Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 34

Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Brasilískir sellóleikarar: Marcio Carneiro, Matias de Oliveira Pinto og Peter Dauelsberg leika í Salnum. Brasilískir selló- leikarar í Salnum Margnota landkynning ÞRÍR brasilískir sellóleikarar halda tónleika í Salnum í Kópavogi á morg- un, laugardag, kl. 17. Tríóið kallar sig „Cello trio“ og er skipað Marcio Carneiro, Matias de Oliveira Pinto og Peter Dauelsberg. Carneiro er prófessor við Tónlist- arháskólann í Detmold, de Oliveira Pinto kennir við Listaháskólann í Berlín (HDK), en Dauelsberg gegnir kennarastöðu við Ríkisháskólann í Sáo Paulo. Peir hittust fyrst árið 1985. í upp- hafi var vinnan eingöngu helguð ánægjunni af samspilinu. En þeir fengu strax á fyrsta árinu tónleika- tilboð, sem á næstu árum þróuðust yfir í tónleikaferðir. I dag heldur LAUGARDALSVÖLLUR KL. 20 Norrænt ungmennamót Ævintýravika á íslandi þarsem hald- ió veröurmót fyrirallt aö 4.000 ung- menni víösvegar aö á Noröurlöndun- um. Á dagskránni veröurlögö áhersla á menningu, umhverfi og íþróttir. Meöal vióburöa í dag er setningar- hátíð á Laugardalsvelli kl. 20 og Jónsmessuskemmtun í Fjölskyldu- garðinum meö Jónsmessubrennu kl. 22. Diskótek um kvöldiö á Broad- way. Mótió stendur til 28. júní. www.umfi.is/kultur ÍSAFJÖRÐUR/FLATEYRI Menningarveisla Fjölskylduhátíó verður haldin á Flat- eyri í skjóli garöanna ofan viö bæinn oghefst kl. 21. Ýmsir aöilar taka þátt í þessari há- tíð, m.a. Leikfélag Flateyrar, skátarn- irfísafjaröarbæ, leikhóþurinn Morr- inn o.fl. Menningarveislan, sem stendur til 26.júní, erjafnframt hluti afsam- starfsverkefni menningarborgarinnar og sveitafélaga. vesttirferdir@vesturferdir.is GALDRASÝNING ÁSTRÖNDUM Ætlunin meö galdrasýningu á Ströndum er aö gera íslenskum galdramálum ítarleg skil og bera þau saman viö galdrafárið sem herjaöi á meginland Evróþu. Sellótríóið reglulega tónleika í Evrópu og einnig í Brasilíu og var tríóinu boðið að halda þrenna tón- leika á alþjóðlegu hátíðinni Sandor Vegh á Azoreyjum í fyrra. Frá Bartók yfír í nútíðina Efnisskráin spannar allt frá Bar- tók, klassísk og rómantísk verk, yfir í nútíðina (verk í upprunalegri út- setningu, en einnig í eigin útsetning). Sérstök áhersla er lögð á tónlist suð- ur-amerískra tónskálda, Krieger, Miranda, Zenamon, Medaglia, Villa- Lobos, Piazolla. Auk þess er efnis- skráin stöðugt bætt með verkum nú- tíma evrópskra tónsmiða. Flest Sýningin veröursett upp á fjórum stööum í Hólmavíkurhreþþi. Fyrsti áfanginn verðuropnaðurá Hólmavík á Jónsmessunótt og er sögulegyfirlitssýning um galdra og galdramenn 17. aldar. www.akademia.is/galdrasyning AKUREYRI - L2000 Leiklistarhátíö á Akureyri stendur til 25.júní. www.tv.is/bil/L2000 LAUGARDALUR Kl. 17 Sumaríþróttavika ÍBR Meöal viöburöa er körfuknattleiks- mót í Laugardal í samvinnu við KKÍ, sem hefst kl. 17 og Miönæturhlauþ á Jónsmessu sem hefst frá