Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 4

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tillögur að nýrri Þjórsábrú Heiðarbær -. ba" Skálmholt Ný brú yfír Þjórsá hönnuð Brtra Hnngvegur um Þjórsá - Lína 2F ,« _ • ...£.....C tyórsárfinj Hringvegur um''r?Í5V Þjórsá - Lína 3B Urriðafoss Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. Séð yfir efra brúarstæðið þar sem auðveldara væri að brúa ána en vega- gerð beggja vegna brúar yrði meiri. Tvö brúarstæði koma til greina Selfossi. Morgunblaðið. TVO brúarstæði koma til greina við staðsetningu nýrrar brúar yfir Þjórsá. Annað brúarstæðið er tæp- um 200 metrum neðan núverandi brúar og hitt stæðið um 650 metrum ofan hennar. „Það er verið að skoða þessa möguleika, við erum komnir niður á tvær leiðir og erum að bera þær saman,“ sagði Steingrímur Ingvarsson, umdæmisverkfræðing- ur Vegagerðarinnar. Hann sagði að báðar leiðimar gerðu ráð fyrir að nú- verandi brú stæði áfram. Til brúar- gerðarinnar verða veittar 223 millj- ónir á næsta ári, 2001, 209 milijónir árið 2002 og 28 milljónir 2003. Gert er ráð fyrir að taka nýja brú í notkun 2002. Neðri leiðin yfir Þjórsá fylgir nú- verandi vegi en mikill hæðarmunur er milli bakkanna þar sem brúar- stæðið er. Vegagerð er minni á þess- ari leið, 3,5 km, en framkvæma þarf miklar skeringar í holtunum sem vegurinn fer um. Efri leiðin kostar meiri vegagerð, 4,5 km, en sjálf brúin er ódýrari auk þess sem vegur- inn fer yfir mjög blauta mýri og sker eignarlönd. Þá er hæðarmunur milli bakka mun minni. Efri leiðin breytir aftur ýmsum aðstæðum, s.s. teng- ingu við heimreiðar og aðrar brautir. Steingrímur Ingvarsson sagði að farið yrði í kynningarferli innan tíðar varðandi nýtt brúarstæði og vega- gerð. „Við þurfúm að heyra í fólki, sveitarstjórnum og landeigendum og setja þá inn í þetta mál og heyra þeirra álit,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að það væru ýmis sjónar- mið í þessu og báðar leiðirnar hefðu sína kosti og galla. Almannavarnaráð sendir frá sér tilkynningu í kjölfar frétta í erlendum fjölmiðlum Orökstuddur orðrómur um ógnarskjálfta ALMANNAVARNIR rfkisins hafa sent frá sér tilkynningu þar sem seg- ir að orðrómur á höfúðborgarsvæð- inu og víðar um að yfirvofandi sé ógnarjarðskjálfti á Reykjavíkur- svæðinu, eigi ekki við nein vísindaleg rök eða ummæli að styðjast. Hafþór Jónsson, fulltrúi hjá Almannavöm- um rQdsins, segir að fjöldi upphring- inga hafi borist Almannavörnum frá skelkuðum höfuðborgarbúum sem hafa leitað upplýsinga um hvort eitt- hvað sé hæft í orðrómnum. Hafþór kveðst telja að kvitturinn hafi komist á kreik vegna fréttaflutn- ings erlendra fjölmiðla og vísar þar m.a. til fréttar í Aftonbladet í Noregi í fyrradag sem byggð er á frétta- skeyti frá alþjóðlegu fréttastofunni NTB þar sem segir að Islendingar búi sig nú undir stærsta jai'ðskjálft- ann í meira en eina öld, skjálfta sem yrði minnst 7 á Richter-kvarða. AP- fréttastofan sendi sömuleiðis frá sér frétt um allan heim þar sem segir að sérfræðingar spái hér stærsta jarð- skjálftanum síðastliðin 100 ár, a.m.k. 7 á Richter-kvarða. Talað um skjálfta allt frá 7-11 á Richter! Hafþór Jónsson, fulltrúi hjá Al- mannavömum ríkisins, sagði að orð- rómurinn virtist hafa dreift sér hratt um Reykjavíkursvæðið. Orðrómur- inn var í þá veru að vænta mætti ógn- arjarðskjálfta við Reykjavík og nefndir vora jarðskjálftar allt frá 7 og upp í 11 á Richter. „Við sáum fulla ástæðu til að grípa inn í og leiðrétta þetta því hér er órökstuddur orðróm- ur á kreiki sem er í eðli sínu fólki og umhverfi mjög óhollur," segir Hafþór. Hann sagði að í erlendum fjölmiðl- um hefðu verið skrif í þessa átt og gætu þau hafa ýtt undir þennan orð- róm. Hann segir að orðrómur af þessu tagi skelfi fjölda