Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hægt að taka við allt að 75 búsund manns á dag á Kristnihátíð á Þingvöllum mm
U mfangsmesta
Okkur hefði ekki veitt af að hafa loftmynd af síðustu vegahátíð, þessi mun ekkert í sinn
haus hvar þau voru, merktu ekki einu sinni pleisið.
Reykingar fátíðar meðal
íslenskra lækna
TÓBAKSNOTKUN meðal íslenskra
lækna virðist í algjöru lágmarki ef
marka má könnun sem stjóm
Læknafélags íslands lét gera í lok
síðasta árs. Samkvæmt henni reykja
3,6% íslenskra lækna daglega og er
það mun minna en þjóðin gerir öll, því
samkvæmt þjóðarúrtaki Tóbaksvam-
amefndar í janúar árið 2000 reykja
19,6% íslendinga daglega.
í könnun LÍ kemur einnig fram að
57,5% lækna hafa aldrei reykt og
31,6% lækna hættu að reykja fyrir
meira en ári en læknar standa þar
betur að vígi en þjóðin í heild því sam-
kvæmt úrtaki tóbaksvamamefndar
hafa 42,8% þjóðarinnar aldrei reykt
og 25,5% hennar hættu að reykja
fyrir meira en ári. Hlutfall þeirra
lækna sem era hættir að reykja fyrir
minna en ári er 1,5% en þar er hlut-
fallið hjá þjóðinni allri talsvert hærra,
eða 7,6%.
Pétur Heimisson heilsugæslulækn-
ir sá um framkvæmd könnunarinnar
ásamt starfsfólki á skrifstofu LI. Alls
fengu 1.048 félagar í LÍ senda spum-
ingalista en 725 svör bárust og var
brottfallið því 30,8%, sem telst nokk-
uð mikið. Heimir segir í júníhefti
Læknablaðsins að með hliðsjón af
lágu svarhlutfalli verði að taka niður-
stöðum könnunarinnar með ákveðn-
um fyrirvara, en gera megi ráð fyrir
að meðal þeirra sem ekki svöruðu sé
hærra hlutfall þeirra sem reykja.
veisla!
Nú gefst þér kostur á að kaupa Deluxe leðurhúsgögn á verði sem
þú hefur aldrei séð áður. Heimsfrægir hönnuðir á borð við Piquattro,
Chateau d'Ax og Interline. Komdu og skoðaðu frábært úrval.
m*
““*** Raðgreiðslur í allt að 36 mánuði.
Bíldshöfða, 110 Reykjavík
sími 510 8000, www.husgagnahotlin.is
Stefnumótunarskýrsla kynnt
Strandir
í sókn
Helga Sigurðardóttir
A
DAG klukkan 17 verð-
ur í Café Riis á Hólma-
vík kynnt skýrslan
„Strandir í sókn“ og í kvöld
klukkan 20 verðm- svo opn-
uð Galdrasýning á Strönd-
um við Höfðagötu 7. Helga
Sigurðardóttir hefur unnið
skýr-sluna „Strandir í
sókn“. Karl Friðriksson frá
Iðntæknistofnun veitti fag-
lega ráðgjöf. Helga var
spurð um niðurstöður at-
hugana sinna.
„Helstu niðurstöður í
sjávarútvegi eru að vinnsla
og veiðar skuli byggjast á
markaðs- og vöruþróunar-
starfi. Byggð verði upp
öflug bolfiskvinnsla á
grundvelli þekkingar og
sérkenna. Rækjuvinnsla á
að skara fram úr hvað varð-
ar tækniþróun, sjálfvirkni og vöra-
þróun. Sauðfjáirækt á Ströndum
skal vera framúrskarandi á lands-
visu. Stefnt er því að auka verk-
nám í sauðfjárrækt á Ströndum í
samvinnu við bændaskóla. Til-
raunaverkefni um rekjanleika
sauðfjái-afurða skal komið á. Þess
má geta að þetta er stefnumótun-
arverkefni fjögurra sveitarfélaga,
Broddaneshrepps, Hólmavíkur-
hrepps, Kaldrananeshrepps og
Kirkjubólshrepps.“
- Tók skýrslan til fleiri þátta en
sjávarútvegs og landbúnaðar?
„Eitt af forgangsverkefnum
sveitarfélaganna til uppbyggingar
er áhersla á menningar- og félags-
líf. Mikilvægt er að halda því starfi
áfram sem t.d. Strandagaldur er
að gera með því að opna Galdra-
sýningu á Ströndum í kvöld. Þessi
sýning er í pakkhúsi frá 1930, á
tveimur hæðum þess og þar era
ýmsir frumlegir sýningargripir. I
máli og myndum er á sýningunni
sagt frá þjóðsögum og sögnum
sem tengjast göldrum. Fjallað
verður um refsingar á brennuöld-
inni, 17. öld. Á stóra Islandskorti
verður sýnt hvar galdramál komu
upp á þessum tíma. Sérstaklega
verður fjallað um Klemens Bjama-
son sem var síðastur íslendinga
dæmdur fyrir galdra. Þetta er í
raun fyrsti hluti sýningarinnar,
sem opnaður er hér í kvöld, næstu
þijú ár verða sýningar um galdra
opnaðar í Hrútafirði, á Bjamar-
firði og í Trékyliisvík."
