Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 10

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Halldór J. Kristjánsson bankastjóri Landsbankans Fylgjandi frekari bankasamruna HALLDÓR J. Kristjánsson banka- stjóri Landsbanka íslands segir bankann vera fylgjandi frekari sam- runa á bankamarkaði. Hann segist hafa mesta trú á svokölluðum kostnaðarsamruna, en sem kunnugt er hefur verið rætt um frekari sam- einingu á íslenskum fjármálamark- aði í kjölfar samruna Islandsbanka og FBA. Þetta kom fram á fundi sem Landsbankinn hélt í gær til að kynna Fjárfestingabanka Lands- bankans. Kostnaðarsamrunar miða að því að minnka kostnað fyrirtækjanna sem sameinast og ná fram samlegð- aráhrifum, þ.e. samnýta svipaða starfsemi sameinuðu félaganna. Verði af slíkum samruna á íslensk- um bankamarkaði yrði að öllum lík- indum um samruna viðskiptabanka að ræða. Halldór segir að reynslan sýni að kostnaðarsamrunar gefist almennt betur en tekjusamrunar. Með sameiningu viðskiptabanka ætti að nást um 35% lækkun á kostnaði minni einingarinnar, eða 12% af sameiginlegum kostnaði. Sameining viðskiptabanka við fjár- festingarbanka eða tryggingafélag skili mun minni samlegðaráhrifum. Halldór segir að ótvíræð fylgni sé milli samþjöppunar á markaði og arðsemi banka. „Við verðum að horfa til þróunar í smærri ríkjum Evrópu. Þar er ekki óalgengt að stærstu bankarnir séu með 40% markaðshlutdeild og jafnvel upp í 70% á einstökum svæðum. Með sameiningu annars og þriðja stærsta banka íslands myndi hlut- deildin verða um 50%,“ segir hann. Nýtt skipurit Landsbanka var kynnt á fundinum í gær. Samkvæmt því er starfsemi bankans skipt í tvennt; upplýsingavinnslu/rekstur og tekjusvið. Tekjusviði er skipt í þrennt; viðskiptabankasvið, Lb- verðbréf og fjárfestingabankasvið, sem var umfjöllunarefni fundarins. Fjárfestingabanki Landsbanka sér um þjónustu við lífeyrissjóði, fjár- festingai-félög, fyrirtæki, sveitarfé- lög og fjársterka einstaklinga. Hann skiptist í alþjóða- og fjár- málasvið og íyrirtækjasvið. Tryggvi Tryggvason kynnti alþjóða- og fjár- málasvið. Greinar þess eru fimm talsins; fjárstýring, alþjóðaviðskipti, áhættustýring, afgreiðsla viðskipt- astofu og fjármálamarkaðir. Fjár- stýringin ber ábyrgð á lausafjár- stjórn bankans og hefur umsjón með vaxtastýringu og tekjumyndun hans. Hún sér um innri verðlag- ningu og innlenda jafnt sem erlenda verðbréfun (e. securitisation). Þá er aðalféhirðir bankans í fjárstýring- ardeildinni. Alþjóðaviðskiptadeildin sér um erlenda fjánnögnun Landsbankans og samskipti við erlenda banka og fjármálafyrirtæki. Deildin sér einn- ig um samskipti við lánshæfísmats- fyrirtæki, ábyrgð og innheimtur og erlenda greiðslumiðlun. Ahættustýring ber ábyrgð á og hefur eftirlit með þróun áhættu- grunns bankans. Hún annast samn- ingu reglna sem varða áhættustýr- ingu og fjárstýringu, auk skýrslugerðar varðandi alla áhættu- þætti bankans. Þá stýrir hún heild- aráhættustigi bankans, bæði á markaði og í útlánum. Afgreiðsla viðskiptastofu sér um afgreiðslu innlendra og erlendra verðbréfaviðskipta, afleiðuviðskipta, gjaldeyrisviðskipta, innlendra og erlendra peningamarkaðsviðskipta og vörsluþjónustu fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. Fjármálamarkaðssvið annast daglega starfsemi Landsbankans á gjaldeyris-, verðbréfa- og peninga- Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka fslands, kynnti Fjár- festingabanka Landsbankans á fundi í Háskólabíói í gær. markaði. Þar má telja stjórnun gjaldeyrisstöðu bankans og stöðu erlendra reikninga, gjaldeyrismiðl- un, verðbréfamiðlun, umsjón með viðskiptum bankans með afleiður, viðskipti með markaðsverðbéf í eig- in reikning og vöruþróun markaðs- afm’ða á verðbréfamarkaði. Fjár- málamarkaðssviðið skiptist í gjaldeyrisstýringu, gjaldeyrismiðl- un, peningamarkað, verðbréfamiðl- un, eigin verðbréfaviðskipti og rannsóknir og vöruþróun. Fjárfestingabanki LÍ með helming eigin fjár bankans Brynjólfur Helgason fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs kynnti starfsemi fyrirtækjasviðs. Hann sagði að starfsemi fjárfest- ingabankans næði til um helmings af efnahagsreikningi og eigin fé Landsbanka íslands hf., en heildar- eignir Landsbankans voru 193,1 milljarður króna um áramótin. Eig- ið fé bankans var á sama tíma 11,4 milljarðar króna og víkjandi lán þar að auki 4,7 milljarðar. Fyrirtækjasvið Landsbankans er sérhæfð þjónusta fyrir stærstu við- skiptavini bankans. „Við hyggjumst nú bjóða upp á persónulegri þjón- ustu en áður, umfangsmeiri ráðgjöf og bjóða upp á skuldastýringu," segir hann. Landsbankinn er nú að vinna að því að gera þjónustu sína á Netinu notendavænni og ráðgert er að þeirri vinnu verði lokið í október næstkomandi. Þá er einnig ætlunin að bjóða upp á aukna þjónustu á Netinu. : I L Morgunblaðið/Sverrir Nýr skeiðvöllur í Víðidal Meistari í ræðu- mennsku Á NÝAFSTÖÐNU Evrópu- þingi Junior Chamber í Oosten- de í Belgíu náði Th. Stella Haf- steinsdóttir, Junior Chamber Vík, þeim árangri að sigra í mælskukeppni einstaklinga. Þetta er í fjórða sinn á aðeins fímm árum sem íslendingur hlýtur Evrópumeistaratitilinn. Stella verður því fulltrúi Evrópu í mælskukeppni ein- staklinga á heimsþingi JC hreyfingarinnar sem fram fer í Japan í nóvember nk. Um- ræðuefnið í keppninni tengdist eins og fyrr þema heimsforseta hreyfíngarinnar, Kaiynar Bis- dee, sem er „Viðhorf markar vegsemd“. HESTAMANNAFÉLAGIÐ Fákur í Reykjavík opnaði nýjan skeiðvöll í Víðidal í gær, en landsmót hestamanna í ár verður haldið í Víðidal í júlímánuði. Er búist við tugþúsundum gesta á mótið, bæði innlendum og erlendum. ATKVÆÐI í póstatkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Eflingar - stéttarfélags og ríkisins voru talin á miðvikudag . Á kjörskrá voru 1.311 félags- menn. Af þeim greiddu 273 at- Það var Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, borgarstjóri, sem opnaði völlinn formlega, en á myndinni sóst hún ásamt félögum í Fáki spretta úr spori á nýja vellinum. Við hlið hennar ríður formaður Fáks, Bragi Ásgeirsson. kvæði eða 20,82%. Atkvæði féllu þannig að já sögðu 157 eða 57,5%, nei sögðu 110 eða 40,3%. Ógildir seðlar voru sex eða 2,2%. Kjarasamningurinn var því sam- þykktur. Samningar Eflingar og ríkisins samþykktir Sektir vegna van- skila á sköttum HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fjóra