Morgunblaðið - 23.06.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 23.06.2000, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Hagsmunaaðilar um vísbendingar um mikið brottkast Mikilvægt að bregðast rétt við vandamálinu Heildarafli íslenskra skipa í maímánuði, 1997-2000 Þús. tonn 90---- 80---- I59.940I 70~ 60 50 40 30 20 10 66.866-------- BBBffl M? Annar afli Kolmunni 1997 1998 1999 2000 Ur íslenskri lögsögu Botnfiskaflinn í maí, þúsund tonna 97 98 99 00 Fiskaflinn í maí Meira af kolmunna HAGSMUNAAÐILAR í sjávarút- vegi segja að vísbending um mikið brottkast á fiski í athugun Fiskistofu á aflasamsetningu komi ekki á óvart en brýnt sé að kanna málið nánar til að hægt sé að bregðast við vandan- um. I gær greindi Morgunblaðið frá at- hugun Fiskistofu og haft var eftir Árna M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, að aðgerðir Fiskistofu væru liður í að taka á vandamálinu. Ekki má heimfæra niður- stöðurnar á allan flotann Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags íslands, segir að niðurstöður Fiskistofu séu í samræmi við það sem hann hafi heyrt annars staðar, en í upplýsingamar vanti hvort um- ræddir bátar eigi nægan kvóta eða ekki. „Ef þetta eru minni bátar með lítinn veiðirétt, sem eru að reyna að ná hámarki út úr veiðunum, er þetta nákvæmlega eins og ég heyri.“ Eftirlitsmönnum Fiskistofu hefur þótt aflasamsetning báta undarleg og hefur verið nefnt sem dæmi að einstaka bátar hafi eingöngu komið með 5 kg fisk eða þyngri að landi. Helgi segir sem dæmi að meðalvigt hjá ístogaranum Páli Pálssyni á ísa- firði á síðasta fiskveiðiári hafi verið 2,4 kg sem sýni að togarafiskur sé smár. „Skip með heilsársveiðirétt eru ekki að kasta en það er ákveðinn áhættuhópur í þessu og það eru bát- ar með lítinn veiðirétt og bátar með sérveiðiheimildir sem eiga kannski ekki fyrir með aflanum. Sjálfsagt tíðkast þetta eitthvað þar þótt ég viti það ekki fyrir víst og auðvitað þarf að rannsaka þetta og komast að niður- stöðu.“ Helgi segir að ekki megi draga of víðtækar ályktanir og segja að niður- stöður Fiskistofu í umræddri athug- un megi heimfæra á allan flotann. Auðvelt sé að draga hring utan um áhættuhópinn og áætla gróflega magn brottkastsins. Ekki sé hægt að liggja undir fullyrðingum þess efnis að brottkastið sé 250 þúsund tonn ár eftir ár heldur verði að komast að hinurétta. „Ég geri ekki lítið úr þessu og þetta þarf auðvitað að skoða þótt ég hafi þá trú að megnið af íslenskum sjómönnum standi ekki í slíku. Ég ber alltof mikla virðingu fyrir þeim til að ætla þeim það.“ Ráðherra maður að meiri Grétar Mar, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Islands, segir að niðurstöður Fiskistofu komi ekki á óvart. „Brottkastið er það sem maður hefur vitað til margra ára, komið oft inná og bent á, að það er einn af þeim fylgifiskum núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis sem menn hafa raunverulega stungið í sandinn og haldið að allt væri í lagi.“ Hann segir nauðsynlegt að breyta leikreglunum þannig að ekki verði þessi innbyggði hvati til að henda fiski. „Leikreglumar verða að vera þannig að menn sjái sér ekki hag í því að henda fiski í sjóinn, hvaða leiðir sem eru notaðar og hvaða fiskveiði- stjórnunarkerfi sem er.