Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eigendur Selskarðs segja land sitt ekki standa til boða fyrir Alftanesveg
Loftmynd yfir land Selskarðs. Horft er til suðurs. Punktalínan afmarkar land Selskarðs. Neðst fyrir miðri mynd eru Bessastaðir.
Hafa skipulagt 400
íbúða byggð á jörðinni
%
Morgunblaðið /Arnaldur
Skipulagskort sem landeigendur á Selskarði hafa látið út-
búa fyrir 400 íbúða byggð á jörðinni og með Álftanesveg á
uppfyllingu úti í Lambhúsatjörn.
EIGENDUR jarðarinnar
Selskarðs á Álftanesi hafa lát-
ið skipuleggja byggð með 400
íbúðum á jörðinni og segja að
land þeirra standi ekki til
boða undir Álftanesveg eins
ogVegagerðin hyggst leggja
hann. Öll þau vegarstæði, sem
Vegagerðin hefur í huga,
stórskaði hagsmuni eigenda
Selskarðs, sem á hinn bóginn
bjóða fram land í fjöru
Lambhúsatjamar fyrir þjóð-
veginn. „Pað er látið eins og
við séum ekki til,“ segir Björn
Erlendsson, talsmaður eig-
endanna, um undirbúning
vegagerðarinnar og samskipti
eigenda við bæjaryfirvöld í
Garðabæ en eigendumir hafi
löngu gert þessum yfirvöldum
ljósa andstöðu sína og fram-
tíðaráform á landinu.
Bjöm segir að það frummat
á umhverfisáhrifum vegna
vegagerðarinnar, sem liggi
fyrir, sé ekki hlutlaust enda
gert á kostnað Vegagerðar-
innar. Hvorki hafi farið fram
hagrænt né félagslegt mat á
áhrifum vegarlagningarinnar
en landeigendumir telji nauð-
synlegt að slíkt verði gert.
Land Selskarðs nær frá
jaðri Gálgahrauns, milli
Lambhúsatjarnar og Skóg-
tjamar og nánast að heim-
reiðinni að Bessastöðum. Við
undirbúning Vegagerðarinn-
ar og Garðabæjar vegna lagn-
ingar Álftanesvegar hafa þrjú
vegstæði verið nefnd, sem öll
liggja í landi Selskarðs.
Jörðin Selskarð er 50 hekt-
arar að miðað við meðalsjáv-
arhæð stærð en 100 hektarar
að meðtöldum fjömm, að sögn
Bjöms. Fjórir aðilar eiga
Selskarð og Bjöm segir að
eigendunum séu vel ljósir
hagsmunir almennings í sam-
bandi við vegargerðina og
vilji ekki standa í vegi fyrir
því að bætt vegasamband
komist á.
Þeir hafi því nefnt aðra
kosti og boðið til vegagerðar-
innar land sem ekki spilli
möguleikum þeirra á að nýta
eign sína eins og leiðirnar
þrjár, sem nú em uppi á borð-
inu.
Nokkuð hefur verið fjallað
um áformaða lagningu Álfta-
nesvegar og þá ráðagerð, sem
byggist á aðalskipulagi
Garðabæjar, að leggja veginn
um Gálgahraun, samkvæmt
svonefndri leið A. Fram-
kvæmdir em áformaðar
2002-2003 og kostnaður áætl-
aður 400 m.kr. Mælingar sl.
ár sýndu 3.400-4.400 bíla um-
ferð um veginn á dag en því er
spáð að þegar lokið er við
íbúðabyggð í Garðaholti og
Bessastaðahreppi verði dag-
leg meðalumferð um nýjan
Álftanesveg allt að 15.000 bíl-
ar á sólarhring.
Nokkrir aðilar hafa orðið til
að mótmæla því vegna hættu
á að hraunið og minjar í því
spilltust. Skipulagsstjóri
fellst ekki á hina svonefndu
leið A án þess að fram fari
frekara umhverfismat en
fellst á leiðir B eða C með til-
teknum skilyrðum. Allar
þessar leiðir liggja um land
Selskarðs.
