Morgunblaðið - 14.05.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 14. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 7/5-13/5
► SAMKEPPNISRÁÐ hef-
ur beint þeim tilmælum til
dómsmálaráðherra að
beita sér fyrir því að sam-
keppnisstaða happdrætt-
anna í landinu verði gerð
sem jöfnust að þvf er varð-
ar skilmála fyrir rekstrin-
um og að einkaleyfi Happ-
drættis Háskóla Islands
verði numið úr gildi.
► FRUMVARP til laga um
afnám lagaákvæða um
skattfrelsi forseta íslands
var lagt fram á Alþingi. í
greinargerð með frum-
varpinu segir að á undan-
förnum árum hafi oftsinnis
kviknað umræða í þjóðfé-
laginu, að óeðlilegt sé að
forseti lýðveldisins sé und-
anþeginn greiðslu skatta
og opinberra gjalda.
► í breytingartillögu við
frumvarp um framkvæmd
tiltekinna þátta í varnar-
samstarfi Islands og
Bandaríkjanna, er gert ráð
fyrir að ákvæðum frum-
varpsins, er varða verk-
töku, verði frestað um eitt
ár. Utanríkisráðherra seg-
ir að frestuninni sé ætlað
að skapa svigrúm til frek-
ara samráðs við Banda-
ríkjamenn um málið.
► SORPA fékk afhent
virkjanaleyfi frá iðnaðar-
ráðherra til þess að fram-
leiða rafmagn úr metan-
gasi sem verður til við
rotnun sorps á urðunar-
stað Sorpu í Álfsnesi. Ráð-
gert er að framleiða eitt
megavatt af raforku á
staðnum og jafnframt
stendur fyrir dyrum að
hefja nýtingu á metangasi
til að knýja bfla.
Haraldur Örn náði
norðurpólnum
HARALDUR Örn Ólafsson náði
norðurpólnum rétt fyrir klukkan
hálftíu á miðvikudagskvöld fyrstur
íslendinga. Davíð Oddsson forsætis-
ráðheira tók við símtali frá Haraldi
Erni þegar hann náði markmiði sínu
eftir átta vikna göngu. Miklir fagn-
aðarfundir urðu á norðurpólnum
klukkan eitt aðfaranótt laugardags
þegar ílugvél lenti þar til að sækja
hann. í flugvélinni var unnusta
Haraldar, Una Björk Ómarsdóttir,
og fleiri.
Níu milljarðar til
samgöngumála
NÍU MILLJARÐA króna viðbótar-
fjármagni verður varið til sam-
göngumála á næstu fimm árum,
2000-2004, og verður fjárins fyrst og
fremst aflað með sölu ríkiseigna. I
bókun samgöngunefndar er gert ráð
fyrir að lokið verði við tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar árið 2006.
4,6 milljörðum verður varið til jarð-
gangagerðar á tímabilinu og einn
milljarður er ætlaður til vegagerðar
sem tengist virkjunum og stóriðju á
Austurlandi.
Forseti Póllands
í heimsókn
FORSETI Póllands, Aleksander
Kwasniewski, og Jolanta, eiginkona
hans, komu í tveggja daga heimsókn
til landsins. í fylgdarliði forseta-
hjónanna eru forystumenn úr ríkis-
stjórn Póllands og stjórnendur úr
ráðuneytum utanríkismála, efna-
hagsmála og landbúnaðarmála auk
áhrifamanna úr pólsku atvinnulífi.
Forsetinn heimsótti m.a. Bessastaði
og Alþingi.
Ottast borgarastyrjöld
ÓFRIÐARÁSTAND hefur ríkt í
Sierra Leone í vikunni og höfðu á mið-
vikudag þúsundir manna flúið átökin í
landinu. Til harðra bardaga kom á
fimmtudag er friðargæsluliðar Sam-
einuðu þjóðanna og stjórnarher Sierra
Leone hröktu uppreisnarmenn fjær
höfuðborginni Freetown, en áður
hafði verið unnið að því að styrkja
varnir borgarinnar vegna vopnaðra
sveita uppreisnarmanna. Ibúar lands-
ins eru sagðir óttast valdatöku upp-
reisnarmanna og sendu Bretar herlið
til landsins á mánudag til að aðstoða
við brottflutning.
Hækkar ekki vexti
EVRÓPSKI seðlabankinn ákvað á
fimmtudag að hækka ekki vexti þrátt
fyrir auknar kröfur meðal aðildarríkja
Efnahags- og myntbandalagsins um
að bankinn grípi til aðgerða gegn dal-
andi gengi evrunnar, sem talið er
kunna auka hættu á aukinni verðbólgu
á svæðinu.
