Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 16

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Jónsmessu- hátíð á Selfossi EINS og undanfarin ár munu fyrir- tæki og stofnanir á Selfossi bjóða Ár- borgarbúum og gestum til morgun- verðar í tjaldi á Jónsmessudag, 24. júní. Að þessu sinni verður tjaldið við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Morg- unverðurinn hefst kl. 9. Boðið verður upp á hlaðborð. Að loknum morgunverðinum verð- ur mikið um að vera, Bylgjulestin verður á ferðinni, leiktæki fyrir börnin, félagar úr Leikfélagi Selfoss bregða á leik og verða m.a. með and- litsmálun fyrir börn, tjaldmarkaður, bílasýning frá Heklu, búvélasýning frá Bújöfri, MBF sýnir nýuppgerðan mjólkurbíl frá gamla tímanum ásamt brúsapalli, keppt verður í Hálanda- leikunum, leitað að Sumarstúlku Séð og heyrt o.fl. Árborgarbúar og aðrir eru hvattir til að fjölmenna og njóta þess sem í boði verður, segir í fréttatilkynn- ingu. Fornleifauppgröftur í Reykholti í Borgarfírði. Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir Fornleifarannsóknir í Reykholti komnar í fullan gang Fræðslu- fundur um Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Hafsteinn Bjarnason, eigandi Byggðasels, Ingibjörg Pálmadóttir ráð- herra, Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, og Árni Magnússon, formaður stjórnar Heilsugæslustöðvar Hvergerðis, undir- rita samninginn. Leigusammngur um heilsugæslustöð Hveragerði - Samningur milli stjórnar Heilsugæslustöðvarinnar í Hveragerði og Byggðasels ehf. um leigu á húsnæði undir heilsu- gæslustöð í Hveragerði var undir- ritaður síðastliðinn föstudag af Ingibjörgu Pálmadóttur, heilbrigð- isráðherra. Húsnæðið sem um ræðir verður í nýbyggingu sem Byggðasel er að hefja byggingu á í miðbæ Hvera- gerðis. Sá hluti húsnæðisins, sem hýsa á heilsugæslustöð, er samtals um 380 fermetrar á 2 hæðum. Húsið skal afhendast fullbúið eigi síðar en 15 júní 2001. í máli Árna Magnússonar, for- manns stjórnar Heilsugæslustöðv- arinnar í Hveragerði, kom fram að gríðarleg breyting verður á starf- semi heilsugæslustöðvarinnar með tilkomu nýs húsnæðis. Um um- talsverða stækkun á húsnæðinu er að ræða þar sem núverandi heilsu- gæslustöð er um helmingi minni en hin nýja í afar óhentugu hús- næði sem aldrei var hannað til að gegna þessu hlutverki. Með stærra húsnæði verður hægt að bjóða enn betri og fjölbreyttari þjónustu við Hvergerðinga og aðstöðu eins og hún gerist best í landinu. Að sögn Hafsteins Bjarnasonar, eiganda Byggðasels, er einnig gert ráð fyrir lyfjaverslun í húsnæðinu, en hluta þess er enn óráðstafað. áhrif áfalla FRÆÐSLUFUNDUR um áhrif áfalla verður haldinn í Brautarholti fyrir Gnúpveija- og Skeiðahrepp í dag, föstudag, kl. 13. Fundirnir eru opnir öllum sem áhuga hafa og eru íþúar Árnessýslu sérstaklega hvattir til að mæta. Rætt verður um áhrif áfalla á börn, unglinga og fullorðna og hvernig hægt sé að bregðast við þeim. Heilsugæslan, áfallateymi Land- spítalans, almannavarnanefndir og Rauðakrossdeild Ámessýslu halda þessa fræðslufundi. Fjöldahjálparstöð Rauða krossins verður starfrækt í Sólvallaskóla á Selfossi næstu daga. Fólk er hvatt til að leita þar aðstoðar. Hægt er að bóka viðtöl við sálfræðinga í síma fjöldahjálparstöðvarinnar. 36 nemendur útskrifuðust frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. 