Laugar- dalslaug kl. 23. Sumaríþróttavikan erhaldin ísam- starfi við Íþróttahátíð ÍSÍog fjöl- marga aðra skipuleggjendurog stendur til 24. júní. www.ibr.is REYKJAVÍKURHÖFN - Fólk og bátar í noróri „ Fólk og bátar í norðri “ er fljótandi farandsýning um borð í flutningaskip- inu M/S Nordwest, sýningmeó ein- stöku safni báta frá Noröur- löndunum, Eistlandi og Hjalt- landseyjum. Flutningaskipið Nordwest heimsækir í sumar ellefu hafnir í sex löndum. í dag verður leiðsögn um sýninguna kl. 18. www.reykjavik2000.is wap.olis.is verkanna hafa verið samin sérstak- lega fyrir tríóið. Hefur gefíð út tvær geislaplötur Fyrsta geislaplata tríósins var gefin út árið 1995. Vorið 2000 tók Sellótríóið upp aðra geislaplötu sína, sem í tilefni af 500 ára afmæli Bras- ilíu er eingöngu tileinkuð brasilísk- um tónskáldum. Frá miðjum maí til júlí heldur tríó- ið tónleika m.a. í Berlín, Branden- borg og fylkinu Mecklenburg-Vor- pommem. Miðaverð á tónleikana í Salnum er 1.200 og er miðasala opin alla virka daga frá kl. 13-19. Stuttsýn- ing’ á mál- verkum Höllu Har HALLA Har listmálari og glerlista- maður úr Keflavík opnar stuttsýn- ingu á málverkum í Galleríi Reykja- vík, Skólavörðustíg 16, í dag, fostudag, kl. 14. Halla nam myndlist í Handíða- og myndlistaskóla Islands og síðar við kennaradeild sama skóla. Frá 1978 hefur hún verið fyrst við nám og síð- an störf á hinu virta gler- og mósaík- verkstæði dr. H. Oidtmans í Þýska- landi, sem er eitt hið elsta og virtasta sinnar tegundar, segir í fréttatil- kynningu. Halla hefui- haldið fjölda einka- sýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Verk hennar hafa hlotið fjölda viðurkenninga og hafa verið valin til birtingar í lista- verkabókum útgefnum af Kiefel-for- laginu í Þýskalandi. Hún var valin listamaður Keflavíkur 1993. Halla hefur unnið fjölda glerverka sem sjá má m.a. í Hveragerðiskirkju, Selfosskirkju, Stykkishólmskirkju, Hótel Örk, Bænahúsi NLFÍ í Hvera- gerði, Menntaskólanum á Akureyri, Listasafni Hjörning í Danmörku, kapellu í Mainz, auk 50 mz glerverks í PKL-skrifstofubyggingunni í Linn- ich í Þýskalandi o.fl. Sýningin stendur til 2. júlí. Gall- eríið er opið mánudaga til föstudaga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-16 og sunnudaga kl. 14-16. TONLIST Seltjarnarneskirkja KÓRTÓNLEIKAR Kórverk eftir Snorra S. Birgisson, Jón Nordal, Hildigunni Rúnarsdótt- ur, Báru Gri'msdóttur, Tavener, Britten, Debussy, Standford, Pai-ry, Hafliða Hallgrímsson, Jón Leifs og Ravel. Hljómeyki (einsöngvarar Hildigunnur Halldórsdóttir S, Guð- rún E. Gunnarsdóttir A, Eyjólfur Eyjólfsson T, Ólafur E. Rúnarsson Bar.) u. stj. Bernharðs Wilkinson. Miðvikudaginn 21. júnf kl. 20:30. SÖNGHÓPURINN Hljómeyki er nú á förum til norræn- baltneskrar kórahátíðar í Skien í Noregi og kynnti af því tilefni ferðadagskrá sína með tónleikum f Seltjarnarneskirkju sl. miðvikudag og í Kirkjuhvoli í Garðabæ þrem dögum áður. Textar íslenzku