Morgunblaðið - 23.06.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 23.06.2000, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LOUISA MATTHÍASDÓTTIR OG LELAND BELL + Louisa Matt- híasdóttir fæddist 20. febr- úar 1917 á Hverfisgötu 45 og lést 26. febr- úar 2000 á O’Connor- sjúkrahúsinu í Delhi í New- York-fylki. For- eldrar hennar voru Matthías Einarsson yfir- læknir (f. 7. júní 1879, d. 15. nó- vember 1948) og Ellen Ludvíka Matthíasdóttir Johannessen (f. 10. aprfl 1883, d. 29. október 1964). Önnur börn þeirra hjóna voru Matthías Einar (1907- 1969) og María (1911-1975). Matt- hías Einar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Helga Kristín Helga- dóttir Pjeturss (1909-1944), og eignuðust þau tvo syni, Matthías (f. 1937) og Einar (f. 1942). Seinni kona hans var Asgerður Einars- dóttir (1913-1997) og er þeirra son- ur Haukur (f. 1948). María giftist Sverri Ragnars stórkaupmanni á Akureyri (f. 1906) og eignaðist með honum dætumar Ellen (f. 1933) og Rögnu (f. 1935). Louisa giftist árið 1944 banda- ríska listmálaranum Leland Bell (1922-1991). Leland var af rúss- neskum gyðingaættum. Foreldrar hans voru Sarah og Louis Bell, en eftirlifandi systir hans Bayla. Dótt- ir þeirra Louisu og Lelands er Temma Bell (f. 1945), listmálari og húsfreyja í Bandaríkjunum, sem gift er Ingimundi Kjarval (f. 1950), búfræðingi og leirkerasmiði. Dæt- ur þeirra eru Úlla (f. 1978), Mel- korka (f. 1981), Nína Sóley (f. 1986) og Vala (f. 1991). Louisa stundaði myndlistamám í Kunsth&ndværkerskolen í Kaup- mannahöfn 1934-1937, hjá Marcel Gromaire í Maison Watteau í París 1938-1939 og í Art Students League oghjá Hans Hofmann í New York 1942-44. Leland stundaði óreglu- legt nám undir handarjaöri banda- ríska listmálarans Karl Knaths í listamannanýlendunni Province- town á áranum 1940 til 1944. Frá árinu 1944 til dauðadags helguðu bæði hjónin myndlistinni líf sitt og starfskrafta, en Leland fékkst í hjá- verkum við myndlistarkennslu við háskóla vfðsvegar um Bandarfldn. Minningarathöfn um Louisu og Leland fer fram í Dómkirkjunni í dag og hefst klukkan 13.30. Pað vai' lán hverjum manni að kynnast listmálurunum og mann- eskjunum Louisu Matthíasdóttur og Leland Bell, Úllu og Lee. Ólík eins og þau voru mynduðu þau samstæðu sem svo mikið var varið Hve ólík þau voru kom kannske skýrast fram í vinnubrögðum þeirra við málaratrönurnar. Nefnt hefur verið hve ótrauð Louisa gekk að verki, lauk mynd í einni lotu og fékkst svo ekki um hvernig til hefði tekist. Lee gaf sér rýmri tíma, vann að málverki sínu í áföngum - og gat enn verið með hugann við hugsanlegar breytingar eftir að verkið var fullskapað. Mér er minnisstætt atvik úr heimsókn hjá þeim hjónum í New York fyrir mörgum árum. Þau höfðu látið undan að sýna mér nokkrar mynd- ir sínar. Lee hafði tekið þátt í sýn- ingu þá ekki alls fyrir löngu. Þegar hann kemur að einni mynd sinni verður honum starsýnt á hana, dökknar í andliti og segir við Úllu með þungri áherslu: - Var ég með þ e s s a mynd á sýningunni? Svona kom til eina skiptið sem ég sá stundarþunglyndi gagntaka Lee, þann hressa og glaðværa mann. Honum var eiginlegast að lífga upp í