmunamál kvenna heldur þjóðfélagsins í heild að þessi nauðsynlega hugarfarsbreyting eigi sér stað. + Forstjóri Þjóðhagsstofnunar og formaður samráðsnefndar um álver við Reyðarfjörð Þjóðerni fjárfesta skiptir ekki máli heldur arðsemi verkefnisins Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnun- ar og formaður samráðsnefndar stjórnvalda, Landsvirkjunar og fjárfesta um stóriðjumál, segir ekki rétt að legið hafí í loftinu að 120 þús- und tonna álver við Reyðarfjörð væri óhag- kvæmt. Hann sagði við Björn Inga Hrafnsson að andstaðan hér á landi við Fljótsdalsvirkjun hafi skipt máli, en ekki ráðið úrslitum. Þórður Friðjónsson VINNA stendur nú yfír við könnun á hagkvæmni þess að reisa strax í fyrsta áfanga 240 þúsund tonna álver við Reyð- arfjörð í stað 120 þúsund tonna byrjun- aráfanga eins og áður var stefnt að og fyrirhuguð Fljótsdalsvirkjun átti að sjá fyrir orku. Komið hefur fram að stefnt er að því að fyrir liggi snemma í næsta mán- uði hvort hagkvæmt sé að reisa strax svo stórt álver, en slíkt krefðist sem kunnugt er risavaxinnar vh’kjunar við Kárahnúka og gerðar stærstu stíflu Ewópu við Háls- lón. Þórður hefur aftur tekið við stöðu for- stjóra Þjóðhagsstofnunar, en hann var settur ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðu- neytinu þegar viðræður hófustvið Hydro Aluminium, áldeild Norsk Hydro, um byggingu álvers á Reyðarfirði. Sem for- maður samstai’fsnefndar stjómvalda, Landsvirkjunar, Hydro og Hæfís um Reyðarálsverkefnið hefur hann komið mjög að málum stóriðju og virkjana á Austurlandi að undanförnu. Hann segir alls ekki rétt að fjárfestarnir hafi fyrir löngu verið búnir að gera upp við sig að fara frekar í stærri áfanga í upphafi. „Ég hef heyrt þessu fleygt, bæði í fjölmiðlum og í viðskiptalífinu, en þetta er alls ekki rétt. Frá því að ég kom að þessari vinnu hafa allir möguleikar verið til skoðunar, bæði hvað varðar stærð ál- versins og ekki síður mögulegar virkjan- h\ Vitaskuld hafa áherslur manna verið mismunandi. Þegar staðan hafði verið metin rækilega og allir möguleikar rannsakaðir ofan í kjölinn, varð niður- staðan sú að skoða til þrautar þann möguleika að reisa í byrjun 120 þúsund tonna álver við Reyðarfjörð, en líta um leið mjög til hugsanlegrar stækkunar - allt upp í 480 þúsund tonn. Þetta kemur greinilega fram í Hallormsstaðaryfirlýs- ingunni frá í fyrrasumar," segir hann. Áhersla lögð á möguleika á stækkun álvers I Hallormstaðaryfirlýsingunni er gengið frá 120 þúsund tonna álveri sem fyrsta áfanga, en jafnframt kveðið á um að stjórnvöld beiti sér fyrir því að kannað verði hvort virkjun við Kárahnúka geti nýst fyrir seinni áfanga stóriðju við Reyðarfjörð. Þórður leggur áherslu á að fjárfestamir, ekki síst Hydro Alumin- ium, hafi allan tímann lagt áherslu á möguleika á stækkun álversins, en í vegi hafi staðið að stjórnvöld gátu með engu móti tryggt orku til þess í framtíðinni. „Aflan tímann lá ljóst fyrir að slíkar framkvæmdh' þyrftu að gangast undir ítarlegar rannsóknir og fara gegnum hefðbundið ferli, þar með talið umhverf- ismat. Niðurstaðan úr sliku ferli er aldrei Ijós fyrirfram." Að sögn Þórðar gekk málflutningur fulltrúa Hydro einkum út á að rekstur 120 þúsund tonna álvers gæti borið sig einn og sér, en th frambúðar væri vafa- mál hvort það væri