viðkvæmra sálna og því verði að kveða hann nið- ur. Margar hringingar bárast Al- mannavömum í gær, m.a. frá stórum vinnustöðum, með fyrirspumum um hvort von væri á slíkum ógnar- skjálfta á næstu augnablikum. „Stað- reyndin er sú að okkar ágætu vís- indamenn hafa fullt vald á þeim spám sem þeir gefa út. Sögulegar heimildir allar virðast sömuleiðis vera mjög trúverðugar í þá vera að sú hámörk- un sem vísindamenn höfðu talað um fyrirfram virðist vera nokkuð rétt og þegar skjálftar gangi til vesturs sé minni hætta vegna þess að jarðlögin séu þar veikari," segir Hafþór. Úlfar Antonsson, forstöðumaður Ferðaskrifstofu íslands, segir að eft- ir seinni skjálftann hafi borist fáeinar afþantanir á ferðum erlendra ferða- manna til landsins án þess að skýr- ingar hafi verið gefnar. Einnig hafi borist margar fyrirspumir um hvort óhætt væri að koma til landsins. „Það virðist vera beygur í mönnum. Þama er aðallega um Evrópubúa að ræða, mest frá Skandinavíu. Svo virðist sem umfjöllun fjölmiðla þar hafi farið yfir strikið," segir Úlfar. Hann kveðst telja að það væri helst í verkahring t.d. utanríkisráðu- neytisins, með tilvísun til aðgangs þess að sérfræðingum, að koma rétt- ari upplýsingum á framfæri við er- lenda fjölmiðla áður en umfjöllun þeirra færi að skaða hagsmuni ferða- þjónustunnar að ráði. Helgi Jóhannsson, forstjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn, segir að streymt hafi inn fyrirspurnir vegna jarðskjálftanna, einkum frá Spáni. Hann segir að misvísandi fréttir í er- lendum fjölmiðlum séu áhyggjuefni. Hann vonar að þessar upplýsingar séu ekki komnar frá fréttarituram sem búsettir era hér á landi og þurfi að krydda sínar fréttir til að selja þær. Hann vonast til þess að þessi fréttaflutningur hafi ekki frekari áhrif en bendir þó á að þegar hafi borist nokkrar afpantanir frá Spáni. Jarðrask á Reykjanesi Sprungur mynd- uðust HÓPUR göngumanna frá ferðafé- laginu Útivist gekk fram á tvær sprangur í suðurbrún Keilis á Reykjanesi í gær. Að sögn Gunnars H. Hjálmarssonar, fararstjóra hjá Útivist, eru sprangurnar greinilega nýtilkomnar og hafa að öllum lík- indum orðið til við jarðskjálftann aðfaranótt miðvikudags. „Sprangurnar era ekki breiðar, hvor um sig kannski hálfur sentí- rnetri á breidd en þær era samt sem áður mjög greinilegar,“ segir Gunnar. Ekki gafst ráðrúm til þess að athuga með lengd sprungnanna en Gunnar segir þær töluvert lang- ar, allavega tugi metra. Sprangurnar liggja í brúninni við toppinn í suðurstefnu og að sögn Gunnars liggur grjóthnullungur við í Keili kantinn á annarri þeirra sem greinilega hefur færst til í jarð- skorpunni. Hann segir einnig greinilegt að eitthvað hafi hranið úr klettunum við uppgönguleiðina á Keili við jarðskjálftann. Að sögn Gunnars ættu göngu- ferðir á þessum slóðum ekki að vera varhugaverðar eftir skjálftana, þótt það geti verið hættulegt að klöngr- ast í fjallshlíðum þegar skjálfti ríð- ur yfir. Einnig hefur Morgunblaðið haft spurnir af því að miklar sprangur séu á toppi Trölladyngju og var- hugavert sé að vera þar á ferð. Tveir fjallagarpar gengu þar upp á miðvikudagskvöld og rak í roga- stans þegar upp var komið þegar þeir sáu vegsummerkin. Tryggingafélögin semja við Viðlagatryggingu um að koma að mati á jarðskjálftatjóni A annað þúsund tjóna- tilkynningar borist TILKYNNINGAR um eitthvað á annað þúsund tjón eftir jarðskjálft- ana á Suðurlandi hafa þegar borist tryggingafélögunum. Viðlagatrygg- ing Islands ber tjónið en til að flýta fyrir því að uppgjör eignatjóna gætu farið fram buðust eignatryggingafé- lögin til að koma að því að meta tjón sem viðskiptamenn þeirra hafa orðið fyrir. I gær gerðu Viðlagatrygging ís- lands og Samband íslenskra trygg- ingafélaga (SÍT) með sér samkomu- lag þess efnis að eignatryggingafélög innan SIT skuli annast mat á smærri eignatjónum sem orðið hafa í jarð- skjálftum síðustu daga. Til greina kemur að tryggingafélögin kalli fólk inn úr sumarfríum til að taka þátt í að meta tjónin. 