36 nemendur braut- skráðir frá Menntaskól- anum á Egilsstöðum Egilsstöðum - Nú á vorönn voru brautskráðir 36 nemendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Þetta var tuttugasta og fyrsta brautskráningin frá skólanum og alls hafa þá útskrifast um 755 nemendur frá upphafi. Flestir nemendur útskrifuðust af félags- fræðibraut en þeir voru 16, sjö luku námi af tveimur brautum og einn nemandi lauk stúdentsprófí frá félagsfræði-, mála- og náttúru- fræðibrautum. Viðurkenningar hlutu Eyrún Huld Haraldsdóttir fyrir góðan ár- angur í íslensku, Gunnar Guðmundsson fyrir góðan árangur í frönsku og Guðmundur Þorkell Guðmundsson fyrir góðan árangur í sögu og áhuga á sögu Austur- lands. Helga Jóna Jónasdóttir hlaut viðurkenningu fyrir fram- úrskarandi námsárangur í raungr- einum og stærðfræði og auk þess góðan árangur í íslensku og þýsku. Þess má geta að Helga Jóna hefur tekið 58 áfanga við skólann og fengið 36 sinnum 10 í einkunn. Hún hefur tekið 7 stærðfræðiáfanga og fengið 10 í þeim öllum. Sóley Þrastardóttir fékk viðurkenningu fyrir fram- úrskarandi námsárangur al- mennt. Hún hlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í dönsku, frönsku og þýsku. Sóley hefur á fjórum árum tekið 3 brautir og Morgunblaðið/Jósep Marinósson lokið 220 einingum. Nokkrir nemendur fengu viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum. Þeir voru: Aðalsteinn Jósepsson, Arn- þór Björn Reynisson, Hlynur Gauti Sigurðsson, Stefán Bene- dikt Vilhelmsson, Stella Stefáns- dóttir, Þóra Magnea Helgadóttir og Þórunn Bylgja Borgþórsdótt- ir. AIls voru um 230 nemendur skráðir við skólann á vorönn í dagskóla, þar af 60 nemendur sem stunduðu nám utanskóla og í öld- ungadeild voru 75 nemendur skráðir. Tæplega 100 nemendur voru á heimavist. Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum er Helgi Ómar Bragason. Mun umfangsmeiri uppgröftur í sumar Reykholti - Fornleifauppgröfturinn í Reykholti er nú kominn í fullan gang að nýju og hefur svæðið frá fyrra sumri verið stækkað um 8 metra til norðurs. Uppgröftur- inn í sumar hófst fyrr en áður hefur verið og mun standa í allt að 9 vikur. Mestallt tímabilið starfa tólf manns við uppgröftinn, en auk Islendinga samanstendur hópurinn af fornleifafræð- ingum frá Evrópu og N-Ameríku. Auknu fjármagni hefur verið veitt í þetta verkefni í sumar. Guðrún Svein- bjarnardóttir, fornleifafræðingur og verkefnisstjóri, seg- ist vonast til að rannsóknum verði lokið á neðra svæðinu í sumar og að skýr mynd fáist af tengingu Snorraganga við elstu húsin, sem liggja undir yngri byggingastigum. Við framkvæmdir á lóð gamla Héraðsskólans var kom- ið niður á leifar forns ruslahaugs vestanvert við skólahús- ið. í sumar verða þessar leifar rannsakaðar frekar, m.a. af sérfræðingum frá Bandaríkjunum og Bretlandi. Von- ast er til að þær rannsóknir geti varpað frekara ljósi á daglegt líf fyrri alda. Sérstakt mannvirki verður skoðað betur í sumar Á nýja svæðinu sem opnað var í sumar standa vonir til að varpa megi Ijósi á allsérstakt mannvirki með stólpa- hleðslum, sem fannst nyrst í uppgreftrinum sl. sumai-, auk leifa af hverahrúðri sem bendir til notkunar heits vatns á þessum stað. Á þessu stigi má skipta uppgraftarsvæðinu gróflega í þrjú byggingarstig: I efsta lagi er gangabær frá 17.-19. öld. Undir honum eru mannvirki sem tímasett hafa verið með kolefnisgreiningu til 15.-16. aldar og þar undir liggja göngin sem hafa verið aldursgreind með kolefnisgrein- ingu til 11.-13. aldar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.