Samið í Noregi
SAMNINGAR tókust í launadeilunni í
Noregi aðfaranótt þriðjudags og var
verkföllum 86.000 félagsmanna
norska alþýðusambandsins ýmist af-
lýst eða frestað. Féllust vinnuveitend-
ur á meiri kauphækkanii' en þeir
höfðu áður samþykkt og óttast ýmsir
að samningarnir hafi slæmar afleið-
ingar fyrir norskt efnahagslíf.
Hart barist
á Jaffna-skaga
BLÓÐUGIR bardagar geisuðu á
Jaffna-skaga á Sri Lanka í vikunni
milli skæruliðasveita Tamílsku tígr-
anna og stjórnarhers Sri Lanka.
Árásarsveitir sögðust á föstudag óð-
um nálgast Jaffna-borg. Bann hefur
verið lagt við fréttaflutningi af átök-
unum.
► MIKLIR skógareldar
hafa geisað í Nýju Mexíkó í
Bandaríkjunum frá því á
fimmtudag í síðustu viku.
Um 8.000 hektarar skóg-
lendis hafa eyðilagst í eld-
unum og 20.000 manns
hafa neyðst til að flýja
heimili sín. Á laugardag
lýstu slökkviliðsmenn því
yfir að þeir hefðu náð
sljórn á eldinum.
► ONEL de Guzman, sem
grunaður er um að vera
einn af höfundum „ástar-
veirunnar", viðurkennir að
hafa hugsanlega komið
henni af stað fyrir slysni.
Áður hafði lögregla látið
lausan Reonel Ramones,
sem einnig liggur undir
grun.
► VLADIMÍR Pútín Rúss-
landsforseti tilnefndi á
þriðjudag Míkhafl Kasjan-
ov, einn helsta sérfræðing
Rússa í efnahagsmálum,
sem starfandi for-
sætisráðherra landsins.
Búist er við að dúman sam-
þykki tilnefnefningu Kasj-
anov með meirihluta at-
kvæða.
► FULLTRÚAR Indónes-
íustjórnar og skæruliða
sem berjast fyrir sjálfstæði
Aceh-héraðs undirrituðu á
föstudag samning um
þriggja mánaða vopnahlé
með það að markmiði að
binda enda á tveggja ára-
tuga átök í héraðinu.
► ROBERT Mugabe, for-
seti Zimbabwe, segir að
komið verði á fót nefnd
sem úthluta eigi jörðum
hvítra manna. Þá fyrir-
skipaði hann landtöku-
mönnum að láta af ofbeld-
isverkum á jörðum hvítra.
Samstarfssamningur lögreglunnar og Miðgarðs í Grafarvogi
Morgunblaðið/Sverrir
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra og Geir Jón Þórisson, aðstoðai-yfirlögregluþjónn í Reykjavík, á tali við
lögregluþjónana sem munu sinna löggæslu á nýju stöðinni í Grafarvogi, þá Óskar Bjarka Bjarnason, Ingólf
Bruun, Einar Ásbjörnsson, Guðjón St. Garðarsson og Jóhann Jóhannsson.
Lögreglan verði
nær íbúunum
LOGREGLUSTOÐIN í Grafarvogi
hefur flutt starfsemi sína í fjölskyldu-
miðstöðina Miðgarð og einnig hefur
verið undirritaður samstarfssamn-
ingm' milli Lögreglunnar í Reykjavík
og Miðgarðs þar sem lögð eru drög
að auknu og víðtækara samstarfi.
Samhliða flutningi lögreglustöðvar-
innar mun viðvera þeirra lögreglu-
þjóna sem sinna Grafarvogi lengjast
verulega. Nú verða tveir lögreglu-
þjónar á vakt í Grafarvogi frá klukk-
an 7:30 til 23:30 alla virka daga, auk
aðfaranætur laugardags.
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn í Reykjavík, segir
breytingu þessa eiga rætur að rekja
til þess að lögreglustöðin í Hverafold
hafi þótt orðin afskekkt í hverfinu og
einnig hafi verið horft til samstarfs
við þá þjónustu sem fram fer í Mið-
garði.
„Staðsetningin og sú starfsemi
sem er þarna er mjög spennandi.
Þangað sækja íbúar þjónustu og við
viljum að fólkið líti á löggæsluna sem
eðlilegan hluta af umhverfi sínu. Við-
veran verður líka lengd, þama verða
fimm lögreglumenn sem sérstaklega
sinna Grafarvogi, vinna í þeim mál-
um sem varða hverfið og hafa að leið-
arljósi að tengjast starfsemi þess,“
segir Karl Steinar.
