Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 20

Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eigendur Selskarðs segja land sitt ekki standa til boða fyrir Alftanesveg Loftmynd yfir land Selskarðs. Horft er til suðurs. Punktalínan afmarkar land Selskarðs. Neðst fyrir miðri mynd eru Bessastaðir. Hafa skipulagt 400 íbúða byggð á jörðinni % Morgunblaðið /Arnaldur Skipulagskort sem landeigendur á Selskarði hafa látið út- búa fyrir 400 íbúða byggð á jörðinni og með Álftanesveg á uppfyllingu úti í Lambhúsatjörn. EIGENDUR jarðarinnar Selskarðs á Álftanesi hafa lát- ið skipuleggja byggð með 400 íbúðum á jörðinni og segja að land þeirra standi ekki til boða undir Álftanesveg eins ogVegagerðin hyggst leggja hann. Öll þau vegarstæði, sem Vegagerðin hefur í huga, stórskaði hagsmuni eigenda Selskarðs, sem á hinn bóginn bjóða fram land í fjöru Lambhúsatjamar fyrir þjóð- veginn. „Pað er látið eins og við séum ekki til,“ segir Björn Erlendsson, talsmaður eig- endanna, um undirbúning vegagerðarinnar og samskipti eigenda við bæjaryfirvöld í Garðabæ en eigendumir hafi löngu gert þessum yfirvöldum ljósa andstöðu sína og fram- tíðaráform á landinu. Bjöm segir að það frummat á umhverfisáhrifum vegna vegagerðarinnar, sem liggi fyrir, sé ekki hlutlaust enda gert á kostnað Vegagerðar- innar. Hvorki hafi farið fram hagrænt né félagslegt mat á áhrifum vegarlagningarinnar en landeigendumir telji nauð- synlegt að slíkt verði gert. Land Selskarðs nær frá jaðri Gálgahrauns, milli Lambhúsatjarnar og Skóg- tjamar og nánast að heim- reiðinni að Bessastöðum. Við undirbúning Vegagerðarinn- ar og Garðabæjar vegna lagn- ingar Álftanesvegar hafa þrjú vegstæði verið nefnd, sem öll liggja í landi Selskarðs. Jörðin Selskarð er 50 hekt- arar að miðað við meðalsjáv- arhæð stærð en 100 hektarar að meðtöldum fjömm, að sögn Bjöms. Fjórir aðilar eiga Selskarð og Bjöm segir að eigendunum séu vel ljósir hagsmunir almennings í sam- bandi við vegargerðina og vilji ekki standa í vegi fyrir því að bætt vegasamband komist á. Þeir hafi því nefnt aðra kosti og boðið til vegagerðar- innar land sem ekki spilli möguleikum þeirra á að nýta eign sína eins og leiðirnar þrjár, sem nú em uppi á borð- inu. Nokkuð hefur verið fjallað um áformaða lagningu Álfta- nesvegar og þá ráðagerð, sem byggist á aðalskipulagi Garðabæjar, að leggja veginn um Gálgahraun, samkvæmt svonefndri leið A. Fram- kvæmdir em áformaðar 2002-2003 og kostnaður áætl- aður 400 m.kr. Mælingar sl. ár sýndu 3.400-4.400 bíla um- ferð um veginn á dag en því er spáð að þegar lokið er við íbúðabyggð í Garðaholti og Bessastaðahreppi verði dag- leg meðalumferð um nýjan Álftanesveg allt að 15.000 bíl- ar á sólarhring. Nokkrir aðilar hafa orðið til að mótmæla því vegna hættu á að hraunið og minjar í því spilltust. Skipulagsstjóri fellst ekki á hina svonefndu leið A án þess að fram fari frekara umhverfismat en fellst á leiðir B eða C með til- teknum skilyrðum. Allar þessar leiðir liggja um land Selskarðs. 2 milljarða verðmæti? í einu þeirra skjala, sem landeigendur hafa sent með athugasemdum sínum við skipulagsferlið, kemur fram að þeir telji verðmæti lands- ins vera allt að tveimur millj- örðum króna vegna mögu- leika á íbúðabyggð þar. Áform landeigendanna um uppbyggingu íbúðarbyggðar eru sýnd á mynd með grein- inni, þar sem skipulögð hefur verið 400 íbúða byggð, að mestu með einbýlishúsum en nokkur fjölbýlishús eru ráð- gerð. Þeir hafi látið gera lög- legan skipulagsuppdrátt yfir landið, sem fylgt hafi athuga- semdum þeirra við mat á um- hverfisáhrifum vegarlagning- arinnar. Þá segir Bjöm Erlendsson að fleiri verðmæti séu í húfi því tilraunaboranir bendi til þess að nýtanlegur jarðhiti sé í landinu, sem nota megi til að hita upp þá byggð sem reist verði í landi Sel- skarðs. Loks sé æðarvarp á jörðinni í hættu vegna jarð- rasks við vegargerðina og umferðaraukningar að henni lokinni. Ennfremur íylgi Selskarði sandnámur í landi Garðaholti, þar sem Garða- bær hefur skipulagt íbúða- hverfi, sem rísa á á næstu ár- um. Bjöm segir Selskarðsmenn ætla sér að sælq'a þangað efni vegna áformaðrar uppbyggingar íbúðabyggðar á jörðinni. Hann segir að sú leið að leggja veginn í fjörunni eins og landeigendur vilja hljóti að teljast fjárhagslega hagkvæm þegar tekið er tillit til taps landeigendanna af því að leið- ir A, B eða C yrðu farnar og nýtingarmöguleikar landeig- enda