Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 39
LISTIR
„Bró þegar mér var boðið að
syngja með þessu stórliði“
í RISAVÖXNU 2000 sæta sirkus-
tjaldi í Hagenbeck-dýragarðinum í
Hamborg er verið að sýna óperuna
Carmen. Réttast væri að kalla þetta
óperusirkusinn Carmen því að inn á
milli atriða eru sýndir loftfimleikar,
eróbikk, flamencodans og píkadorar
frá Spáni leika listir sínar við naut í
vígahug. Dýravinir gengu með látum
út af sýningunni en meginþorri sýn-
ingargesta skemmti sér konunglega
og mátti þar sjá margar skærustu
kvikmyndastjömur Þýskalands. Að-
alsöngvararnir koma frá Metropolit-
anóperunni í New York, Ríkisóper-
unni í Vín og Berlín. Stjómandinn
Cord Garben er heimsþekktur og
hefur m.a. hlotið Grammy-verðlaunin
eftirsóttu fyrir klassíska tónlist.
Meðal þeirra sem munu syngja
hlutverk Don José í þessari upp-
færslu er tenórinn Magnús Gíslason
sem hefur verið búsettur í Kaup-
mannahöfn um nokkurt skeið. Hann
var viðstaddur frumsýninguna og til
taks ef tenórinn Otoiel E. Gonzaga
skyldi forfallast. Leikstjórinn Mich-
ael Temme sagði í samtali við Morg-
unblaðið að það hefði verði mjög
ánægjulegt að vinna með Magnúsi;
hann hefði mikla og dramatíska rödd
og hefði alla burði til að ná langt.
En hver er þessi Magnús Gíslason
sem nú syngur aðalhlutverk með
fremstu óperusöngvurum heims?
Hann er borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og lauk söngnámi frá
Tónlistarskóla Garðabæjar. Ég
spurði hann fyrst hvað hann væri að
Magnús Gíslason tenórsöngvari tekur um
þessar mundir þátt í uppfærslu á Carmen í
Hamborg. Davíð Ólafsson ræddi við Magn-
ús sem er búsettur í Kaupmannahöfn.
gera í Kaupmannahöfn.
„Ég vann alltaf með
söngnáminu hjá Natan
og Olsen. Einu sinni
voram við nokkrir á
fundi í Kaupmanna-
höfn þegar kollegi
minn spurði mig hvort
ég gæti ekki fengið
vinnu við að syngja í
Danmörku f'yrst ég
væri alltaf gólandi. Ég
tók hann á orðinu og
hringdi í Konunglegu
óperuna í Kaupmanna-
höfn. Svo ótrúlega vildi
til að það var fyrirsöng-
ur daginn eftir og ég
skráði mig. Ég fékk stöðu við óper-
una og hef verið þar í bráðum tíu ár.“
- Hvað heftir þú svo veríð að
syngja?
„Ég hef aðallega einbeitt mér að
konsertum og mjög oft sungið t.d.
Requiem eftir Verdi og Missa di glor-
ia e. Rossini. Af stóram óperuhlut-
verkum hef ég sungið Cavaradossi
(Tosca), Pinkerton (Madama Butter-
fly), Max (Der Freischútz), Florestan
(Fideho) og Erik í Hollendingnum
fljúgandi. Þessa stund-
ina er ég svo að vinna
fleiri Wagnerhlutverk
með undirleikara."
- En hvernig atvikað-
ist það að þú fékkst
hlutverk Don José í
Hamborg?
„Ég söng á tónleikum
sem Cord Garben hlust-
aði á. Hann kom til mín
eftir konsertinn og bað
mig að syngja fýrir sig.
Ég vissi ekkert hvað
hann hafði í huga fyrir
mig. Mér brá því þegar
hann bauð mér að
syngja Don José með
þessu stórliði. Ég tók því strax, enda
hentar hlutverkið rödd minni mjög
vel,“ segir Magnús.
- Hvernig var að búa sig undir
svona stóra sýningu?
„Þetta var alveg stórkostleg til-
finning og ég fór strax á fullt við að
vinna hlutverkið. Það er mér líka
mikils virði hvað ég hef fengið góð
viðbrögð frá meðsöngvuranum,
hljómsveitarstjóranum og ekki síst
leikstjóranum, Michael Temme.
Magnús
Gíslason tenór
Hann vann algjört kraftaverk að ná
þessari sýningu saman við jafnerfið-
ar aðstæður og þarna vora. Svo eru
umboðsmennirnir líka komnir á fullt
og þessa stundina er ég allt í einu
kominn með fimm umboðsmenn en
ég passa mig á að færast ekki of mik-
ið í fang,“ segir Magnús.
- Hvernig gekk þér svo að vinna
persónuna Don José?
„Don José er skemmtúegt hlut-
verk sem er gaman að túlka og leika.