2 milljarða
verðmæti?
í einu þeirra skjala, sem
landeigendur hafa sent með
athugasemdum sínum við
skipulagsferlið, kemur fram
að þeir telji verðmæti lands-
ins vera allt að tveimur millj-
örðum króna vegna mögu-
leika á íbúðabyggð þar.
Áform landeigendanna um
uppbyggingu íbúðarbyggðar
eru sýnd á mynd með grein-
inni, þar sem skipulögð hefur
verið 400 íbúða byggð, að
mestu með einbýlishúsum en
nokkur fjölbýlishús eru ráð-
gerð. Þeir hafi látið gera lög-
legan skipulagsuppdrátt yfir
landið, sem fylgt hafi athuga-
semdum þeirra við mat á um-
hverfisáhrifum vegarlagning-
arinnar. Þá segir Bjöm
Erlendsson að fleiri verðmæti
séu í húfi því tilraunaboranir
bendi til þess að nýtanlegur
jarðhiti sé í landinu, sem nota
megi til að hita upp þá byggð
sem reist verði í landi Sel-
skarðs. Loks sé æðarvarp á
jörðinni í hættu vegna jarð-
rasks við vegargerðina og
umferðaraukningar að henni
lokinni. Ennfremur íylgi
Selskarði sandnámur í landi
Garðaholti, þar sem Garða-
bær hefur skipulagt íbúða-
hverfi, sem rísa á á næstu ár-
um. Bjöm segir
Selskarðsmenn ætla sér að
sælq'a þangað efni vegna
áformaðrar uppbyggingar
íbúðabyggðar á jörðinni.
Hann segir að sú leið að
leggja veginn í fjörunni eins
og landeigendur vilja hljóti að
teljast fjárhagslega hagkvæm
þegar tekið er tillit til taps
landeigendanna af því að leið-
ir A, B eða C yrðu farnar og
nýtingarmöguleikar landeig-
enda með því skertir á bóta-
skyldan hátt.
Bjöm segir að öll samskipti
landeigendanna við Garðabæ
hafi verið erfið enda vilji bæj-
aryfirvöld ekkert við þá tala
og hafi látið gera aðalskipulag
í landi Selskarðs án þess að
óska eftir samþykki þeirra
eða að þeir láti eign sína af
hendi. Skipulag sem þannig
sé staðið að hafi ekkert laga-
legt gildi.
Þá hafi bæjaryfirvöld látið
frá sér fara að Selskarð sé lít-
ils virði vegna sjávarflóða og
væntanlegra breytinga á sjáv-
arhæð vegna gróðurhúsa-
áhrifa, sem útiloki að byggt
verði á landinu.
Björn segir að sjógangs
gæti varla nokkuð í
Lambhúsatjörn og Skógtjörn
og það sé nýjung að ætla að
verðfella eignir vegna
hugsanlegra gróðurhúsa-
áhrifa í framtíðinni og það
verði varla á löglegan hátt
gert með Selskarð eitt allra
jarða í landinu.
Bjöm sagði að strax 1996,
þegar vegurinn var settur á
aðalskipulag Garðabæjar,
hafí landeigendumir sent
mótmæli þar sem greint var
frá andstöðu þeirra við fyrir-
hugaðar leiðir og nauðsyn
þess að tekið yrði tillit til
áforma þeirra um notkun
landsins í framtíðinni.
Bjóða aðra kosti
Þeir skilji hins vegar nauð-
syn bætts vegarsambands og
Björn segir að þess vegna hafi
þeir boðið aðra kosti. Aðal-
lega sé þar um að ræða að
vegur verði lagður á uppfyll-
ingu í Lambhúsatjöm en
einnig að vegurinn verði lagð-
ur í stokk neðanjarðar. Hann
bendir á að hvergi í fyrirliggj-
andi skýrslum sé gert ráð fyr-
ir kostnaði við hljóðmanir í
landi Selskarðs til þess að
vega gegn hávaðamengun eða
undirgöngum til þess að
tryggja samgang um landið
beggja vegna vegarins verði
leiðir A, B eða C fyrir valinu.