kringum sig. Sá vandi sem stund- um hrjáir hjón er hasla sér völl í sömu listgrein var ekki þeirra. Þeir sem lærdóm og vit hafa munu halda áfram að fjalla um tök þeirra hjóna á listinni. En öllum leyfist okkur að njóta mynda þeirra - og hafa á þeim eigin skoð- anir. Mér hefur þótt hvað magn- aðast við málverk Louisu kyrrðin og kyrrstaðan sem hún skapar í sumum mynda sinna - og svo hitt hvemig hún í öðrum getur með ör- fáum dráttum skapað hreyfingu og kraft þannig að manni finnst mann- veran, hrossið eða kindin vís til þess að hverfa út fyrir rammann á næsta andartaki. Allur listferill Louisu er nú rakinn í hinni einkar vönduðu bók sem út kom í tengsl- um við „Reykjavík - menningar- borg Evrópu 2000“. Lee sem þreytti þolgóður látlitla glímu við stellingar fólks sem teygði sig eftir fiðrildi eða fylgdist með ketti leika sér að bráð á gólfi sýndi einnig fjölhæfni sína í bók sem gefin var út um hann vestan hafs árið 1985. Þau Louisa og Leland áttu sam- eiginlegt hve sönn þau voru og heilsteypt í list sinni. Það var eins og Louisu nægði að eiga léreft, liti og pensla; umhverfið ögraði henni eingöngu sem viðfangsefni í listinni en lét hana að öðru leyti í friði. Frami virtist ekki skipta hana máli. Lee vissi líka hvað hann vildi, helgaði sig því og leiddi annað markvisst hjá sér. Eitt dæmi um heilindi Lees er mér sérstaklega eftirminnilegt. Þegar Louisa efndi til málverkasýningar á slóðum for- feðra sinna í móðurætt í Bergen fyrir rúmum áratug þótti bera vel í veiði að fá Lee til að halda fyrir- lestur. Honum var bent á að góð aðsókn væri vís ef hann tengdi efni sitt hinum kunna norska málara Askevold. Ættfólk hans ætlaði að flykkjast til bæjarins í tilefni merk- isafmælis málarans og mikil sýning yrði á verkum hans í sama safni. En nú reyndist það svo að myndir Askevolds sem einkum eru af norsku landslagi og búsmala höfðu ekki náð að hrífa Lee. Hann lét því sem vind um eyru þjóta allt tal um trygga aðsókn og helgaði fyrirlest- urinn Giacometti hinum svissneska, áleit hann verðugri umfjöllunar og var auk þess manna færastur til að gera honum skil. Skemmst er frá því að segja að telja mátti á fingr- unum þá sem komu að hlýða á Lee. Honum var þó hvergi brugðið og fyrirlesturinn slíkur að eitt helsta blað borgarinnar sá ástæðu til að birta lesendum sínum langan út- drátt úr honum. Snilld Lees sem fyrirlesara um listir var fáu lík. Þannig hejrist enn minnst á fyrir- lestur sem hann flutti fyrir sneisa- fullum sal í Norræna húsinu þótt árafjöld sé síðan. íslensk kona sem fékk að fylgjast með honum leiða bandaríska listnema um mynd- listarsafn vestanhafs gleymir því ekki. Mætti svo áfram telja. Matur og djass skipuðu háan sess hjá Lee. Þegar í fyrstu heim- sókn hans til Islands eftir hjúskap þeirra Louisu og fæðingu einka- dótturinnar Temmu kom glöggt í ljós hve hann og góður matur áttu vel saman. Það bar þá einhverju sinni við á heimili Maríu mágkonu hans norðan fjalla að húsbóndinn, Sverrir Ragnars, þurfti að víkja sér frá borðhaldi og dvaldist nokk- uð. Þegar hann kom til baka sat Lee enn að snæðingi og út úr Sverri hraut: - Hvað er þetta, er maðurinn ennþá að borða! Nær fjórum