Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 38

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ TONLIST Gulli sleginn sálmaspuni (lOislaplötur SÁLMAR LI'FSINS Signrður Flosason, sópran-, altó-, tenor- og barrýtonsaxófóna, Gunnar Gunnarsson orgel. Hall- grímskirkja, Reykjavík, 4. og 5. janúar 2000. Utgáfa: Mál og menning, MM 020. FÁTT vakti meiri athygli á síð- ustu djasshátíð í Reykjavík en tón- leikar Sigurðar Flosasonar og Gunnars Gunnarssonar í Hall- grímskirkju. Þar fluttu þeir tólf sálma sem notaðir eru við kirkju- legar athafnir á veggöngu manns- ins frá vöggu til grafar. Tíu þeirra eru nú komnir út á hljómdiski og fjórum bætt við sem ekki voru á dagskrá hljómleikanna. Sleppt var jólasálmunum tveimur, sem fluttir voru í Hallgrímskirkju og seinna ásamt fleiri jólasálmum í Laugar- neskirkju, enda áætlað að gefa síð- ar út disk með jólasálmum og er það vel - sérí lagi ef hann heppn- ast með jafn miklum ágætum og þessi. Það verður að segjast, eftir að hafa hlustað að nýju á upptöku frá tónleikunum og diskinn, að það var hárrétt ákvörðun hjá þeim félögum að hljóðrita sálmana að nýju. Margir þeirra eru svipaðir í bæði skiptin, en sumir hafa tekið stakkaskiptum og í öllum tilfellum eru þau til bóta, nema ef vera skyldi bálkurinn er nefndist Brúð- arsteypa á tónleikunum og sam- anstóð af brúðarmarsi Mendelsons og sálminum Vor Guð í Jesú nafni nú. Var bálkurinn að mestu langur framúrstefnulegur spuni þeirra fé- laga, kraftmikill og sjálfvakinn. Hann hefur verið styttur um helm- ing og sakna ég ferskleikans sem einkenndi hann. Einhver glæsilegasta túlkun Sig- urðar og Gunnars á diskinum er á frábærum sálmum Þorkels Sigur- björnssonar, þeim vinsæla Heyr himna smiður og Til þín Drottinn hnatta og heima. Spuni Sigurðar eftir að Heyr himna smiður hefur verið leikinn af organistanum er mun markvissari en á tónleikunum og í einu orði sagt glæsilegur. Það er sosum ekki miklu breytt, en hið sterka tónahlaup í kjölfar hins þurra næstum tónlausa blástur í upphafi. gefur sólónum nýtt líf. Kraftur Gunnars í upphafi, Til þín Drottinn hnatta og heima, er all ólíkur því sem hann leikur oftast og þegar Sigurður blæs sálminn í altóinn er loftið þrungið spennu og tekst honum vel að vekja hrynsveit í huga hlustandans þá hann spinn- ur einn og orgelið þagnar. Fögur er foldin, er mun betur blásinn í baiTýtoninn en fyrr - og styttri - en ólíkt því sem gerist í Stytta af Guðríði Þorbj arnardóttur afhjúpuð á Hellnum FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhjúpar afsteypu af listaverki Ás- mundar Sveins- sonar á Lauga- brekku á Hellnum á Snæfellsnesi, af fyrstu hvítu móð- urinni í Ameríku, Guðríði Þorbjarn- ardóttur. Athöfnin fer fram á sunnu- dag, kl. 14. Verkið er af- hjúpað til minn- ingar um að sú merka kona Guð- ríður Þorbjarnar- dóttir fæddist á Laugabrekku fyr- ir rúmlega þúsund árum og ólst upp þar og á Arnar- stapa uns hún fluttist til Græn- lands með for- eldrum sinum. Snemma virtist Guðríður laða að sér djarfhuga sigl- ingakappa því á Arnarstapa sá Stytta Ásmundar Sveinssonar af Guðríði. hana Einar Þor- geirsson sem var jafnan í siglingum milli landa og farnaðist vel. Bað hann Orm á Arnarstapa, sem var fóstri Guð- ríðar, að leita bónorðs fyrir sig en ekki fdkk hann Guðríðar. Á Grænlandi giftist Guðríður Þorsteini, syni Eiríks rauða, en Leifur Eiríksson var þá í Vín- landsferð sinni. Hjónabandið var frekar stutt því Þorsteinn lést og var því Guðríður ung ekkja þegar Þorfinnur karlsefni kom til Grænlands. Hann var djarfhuga og stefndi á Vínlandsferð eftir frægðarför Leifs en áður en til hennar kom kvæntist hann Guð- ríði og fór hún í fcrðina með hon- um. A Vínlandi fæddi hún þeim son, Snorra