Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 18

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ BETRA KYNLÍF MEÐ LANDIÐ ASTROGLIDE FÆST í APÓTEKUM FÁIÐ PRUFU í APÓTEKINU ymus.vefurinn.is astroglide.com SANYL ÞAKRENNUR Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. £ ÁiFABORG Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755 Hátíðleg athöfn á Skriðuklaustri Gjöf skáldsins loks veitt verð- u g viðtaka Geitagerði - Starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuk- laustri í Fljótsdal hófst formlega sunnudaginn 18. júní síðastliðinn að viðstöddum Birni Bjamasyni, menntamálaráðherra, Skúla Birni Gunnarssyni, forstöðumanni Stofn- unar Gunnars Gunnarssonar, Gunn- ari Bimi Gunnarssyni, bamabama- bami skáldsins, og íjölda annarra gesta. Frá þeim degi verður setur stofnunarinnar, hús Gunnars Gunn- arssonar skálds, opið gestum eftir gagngerar endurbætur. Sú marg- háttaða menningarstarfsemi sem nú bíður þessa merka húss hófst einnig sama dag með sýningu á verkum Gunnars Gunnarssonar yngra, list- málara. Hátíðin hófst með tónum hljóm- listarmannanna Hallfríðar Ólafs- dóttur og Armanns Halldórssonar. Pá bauð Skúli Björn gesti velkomna. AfWMHilDWm Lýsti hann þakkiæti fyrir þann vel- vilja sem honum væri sýndur í starfi forstöðumanns þessarar nýju stofn- unar sem og þann velvilja sem hún nyti hjá stjórnvöldum og meðal fólks. Hann rakti forsögu Stofnunar Gunn- ars Gunnarssonar sem nú væri form- lega að taka til starfa, allt frá því skáldið og kona hans, Franzisea, hófu búskap á Skriðuklaustri sum- arið 1939 með byggingu hússins mikla og þar til álíka margir og unnu það sumar við byggingu þess hefðu nú, sextíu og einu ári síðar, lagt hönd að þeim endurbótum á húsinu og margháttuðum undirbúningi að formlegri opnun þess sem seturs Stofnunar Gunnars Gunnarssonar. Barnabamabarn Gunnars og Franziscu, Gunnar Bjöm Gunnars- son, sonur Franziscu, dóttur Gunn- ars Gunnarssonar yngra, listmálara, ræddi meðal annars í ávarpi sínu þessa sérstæðu gjöf langafa síns og langömmu. Engirm íslendingur hefði gefið þjóð sinni stærri gjöf að sér lif- andi og hefði hún þó fengið öll skáld- verk hans að auki. Það væri sér mikið gleðiefni að loksins skyldi þessari gjöf vera veitt sú viðtaka sem henni sæmdi. Bæri einkum að þakka það Birni Bjarnasyni, menntamálaráð- herra, en einnig bæri að þakka mörg- um fleirum. Sérstaklega vildi hann nefna austfirsku þingmennina Helga Morgunblaðið/Guttormur Starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar hófst formlega með hátíð sem haldin var á Skriðuklaustri um helgina. Seljan, Jón Kristjánsson og Hjörleif Guttormsson. Þeirra stuðningur við málefni Skriðuklausturs hefði verið óbrigðull og ötull. Sýndi stórhug Bjöm Bjarnason, menntamálaráð- herra, gerði að umtalsefni þann stór- hug sem skáldið hefði sýnt með þess- ari gjöf tO þjóðar sinnar. Héðan í frá yrði ekki frá því vikið að veita henni þá viðtöku sem bæri. Séð yrði til þess að Stofnun Gunnars Gunnarssonar sinnti því hlutverki í sögu, menningu, vísindum og listum sem til var stofn- að með gjöfinni. í því sambandi rakti ráðherrann aðdraganda og undir- búning að stofnun Stofnunar Gunn- ars Gunnarssonar, síðast þær fjár- veitingar sem til verksins hafa runnið á undanfornum ámm. Enn væri margt ógert en brýnt væri að Ijúka m.a. endurbótum á húsinu þannig að öllum væri sómi að. Ráð- herrann kvaðst opinn fyrir því að Stofnun Gunnars Gunnarssonar yrði beitt til að efla menningarlíf á Aust- fjörðum utan eiginlegs verksviðs hennar. Að loknum ávöi’pum var húsið skoðað og sýning Gunnars Gunnars- sonar yngra, listmálara. Árið 1939 flutti Gunnar Gunnars- son með fjölskyldu sína heim í fæð- ingarsveit sína eftir þriggja áratuga dvöl í Danmörku. Haustið áður hafði hann samið um kaup á jörðinni Skriðuklaustri af Sigmari G. Þormar. Um sumarmál hófust framkvæmdir. Laust fyrir jól sama ár var flutt í hús- ið og er í minnum haft hversu hratt gekk verkið þrátt fyrir litla véltækni. Til dæmis var öll steypa í húsið hrærð með rekum og ekið í mótin í hjólbörum. Vinna við grjóthleðsluna var tímafrek. Velja þurfti hvern stein af kostgæfni og hreinsa vandlega áð- ur en hann var múraður í vegginn. Nú er þessi hleðsla eitt helsta sér- kenni hússins ásamt torfburstinni. Það var svo haustið 1948 að þau hjón tóku þá ákvörðun að bregða búi og flytja til Reykjavíkur og afhenda íslenska ríkinu fyrir hönd þjóðarinn- ar jörðina ásamt mannvirkjum að gjöf. Gunnar fékk þá Pál Hermann- sson alþingismann og Guttorm Þormar í Geitagerði til að votta gjöf- ina með áritun á gjafabréf hinn 18. september sama ár. verður opnað með formlegum hœtti í Flugskýli 7, Akureyrarflugvelli laugardaginn 24. júni kl. 10.00. í tengslum við opnunina verður fyrri hluti íslandsmótsins í listflugi haldinn á Akureyrarflugvelli. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Börn af Leikhólum í heimsókn á HDíð þar sem þau fengu að leika sór við lömb. Ólafsfirði. Morgunblaðið. BÖRNIN á Leikhólum í Ólafsfirði fóru nýlega í sveitina og fengu að sjá og leika við lömb vorsins. Farið var fram í BQíð. Hlíðarhjónin, Gunnar og Svanfríður, voru reyndar í burtu, en Hildur A. Ólafsdóttir tók á móti bömum, nokkrum foreldrum og starfsfólki Leikhóla. Lömb að leika sér við Það var gaman í þessari ferð og bömin réðu sér ekki fyrir kæti þeg- ar þau fengu að elta lömbin og meira að segja halda á þeim, eins og mynd- in hér að ofan ber glöggt með sér. Kindumar vom hins vegar ekki al- veg eins kátar, því þær jörmuðu ámát- lega og snusuðu í allar áttir að súium afkvæmum, eins og þær vildu segja: Þetta em engin lömb að leika sér við! Ný sjón- arhorn Flateyri. Morgunblaðið. ÞAÐ getur verið erfitt að sitja inni í kennslustofum þegar sumarið nálg- ast. Nemendur í 4.bekk Grannskóla Önundarfjarðar fengu þó að njóta útiverunnar í síðasta myndmennta- tíma vetrarins. Verkefni kennslu- stundarinnar fólst nefnilega í að klippa út pappírsramma og ganga síðan með hann um bæinn í leit að nýjum sjónarhornum. Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.