með því skertir á bóta- skyldan hátt. Bjöm segir að öll samskipti landeigendanna við Garðabæ hafi verið erfið enda vilji bæj- aryfirvöld ekkert við þá tala og hafi látið gera aðalskipulag í landi Selskarðs án þess að óska eftir samþykki þeirra eða að þeir láti eign sína af hendi. Skipulag sem þannig sé staðið að hafi ekkert laga- legt gildi. Þá hafi bæjaryfirvöld látið frá sér fara að Selskarð sé lít- ils virði vegna sjávarflóða og væntanlegra breytinga á sjáv- arhæð vegna gróðurhúsa- áhrifa, sem útiloki að byggt verði á landinu. Björn segir að sjógangs gæti varla nokkuð í Lambhúsatjörn og Skógtjörn og það sé nýjung að ætla að verðfella eignir vegna hugsanlegra gróðurhúsa- áhrifa í framtíðinni og það verði varla á löglegan hátt gert með Selskarð eitt allra jarða í landinu. Bjöm sagði að strax 1996, þegar vegurinn var settur á aðalskipulag Garðabæjar, hafí landeigendumir sent mótmæli þar sem greint var frá andstöðu þeirra við fyrir- hugaðar leiðir og nauðsyn þess að tekið yrði tillit til áforma þeirra um notkun landsins í framtíðinni. Bjóða aðra kosti Þeir skilji hins vegar nauð- syn bætts vegarsambands og Björn segir að þess vegna hafi þeir boðið aðra kosti. Aðal- lega sé þar um að ræða að vegur verði lagður á uppfyll- ingu í Lambhúsatjöm en einnig að vegurinn verði lagð- ur í stokk neðanjarðar. Hann bendir á að hvergi í fyrirliggj- andi skýrslum sé gert ráð fyr- ir kostnaði við hljóðmanir í landi Selskarðs til þess að vega gegn hávaðamengun eða undirgöngum til þess að tryggja samgang um landið beggja vegna vegarins verði leiðir A, B eða C fyrir valinu. En má ekki vænta þess að Garðabær taki land eignar- námi undir vegarstæðið? Bjöm segist draga í efa að eignamám sé heimilt vegna þeirra skilyrða sem stjórnar- skráin setur fyrir slíkum neyðarúrræðum. „Engir nauðsynlegir almannahags- munir knýja á um að ganga á eign okkar þegar aðrar ágæt- ar leiðir em í boði,“ segir hann. Bjöm bendir einnig á að Amarneslandið í Garðabæ sé í einkaeigu. Bærinn hafi reynt að taka það eignarnámi eftir að samningar við landeigend- ur náðust ekki en dómstólar hafi ekki^ veitt eignarnáms- heimild. í framhaldi af því hafi þáverandi eigendur selt landið Jóni Ólafssyni, sem nú vinnur að því að fá skipulagða á því íbúðabyggð. Ennfremur bendir hann á að meðalhófs- regla stjómsýslulaganna geri ráð fyrir því að við íþyngjandi stjómvaldsaðgerðir sé ávallt farin sú leið sem íþyngir hags: munum borgaranna minnst. í því ljósi hljóti það að vega þungt að landeigendumir hafi þegar bent á aðrar færar leið- ir við lagningu vegarins. Hann segir að samskipti sín og annarra eigenda jarðar- innar við Garðabæ og Vega- gerðina séu farin að minna sig á baráttu Jóns Kjartansson- ar, á Stóra-Kroppi í Borgar- firði, við vegagerðarmenn vegna vegarlagningar í landi hans. Þar hafi meðalhófsregl- an m.a orðið til þess að hnikað var til upphaflega ráðgerðu vegarstæði. Fuglalíf Björn segir að landeigend- umir muni áfram vinna að framgangi hugmynda sinna um íbúðabyggð á jörðinni. Þeir stefni að því að ræða við skipulagsstjóra og umhverfis- ráðherra vegna málsins. Þeg- ar hafi þeir rætt málið við Samtök um betri byggð, sem tekið hafi vel í hugmyndir þeirra, enda sé vakning í þjóð- félaginu fyrir því að þétta byggð á höfuðborgarsvæðinu í stað þess að þenja borgar- landið upp til fjalla. í frummatsskýrslu á um- hverfisáhrifum vegarlagning- arinnar kemur fram að Lambhúsatjöm hafi mikið gildi fyrir fuglalíf og leið A hafi meiri áhrif á náttúrufar en leiðir B og C. Fram- kvæmdaraðili telji tillögur um að leggja veginn á kafla í stokk óraunhæfar, tæknilega og vegna kostnaðar, auk þess sem vegarstæði í Lambhúsa- tjörn sé í meiri andstöðu við vemdarsjónarmið en sú stað- setning sem nú sé áformuð. Einnig kemur fram að minjar í landi Selskarðs séu á bæjar- minjaskrá. Bjöm segir að slík skráning hafi engin réttaráhrif enda gerð án samráðs og tilkynn- ingar til landeigenda. Hann telur að verði vegurinn lagður um fjöruna muni myndast betri aðstæður fyrir fuglalíf í fjörunni með auknu rými og skjólgóðri inntjöm en slíkar séu kjöraðstæður fyrir fugla, eins og sjáist af reynslunni af framkvæmdum við Pollinn á Akureyri. Eina sérstæða fuglalífið á Selskarði sé hins vegar æðarvarp, sem eigend- ur hafi sinnt. Verði vegur lagður eftir línum A, B eða C muni hann fara yfir friðland æðarfugls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.