Þorfinnsson, og hefur því verið talin vera fyrsta hvíta konan sem fæddi barn í Ameríku. Frá Vínlandi héldu þau Guðríð- ur og Þorfinnur til Grænlands og þaðan til Noregs til að selja vör- ur sínar og loks heim til Islands þar sem þau settust að í Skaga- firði. Síðar á ævinni ferðaðist hún til Noregs og suður Evrópu til Rómar þar sem hún dvaldi um langa hríð en sneri þó aftur til Is- lands þar sem hún lést í Skaga- firðinum. sálmum Þorkels, er hér hefðbund- inn djassspuni á ferð og sama ein- staka smekkvísin og lýríkin í und- irieik Gunnars þar og annarsstaðar á skífunni. Sjálfur á hann góðan sóló þarna sem víðar. Fyrir utan sálma Þorkels hrifu mig mest af sálmum disksins: Um Kristí greftran, gamalt íslenskt Passíusálmalag þarsem blúsaður altóinn og tregandi orgelið gæða sálminn nýju lífi en minna jafn- framt á erindi Hallgríms: Ætíð þá sér þú sálað hold/ sett verða niður í jarðarmold/ hryggur þú vert og hugsa brátty hér við þú líka skiljast átt. Þá skal nefna: Jesús Kristur lífsins Ijómi, frá upphafi fimmtándu aldar, þar sem barrý- tónsaxófóninn og orgelið upphefja fornan brag þungan og gæða fá- gætum töfrum. Ekki má gleyma sálminum ægifagra, Ó höfuð dreyra drifið, frá upphafi sautjándu aldar. Sálmurinn er tölu- vert styttri en á tónleikunum og er sú stytting til bóta. Leikur þeirra félaga að tónalitum og tóntegund- um er markviss og seiðandi. Margir hafa tárast er Sigurður og Gunnar leika Fögur er foldin, Eg kveiki á kertum mínum og Ó, Jesús bróðir besti. Tveir þeir fyrr- nefndu eru fyrst og fremst jarð- arfarasálmar. Ég minntist á, Fög- ur er foldin, hér að ofan, en uppáhalds túlkun mín á þeim sálmi er með Eggerti Stefánssyni, Ég kveiki á kertum mínum, er blásinn í tenór og þessi útgáfa mun betri en á tónleikunum. Sigurður er að sjálfsögðu fyrst og fremst altó- saxófónleikari, barrýtoninn og sópraninn leika í höndum hans, en á tenórnum hefur hann síst tök. Það sem verður hrífandi þegar hann blæs það í altóinn verður stundum sentímental þegar tenór- inn er annars vegar og það á við um Á Hausaskeljastað - afturá móti er sópranspuninn í, Ó, Jesú bróðir besti, Ijúfur undir lagboða orgelsins, en lagið sjálft er dálítið Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason. sýróp og fer vel að láta það birtast í lok spuna Sigurðar og endurtaka svo eftir sóló Gunnars. Heyr mína bæn, er næsti bær við, svo og þrír nýju sálmar disks- ins: í öllum löndum lið sig býr, sem er sænskt þjóðlag, O blíði Jesú blessa þú, frá síðustu öld og Jesú er besti vinur barnanna, sem lifnar þó allur og dafnar í skemmti- legri gospelblúsútsetningu þeirra félaga. Eitt lag er ónefnt: Eigi stjörnum ofar, samið af Hans Puls 1962. Saxinn upphefst nútímalegur áðuren ljúf laglínan kveður við og altóspuninn Sigurðar með norræn- um blæ yfir líðandi orgeltónum uns Gunnar fær orðið og verður nokk- uð framústefnulegur og brýtur upp einhæfa tónmyndina. Þeir félagar beita allri sinni þekkingu, leikni og listfengi við að koma þessum sálmum í djassbún- ing. Þarsem þeir eru báðir vel menntaðir í hefðbundnum tónlist- arskólum og hafa fengist við nær alla flóru tónlistar, er leitað í fleiri brunna en þann er spratt upp af afróamerískri menningu og styrkir það diskinn. Hann er í alla staði vel heppnaður og ætti að ná til margra - og það sem fellur mér síst á disknum mun trúlega falla öðrum best. Vernharður Linnet Gamlir tímar og nýir ERLENDAR BÆKUR Spennusaga „TIMELINE“ Eftir Michael Crichton. Ballantine Books. 