áratugum síðar áritaði Lee af eðlislægri glettni listaverkabók sína til Rögnu frænku konu sinnar, dóttur Maríu og Sverris: - Frá manninum sem er ennþá að borða! Þessum þætti heyrir einnig til fal- legur dagur á kræklingafjöru í Hvalfirði. Seint mun gleymast hve Lee var í essinu sínu kominn í eld- hús með fenginn þar sem hann tók þátt í eldamennskunni af lífi og sál. Það var ekki bara happ þeim Louisu og Leland að leiðir þeirra lágu saman - heldur líka landi okk- ar að eignast slíkan tengdason. Myndefni Louisu sáu til þess að bæði lifðu löngum í íslensku lands- lagi þótt þau byggju í fjarlægri heimsborg. Þau hverfa nú saman í íslenska mold - en sterk sköpunar- verk þeirra sönn, ljúf og litfögur standa eftir og endurminningarnar mörgu. Temmu og telpunum þeirra Ingi- mundar búhölds og leirkerasmiðs má vera ríkt gleðiefni að eiga til slíkra að telja. Ólafur Egilsson. í dag fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík minningarathöfn um hjónin Louisu Matthíasdóttur, sem lést fyrr á þessu ári, og Leland Bell, sem féll frá árið 1991. Þau töldust bæði vera meðal eftirtekt- arverðustu og sérstæðustu listmál- ara í Bandaríkjunum á seinni helm- ingi aldarinnar - ýmsir bandarískir listrýnendur tóku raunar enn dýpra í árinni. Leland var ekki ein- asta mjög frumlegur málari, heldur PALA KATRIN EINARSDÓTTIR + Pála Katrín Ein- arsdóttir fæddist 26. nóvember 1909 á Hörgslandi. Hún Iést á elliheimilinu Gmnd 4. júní si'ðast- liðinn. Útför Pálu Katrín- ar var gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu 10. júní siðast- liðinn. Elsku amma, nú ertu búin að kveðja þennan heim. Þó að það sé erf- itt að kveðja þá vitum við að þér líður ,,vel núna. Eftir lifa góðar minningar um þig, elsku amma. Það var alltaf svo gott að koma til þín og alltaf passaðir þú upp á það að enginn færi svangur frá þínu borði, hvorki á líkama né sál. Legg ég nú bæði líf og önd Ijúfi Jesúíþínahönd. Síðast þegar ég sofha fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr.Pét.) Takk, elsku amma mín, fyrir allt. Berglind Másdóttir og fjölskylda. líka annálaður kennari og fyrirles- ari. Á blaðsíðu 201 í nýútkominni bók um Louisu Matthíasdóttur er ljósmynd sem birtist í tímaritinu „Cosmopolitan“ árið 1959 ásamt grein um nokkra listmálara í New York. Myndin sýnir hvernig um- horfs var í vinnustofu Louisu og Lelands í Sextánda stræti áðuren þau stækkuðu húsið og fengu hvort sína vinnustofu. Hjónin standa hvort við sínar trönur, en neðst til hægri situr Temma dóttir þeirra 14 ára gömul og er að lesa í stórri bók, sennilega listaverkabók. Á veggnum fyrir ofan hana eru tvær kunnar andlitsmyndir Louisu af dótturinni. Myndirnar sem raðað er í rekka kringum Louisu eru vís- ast flestar eftir hana og væntan- lega fullgerðar, en í bakrunninum stendur Leland og er líklega að glíma við gamla mynd sem hann telur sig þurfa að endurbæta. Yfir þessari samhentu fjölskyldu hvílir sérkennileg og næstum ójarðnesk friðsæld í miðjum skarkala stór- borgarinnar. Þannig man ég fjölskylduna einsog ég kynntist henni fyrst haustið 1953 og næstu þrjú árin þangaðtil ég hélt heimleiðis í sept- ember 1956. Eg held ég hafi aldrei