Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 49

Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 49 MINNINGAR LIST OG HÖIVfOTIV Þjftðarbókhlaða MINNINGARBROT ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR REYKJAVÍK í BRÉFUM OGDAGBÓKUM Opið á tímum Þjóðarbókhlöðunnar. Til 31 ágúst. Aðgangur ókeypis. KVENNASÖGUSAFN íslands, stendur fyrir sýningu í fornritadeild Þjóðarbókhlöðunnar á verkum Astu Sigurðardóttur frá Litla Hrauni í Kolbeinstaðahreppi á Snæfellnesi (1930-1971). Leið Astu lá á vit menntunar í höf- uðborginni þegai- hún var 14 ára, lauk þar landsprófi og seinna kenn- araprófi. En kennaraprófið var ein- ungis áfangi út á lífsbrautina og aldrei mun Ásta hafa hugsað sér að gerast kennari, námið aftur á móti dýrmæt undirstaða í íslenzku máli, en þar mun metnaður hennar hafa verið drjúgur. í öllu falli hafði Ásta ekki dvalist í höfuðborginni nema sjö ár og var að auk ekki nema tuttugu og eins árs þá nafn hennar var á allra vörum fyrir smásöguna Sunnudags- kvöld til mánudagsmorguns. Birtist í tímaritinu Líf og List, sem Stein- grímur Sigurðsson gaf út um nokk- urra ára skeið, og segja má að gert hafi hana bæði nafnkennda og al- ræmda. Nafnkennda fyrir góð tök á málinu og mikla frásagnargáfu, al- ræmda fyrir berorða og hispurslausa lýsingu á svalli sínu og ástalífi þessa tvo örlaga- og viðburðaríku daga er atburðarásina mörkuðu. Kunn var Ásta þó fyrir vegna sundurgerðar í klæðaburði, sérstæðs þokka og ríku- legrar beitingar andlitsfarða, þó að- allega varalitar, jafnframt ögrandi og frjálslegrar framkomu og að hún var í slagtogi með atómskáldum og bóhemum. Ei heldur til ávinnings að hún vann fyrir sér sem nakin fyrir- sæta í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskólanum en slíkur meintur ósómi vai- mjög milli tannanna á fólki á þessum ár- um, er yfirleitt lagði að jöfnu nekt sem unaðsemdir ástalífsins og klám. Helst þá hlutirnir komu upp á yfir- borðið, öllu minna mál ef þeir gerð- ust bak við byrgða glugga, geymslu- staður flöskunnar sömuleiðis undir borðum, fordómarnir á fullu, sá sem ekki kynni að fela skyldi síður stela. Hálfsannleikur guðsorðið og þarmeð gilt og viðtekið siðgæði. Fyiir þá sem upplifðu hernámsárin, fengu þau í æð frá fyrsta degi, með ástandið í beinu sjónmáli allt um kring var þetta þversagna- og hræsnikennt, að ekki sé enn fastar að orði kveðið. Hér holdgerði Ásta í raun tímana og margt sem fólk vildi ekki sjá né Jón Kaldal; Ásta Sigurðardótt ir, um 1951. kannast við en naut þó ríkulega. I pukrunar- leysi sínu átti hún bara ekid til þá skinhelgi sem mjög hefur loðað við Is- lendinga og er fylgja einangrunar sem þeir hafa löngum og af und- arlegri ákefð keppst við að sverja af sér og virð- ist enn fara vaxandi. Lít- um einungis til her- námsáranna og þann auð og framfarir sem þau lögðu grunn að hjá þessari nær ósjálfbjarga kotþjóð á hjara verald- ar. Voru vart gengin hjá garði en menn hófu að afmá heimildir þeirra og eru enn að, þótt menj- amar séu svo litlar og fáar er svo er komið sögu að víðast teldust þær þjóðargersemar fyrir þau sögulegu hvörf sem þau ullu. Hvar í höf- uðborginni sér stað heimildasafn yfir þessa merkilegu tíma og áhrifa þeirra