2000.496 síður. í NÝJUSTU spennusögu sinni, „Timeline", sem út kom í vasabroti hjá Ballantines-útgáfunni í þessum mánuði, tekur metsöluhöfundur heimsins, Michael Crichton, fyrir tímaferðalög og fjallar um þau á ákaflega vísindalegan hátt. Rétt eins og í Júragarðinum, þekktustu sögu höfundarins, ætlar auðmaður nokkur að selja túristum aðgang, ekki að endursköpuðum risaeðlum í þetta skiptið, heldur sjálfri mannkynssög- unni. Skemmtanir eru það sem fólkið á nýju árþúsundi mun krefjast í æ ríkari mæli og hann ætlar að sjá því fyrir tímaferðalögum. Crichton-formiílan Þeir sem lesið hafa bækur Cricht- ons vita að hverju þeir ganga, hálf- gerðu fræðiriti. Fremst er inngangur um skammtafræði og hugmyndina um tímaferðalög. Hann heitir Vísindi við lok aldar. í lok bókarinnar er löng og ítarleg heimildaskrá bæði yfir rit er fjalla um þann tíma sem Crichton kýs að senda sína tímaferðalanga til og yfir vísindarit sem hann hefur stuðst við þegar hann hannaði tíma- vélina sína. Allt er þetta gert til þess að ná fram einskonar raunveruleika- blæ á efni sem er algjör fantasía, eins og Crichton bendir raunar sjálfur á í enn einum aukakafla, sem þer yfir- skriftina Þakkir. Að auki er textinn brotinn upp með skýringarmyndum og teikning- um. Með þessu er hann að sýna svart á hvítu hversu mikla vinnu hann hef- ur lagt í rannsóknir á viðfangsefninu en það er spurning hvort lesandinn er nokkru bættari með þessum upp- lýsingum. Ljóst er að Crichton hefur kannað mjög sögusviðið sem hann er að fást við, lesandinn gerir sér gi-ein fyrir því, en varla hefur hann ætlað sér að búa til eiginlegt sagnfræðhit. Crichton-formúlan hefur lítið breyst frá Júragarðinum. í aðalhlut- verki er hópur vísindamanna sem hver um sig eru afburðamenn. Þeir fást við nýja og byltingarkennda tækni sem færa mun mannkyninu, ja, heilmikla skemmtun er það fyrsta sem kemur upp í huga Crichtons og virkar heldur veikt ef satt skal segja. Þeir fást við næstum óyfirstíganlega erfiðleika áður en yfir líkur og þeir gera sér grein fyrir að vísindin eru á villigötum. Það er eitt af einkennum vísindaskáldskapar Crichtons; auð- valdið ætlar að hagnast óendanlega á tæknibyltingunum en vísindamenn- irnir hafa nægan siðferðisstyrk til þess að sjá hættuna og bregðast rétt við. Tvær sögur Það eru tvær sögur í Timeline. Annars vegar mjög fróðleg og hnýsi- leg saga úr nútímanum um byltingu í vísindum. Tímaferðalagshugmyndin er gömul í bókmenntum vísinda- skáldskaparins, nær til daga H. G. Wells, og hún er heillandi en Cricht- on vinnur eftir nýjustu kenningum um skammtafræði og samhliða ver- aldir og tekst að búa til talsvert sennilegan vísindaskáldskap (gengið er út frá svipaðri hugmynd í bíó- myndinni Frequency, sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum). Hin sagan gerist í Frakklandi á fjórtándu öld en þangað hefur Crichton kosið að senda ferðalanga sína. Aldarfjórðungur er liðinn af 100 ára stríðinu og átök geisa á milli tveggja lénshöfðingja. Inn í þau blandast ferðalangarnir svo um mun- ar en minnugir þess að þeir mega ekki gera neitt sem breytt getur gangi sögunnar. Þar á meðal er Mar- ek, sem er sérfræðingur í miðöldun- um og furðulega góður hermaður þess tíma, Kathy, sem er úrræðagóð og hugrökk og Chris, sem reynist betri en enginn þegar á þarf að halda. Síðasta bók Michael Crichtons, Airframe, olli nokkrum vonbrigðum vegna tíðinda- og spennuleysis. Þessi er betri því ekki er tíðindaleysinu fyrir að fara en einhvern veginn tekst Crichton samt ekki, þrátt fyrii- alla heimildaskrána, að notfæra sér sögu- sviðið til gagns fyrir skáldskapinn. Bókin er næstum fimm hundruð síð- ur og söguhetjurnar eru á flestum þeirra á hlaupum undan hermönnum og riddurum án þess að maður upplifi þær í neinni raunverulegri hættu. Og mórallinn um hættuna sem stafar af vísindauppgötvunum í gróðaskyni einu saman eru gamlar íréttir þegar Crichton á í hlut. Arnaldur Indriðason I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.