“ Að sögn Grétars er brottkastið sveiflukennt og ómögulegt að segja um hvað það er mikið í heild. „Gegn- umgangandi hefur brottkastið verið töluvert en það er misjafnt og margir þættir hafa áhrif. Það fer eftir kvóta- stöðu útgerða, fiskiríi, landshlutum - hvar mesta fiskiríið er á hverjum tíma - stærð fisks sem er að ganga, leiguverði á kvótaþingi, markaðs- verði og svo framvegis. Allt er þetta breytilegt frá einum degi til annars; það sem var hægt í gær er ekki hægt í dag. Það er erfitt að segja til um það upp á kíló eða grömm en ég hef stundum sagt að nálægt 20% af fiski færi í sjóinn aftur. Hins vegar er það teygjanlegt eins og hjá Hafró.“ Grétar segir mikilvægt að viður- kenna að um vandamál sé að ræða. „Það er það sem allir eiga að gera og mér finnst sjávarútvegsráðherrann maður að meiri að ræða þessi mál á opinskáan hátt en forveri hans nán- ast útilokaði þennan þátt. Þegar vandamál koma upp á að byrja á að greina það og reyna síðan að finna leiðir til lausnar sem duga.“ Þarf stóraukið eftirlit Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Islands, segir að niðurstöðumar staðfesti það sem hann hafi óttast að væri í gangi og fram hafi komið; verið væri að henda fiski í meira mæli en menn hefðu gert sér grein fyrir. „Það er ekkert til varnar annað en stóraukið eftirlit," segir Sævar. „Ég hef verið að reyna að leggja áherslu á að framsal veiðiheimilda væri stór þáttur í brottkasti en fengið lítinn hljómgrunn. Það þarf engan hag- fræðing eða viðskiptafræðing til að segja mér það, að sá maður sem kaupir veiðiheimild fyrir 110 krónur kemur ekki með afla að landi sem hann fær minna fyrir. Ég óttast mjög að í stjómkerfinu sé þessi stóri galli að valda okkur þessum búsifjum.“ Sævar segist sannfærður um að brottkast sé eitthvað í öllum báta- flokkum alls staðar á landinu en óvist sé hvað magnið sé mikið. „Sumir eru ekkert í þessu og þeir sem eiga næg- ar veiðiheimildir henda engum fiski en það verður að auka eftirlitið og fá hið sanna í Ijós. Það er hægt en það þarf mannafla til þess og sjálfsagt peninga og þá verður að setja þá í þetta.“ Viljum aðgerðir gegn brottkasti „Gögn Fiskistofu em vissulega sláandi en fráleitt lýsandi fyrir al- mennt ástand, enda er í þeim að gefnu tilefni fylgt eftir ákveðnum bátum. Við emm hins vegar fylgj- andi því að gripið verði til aðgerða gegn brottkastí þar sem það við- gengst og það era allir hagsmunaaði- lar sammála um það,“ segir Friðrik J. Amgrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna. Hann segir Guðjón A. Krist- jánsson fara með rangt mál þegar hann fullyrði að enginn geti leyft sér að koma með fisk undir 70 sentimetr- um að landi vegna þess að arðsemis- krafan sé svo mikil. „Þetta er einfald- lega kolrangt og það veit Guðjón betur en margur annar. Megnið af þeim sem veiða við ísland stunda ekki slíkt, enda hafa þeir sem henda fiski aðeins stundarhagsmuni að leið- arljósi. Það er mjög mikilvægt að taka á brottkasti en það má ekki nota umræðuna í pólítískum tilgangi. Það er erfitt að taka sönnunarlega á brottkasti en við viljum leita leiða til að koma í veg fyrir að fiski sé hent. Það er útvegsmönnum, sjómönnum og reyndar allri þjóðinni í hag,“ segir Friðrik. FISKAFLI landsmanna síðastliðinn maímánuð var 85.396 tonn, en var 61.507 tonn í maímánuði árið 1999. Aukningin skýrist af mun meiri veiði á kolmunna, en alls veiddust 28.879 tonn miðað við 2.279 tonn í maímán- uði 1999. Botnfiskaflinn dróst lítil- lega saman, fór úr 56.220 tonnum í 54.016 tonn