á þjóðfé- lagsbygginguna, hvar magn þeirra var yfir- þyrmandi áður en yfir lauk? Minnismerki ekk- ert 0.00. nema vera skyldi ráðhús Reykja- víkur, og trúlega með öllu ómeðvitað af hálfu arkitektanna, en þarna í horninu á mótum Tjarn- argötu og Vonarstrætis stóðu her- braggar. Mér er_í fersku minni hve mjög sópaði að Ástu á þessum árum, í útliti lostfögur og munaðarfull, ekki spillti hér mikið þykkt svart hár, miklar og bogadregnar augnabrúnir, ásamt því að fjarrænt og suðrænt útlitið gat minnt á spákonu. Lítið var hún að fela þessar guðsgjafir náttúrunnar, Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson Frá sýningu á verkum Ástu Sigurðardóttur í Kvennasögusafninu. var raunar á stundum eins og hold- gervingur syndarinnar, eins konar Kiki á Montparnasse íslenzka list- heimsins, þótt ekki lánaðist íslenzk- um myndlistarmönnum að koma auga á það og skjalfesta útlit hennar til framtíðarinnar, nema helst Jóni Kaldal sem tók af henni frábærar ijósmyndir. Fortek þó ekki að list- spírur tímanna hafi gert af Ástu frambærileg myndverk, veit að hún var afar gott módel, þótt ekki tali ég af reynslu, en hún var fyrirsæta ár- gangsins á eftir mér í Handíðaskól- anum, m.a. Hrings Jóhannessonar og Guðmundar Erró, skildi bara eitt tjald bekkina. Kynntist Ástu aldrei neitt að ráði persónulega en hún er mér afar minnisstæð einkum frá skólaböllum þar sem hún mætti vel- búlkuð og seiðandi eins og vera bar um limafagra hrund. Þegar ég lít til baka þykir mér sköpunarverkið í senn hafa verið listaverk og eða- lmálmur, en lifði á röngum stað og röngum tíma, við getum rétt ímynd- að okkur hvað mögulega hefði orðið úr þessum efnivið í dag. Það er einmitt efniviðurinn sem er grunnþáttur sýningarinnar í Þjóðar- bókhlöðunni, en í formi sínu og upp- setningu getur hún vart talist annað en kynning, eða kannski forboði að einhverju meiru. Hversu vel hefur tekist tÖ um þá hlið er snýr að rithöf- undarferli Ástu verða aðrir að dæma um, en ég veit að meira liggur eftir hana á myndlistarsviði. Hér voru hæfileikarnir fyrir hendi en ekki samsvarandi skólun að baki athafna hennar og um ritað mál, menn löng- um hvorki skilið það hér á landi né meðtekið, að jafn strangar reglur gilda um grunnnám í sjónmenntum og bókmenntum. Sýningarskrá er engin og skoðandinn fær ekkert á miili handanna til að styðjast við, en vísa má til skilmerkilegrar gi-einar Kristínar Rósu Armannsdóttur bók- menntafræðings í Lesbók 3. júní. Fyrirhugað er að flytja sýninguna upp á hæð og kannski auka eitthvað við hana, og væri þá mikilsvert að láta þá gi-ein liggja frammi, jafnvel fjölfalda hana. En helst segir þessi framníngur mér, að það sé löngu tímabært að taka saman sýningu á manneskjunni Ástu Sigurðardóttur, skilgreina frá fieii'i hliðum hver hún hafi verið og tímana sem hún lifði á um leið. Leita uppi myndverk sem voru gerð af henni og fá lýsingar samtíðarmanna á persónunni, er það trúa mín að það væri verðugt og heillandi verkefni fyrir metnaðar- gjarnan sýningarstjóra sem drjúga athygli myndi vekja. Rétt að vekja athygli á sýning- unni, Reykjavík máli og myndum, í fordyrinu, þótt ekki sé beinlínis um listsýningu að ræða. En hér er safar- íkur efniviðurinn