Hann elskar heitt og þjáist mikið og
mér finnst bara svo stórkostlegt að
tjá það,“ segir Magnús.
- Hvað muntu syngja margar sýn-
ingar?
„Upphaflega voru mér boðnar tíu
sýningar en svo í síðustu viku báðu
þefr mig að syngja þrjár í viðbót.
Sýningamar gætu því orðið mun
fleiri og ég lít á það sem viðurkenn-
ingu á því sem ég er að gera. Fyrsta
sýningin er 25. júní og svo dreifast
þær fram í september.“
- Hvað finnst þér svo um þessa a 11-
sérstæðu uppfærslu?
„Þetta er mjög sniðugt. Óperan er
mjög „áhorfendavæn“. Það er verið
að höfða til þeirra sem ekki hafa farið
á ópera áður. Fólk elskar sirkusatrið-
in sem er tvinnað inn í þetta og nauta-
atið slær alltaf í gegn. Bolinn er þó
stundum til vandræða. Hann hefur
ekki alltaf vilja koma inn í hringinn
og einu sinni gekk ekki að koma hon-
um út,“ sagði Magnús og hló. Sýning-
arnar era daglega utan mánudaga til
1. október og hefjast kl. 19.30.
Hjördís
Brynja sýnir
á Café 22
HJÖRDÍS Brynja opnar sýninguna
Alfa/Omega á Café 22 á Jónsmess-
unni, laugardaginn 24. júní kl. 14.
Hjördís Brynja er fædd 1964 í
Reykjavík. Hún hefur stundað
myndlistarnám á íslandi, Frakk-
landi og síðast í Svíþjóð, þar sem
hún lauk MA námi í myndlist 1998.
Hún hefur haldið fjölda sýninga í
Frakklandi og Svíþjóð, auk sam-
sýninga á íslandi, en þetta er
fyrsta einkasýning hennar hér á
landi. Verk hennar eru í eigu fjöl-
margra, t.d. Eimskipafélagsins o.íl.
Auk þessa hefur Hjördís haldið
tvær netsýningar.
I fréttatilkynningu segir að
Hjördís hafi unnið mikið með geó-
metrísk form og þar má nefna ser-
íur eins og Vikudagarnir, sem sam-
anstendur af sjö málverkum í
eggolíutemperu, og Boðun Maríu
sem er þrjú málverk, einnig í egg-
olíutemperu, sem er hennar aðal
myndmiðill. Annars eru myndirnar
eins konar rannsókn á birtu og
myrkri, hinu smáa og stóra.
Myndir eftir hana má sjá á Net-
inu á slóðunum: http://www.algon-
et.se/~tessa7/ninex.htm og algon-
et.se/~tessa7/sindex.htm.
Ljósaklif opið
til miðnættis
í TILEFNI af Jónsmessunni verður
sýning Halldórs Ásgeirssonar „og að
bátur beri vatn að landi“ í Ljósklifi í
Hafnarfirði, opin kl. 21-24, í kvöld,
fostudagskvöld.
Félagar í finnska leikhópnum SiriusTeatern.
Háðsádeila á Ingólfstorgi
FÉLAGAR í finnska leikhópnum
Sirius Teatern verða með götuleik-
hús á Ingólfstorgi á sunnudag kl. 17
og flytja leikritið „Martin Luther
og Thomas Miinzer."
Leikritið er háðsádeila eftir
Þjóðverjann Dieter Forte og fjallar
á beittan hátt um hræsni, fégræðgi
og klofning innan kirkjunnar.
Sirius Teatern er atvinnuleikhús
án fasts sviðs eða fastra meðlima
sem starfað hefur frá árinu 1992.
Leikhúsið sérhæfir sig í óhefð-
bundnum, tilraunakenndum upp-
setningum og er aðaláherslan lögð
á leikrit sem sjaldan eða aldrei hafa
verið færð á svið.
Verkefni ársins 2000 er það
stærsta sem leikhópurinn hefur
hingað til tekist á hendur en hann
er nú á ferðalagi með sýningu sína
milli allra menningarborga
Evrópu, sem eru níu talsins þetta
árið.
Hópurinn var í Bergen um síð-
ustu helgi en þar að auki hefur
verkið þegar verið sýnt í Helsinki,
en það er hluti af opinberri dagskrá
menningarborgarinnar f Helsinki.
Sýningarnar verða endurteknar
næstu tvo daga, mánudag og
þriðjudag, og hefjast þær einnig kl.
17.
Þjóðminjaverðir á
hringferð um landið
MARGRÉT Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður er á hringferð um
landið til þess að skoða söfn og
minjar undir leiðsögn Þórs Magn-
ússonar fyrrverandi þjóðminja-
varðar.