menn til sektargreiðslna vegna van- skila á virðisaukaskatti og stað- greiðslu opinberra gjalda að upphæð um 4 milljónir króna. Tveir mann- anna voru dæmdir til að greiða 300 þúsund krónur til ríkissjóðs, sá þriðji greiðir 750 þúsund krónur og sá fjórði eina milljón ki’óna. Héraðs- dómur hafði áður sýknað mennina af öllum kröfum ákæruvaldsins. I dómi Hæstaréttar kemur fram að höfuð- stóll skuldanna var að fullu greiddur við útgáfu ákæru. Mennirnir fjórir komu allir að rekstri fjögurra félaga, sem málið tók til. Félagið K-67 rak veitingastað í Keflavík og tók síðar við rekstri Tunglsins í Reykjavík í hálft ár, fé- lagið íslenskt framtak rak Pizza 67 við Nethyl, P-67 stjórnaði vöi-umerk- inu Pizza 67 og innheimti leigutekjur vegna þess og T-67 rak Pizza 67 við Tryggvagötu. Ekki vanræksla á að skila skýrslum Hæstiréttur sakfelldi mennina fyrir að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eft- ir af launum starfsmanna. Rétturinn sagði leiða af ákvæðum laga og eðli máls að skattgreiðslur gengju íyrst upp í eldri skuldir og féllst ekki á það sjónarmið að draga bæri frá ákæru- fjárhæð greiðslur, sem áður voru látnai’ ganga upp í ógreiddan virðis- aukaskatt og staðgreiðslu eldri tíma- bila og álag og dráttarvexti. Þá taldi rétturinn að greiðsla á höfuðstól skuldanna í júní 1998, áður en ákæra var gefin út, hefði ekki áhrif á sakarmat, en taka mætti tillit til hennar við ákvörðun refsing- ar. Hæstiréttur leit einnig til þess við ákvörðun refsingar að brotin fól- ust ekki í vanrækslu á að skila skýrslum eða í rangfærslum. Svínabúið Brautarholti kaupir Síld og físk „VIÐ stefnum að því að efla þetta fyrirtæki á eigin forsendum og sjáum mikla möguleika til þess, því vörumerki fyrirtækisins, Ali, er mjög sterkt merki,“ sagði Kristinn Gylfi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Svínabúsins Braut- arholti, en eigendur þess keyptu í gær z/3 hluta í Sfld og fiski af systkinunum Katrínu og Skúla Þorvaldsbörnum en Geirlaug syst- ir þeirra heldur sínum þriðjungi. Áuk þessa keypti Svínabúið Brautarholti fasteignir Síldar og fisks í Dalshrauni og á Minni- Vatnsleysu. 25-30% markaðshlutdeild Að sögn Kristins Gylfa verður samanlögð markaðshlutdeild þess- ara fyrirtækja á svínakjötsmarkaði 25-30% en engar fyrirætlanir eru uppi um sameiningu fyrirtækj- anna. Svínabúið Brautarholti mun áfram selja með sama hætti og áð- ur undir vörumerkinu Gæðagrís og meðal annars í gegnum Kjötvinn- sluna Esju sem fyrirtækið á helm- ings hlut í. Markaðshlutdeild fyrir- tækisins á kjúklinga- og eggjamarkaði er svipuð og á svína- markaðnum og segist Kristinn Gylfi telja útlitið á kjötmarkaðnum gott og segir kjötneyslu hafa auk- ist, sérstaklega neyslu svína- og kjúklingakjöts. Þorvaldur Guðmundsson stofn- aði Síld og fisk árið 1944 og eru það börn hans sem nú eru að selja. Þeir sem eiga Svínabúið Brautar- holti eru Jón Ólafsson og synir hans, Kristinn Gylfi, Ólafur, Björn og Jón Bjarni. Eins og títt er þegar stórir samningar eru annars vegar er nú unnið að áreiðanleikakönnun á Síld og fiski og mun niðurstaða hennar liggja fyrir í lok júlí. 1 !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.