- Eru ferðamál eitt af því sem
þú skoðaðirískýrslu þinni?
„Já, bent er á heilsársferðaþjón-
ustu til atvinnuuppbyggingar.
Grundvöllur ferðaþjónustunnar er
saga svæðisins og sterk ímynd
þess. Eins og er skortir hótelrými
á Hólmavík en það er hótel á Laug-
arhóli í Bjamarfirði. í skýrslunni
koma einnig fram tillögur um upp-
byggingu safna á svæðinu og varð-
veislu sagna og sögufrægra muna.
Mikilvægt er einnig að efla hvers
kyns upplýsingaþjónustu og þjón:
ustu á sviði gistinga og veitinga. I
skýrslunni er einnig lögð áhersla á
að sveitarfélögin fjögur móti sam-
an markmið um helstu málefna-
flokka fjölskyldunnar
þar sem sérstaklega
yrði tekið tillit til öflugs
forvamastarfs og metn-
aðar við uppbyggingu
og starfrækslu allra
skólastiga."
- Hvemig er ástandið í atvinnu-
málum hjá þessum fjórum sveitar-
félögum núna?
„Að mínu mati vantar fjöl-
breytni í atvinnulífið en atvinnu-
leysi er ekki mikið á svæðinu. Hér
er h'tið um háskólamenntað fólk
enda era atvinnutækifæri fyrii- það
fá. Komið hefur tii tals að fá róds-
stofnanir hingað á svæðið en við-
► Helga Sigurðardóttir fæddist í
Reykjavík 1973. Hún lauk stúd-
entsprófí frá Verkrnennfaskólan-
um á Akureyri 1993 og var eftir
það í tveggja ára námi f iðn-
rekstrarfræði í Háskólanum á
Akureyri. Hún hefur starfað á
lögmannsstofu á Egilsstöðum og
við bankastörf en núna er Helga
auk bankastarfa í 50% vinnu við
átaksverkefni á Ströndum hjá
Atvinnuþróunarfélagi Vest-
fjarða. Helga er gift Jóni Skildi
Karlssyni verkefnis- og gæða-
stjóra og eiga þau eina dóttur,
Heklu Skjaldardóttur.
brögð við slíkri umræðu annars
staðar á landinu era reyndar ekki
uppörvandi."
- Hvemig var þessi skýrsla unn-
in?
„Þetta verkefni var unnið með
þátttöku íbúa á svæðinu, auk ung-
menna sem ættuð eru af svæðinu
en búsett í Reykjavík. Þessi fundur
sem haldinn var með ungmennun-
um er nýjung í stefnumótunar-
verkefni sem þessu. Það komu
mjög margar áhugaverðar niður-
stöður út úr þeim umræðum. Mest
áberandi er að ungmennunum
fannst vanta meiri fjölbreytni í at-
vinnulífið og vildu gera svæðið fjöl-
skylduvænna."
- Hvað felst í því?
„Einstæðir foreldrar t.d. þurfa
meiri bamagæslu en hér er að fá
og jafnvel sveigjanlegri ef um
vaktavinnu er að ræða. Ungmenn-
in lögðu mikla áherslu á að starf í
leikskólum og grunnskólum yrði
bætt og einnig á umhverfisþætti,
svo sem gerð göngustíga og úti-
vistarsvæða."
- Hvað með félagsstarf?
„Það var lagt til í skýrslunni að
ráðinn yrði starfsmaður til að sinna
íþrótta- og félagslífi. Einnig er lögð
sérstök áhersla á bama- og ungl-
ingastarf."
- Hvað með læknisþjónustu?
„Nú er einn læknir hér fyrir
mjög stórt svæði, þetta getur vald-
ið nokkru óöryggi hjá fólki, lagt er
til að læknarnir verði tveir og eins
er lagt tfi að fá fag-
menntað starfsfólk í
öðram heilbrigðisgrein-
um, svo sem iðjuþjálfa
og sjúkraþjálfara, en
engir slíkir starfa hér. í
skýrslunni er einnig far-
ið inn á það að skipuleggja þurfi
heimsóknir séifræðinga þannig að
fólk verði betur meðvitandi um
heimsóknimar og sérfræðingamir
hafi betri tíma til að sinna þeim
sem þurfa aðstoð. í skýi-slunni er
boðuð stefna sem gildir til ársins
2005 og verkefnisstjóm mun koma
saman tvisvar á ári til að ræða
stöðuna.
Galdrasýning
opnuð á
Hólmavík í
kvöld