Á fyrsta deginum, þriðjudaginn
20. júní, var farið á Suðurland;
komið við á Keldum og á Skógum,
Kirkjubæjarklaustri, í Hólmi og á
Hnausum. Komið við á Kálfafelli,
Hörgslandi og Núpsstað. Þaðan
var haldið í Skaftafell og komið að
Hofi. I fyrradag, miðvikudag, var
komið niður til Hafnar og þaðan
haldið á Djúpavog. Langabúð og
Geysir skoðuð og einnig Teigar-
horn. Stríðsárasafnið á Reyðarfirði
skoðað. Gamla-búð á Eskiffrði
skoðuð og þaðan haldið á Egils-
staði. í gær, fimmtudag, var rætt
við Guðnýju Zoéga, minjavörð
Austurlands. Haldið frá Egilsstöð-
um að Galtastöðum og að Burstar-
felli og Sauðnesi. í dag verður far-
ið að Kópaskeri, safnið á
Snartarstöðum skoðað og þaðan
haldið til Húsavíkur. Grenjaðar-
staður og Þverá heimsótt og þaðan
haldið til Akureyrar. Farið í Minja-
safnið á Akureyri laugardaginn 24.
júní, ný sýning skoðuð og fleira
markvert á vegum Minjasafnsins.
Farið á opnun á nýju flugsafni á
Akureyri. Farið að Laufási, Grund
og Saurbæjarkirkja skoðuð.
Sunnudaginn 25. júní verður far-
ið að Skipalóni, Möðruvöllum og
þaðan til Dalvíkur. Skoðað safnið
Hvoll.
Farið að Hofsósi og að Gröf og
Hólum. Farið að Sjávarborg og
Glaumbæ, Víðimýri og Stóru-Ökr-
um mánudaginn 26. júní. Heimilis-
iðnaðarsafnið á Blönduósi skoðað
og farið að Reykjum. Þaðan haldið
í Borgarnes og Ákranes. Að lokum
verður farið um Vesturland 4. júní.
Kristinn og Jónas
á ísafírði
Engin fyndni
KVIKMYNDIR
Regnboginn
KEVIN OGPERRY
„KEVIN AND PERRY
GO LARGE“*'/i
Leikstjóri: Ed Bye. Handrit: Dave
Cuinmings og Harry Enfield. Aðal-
hlutverk: Harry Enfield, Kathy
Burke, Rhys Ifans, Laura Fraser,
James Fleet. 2000.
ÞESSI breska gamanmynd er
byggð á efni gamanþátta í sjónvarpi
um tvo vini, Kevin og Perry, sem
dreymir um það eitt að sofa hjá. Hún
sver sig mjög í ætt við bandarískar
gamanmyndir sem gera út á heimsk-
una en er á allan hátt miklum mun
síðri. Það er nánast ekkert íyndið í
allri myndinni en hins vegar er nóg
af hryllilega misheppnuðum tifraun-
um gerðar til þess að kalla fram hlát-
ur. Hjálparmeðulin eru prump, kúk-
ur, standpínur og gröftur. Ha, ha, ha.
Myndin er líka ömurlega leikin.
Leikarar langt komnir á fertugs-
aldur leika unglinga um fimmtán ára
aldur sem hafa greind leikskóla-
bama. Leikurinn snýst þannig mest
um fettur og grettur og aulalegan
fýlusvip sem verður þreytandi á
fyrstu fimm mínútunum.
Söguþráðurinn er með afbrigðum
tómlegur. Kevin og Perry halda til
Ibiza til að slá í gegn sem plötusnúð-
ar og komast yfir stelpur. Vondi
plötusnúðurinn á staðnum gerir
þeim allt til miska en þeir eru þrátt
fyrir allt nógu heimskir til þess að
allt fer vel að lokum.
Sjálfsagt á gróf og dónaleg fyndn-
in að vera aðall myndarinnar. Eins
og þeir Farelly-bræður hafa sýnt
með myndum sínum er hægt að búa
til óþverralega fyndni og sleppa með
það. Höfundar Kevins og Pemys
hafa ekki skopskyn til þess að búa til
fyndni úr því sem hneykslar. Myndin
þeirra er bara prump.
Arnaldur Indriðason
KRISTINN Sig-
mundsson óperusöngv-
ari og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari
koma fram á tónleikum
í ísafjarðarkirkju
mánudagskvöldið 26.
júní nk. kl. 20:30.
Á efnisskránni eru
íslensk og erlend söng-
lög, antikaríur og óp-
eruaríur.
Tónleikamir eru
framlag Tónlistarfé-
lags Isafjarðar til
Menningarveislu ísa-
fjarðarbæjar og verða
lokaatriðið á dagskrá
Menningarveislunnar.
Forsala aðgöngumiða er hafin í
Bókaverslun Jónasar Tómassonar
Jonas
Ingimundarson
Kristinn
Sigmundsson
og er miðaverð 1.500 kr. en 800 kr.
fyrir börn 16 ára og yngri.