samkeppnishæft. „Það má reikna með því að framleiðni muni aukast í álverum í framtíðinni og raunkostnaður áls fara lækkandi af þeim völd- um. Þótt 120 þúsund tonna álver gæti staðið sjálfstætt og skilað arði um einhvern ótiltekinn tíma, væri því ekki sjálf- gefið að slík eining yrði arðbær til lengri tíma litið og hefði varla möguleika á að standa sig til frambúðar, altént ekki sömu möguleika og stærra álver,“ segir hann. I umræðunni um álver á Austurlandi undanfarið ár var einmitt mjög tekist á um hagkvæmni þess að reisa slíka verk- smiðju hér á landi. Hagfræðingar, og raunar margir fleiri, öttu kappi um arð- seim og hagkvæmni og sýndist sitt hverj- um. í ljósi þeirrar stöðu sem nú er komin upp liggur beinast við að spyrja hvort efasemdarmennmnh’ hafi ekki haft rétt fyrir sér. Þórður jánkar því: „Það liggur í eðli mála að hægt er að vera vitur eftir á. Eft- ir á að hyggja hefði verið hægt að koma í veg fyrir erfiða umræðu um þessi mál. Það var hins vegar sameiginleg niður- staða allra þeirra sem að málinu komu að kanna þennan möguleika til þrautar. I þetta var ráðist af heilum hug, en í verk- efnum af þessu tagi er oft tekist á um út- færslur fram að lokaákvörðun. Vissulega hefði verið hægt að komast hjá öllum þessum átökum ef ljóst hefði verið að ekki væri áhugi fyrir 120 þúsund tonna byrjunaráfanga. Hins vegar lá það alls ekki fyrir og kom í raun og veru ekki í ljós fyrr en á síðustu vikum og mánuðum. Þá skýrðist vilji fjárfestanna og áhugi í þessa veru, en skarið tóku þeir endanlega af í síðasta mánuði.“ Stefnubreyting lá ekki í loftinu Forstjóri Þjóðhagsstofnunar hafnar því með öllu að stefnubreyting fjárfest- anna hafi legið í loftinu. „Það er algjör- lega rangt,“ segir hann og bætir við: „Ég sé ekki hvaða hag menn ættu að hafa af því að leyna slíkum upplýsingum. Þessi stefnubreyting var ekki ljós síðasta haust eða í byrjun vetrar. I raun varð hún ekki endanlega ljós fyrr en um mánaðamótin febráar/mars. Éjárfestarnir vilja meiri tryggingu fyrir fjárfestingum sínum og alveg greinilegt er að þeir hafa meh’i áhuga á stærra álveri." Hann tekur þó skýrt fram að engin ákvörðun hafi enn verið tekin í málinu og ekki megi fullyrða beinlínis að 120 þús- und tonna álver við Reyðarfjörð yrði óhagkvæm stærð. Hins vegar sé eðlilegt að fjárfestarnir leiti að hagkvæmustu kostum hverju sinni. Hann bend- ir á að í þessum vanga- veltum skipti miklu máli að hugsa þurfi fjárfest- ingu af þessu tagi í stóru samhengi; yfir gríðarlega langan tíma. Það sem máli skipti sé hlutfallsleg sam- keppnisstaða þess álvers gagnvart öðr- um slíkum þegar fram líða stundir, tíu, fimmtán eða tuttugu ánim héðan í frá. „Mjög mikilvægt er að nýtt álver á Reyðarfii’ði komist í hóp þeirra álvera í heiminum sem hafa hvað mesta fram- leiðni, einkum til lengri tíma litið,“ segir hann. Hitafundur var haldinn á Egilsstöðum í lok síðasta mánaðar um nýja stöðu í virkjunar- og stóriðjumálum á Austur- landi. Þar sagði Valgerður Svemsdóttir iðnaðarráðherra m.a. að hún gengi ekki svo langt að segja að fjárfestarnir væru ránir trausti, en þeir hefðu hið minnsta lækkað mjög í áliti. Hvað segir Þórður um þessi ummæli ráðhen’a? „Ég held að ummælin verði að skoða í Ijósi þess að þau komu fram á pólitískum fundi í kjölfarið á tíðindum sem vissulega