kórlaganna, ekki sízt brot úr eldri alþýðuvísum í þulustíl eins og „Dilli þér nú Drúþíus og Pálma“ eða úr pápísk- um kvæðaforða, „María væn, þín veitist bæn, / virgo gloriosa“, komu hugrenningum af stað um að enn geti tónskáld okkar gengið að nærri ónýttum textasjóð öld af öld aftur, ef þjóðlegur gállinn er á þeim, enda ljóðaframleiðsla - og varðveizla - allt frá landnámi með ólíkindum, en æðri tónmenntark- unnátta aftur á móti kornung. Val- möguleikar íslenzkra tónskálda í þeim efnum virðast þar af leiðandi næsta öfundsverðir hjá því sem gerist annars staðar, þó að enn vanti stórt og aðgengilegt safnrit eða „heildarsýnisbók" yfír íslenzk- an alþýðukveðskap frá upphafi vega. Það er engin spurning, að útkoma slíks rits yrði mikil lyfti- stöng íslenzkri kórmennt og söng- lagagerð - að ógleymdu hagræðinu að auðsóttum og síuppfærðum upplýsingum á vefsíðum Tón- verkamiðstöðvar um hvaða textar hafa verið tónsettir og af hverjum. Það ætti sömuleiðis að teljast líklegt, að í kjölfarið á kynningu úrvalskóra á við Hljómeyki á kóra- mótum erlendis ykist eftirspurn eftir íslenzkum kórperlum. Ur þessari dagskrá mætti nefna Af- morsvísu Snorra Sigfúsar, Heil- ræðavisu Nordals, Andvökunótt Hildigunnar Rúnarsdóttur, Eg vil lofa eina þá e. Báru Grímsdóttur, Hættu að gráta e. Hafliða og Requiem Jóns Leifs. Mætti því senn fara að huga að sönghæfum textaþýðingum. Sama gildir um út- breiðsluhæfustu einsöngslögin. Eða er ekki kominn tími til að flytja út margnota nútímatónlist? Hin rytmískt kviksilfraða Af- morsvísa er, ásamt Maríusmelli Báru Grímsdóttur, Ég vil lofa eina þá, kærkomin viðbót í fremur gisna flóru hrynfastra kórlaga okkar, þótt vandmeðfarin sé. Hljómeyki söng verkið af smitandi gleði, og dverghög dýnamísk fágun var áberandi í Sofðu nú sælin e. Snorra og sérstaklega í Heilræða- vísu Jóns Nordal. Og sannast sagna víðar, enda minnist undirr. sjaldan að hafa heyrt aðra eins natni lagða við þá hlið mála hjá ís- lenzkum kammerkór fyrr en á þessum tónleikum. Hin stuttu kórlög Hildigunnar, Ástin græðir eftir vos og Sé ástin einlæg og hlý (við dansandi inn- tínslurithátt a la „The Flying Pickets") voru ljúf, og fersk en markviss hljómabeiting naut sín vel í hinu frumlega Andvökunótt við athyglivert hugleiðsluljóð Hild- igunnar Halldórsdóttur. Tvísöngs- mótað lag Báru, Að minni sálu am- ar, lofaði góðu um þróunar- möguleika þessa nýforna bræð- ingsstíls, og fyrrgetinn „etnískur" gimsteinn hennar, Ég vil lofa eina þá, var sunginn ögn hægar en algengast er, án þess að yrði í neinu þyngri á bárunni. Rennileg meðferð hennar á léttkrydduðum streituakkorðum í María, drottins liljan skilaði sér vel í fáguðum söng kórsins, þótt e.t.v. hefði mátt vera agnarögn hægari. Efth- kyrrlátt lag Johns Taven- ers við barnaþulu W. Blakes, The Lamb, kom bráðfallegt verk B. Brittens, A Hymn to the Virgin, þar sem blandaður einsöngvara- kvartett myndaði latneskan antí- fón úr nokkurri fjarlægð við