Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
Um viðbrögð við
tillögum Hafró
HÉR er fram haldið
frá fyrri grein umfjöll-
un um þær nýgefnu
upplýsingar frá Hafró
að tvö eða þrjú hundr-
uð þúsund tonn af
þorski hafi horfið við
Island síðan í fyrra.
Morgunblaðið hefur
í forystugrein lagt til
að tillögum Hafró um
hámarksafla verði
fylgt nema fram komi
hlutlægar mótbárur. í
téðum leiðara þykir
mér of lítið gert úr
málefnalegu framlagi
leikmanna, ekki síst
Kristins Péturssonar á Bakkafirði
og Sveinbjarnar Jónssonar frá Suð-
ureyri. í skrifum beggja má efa-
laust finna sitt af hverju tilfinninga-
þrungið og jafnvel hagsmunatengt
og því ekki alls kostar hlutlægt. Því
verður hins vegar ekki mótmælt að
þeir hafa sökkt sér niður í gögn
Hafró og aflað sér gagna frá Ný-
fundnalandi og úr Barentshafi og
dregið sínar ályktanir. Þær ríma
engan veginn við það sem Hafró er
að gera og varpa dimmum skuggum
yfir ráðgjöf stofnunarinnar. Það,
sem þessir menn hafa haldið fram í
áranna rás, gæti verið hluti af skýr-
ingunni á slökum árangri af ráðgjöf-
inni.
Morgunblaðið kallar eftir hlut-
lægum athugasemdum og ég sem
leikmaður býð fram eina sem mér
þykir skipta máli. Frá upphafi hefur
ráðgjöfin verið veitt eins og þorsk-
urinn við ísland sé eitt mengi, einn
stofn. Hafró veit sem er að þetta er
ekki svo. Sjómenn hafa
um áratugi vitað að
þorskstofnarnir eru
margir. Það sýni
hrygnandi þorskur
víðsvegar við landið á
vorin, - í Djúpi, fyrir
norðan, austan og jafn-
vel í djúpköntunum
fyrir sunnan land, auk
aðalhrygningarinnar
suðvestanlands. Ég
hlustaði á Guðrúnu
Marteinsdóttur, sér-
fræðing Hafró, stað-
festa þetta fræðilega í
opinberum háskólafyr-
irlestri. Þar kom fram
athugasemd hennar sem ég skildi á
þann veg að svo mikil brögð væru
að þessari hrygningu þorsksins víðs
Kvótinn
Sjómenn hafa um ára-
tugí vitað, segir Jón
Sigurðsson í síðari
grein sinni, að þorsk-
stofnarnir eru margir.
vegar kringum landið að íslenski
þorskurinn gæti sennilega ekki
hrunið eins og gerist í Barentshafi,
þar sem nánast allur stofninn
hrygndi á sama stað. Þessi fyrirlest-
ur kom mér í hug bæði þegar Jó-
hann Sigurjónsson, forstjóri Hafró,
hélt því fram af nokkru yfirlæti í út-
varpi á dögunum að Hafró hefði
bjargað þorskstofninum frá hruni
1992 og svo þegar ég las í leiðara
Mbl. að óttinn við hrun stofnsins
réði mestu um tillögur blaðsins í
málinu.
Þessir mismunandi þorskstofnar
við landið vaxa upp við misgóð skil-
yrði og verða því iðulega smávaxnir
þótt fiskurinn sé kominn til ára
sinna. Núgildandi fiskveiðistjóm
leggur þorsktonn að jöfnu, hvert
sem verðmæti þess er, þegar afli
kemur að landi. Við þær aðstæður
er augljóst að sókn verður minni í
smærri og verðminni fisk og skilj-
anleg tilhneiging til að kasta honum
fyrir borð ef hagsmunir útgerðar og
áhafnar krefjast þess. Því er ein-
boðið, þegar þorskinum er úthlutað
eins og hann sé eitt mengi, sem
hann sannanlega er ekki, að sumir
stofnar þorsks verða ofveiddir, með-
an aðrir eru vannýttir. Þrátt fyrir
að vita betur tekur Hafró í tillögum
sínum ekkert tillit til þessa, heldur
leggur til veiðar á 203.000 tonnum
af þorski óskipt, (nákvæmnin er
yndisleg miðað við bersýnilega óná-
kvæmni þekkingarinnar sem að
baki liggur). í tillögunum tekur
stofnunin þannig ekki mið af þeirri
þekkingu sem hún hefur. Tillögum-
ar taka heldur ekkert mið af því,
sem Guðrún Marteinsdóttir hefur
líka sýnt fram á, að stærsti þorskur-
inn er verðmætastur í hrygning-
unni. Óskipt sókn veldur því, sem
áður var lýst, að allir, sem geta,
veiða stærsta og verðmætasta fisk-
inn til hagsbóta fyrir útgerðina og
sjómenn en til óþurftar fyrir hrygn-
inguna. Samtímis leggur Hafró of-
uráherslu á stærð hrygningar-
Jón Sigurðsson
stofnsins þegar stofnunin veit að
elsti hluti hans skiptir árangur
hrygningarinnar mestu, raunar sá
hluti sem er beinlínis fómað með
óskiptri úthlutun þorskkvótans.
Tillaga Hafró ber með sér að
stofnunin heldur ennþá í trú sína á
aðferðafræðina, sem beitt hefur
verið, en litlum og mestan part
neikvæðum árangri hefur skilað
nær tvo áratugi. Æðimargir, a.m.k.
utan stofnunarinnar, hafa misst þá
trú. Mbl. hefur haldið í hana lengur
en margur. Nú hefur Hafró jafnvel
gefið hana upp með nýgefinni bless-
un yfir þá ákvörðun sjávarútvegs-
ráðherra að taka ekki mark á
Hafró. Sú ákvörðun ráðherra er ris-
lág, hvorki hrá né soðin. Hún ber
með sér að hann treystir ekki ráýy
gjöf Hafró en hann og ríkisstjórnin
hafa ekki í sér manndóm til að taka
á því máli fremur en öðrum sem at-
hafna krefjast. Þjóðin verður því að
afplána a.m.k. eitt undanhaldsárið
enn í fiskveiðunum áður en tekið er
á málinu.
Höfundur er fyrrvernndi
framkvæmdastjóri.
r.
U/fj
n _ i_n_«
G L Æ S I' ..
www.oo.lsB
22.-25. JÚNÍ
Vertu með í sumarkastinu!
Komdu í Kringluna, skoðaðu nýju
sumarvörurnar, gæddu þér á
girnilegum réttum og geröu
gæðakaup á Kringlukasti.
Sunnudaginn 25. júní
eru verslanir opnar frá
kl. 13:00-17:00.
Veitingastaðir opnir lengur.
Komdu f Kringluna og nfóttu
þess nýiasta á sólskinsverði.
föstudagur
laugardagur
sunnudagur
wm
NYJAR VORUR
með térslélium afslælti
20%-50%
Upplýsingor í símo 588 7788