fyrir jafnt skáld, rithöfunda sem myndlistarmenn, hann er við fótskör sérhvers manns, en annað mál hvort og hvemig hann er meðtekinn. Sannast hér að óþarfi er að fara yfir höf og lönd með þann metnað í farteskinu að auðnast að meðtaka heiminn í gegnum gleraugu menningarmarkaðsstjóra mannfleiri þjóða. Lærdómsríkt fyrir nútíma- manninn að rýna til næstliðinnar for- tíðar, þá önnur manngildi vom við lýði og hraðinn ekki aðalatriðið. Annars vegar er um að ræða bréf þriggja tengdra kvenna, sem fæddar voru á tímabilinu 1828-1864, þeirra Önnu Guðrúnar Eiríksdóttur, Guð- rúnar Borgfjörð, dóttur hennar og Jóns Borgfirðings og Sigurjónu Jónsdóttur sem var laundóttir Jóns Borgfirðings og þar með hálfsystir Guðrúnar. Eru béf Sigurjónu einstök heimild um líf og sjálfsímynd stúlku sem ólst upp án nokkurra tengsla við föður sinn en áræddi að hafa sam- band við hann á fullorðinsárum. Hins vegar dagbækur fjöguma íslend- inga, þar sem dregnar eru upp smá- myndir af lífinu í Reykjavík á árun- um 1882-1915. Verkakonunnar Elku Bjömsdóttur (1881-1924), rituð 1915, námsmannsins Ólafs Davíðs- sonai' (1862), rituð 1882, fangans og kraftbirtingarskáldsins Magnúsar Hj. Magnússonar (1873-1916) rituð 1911 og skáldkonunnar Torfhildar Hólm (1845-1918) rituð 1889. Forvitnileg og vel upp sett sýning, og mikill akkur að lítilli skrá sem liggur frammi. Bragi Ásgeirsson Frá sýningnnni Reykjavík í bréfum og dagbókum. Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson í Þjóðar- bókhlöðu Tveir septettar í Fríkirkjunni Kammerhópurinn OCTO á góðri stund. • • Ornefni í Reykjavík GUÐLAUGUR R. Guðmunds- son fræðir gesti Árbæjarsafns- ins um ömefni í Reykjavík á sunnudag kl. 14. Mun hann fjalla um ömefni í landi Reykjavakur og gamlar þjóðleiðir til bæjar- ins. Á undan erindi hans mun Borgarkórinn syngja undir stjórn Sigvalda Snæs Kaldalóns. Sýningu lýkur Gallerí Sævars Karls, Bankastræti Sýningu Húberts Nóa lýkur fimmtudaginn 29. júní. Kammertónlistarhópurinn OCTO heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 27. júní kl. 20.30. OCTO er skipað fiðluleikurun- um Margréti Kristjánsdóttur og Sigurlaugu Eðvaldsdóttur, Her- dísi Jónsdóttur víóluleikara, Lo- vísu Fjeldsted sellóleikara, Há- varði Tryggvasyni bassaleikara, Kjartani Oskarssyni klarínettu- leikara, Emil Friðfinnssyni horna- leikara og Rúnari Vilbergssyni fagottleikara. Á efnisskránni eru tvö verk: Septett í E-dúr op. 40 eftir franska tónskáldið Adolphe Blanc og septett í Es-dúr op. 20 eftir Ludwig van Beethoven. Septett- inn eftir Blanc hefur aldrei verið fluttur hér á landi áður, en hann var saminn rétt eftir miðja síð- ustu öld. Beethoven samdi sinn septett í ársbyrjun árið 1800 og var verkið frumflutt í Vínarborg 2. apríl það sama ár. Septett Beethovens var á sínum tíma eitt allra vinsælasta verk tónskáldsins og fjölmörg tónskáld á 19. öld tóku verkið sér til fyrirmyndar, bæði hvað form og hljóðfæraskip- an snertir. Kammertónlistarhópurinn OCTO kom fyrst saman fyrir fjór- um árum og hélt þá tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík og Akur- eyrarkirkju. Á hausti komanda eru fyrirhugaðir fleiri tónieikar. ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.