söng stærri kórsins á ensku. Andstæð- urnar milli slétta kvartettsöngsins og hins útsungnara stórkórshljóms voru vægast sagt hrífandi, og greinilegt að stjórnandinn var þar á algjörum heimavelli, því útfærsla kórsins afhjúpaði ekkert minna en ótvírætt „stile antico“-sniIldarverk sem sannarlega mætti heyrast hér oftar. Myndaði verkið að meðtal- inni íðilfagurri perlu Stanfords nokkru síðar, Beati quorum via, hápunkt tónleikanna. Debussy er ekki þekktastur hér fyrir kórverk, og var tilbreyting að Trois chansons, sem sýndu bæði frumlega nálgun og meistaraleg tök á miðlinum; fyrst með sérlega „raffíneraðri“ hljómaframvindu, síðan með dansandi próvensölsk- um rytma, og loks með gáskafullu lagi í ýmsum tempóum með ein- söngvurum á móti heildarkórnum. Eftir undurfallega túlkun á hálf- barokklegri mótettu Stanfords, Beati quorum (þrátt fyrir örlítið en greinanlegt tónsig í tenór þar sem víðar, t.a.m. í síðasta lagi Báru), söng kórinn My soul there is a country; hómófónískara verk og nær enska þjóðlaginu, en ekki óvandmeðfarið, enda víða hátt- liggjandi í sópran, sem átti til að hvessast í tóni á efstu og sterkustu nótum. Hugvitssamar endursmíðar Hafliða Hallgrímssonar á Fjórum íslenzkum þjóðlögum hafa heyrzt víða hér undanfarið og ekki að ófyrirsynju, en tæplega betur sungnar en við þetta tækifæri, þar sem Hljómeykið m.a. skartaði ein- hverjum fallegasta pianissimo- hljómi sem hugsazt getur. Sami kostur naut sín að fullu í Requiem og Vögguvísu Jóns Leifs, þrátt fyrir eina (vart heyi-anlega) feil- innkomu í sópran í síðara laginu. Eftir þessa samfelldu sigur- göngu olli lokaatriðið, Trois chans- ons eftir Maurice Ravel, óhjá- kvæmilega vonbrigðum, miðað við háan staðal þess sönghóps sem einna næst kæmist gæðum er- lendra atvinnukammerkóra hér á landi. Kannski hefur þreyta verið meðverkandi, en í öllu falli var fremur daufur tónn yfir þessum þrem söngvum, þar sem nr. 1 og 3 innramma allegóríska depurð mið- lagsins með háðkímnum frásögn- um úr guðsgræna sveitalífinu. Kom þessi hlutfallslegi andklím- ax satt að segja á óvart, enda þótt lögin gerðu greinilega miklar la-öf- ur til nákvæmrar samstillingar og lýtalausrar inntónunar. Sópran og tenór (ef ekki fleiri) hefðu mátt vera hreinni í Nicolette (I.), Para- dísfuglarnir (II.) var lúinn, óspennandi og hugsanlega of hæg- ur, og líflegt síðasta lagið hefði með réttu getað náð miklu meira flugi, enda skorti þar flestan þann kraft, hraða og presísjón sem menn eiga að venjast af Hljóm- eyki. En burtséð frá téðri „há- deyðu“, sem sönghópurinn ætti að fara létt með að laga, var vissulega mikil ánægja af vandaðri og bráð- skemmtilegri dagskránni, og vart hægt að hnjóta um fleira í túlkun en talið var. Nema ef vera skyldi um sígildan vanda allra kóra: skort á skýrari samhljóðum í textafram- burði, einkum í endum orða. Ríkarður Ö. Pálsson jKjyi-2ooo Föstudagur 23. júni I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.