100 tilkynningar og fyrirspumir á dag Tryggingafélögin hafa tekið við tjónstilkynningum frá viðskiptavin- um sínum undanfama daga. Fá tryggingafélögin mikinn fjölda til- kynninga og fyrirspuma á hveijum degi og ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um hversu mörg tjón hefur verið tilkynnt um í heild og enn þá síður hversu mikið tjónið er þegar allt er talið. Vátryggingafélagi íslands hafði síðdegis í gær borist á sjöunda hundr- að tilkynninga. Þar sem tjón hefur orðið bæði á innbúi og fasteign era skráð tvö tjón. Frá því jarðskjálftinn varð aðfaranótt miðvikudags hafa Sjóvá-Almennar fengið 100 tilkynn- ingar og fyrirspumir á dag vegna beggja skjálftanna og áður höfðu bor- ist um 40 tilkynningar eingöngu vegna fyrri skjálftans. Hjá Trygg- ingamiðstöðinni var áætlað að á ann- að hundrað tjónstilkynningar hefðu þegar borist til félagsins. Samkvæmt þessu má áætla að þegar hafi verið til- kynnt um eitthvað á annað þúsund tjón. Tilkynningar til tryggingafélag- anna era einfaldar, einungis er til- kynnt um tjón og stað og með fylgir örstutt lýsing. Nánari upplýsingar fást við matið sem verður framkvæmt annaðhvort á vegum Viðlagatrygg- ingar eða viðkomandi tryggingafé- lags, eftir umfangi tjónsins sam- kvæmt fyrstu lýsingu. Eggert Á. Sverrisson, framkvæmdastjóri ein- staklingsöygginga VÍS, segir að tjón- in séu mjög mismunandi en þó komi á óvart hvað sé mikið um tjón á fast- eignum. Hjálmar Sigþórsson, yfir- maður tjónadeildar Tryggingamið- stöðvarinnar, segir áberandi hvað mikið sé um tjón á innbúum í sumar- bústöðum, sérstaklega eftir seinni skjálftann. Tryggingafélögin annast matið Vegna þess hversu mörg tjónin era óskaði Samband íslenskra trygginga- félaga eftir því við Viðlagatryggingu að ræddir yrðu möguleikar á því að eignatiyggingafélög innan vébanda SIT kæmu að því að meta tjón sem fellur undir Viðlagatryggingu. Stjóm Viðlagatryggingar fundaði um málið í gær og í framhaldi af því náðust samningar þess efnis að tryggingafé- lögin muni sjá um mat á tjóni sem verður á innbúi og öðra lausafé og fellur undir Viðlagatryggingu Islands en mat á stærri tjónum verður sem áður í höndum Viðlagatryggingar. Morgunblaðið/Þorkell Starfsmenn VÍS voru í óðaönn í gær að taka við tjónatilkynningum vegnajarðskjálftanna. Ljóst er að mikið verk er framund- an við að meta tjónin en tjónadeildir tryggingafélaganna fáliðaðar vegna sumarleyfa. Eggert hjá VÍS segir að ekki sé búið að ráða fram úr því hvemig matið verði framkvæmt en segir ljóst að hjá VÍS verði allur til- tækur mannskapur settur í verkið. Jafnvel gæti komið til þess að fólk yrði kallað inn úr sumarfríum tíl að taka þátt í því. „Við munum setja okk- ar metnað í að Ijúka matinu eins fijótt og mögulegt er enda er það mikilvægt fyrir fólk,“ segir Eggert. Hjálmar hjá Tryggingamiðstöðinni segist ekki hafa neinn mannskap til að annast matið en málið verði leyst, annaðhvort með því að kalla mann- skap inn úr sumarleyfum eða ráða sérstaka verktaka. Hann treystir sér ekki til að áætla hvað það geti tekið langan tíma að meta skemmdimar, segir hugsanlegt að það taki 2-3 vikur. Tjónþolum ber að snúa sér til síns vátryggingafélags með beiðni um tjónsmat en þeir sem þegar hafa haft samband við sitt tryggingafélag þurfa ekki að óska eftir mati sérstaklega heldur munu starfsmenn félaganna hafa samband við þá á ný. Þeim til- kynningum sem Viðlagatryggingu hafa borist beint eða frá lögreglu verður komið áfram til hlutaðeigandi vátryggingafélags.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.