Hverfatenging sérstaklega mik-
ilvæg hvað ungt fólk varðar
Karl Steinar segir það reynslu er-
lendra lögregluliða að betur gangi að
sporna við afbrotum þegar lögreglan
hefur góða tengingu inn í einstök
hverfi. Hann bendir einnig á að Graf-
arvogurinn búi við nokkuð sérstaka
íbúasamsetningu. Um 40% íbúa séu
25 ára og yngri, þannig að þau vanda-
mál sem koma upp tengist mjög mik-
ið ungu fólki, en þessa hverfateng-
ingu lögreglunnai- segir hann
sérstaklega mikilvæga þegar ungt
fólk er annars vegar.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagði við undirritun samn-
ingsins að samstarfið lofaði afar góðu
og það væri í góðu samræmi við nýjar
áherslur í starfi lögreglunnar að færa
lögreglustöð inn í húsnæði þjónustu-
miðstöðvar. Hún benti á að mikilvægi
þess að færa lögregluna nær íbúun-
um og nauðsyn þess að efla forvarn-
arstarf svo öll áhersla þyrfti ekki að
vera á að slökkva elda sem þegar
væru kviknaðfr. Þetta væri sérstak-
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
næði sennilega meirihluta í Reykja-
vík ef kosningar færu fram núna.
Hann fengi tæplega 53% atkvæða en
R-listinn rösklega 47%. Munurinn
milli flokkanna nær þó ekki að vera
marktækur. Þetta eru niðurstöður í
símakönnun sem Gallup gerði dag-
ana 3.-25. apríl. Þegar Gallup gerði
samskonar könnun í desember 1998
hafði R-listinn 52,5% en D-listi 47,5%.
41,7% lýstu sig ánægða með störf
meirihlutans í Reykjavík en 31,8%
lega mikilvægt hvað ungt fólk varð-
aði.
Regína Ásvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjölskylduþjónustunn-
ar Miðvangs, sem sinnt hefur
fræðslu- og foi-varnastarfi í Grafar-
vogi, segir afar mikilvægt að eiga í
góðu samstarfi við lögregluna.
„Það skiptir öllu máli að lögreglan
geti unnið með okkur að því að grípa
inn í mál fljótt og vel og að hún sé í
tengslum, með okkur, við skólana og
félagsmiðstöðvamar. Nú eigum við
möguleika á auknu samstarfi við lög-
regluna, til dæmis varðandi forvarn-
ir, umferðaröryggi, fræðslu til for-
eldra og fleira,“ segir Regína.
voru óánægð. Þá voru 30,9% ánægð
með störf minnihlutans en 30,7%
óánægð. 57,6% lýstu sig ánægð með
störf Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur borgarstjóra en 26,2% voru
óánægð með störf hennar. 29,4%
lýstu sig ánægð með störf Ingu Jónu
Þórðardóttur, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins, en 41,2% voru óánægð.
Samfylkingin bætir við sig
í annarri símakönnun, sem Gallup
gerði dagana 17. apríl til 7. maí, um
hvað fólk hyggst kjósa, koma fram
litlar breytingar á fylgi flokkanna.
Samfylkingin, ein flokka, bætir við
sig fylgi. Rúmlega 23% myndu kjósa
Samfylkinguna ef kosningar færu
fram núna en Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 43% greiddra atkvæða og
Framsóknarflokkurinn 13%. Sjálf-
stæðisflokkminn mælist því nokkru
yfir kjörfylgi sínu en Framsóknar-
flokkurinn er nokkru fyrir neðan
kjörfylgi sitt síðastliðið vor. Vinstri-
grænir mælast með svipað fylgi og í
síðasta mánuði og fengju rösklega
18% fylgi ef kosið yi'ði núna. Þetta er
tvöfalt það kjörfylgi sem VG fengu
síðastliðið vor. Frjálslyndi flokkurinn
hefur sem fyrr um 2% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnarflokk-
ana eykst ekki en stuðningur við rík-
isstjórnina eykst og er 65%. Tæplega
68% karla styðja ríkisstjórnina og
rösklega 62% kvenna. Stuðningur við
ríkisstjómina minnkar eftir því sem
kjósendur eru eldri. Næstum 97%
sjálfstæðismanna styðja ríkisstjórn-
ina og rösklega 89% framsóknar-
manna. Rúmlega fimmtungur stuðn-
ingsmanna Samfylkingarinnai'
styður stjómina og tæplega þriðj-
ungur vinstri-grænna.
Gullfallegar
gjafabækur
Bráðskemmtilegar bækur með
fjörugum myndskreytingum,
hlýjum og hnyttnum texta.
Tilvaldar til að gleðja hjarta
mömmu og elskunnar þinnar.
Verð 990 kr.
Munið mæðradaginn
Mál og menningl
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Siðumúla 7 • Sími 510 2500
Skoðanakönnun Gallup
Sjálfstæðisflokkur
næði sennilega meiri
hluta í Reykjavik