ollu vonbrigðum. Ég lít svo á að eðlilegt sé að viðsnúningur á borð við þennan valdi vonbrigðum hjá stjómmálamönn- um sem lagt hafa töluvert á sig til að sigla málum í höfn. Hinu má heldur ekki gleyma, að fjár- festamir era að taka ákvörðun um risa- vaxið verkefni sem útheimtir gríðarlega fjármuni. Þeii’ hljóta því fyrst og fremst að byggja afstöðu sína á bestu upplýsing- um hverju sinni og því sem er skynsam- legast í stöðunni. Ég hef ástæðu til að ætla að vilji fjárfestanna nú sé byggður á býsna skýrum og haldgóðum rökum og því finnst mér sjálfsagt að kanna þennan kost til hlítar.“ Ekki allar línur dregnar skýrt í upphafi Þórður bendir á að þótt vissulega hefði verið æskilegra að fjárfestar hefðu haft skýrari vilja í málinu frá upphafi, sé eðli viðskipta af þessu tagi þannig að ekki séu allar línur skýrt dregnar frá upphafi. Sí- fellt sé unnið að athugunum, nýjar upp- lýsingar kunni að koma fram og mál hljóti að þróast í framhaldi af því. „Þannig á þetta líka að vera. Auðvitað verður ávallt að taka tillit til nýjustu upp- lýsinga í svo stómm verkefnum í stað þess að spyrna við fótum og halda lakari kostum til streitu," segir hann. I máli Halldórs Ás- grímssonar, utanríkis- ráðhema og fyrsta þing- manns Austurlands- kjördæmis, á fundinum á Egilsstöðum, kom fram vilji hans til að ræða einnig við aðra aðila um stóriðju á Aust- fjörðum, ekki dygði að einblína á fjárfest- ana í Reyðarálsverkefninu. Benda má á að Finnur Ingólfsson, þáverandi iðnaðaj’- ráðherra, hafði áður gefið í skyn að aðrir áhugasamir aðilar gætu komið að stór- iðjumálum á Austurlandi. Sagðist hann eitt sinn eiga í alvarlegum viðræðum við einn aðila, en fleiri væm þó á hliðarlín- unni. Er þetta enn staðan, að mati Þórð- ar? „I eðli málsins liggur að hvorki er auð- velt né eðlilegt að þessi efni séu mikið til umræðu á almennum vettvangi á hverj- um tíma. Ef við lítum til viðskiptalífsins almennt er auðvitað afar sjaldgæft að fyrirtæki á samkeppnismarkaði ræði op- inskátt eða tilkynni fyrirfram um hugs- anleg samstarfsverkefni. Miklu fremur ríkir oft talsverð leynd yfir slíkum við- ræðum; aðeins tilkynnt um niðurstöðu þegar náðst hefur saman. Ljóst er þó að íslensk stjórnvöld verða að fylgjast náið með því sem er að gerast í áliðnaði á næstu vikum, mánuðum og missemm. Aðeins þannig ti’yggjum við okkur gegn því að missa af áhugaverðum og jafnvel augljósum tækifæram sem upp kunna að koma.“ Én aðilarnir á hliðarlínunni; hverjir em þeir? „Nokkur stór álfyrirtæki kæmu tví- mælalaust til álita í þessum efnum. Þetta er ekki stór heimur, álheimurinn, og lengi hefur legið ljóst fyrir að áhugavert er fyrir álfyrirtæki að koma hingað og reisa verksmiðju; framleiða ál í landi þar sem er efnahagslegur stöðugleiki sem að- eins þekkist í þróuðum ríkjum. Mjög fáir kostir em eftir í því tilliti á Vesturlöndum eða í þeim ííkjum öðram sem búa við stöðugleika og era í fremstu röð í efna- hagsmálum. Sennilega býðst engin önnur staðsetning til aukinnar álframleiðslu í allri Evrópu. Það er alveg ljóst af samtöl- um okkar við álframleiðendur að ísland er talinn mjög spennandi kostur hvað orkuverð og legu snertir. Þessi kostur yrði enn meira spennandi, þegar nýr virkjunarkostur á Áusturlandi hefur ver- ið nánar útfærður.