En má ekki vænta þess að
Garðabær taki land eignar-
námi undir vegarstæðið?
Bjöm segist draga í efa að
eignamám sé heimilt vegna
þeirra skilyrða sem stjórnar-
skráin setur fyrir slíkum
neyðarúrræðum. „Engir
nauðsynlegir almannahags-
munir knýja á um að ganga á
eign okkar þegar aðrar ágæt-
ar leiðir em í boði,“ segir
hann.
Bjöm bendir einnig á að
Amarneslandið í Garðabæ sé
í einkaeigu. Bærinn hafi reynt
að taka það eignarnámi eftir
að samningar við landeigend-
ur náðust ekki en dómstólar
hafi ekki^ veitt eignarnáms-
heimild. í framhaldi af því
hafi þáverandi eigendur selt
landið Jóni Ólafssyni, sem nú
vinnur að því að fá skipulagða
á því íbúðabyggð. Ennfremur
bendir hann á að meðalhófs-
regla stjómsýslulaganna geri
ráð fyrir því að við íþyngjandi
stjómvaldsaðgerðir sé ávallt
farin sú leið sem íþyngir hags:
munum borgaranna minnst. í
því ljósi hljóti það að vega
þungt að landeigendumir hafi
þegar bent á aðrar færar leið-
ir við lagningu vegarins.
Hann segir að samskipti sín
og annarra eigenda jarðar-
innar við Garðabæ og Vega-
gerðina séu farin að minna sig
á baráttu Jóns Kjartansson-
ar, á Stóra-Kroppi í Borgar-
firði, við vegagerðarmenn
vegna vegarlagningar í landi
hans. Þar hafi meðalhófsregl-
an m.a orðið til þess að hnikað
var til upphaflega ráðgerðu
vegarstæði.
Fuglalíf
Björn segir að landeigend-
umir muni áfram vinna að
framgangi hugmynda sinna
um íbúðabyggð á jörðinni.
Þeir stefni að því að ræða við
skipulagsstjóra og umhverfis-
ráðherra vegna málsins. Þeg-
ar hafi þeir rætt málið við
Samtök um betri byggð, sem
tekið hafi vel í hugmyndir
þeirra, enda sé vakning í þjóð-
félaginu fyrir því að þétta
byggð á höfuðborgarsvæðinu
í stað þess að þenja borgar-
landið upp til fjalla.
í frummatsskýrslu á um-
hverfisáhrifum vegarlagning-
arinnar kemur fram að
Lambhúsatjöm hafi mikið
gildi fyrir fuglalíf og leið A
hafi meiri áhrif á náttúrufar
en leiðir B og C. Fram-
kvæmdaraðili telji tillögur um
að leggja veginn á kafla í
stokk óraunhæfar, tæknilega
og vegna kostnaðar, auk þess
sem vegarstæði í Lambhúsa-
tjörn sé í meiri andstöðu við
vemdarsjónarmið en sú stað-
setning sem nú sé áformuð.
Einnig kemur fram að minjar
í landi Selskarðs séu á bæjar-
minjaskrá.
Bjöm segir að slík skráning
hafi engin réttaráhrif enda
gerð án samráðs og tilkynn-
ingar til landeigenda. Hann
telur að verði vegurinn lagður
um fjöruna muni myndast
betri aðstæður fyrir fuglalíf í
fjörunni með auknu rými og
skjólgóðri inntjöm en slíkar
séu kjöraðstæður fyrir fugla,
eins og sjáist af reynslunni af
framkvæmdum við Pollinn á
Akureyri. Eina sérstæða
fuglalífið á Selskarði sé hins
vegar æðarvarp, sem eigend-
ur hafi sinnt. Verði vegur
lagður eftir línum A, B eða C
muni hann fara yfir friðland
æðarfugls.