nú. Þorskaflinn var 19.701 tonn og dróst saman um 750 tonn. Þá var einnig minna veitt af „ÉG legg áherslu á að flestir sem stunda veiðamar virða leikreglumar og fara eftir þeim,“ segir Öm Páls- son, framkvæmdastjóri Landssam- bands smábátaeigenda, um meint brottkast á fiski. „Hins vegar get ég tekið undir með Guðjóni A. Krist- jánssyni alþingismanni í Morgun- blaðinu í gær að líkur em á að sú teg- und af brottkasti, sem ég flokka undir handvalið í land, hafi aukist. Hins vegar er þetta nýjasta upp- ákoman í umræðunni sem því miður snýst allt of oft um að kenna sjó- manninum um allt sem miður fer í fiskveiðistjórnuninni." Örn segir ekki einfalt mál að kort- leggja hvað brottkastið sé mikið „og það verður ekki gert með því að senda veiðieftirlitsmenn um borð í einn og einn róður og alhæfa út frá því. Það þarf að byrja á því að skil- greina hvað brottkast er og greina tegundir þess og reyna þannig að meta hvað miklu er hent og hvort hægt sé að koma í veg fyrir það. I mínum huga er brottkast mismunur ýsu og karfa en ufsaafli jókst um rúm 500 tonn. Skel- og krabbadýra- afli dróst einnig saman, fór úr 2.708 tonnum í 2.127 tonn. Sem fyrr skýrist aukinn afli það sem af er árinu af auknum loðnu- og kolmunnaafla. Skel- og krabbadýra- afli hefur hins vegar dregist vem- lega saman, eða um tæp 4 þús. tonn frá 1999,18 þús. tonn frá 1998 og 20 þús. tonn frá 1997. á því sem drepið er og það sem komið er með að landi. Þetta er ekki nýtt og verður áfram. Það er óhjákvæmilegt við veiðarnar sjálfar en er mismun- andi eftir því hvaða veiðarfærum er beitt. Körlum á handfæmm finnst til dæmis mjög ósanngjamt að kvótinn hjá þeim sé reiknaður á sama hátt og hjá togara því óhjákvæmilega drepst meira við trollveiðamar heldur en um borð kemur og slíkur mismunur er ekki fyrir hendi í handfæraveiðum." Að sögn Amar er mikilvægt að breyta hugarfari þeirra sem stunda brottkast en hann bendir á að það sé ekki auðvelt. „Tökum dæmi, “ segir hann. „Maður, sem á lítinn ufsakvóta, er á þorskveiðum. Hann fær ufsa og hyggst leigja ufsakvóta en kemst að því að verðið á ufsanum í leigunni er hærra en hann fær fyrir að skila fisk- inum í land. Þessi maður er auðvitað i mjög erfiðri stöðu en þegar kvótinn er ákveðinn þarf að taka þetta með í reikninginn. Það er alltaf einhver meðafli og menn verða að fá heimild fyrir honum.“ Flestir fara að leikreglum Brottkast ætíð verið stundað „VIÐ hendum ekki einum einasta fiski, enda með rúmar veiðiheimildir. En eflaust er eitthvað stundað brottkast á Islandsmiðum. Við fáum stundum dauðan fisk í dragnótina en ég hef hins vegar ekki trú á því að brottkastið sé tugir eða jafnvel hundmð þúsunda tonna, eins og sumir halda fram,“ segir Brynjar Guðmundsson, skipstjóri á drag- nótabátnum Steinunni SH frá Ólafs- vík. „En það em einhver brögð að þessu. Aflasamsetning milli báta get- ur verið mismunandi þótt þeir séu að veiða á sömu slóð. Við löndum tölu- vert af eins til tveggja kílóa fiski en ég veit til þess að bátar koma ekki með neinn fisk að landi sem er undir þremur og hálfu kílói. Það má ekki alhæfa neitt í þessu sambandi því aðrir geta verið með stærri möskva í veiðarfæranum og sloppið þannig við að veiða smærri fisk. Það er hins vegar erfitt að mæla brottkast ná- kvæmlega. Að mínu viti myndi engu breyta þótt skipt væri fiskveiði- stjómunarkerfi. Brottkast hefur ávallt verið stundað og gildir