“ Gagnrýni umhverfisverndar- sinna hafði áhrif Þórður telur engum vafa undirorpið að háværar deilur á innlendum vettvangi um umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun og hvort sökkva ætti Eyjabökkum hafi haft áhrif. „Hydro leggur mikið upp úr umhverf- ismálum, hefur þai’ skýi’a stefnu og legg- ur jafnan mikla áherslu á viðunandi sátt um þær framkvæmdir sem fyrirtækið leggur út í. Af þessum sökum er ljóst að andstaðan hér innanlands við þetta verk- efni varð til þess að Hydro velti málum rækilegar fyrir sér; við fundum að full- tráar fyrirtækisins fylgdust náið með umræðunni hér heima. Eg er sannfærður um að krafan um meiri arðsemi og aukna hagkvæmni réði úrslitum um breytta stefnu í þessu máli, en gagnrýni um- hverfisverndarsinna skipti einnig máli. Hún skipti máli en réði ekki úrslitum." Álver er og verður fýsilegur kostur Er það tilviljun að önnur Evrópuríki era ekki fysileg til aukinnar álfram- leiðslu? Er aukin álframleiðsla fysileg fyrir Island og íslenskan efnahag til lengri tíma litið, ekki síst þegar gífurleg- ar breytingar í efnahagslífi þjóðarinnar á umliðnum áram era hafðar til hliðsjónar? ,Álver af þessu tagi er mjög og yrði mjög fýsilegur kostur fyrir íslenskt efna- hagslíf, svo fremi sem það mun uppfylla þær grundvallarkröfur sem við geram, t.d. hvað varðar umhverfismál og kröfur um eðlilega arðsémi. Slíkt álver, af stærðargráðunni 240 til 480 þúsund tonn, yrði myndaríeg viðbótarstoð undir efna- hagskerfi þjóðarinnar. Það myndi stuðla að nauðsynlegri fjölbreytni og ég er viss um að skynsamleg útfærsla á aukinni álframleiðslu hér á landi þarf ekki að skerða aðra möguleika, hvorki í þekking- ariðnaði né ferðaþjón- ustu. Þetta yrði einfald- lega viðbót við atvinnu- lífið til að styrkja það í síbreytilegum heimi.“ Þórður er að lokum spurður hverju það breyti fyiTr stjórnvöld og Landsvirkjun að eiga nú í samningaviðræðum við hóp íslenskra fjárfesta auk Hydro. Eru þeir erfiðari viðfangs? „Þeir era að sínu leyti erfiðir viðfangs, enda er málið snúið og um mikið fé að tefla. Mín reynsla er sú að íslenskir fjár- festar standi þeim erlendu fyllilega á sporði. Fjármagnsmarkaðurinn ræður nú við verkefni af þessari stærðai’gi’áðu og ég tel mjög mikilvægt til framtíðar að íslenskir aðilar séu þátttakendur og hafi bein áhrif á stjórn og rekstur nýs álvers hér á landi. I samhengi við viðræðurnar og gang mála í þeim held ég að ekki sé áþreifan- legur munur á íslenskum fjárfestum og eriendum. Þetta er hreint og beint fjár- festingaiverkefni sem metið verður á hörðum, viðskiptalegum forsendum og þegar svo ber undir skiptir þjóðemi fjár- festanna ekki máli, heldur arðsemi verk- efnisins." Ekki sjálfgefið að 120 þús. tonna álver yrði arðbært til lengri tíma litið Eftir á að hyggja hefði verið hægt að koma í veg fyrir erfiða um- ræðu um þessi mál ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 37 -------------------------------------------------------------------------3 Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður hefur sérstaklega kynnt sér gildissvið fiskveiðistjórnunarlaganna með hliðsjón af stjórnarskránni Dómstólar geta ekki gert pólitískar lagfæringar á kerfi sem löggjafinn hefur sett Dómur meirihluta Hæstaréttar í svo- nefndu Vatneyrarmáli stendur traustum fótum í norrænni hefð hvað