Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 74

Morgunblaðið - 23.06.2000, Page 74
74 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ \ i Ferdinand Smáfólk ACC0RPIN6 TO A RUMOR, N TME 5UMMER OLVMPICS 15 60IN6 TO SE MOVEP j N MERE TO NEEPLE5.. V Samkvæmt sögusögnum munu Ólympíuleikamir verða fluttir hingað til Nálaborgar. IT COULP BE JU5T A RUMOR, BUT l'P BETTER NOTTAKE ANV CHANCE5.. Það gæti verið sögusögn, en ég tek enga áhættu.. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Jill Caplan England með börnum sfnum. Hún var ættleidd til Banda- ríkjanna árið 1963 og leitar nú íslenskra foreldra. Leitar íslenskra foreldra Frá Jill Caplan England MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið að birta þetta bréf frá Jill Caplan England (England er ætt- arnafn eiginmanns hennar), sem leitar að íslenskum foreldrum sín- um. „Ég fæddist árið 1963 í Melbour- ne í Florida. Ég hef alltaf vitað að ég var ættleidd og lengi grunað að ég væri ættuð einhvers staðar frá Norðurlöndunum. Mér hefur verið sagt það eitt um uppruna minn að móðir mín væri íslensk og hafi kom- ið til Florida til þess að fæða barnið og farið síðan strax aftur til ís- lands. Ég var ættleidd 18 klst. göm- ul til Caplan-hjónanna. Um föður minn veit ég ekkert, en ekki ólík- legt að hann sé líka íslenskur. Ég fór fyrst að hugsa til móður minnar þegar ég varð sjálf móðir, en ég á tvö börn, 6 og 8 ára. Ég hef líka velt fyrir mér hvaða kring- umstæður hafi leitt til þess að móð- ir mín hafi þurfti að láta mig frá sér, það hlýtur að hafa verið henni mjög erfitt og til þess hefur þurft mikið hugrekki. Mig langar að þakka henni fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun, og legg áherslu á að ég eignaðist alveg frábæra for- eldra og uppeldisbróður, sem líka var ættleiddur. Ég sendi móður minni og föður ástarkveðjur og bið þeim farsældar. Ég þrái mjög heitt að finna for- eldra mína og aðra ættingja og vona að það sé gagnkvæmt - og að ég geti haft samband við þau hér eftir. En ég geri mér einnig fulla grein fyrir því að vel megi vera að aðstæður foreldra minna séu þann- ig að þau fái ekki viðkomið að hafa samband við mig og ég vil alls ekki valda þeim óþægindum á neinn hátt með því að skjóta svona upp kollin- um 36 árum síðar. Ég vil fyrir alla muni koma þeim skilaboðum til foreldra minna að ég átti yndislega æsku og ólst upp í skjóli góðra kjörforeldra og ég þakka fyrir mig og kjörforeldra mína - að við vorum leidd saman á þennan hátt í farsæla fjölskyldu. Kjörfaðir minn vann hjá Pan Am og þannig fékk ég líka tækifæri til að ferðast víða um heiminn, meðal annars buðu foreldrar mínii- mér til Islands 1983, til að fagna vori. Ég skildi ekki þá hvers vegna til ís- lands af öllum stöðum, því mér fannst það ekki beint rétti staður- inn til að fagna vori. En þá sagði kjörfaðir minn að það væri vegna þess að ég væri íslensk og sér fynd- ist kominn tími til að ég kynntist landinu. Það var undarleg tilfinning að ganga hér um götur og átta sig á hve lík ég var fólkinu sem hér bjó - á öllum mínum ferðalögum um heiminn með foreldrum mínum hef ég ekki fyrr upplifað það. Ég leit framan í hverja einustu konu sem ég sá sem Jhugsanlega gat verið á sama aldri og ég áleit móður mína vera og hugsaði: „Skyldi þetta vera mamma mín?“ Ég á mér draum að sækja landið heim með börnin mín, kynnast sögu landsins, menningu og tungumáli, skoða landið og fara ef til vill í reið- túr með börnin - leyfa þeim að koma hingað og kynnast uppruna sínum og vonandi ættingjum líka. Ef foreldrar mínir geta ekki komið því við vegna fjölskylduað- stæðna að hafa samband við mig þá hef ég fullan skilning á því, en ég vil að þau viti, eftir að hafa lesið þetta, að ég hafi átt gott líf og þau þurfi ekki að sjá eftir að hafa látið mig frá sér. Geti einhver veitt mér upplýsing- ar um uppruna minn þá bið ég þá vinsamlega að hafa samband við mig.“ Mrs. JILL CAPLAN ENGLAND, 990 Apache Street, Miami Springs, Florida 33166 U.S.A. Símar: (+001) 305 888 5251 heima (001) 305 871 0242 í vinnu Tölvupóstur: JillCE@aol.com Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.