fyrirhitt samhentara eða samrýnd- ara listamannapar, svo gerólík sem hjónin þó voru að upplagi og skap- ferli. Þau unnu einsog tvíeyki, hjálpuðust að við undirbúning sýn- inga, þaulræddu verk hvort annars, sýndu stundum saman og stóðu hlið við hlið í blíðu og stríðu. Þegar fram liðu stundir fetaði Temma í fótspor foreldranna og gerðist mál- ari sem vakið hefur athygli bæði vestanhafs og hér heima. Sýningin sem nú stendur yfir í Hafnarborg í Hafnarfirði gefur góða hugmynd um sérkenni þessara þriggja ná- tengdu listamanna. Fjölskyldan málaði semsé öll hvar sem hún var stödd. Framanaf voru algengustu viðfangsefni Louisu eiginmaðurinn og dóttirin ásamt kyrralífsmyndum. Er einkar forvitnilegt að fylgjast með mynd- unum af Temmu alltfrá frum- bernsku frammá unglingsár eða þartil hún hvarf að heiman til náms 18 ára gömul. í þessu samhengi er sömuleiðis fróðlegt að skoða mynd- irnar sem Leland málaði af Temmu á árunum 1966-75, þegar hún er orðin fullveðja og sjálfstæður ein- staklingur, einbeittur og marksæk- inn. Leland málaði ennfremur all- margar myndraðir af fjölskyldunni, sem allar voru hlaðnar dramatískri spennu og ástríðu, hreyfingu og óvenjulegum þrótti. Flestar þeirra glötuðust í eldsvoðanum í vinnu- stofu Lelands haustið 1987, en hafa varðveist í bókinni um hann sem út kom í New York ári fyrr. Vinnubrögð hjónanna voru ger- ólík. Leland vann einatt að mál- verki svo árum skipti, lagði það frá sér og byrjaði á nýjanleik, reyndi látlaust að höndla það sem hann taldi vera fullkominn skugga eða hárréttan bakrunn. Venjulega lauk Louisa málverki í einni lotu. Væri hún ekki ánægð með tiltekið mál- verk, lagði hún það einfaldlega til hliðar og byrjaði á nýju. Frá önd- verðu dáðist Leland afdráttarlaust að verkum konu sinnar og vildi um- fram allt að hún héldi sínu striki. Að sama skapi var hún gallhörð á því, að hann verði aðeins lágmarks- tíma til að afla þeim viðurværis, svo hann hefði nægan tíma til að mála. „Samband þeirra var óvenju- lega náinn félagsskapur tveggja jafnkosta listamanna sem studdu hvor annan með ráðum og dáð,“ skrifaði bandaríski listfræðingur- inn Martica Sawin. Það var ævinlega upplyftandi að heimsækja fjölskylduna í Sextánda stræti og eiga með henni kvöldst- und heimafyrir eða fara með henni ásamt góðum vinum út að snæða í Greenwich Village eða Chinatown. Mæðgurnar voru að vanda hljóðlát- ar, en Leland var undantekninga- laust mælskur og andríkur, enda lá honum mikið á hjarta. Þó Louisa væri fámál og hlédræg var návist hennar einsog krydd í samkvæmið, meðþví hún bjó yfir einhverjum óskilgreindum þokka sem var sam- tvinnaður úr hlýju, fullkomnu lát- leysi og hressilegu hispursleysi. Hver setning sem hún sagði var sérkennilega þungvæg, stundum með ávæningi af kaldhæðni, þegar henni þóttu umræðurnar gerast helsti háfleygar eða háværar. En hún átti líka til létta kímni og smit- andi ungmeyjahlátur sem yljaði manni innað hjartarótum. Þætti henni Leland verða einum of mælskur eða fyrirferðamikill í stærri samkvæmum, þurfti hún ekki annað en segja ofurlágum rómi „Lee! Lee!