varðar skiln- ing á endurskoðunarhlutverki dómstóla annars vegar og löggjafarhlutverki lýð- ræðislega kjörins þings hins vegar, að mati Karls Axelssonar, hæstaréttarlög- manns. Hann segir í samtali við Hjáimar Jónsson að efnislegt mat sem eftir atvikum sé pólitískt geti ekki verið á verksviði dómstóla. LUTVERK dómstóla þegar þeir fjalla um gildi laga er ekki ann- að en að bregða stjórnskipulegum mælikvarða á gerðir löggjafarvaldsins. Niður- staða Hæstaréttar í síðustu viku hvað gildissvið 7. gr. laga um fiskveiðistjórnun varðar staðfest- ir það. Karl Axelsson hæstarétt- arlögmaður, sem sérstaklega hef- ur kynnt sér gildissvið fiskveiði- stjórnunarlaganna með hliðsjón af stjórnarskránni, segir að það geti ekki fallið undir verksvið dómstóla að gera pólitískar lag- færingar á kerfi sem löggjafinn hafi sett. Karl segir að í þessum efnum séu nokkur sjónarmið sem gæta þurfi að og vegist á. í fyrsta lagi sé grundvöllur stjórnskipunar okkar auðvitað þrígreining ríkis- valdsins í dómsvald, fram- kvæmdavald og löggjafarvald. Önnur grunnkennisetning sé eft- irlitsvald dómstóla með því að hinn almenni löggjafi við laga- setningu haldi sig innan þess ramma sem stjórnarskráin setur. í stjórnarskránni sé að fínna meginreglur um réttindi borgar- anna, meðal annars mannrétt- indaákvæði, en löggjafinn hafí það hlutverk að setja borgurun- um og hegðun þeirra reglur inn- an þessa ramma. Þar þurfi löggjafinn eðli málsins samkvæmt að hafa nokkurt svigrúm, því alls konar atriði þurfi að meta í ljósi aðstæðna á hverjum stað og tíma. Það endurspeglist í ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar, eins og til dæmis þegar talað sé um almannahagsmuni, almenn- ingsþörf, brýna nauðsyn o.s.frv., en það sé lagt í vald lýðræðislega kjörins þjóðþings að meta þessi atriði. „Hin hefðbundna stjórnskipun- arvenja, ekki bara hér heldur víð- ast hvar annars staðar í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við, er sú að þetta mat er í höndum löggjafans. Löggjafinn, hið þjóðkjörna þing, er hæfari til að fara með þetta mat heldur en embættisskipaðir dómarar. Það er þessi bakgrunnur sem við verðum að horfa til þegar við er- um að meta fiskveiðistjórnunar- löggjöfina og heimild dómstóla til að endurskoða hana. Það er auð- vitað alveg ljóst að dómstólar eru bærir til þess að bregða lögunum um fiskveiðistjórnun undir þessa stjórnskipulegu mælistiku og meta hvort hún brjóti í bága við þær grundvallareglur sem er að finna í stjórnarskránni en á sama tíma verða dómstólar að skil- greina sig skýrt handan við þau mörk sem lúta pólitísku mati,“ sagði Karl. Eðlilegt að löggjafinn hafi svigrúm Hann sagði að dómstólar hefðu farið hvað varlegast í þessu mati, samkvæmt hefð, þegar um væri að ræða löggjöf sem varðaði at- vinnuréttindi, efnahagsleg markmið og annað slíkt. Þar sé álitið eðlilegt að lög- gjafinn hafi svigrúm til að taka ákvarðanir og framkvæma það mat sjálfur, enda komi þar marg- vísleg efnisleg atriði til álita, sem séu pólitísks eðlis í sjálfu sér og við slíkum atriðum geti dómstólar ekki hróflað. Hins vegar stjórnist umræðan um fiskveiðistjórnunina svo mikið af tilfinningum og póli- tík að menn einblíni bara á tiltek- in atriði málsins og þá þau atriði sem henti málflutningnum í hverju tilviki fyrir sig. I