þá einu hvaða kerfi er við lýði. Líklega væri best að auka eftirlit, á svipaðan hátt og Fiskistofa virðist nú hafa gert, og þyngja refsingar. Meðan skuttogaravæðingin stóð sem hæst og aflabrögðin vora sem best var hent gríðarlegu magni af fiski. Það hefur því verið hent óhemju af fiski á íslandsmiðum í gegnum tíðina. Þetta hefur þó breyst á seinni ámm. Þegar menn þurfa að leigja sér aflaheimildir á háu verði koma þeir vitanlega með verðmæt- asta fiskinn að landi. Aður fyrr var til dæmis alþekkt að netabátar lönduðu tveggja nátta fiski. En nú er sáralítið um að menn landi dauðblóðguðum fiski, enda er hann verðminni. A móti má hins vegar segja að sóknar- mynstrið hafi breyst þannig að menn reyna að láta netin ekki liggja í sjó tvo daga í röð. Þrátt fyrir það er allt- af eitthvað af dauðblóðguðum fiski í netunum eftir nóttina,". Minna brottkast en áður „Þegar ég var að byrja til sjós var hent töluvert af fiski en sennilega var þá hent meira af smáfiski. Ég get samt fullyrt að það er ekki hent jafn miklu af fiski á togumnum nú orðið, að minnsta kosti ekki ísfisktoguran- um,“ segir Sigurður Haraldsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Björ- gúlfi EA frá Dalvík. „Líklega er brottkastið aðallega stundað hjá þeim sem þurfa að leigja eða kaupa kvóta. Menn vilja ekki koma með fisk að landi sem þeir kaupa eða leigja á rúmar 100 krónur en geta síðan selt á aðeins 70 krónur. Fiskveiðstjórn- unarkerfið hvetur þannig til brott- kasts. Færeyingar vildu heldur ekki nota kvótakerfi vegna þess að það leiddi til brottkasts. Það má einnig benda á að meðan veiðar vora frjáls- ar var alltaf eitthvað um brottkast. Þrátt fyrir það sveifluðust fiskistofn- amir upp og niður. Niðursveiflan er því ekki brottkasti að kenna,“ segir Sigurður. Það henda allir físki Sigurður Marínósson, skipstjóri á Bára ÍS og formaður Landssam- bands útgerðarmanna kvótalítilla skipa, þvertekur fyrir að brottkast sé bundið við skip sem þurfi að kaupa eða leigja aflaheimildir. „Brottkast er alls staðar stundað í jafnmiklum mæli því allir era að skila fiski á sama markaðinn og á sama raunvirð- inu. Fiskistofnarnir standa ekki und- ir arðsemiskröfunni sem markaður- inn gerir í dag. Þeir bátar sem þurfa að leigja til sín heimildir þurfa skilj- anlega að koma með sem verðmæt- astan fisk að landi og nota þess vegna veiðarfæri með stærri möskv- um til að forðast smáfiskinn. Kvóta- lausir bátar eru ekki saklausir af þessu en það era aðrir ekki heldur. Sumir eru hins vegar ekki menn til að segja sannleikann og reyna að leiða umræðuna á þessa braut.“ Sigurður telur að brottkast sé stundað í meiri mæli nú en áður, enda hvetji núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfi til þess. Þannig hafi markaður fyrir fisk, sem kom dauð- blóðgaður í land af netabátunum og var verkaður í salt, nánast horfið. „Dauðblóðgaður fiskur hættí að koma á land eftir að kvótakerfið var sett á. Kerfið býður upp á brottkast, við verðum að viðurkenna það. Fær- eyingar köstuðu kvótakerfi fyrir róða vegna þess að það hvatti til brottkasts. Þeir sögðu sjálfir að brottkastið væri um 30-35% af veidd- um afla. Samkvæmt því telst mér til að í fyrra hafi um 65-70 þúsund tonn- um af þorski verið hent aftur í sjóinn, um 25-30 þúsund tonn af ufsa og um 8-10 þúsund tonn af ýsu,“ segir Sig- urður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.