“, og óðara sljákk- aði í honum. I smærri samkvæm- um átti Louisa til að opna sig og láta kímnigáfuna njóta sín, en það heyrði til undantekninga. Einsog hún margsagði sjálf, þá talaði Le- land fyrir þau bæði og hún þurfti aldrei að opna munninn! Louisa varði tæpum sex áratug- um til listsköpunai- vestanhafs og vann þar meginhlutann af lífsverki sínu. Framlag hennar fann þó ekki umtalsverðan hljómgrunn í heima- landinu fyrren hún var komin hátt á sjötugsaldur, en þá má segja að hún hafi tekið landa sína með trompi. Ytri atvik á æviferli listmálara, jafnvel þó söguleg væra, hljóta æv- inlega að falla í skugga þeirra verka sem hann gefur af sér og tjá auðugt innra líf sem ekki verður fellt í skorður frásagnar eða túlkað nema óbeint með orðum. Verkin sem Louisa skapaði á löngum lífs- ferli mynda sjálfstæða og töfrandi veröld lita, forma og tákna, sem eru í senn þáttur í lífi þeirra sem njóta mega og alný vídd í veröld- inni - vídd sem ekki var fyrir hendi áðuren listakonan kom á vettvang. Fyrir þessa nýju vidd þökkum við Louisu að leiðarlokum sem og fyrir þá skondnu hendingu, að hún varð óvart og óvitandi orsök þess að við eignuðumst áhrifamesta harmljóð aldarinnar, „Tímann og vatnið" eft- ir Stein Steinarr. Sigurður A. Magnússon. Það var á fögram sumardegi fyr- ir nærri hálfri öld að við bræðurnir voram við ærsl og leiki á íþrótta- velli sem við höfðum búið okkur nokkurn spöl frá íbúðarhúsunum að Arnarfelli við Þingvallavatn. Þegar kvöldaði héldum við heim- leiðis, þreyttir og þyrstir og ógur- lega svangir. Foreldrar okkar voru fjarverandi og þess vegna höfðu Úlla og Lee séð um matseldina þetta kvöld. Þau höfðu tilreitt málsverð að kínverskum hætti, smáskorið kjöt, salat og ýmislegt góðgæti og þótti okkur bræðrum sem við hefðum aldrei komist í aðr- ar eins kræsingar. Þetta er það fyrsta sem ég man eftir föðursyst- ur minni Louisu Matthíasdóttur og eiginmanni hennar, Leland Bell, sem við minnumst í dag. Louisa ólst upp í foreldrahúsum í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar, fyrst í miðbænum og síðar að Höfða, sem þá þótti vera hálfgert úti í sveit. Snemma komu í ljós hæfileikar hennar og áhugi á teikn- ingu og myndlist og voru foreldrar hennar mjög áfram um að hún fengi tækifæri til að þroska þá gáfu. Sautján ára gömul hélt hún til myndlistarnáms í Kaupmanna- höfn og dvaldi þar til ársins 1937 og fór síðan til Parísar til frekara náms haustið 1938. Árið eftir varð hún að koma heim fyrr en til stóð vegna stríðsins og dvaldi hér heima næstu rúmlega þrjú árin. Á þess- um áram, eins og raunar allar ævi, var Louisa stöðugt „að æfa sig að mála“ eins og hún kallaði það sjálf. Til er fjöldi verka frá skólaárum hennar og fram að Ameríkuför. í þeim mörgum greinir fyrir möskv- um þess morgundags sem síðar rann upp í verkum hennar. Ofur- næmt formskyn og öflug litanotkun í verkum frá þessum tíma benda til þess að sú snilli sem fram kemur í merkustu verkum hennar síðar á ferlinum eigi sér fyrst og fremst rætur í meðfæddum hæfileikum. Franski málarinn Henri Matisse, sem var einn þeirra meistara sem Louisa hafði mætur á, sagði ein- hverju sinni að listmálari sem ekki hefði afl litanna á valdi sínu væri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.