allri um- fjöllun um Vatneyrarmálið hamri andstæðingar kvótakerfisins þannig á stjórnar- skrárákvæðum um atvinnufrelsi og jafn- ræði, en vilji ekki heyra minnst á ákvæðið um atvinnu- réttindi. Þeir sem hafi hins vegar haslað sér völl í sjávarátvegi eigi óumdeilanlega atvinnurétt í grein- inni og njóti sannan- lega verndar sam- kvæmt eignarrétt- arákvæði stjórn- arskrárinnar. Að vísu sé deilt um hversu víðtæk sú vernd sé, en hún sé klárlega fyrir hendi. Með sama hætti ein- blíni þeir sem vilji halda hvað fastast í kerfið eins og það er á atvinnuréttindin og telji að sjón- armið um atvinnufrelsi og jafn- ræði eigi að hafa minna vægi. „Menn vilja ekki, eins og oft er, horfa á þetta heildstætt og öfga- laust. Menn draga fram þessi stjórnarskrárbundnu réttindi og nota þau í einhverri pólitískri ref- skák,“ sagði Karl. Hæstiréttur stóðst prófið Hann nefnir að ef til vill verði Hæstaréttardómsins í Vatneyrar- málinu og alls umrótsins í kring- um hann miklu fremur minnst fyrir það að Hæstiréttur hafi staðist það próf að skilgreina sig réttum megin við endurskoðunar- mörk sín heldur en vegna ein- hverrar umræðu um fiskveiði- stjórnun. Það megi líka velta því fyrir sér hversu langt við séum komin í lýðræðisþróun og stjórn- skipulegri þróun í samanburði við ýmis ríki í kringum okkur sem eigi sér eldri og lengri hefð í þessum efnum. I allri umræðunni sem sé búin að vera um gildi laganna núna hafa ýmsir stjórnmálamenn tal- að afar einstreng- ingslega um að það sé þeirra skoðun að lögin brjóti í bága við stjórnarskrá og svo framvegis og þeir hafa einblínt á Hæstarétt sem einhvern lausnara í þeim efnum. Enginn stjórnmálamaður hafi hins vegar staðið upp og sagt að hann sé pólitískt andvígur fiskveiðistjórnarlöggjöfinni og vilji berjast fyrir afnámi hennar, en hann sé einnig fulltrái löggjaf- arsamkundunnar og honum beri ekki síður að standa vörð um sjálfstæði hennar, sem eins þátt- ar ríkisvaldsins og fulltrúa lýð- ræðisins, og taka þátt í því að skapa því nægilegt sjálf- stæði gagnvart öðr- um þáttum ríkis- valdsins, þ.á.m. dómsvaldinu. „Það er kannski eitthvert einkenni á Islend- ingum að tala alltaf um stundarhags- muni en vilja aldrei ræða um stóru prinsípin," sagði Karl. Hann segir að mikilvægi fiskveiði- auðlindarinnar í ís- lensku efnahagslífi breyti engu um það að atvinnu- réttindi á því sviði beri að nálgast eins og hver önnur atvinnurétt- indi. Að lögum væri enginn mun- ur þarna á og ákvæði fyrstu greinar fiskveiðistjórnunarlag- anna um sameign þjóðarinnar breyti engu þar um. Hæstiréttur undirstriki það í dómi sínum að þar sé um markmiðsyfirlýsingu að ræða þess efnis að ráðstafa eigi auðlindinni með þjóðarhag að leiðarljósi. Um leið felist í þeirri niðurstöðu að sameignaryfirlýs- ingin hafi ekkert eignari’éttarlegt inntak. Hæstiréttur segi síðan að það sé löggjafans að meta það og útfæra hvernig þessum markmið- um verði náð og það verði hann að gera með málefnalegum hætti. Endurskoðunarvald dómstóla nái ekki til annars en þess að meta það hvort málefnaleg sjónarmið hafi verið lögð til grundvallar við úthlutun aflaheimilda, þ.e.a.s. að jafnræðis hafi verið gætt gagn- vart öllum þeim sem eins sé ástatt um. Dómstólar hnekki ekki lögum sem byggi á málefnalegu mati, þó að einstakir dómendur kynnu að vilja sjá það mat öðruvísi framkvæmt. Slík viðhorf dómara komi dómsstarfi þeima ekki við. Það sé þjóðkjörins þings að meta hvernig hagsmun- um þjóðarinnar sé best borgið í slíkum efnum. Karl segir að með dómi sínum standi Hæstiréttur traustum fót- um í norrænni hefð hvað varði skilgreiningu á hlutverki dóm- stóla annars vegar og löggjafar- valds hins vegar. Hann ætli einnr ig minnihluta Hæstaréttar og héraðsdómaranum fyrir vestan ekki annað en nálgast viðfangs- efnið með sama hætti og út frá sömu forsendum, þ.e. út frá end- urskoðunarhlutverki dómstóla og heimildum þeirra til að meta lög- gjöf út frá hlutlægum mælikvörð- um þar sem stjórnmálaleg sjónar- mið eigi engan hlut að máli. Niðurstaðan afgerandi Hann segir að niðurstaða meirihluta Hæstaréttar í þessum efnum sé afgerandi hvað gildis; svið 7. greinarinnar varðar. I dómnum segi alveg skýrt að mat löggjafans sé reist á málefnaleg* um forsendum og ekki séu efni til þess að því mati verði haggað af dómstólum, þannig að úthlutun aflaheimilda samkvæmt 7. gr. laganna standist og fullnægi jafn- ræðisreglu stjórnarskrárinnar. Sú staðreynd að um refsimál sé að ræða auki vægi niðurstöðunn- ar, þar sem miklu meiri kröfur séu gerðar í refsimálum en einka- málum. Það sé því fráleitt að mál- ið verði rekið á nýjan leik á einkaréttarlegum forsendum. Karl segir að það sé líka alveg skýrt í dómi Hæstaréttar að út- hlutun veiðiheimilda skapi ekki eignarréttindi. Þar sé Hæstirétt- ur að árétta ákvæði 1. gr. fisk- veiðistjórnunarlaganna og hann undirstriki vald löggjafans til breytinga. „Um það held ég reyndar að ekki hafi verið mikill lögfræðilegur ágreiningur fyrir að löggjafinn hafi þetta vald. Á það bentu til dæmis prófessor- arnir Sigurður Líndal og Þorgeir Orlygsson í skýrslu sinni til auð- lindanefndar í fyrravetur. Þar bentu þeir á að löggjafinn hafi þetta vald til að breyta kerfinu og úthlutunarreglum þess. Það séu hins vegar fleiri réttindi varin 'í' stjórnarskrá heldur en jafnræði og atvinnufrelsi. Við breytingar á kerfinu verði að gæta atvinnu- réttinda þeirra sem starfi í grein- inni. Þess vegna þarf ákveðna að- lögun að því að breyta kerfinu ef það verður niðurstaðan að gera það,“ sagði Karl. Hann segir að almennt sé ekki um það deilt innan lögfræðinnar að atvinnuréttindi þeirra manna sem hafi haslað sér völl í ákveð- inni atvinnugrein njóti verndar sem eignarréttindi samkvæmt 72. gi’. stjórnarskrárinnar. „Við deil- um hins vegar aðeins í fræðunum um það hversu altæk þessi vernd sé. Við erum sammála um að húrv er ekki jafnvíðtæk og hefðbundin eignarréttarvernd til að mynda, en hún er fyrir hendi. Hvorki lög- in frá 1990, ný lög eða eitthvað sem menn þykjast lesa út úr forsendum dóms Hæstaréttar fær afnumið þá vernd. Þar ríkir stjórnarskráin ofar öllu,“ sagði Karl. Hann sagði að þessi vernd kæmi hins vegar ekki í veg fyrir það að löggjafinn gæti breytt kerfinu Á'á málefnalegum for- sendum og með hæfilegum að- draganda og það gilti jafnt um þær aflaheimildir sem menn hefðu fengið úthlutað í upphafi og þær sem aflað hefði verið síð- ar með kaupum á aflaheimild- um. t Ráðstaf a á auðlindinni með þjóðarhag að leiðarljósi Karl Axelsson Einkenni á íslend- ingum að tala alltaf um stundar- hagsmuni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.