Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 75

Morgunblaðið - 23.06.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000 75 BREF TIL BLAÐSINS Lofaður sé Drottinn Frá Árna Birni Guðjónssyni: KRISTIÐ fólk ætlar að þakka Drottni almáttugum fyrir að hafa sent Jesús til jarðarinnar fyrir 2000 árum. Þakkarhátíð á að fara fram á Þingvöllum 1.-2. júlí næstkomandi en kristni var sett í lög árið 1000. Eins og þjóðin veit kom Jesús með fagnaðarerindi til jarðarbúa sem breytti dauða í líf, því hann boðaði eilíft líf þeim sem taka á móti honum. Mannkynið var orðið fráhverft Guði og syndin herjaði á allt líf mannanna. Jesús kom með lausn- ina; með því að við iðrumst synda okkar og játum hann sem leiðtoga okkar. Jesús kemur á sambandi milli Guðs og manna sem syndin slítur með fagnaðarerindinu og hann fórn- aði lífi sínu fyrir okkur syndarana. Þakka ég bænum fjölda manna að ekki fórst mannslíf í jarðskjálftan- um mikla 17. júní. Drottinn hefur bænheyrt og verndar sitt fólk. Það er nú álitið að nokkur hundr- uð milljón manna á jörðinni hafi ját- að að fylgja Jesú Kristi af hjarta. Guð segir að þeir sem eru orðnir Guðs börn séu fulltrúar hans á jörð- inni og eigi að boða fagnaðarerindið öllum þjóðum. Trúin á hann er eina lausnin til hamingjuríks lífs. Að boða hið góða fagra og full- komna og standa gegn hinu illa sem vill snúa okkur til syndalífs og tor- tímingar. Eg, aumur syndarinn, hef játað að fylgja Jesús, hann hefur auðgað líf mitt með kærleika sínum og með vissu um að hann hefur fyrirgefið mínar margvíslegu syndir. Eg hef iðrast af heilu hjarta. Hann hefur einnig sannfært mig um að ég mun vera með honum eftir að hann sækir mig til sín. Eg hef orðið var við það mótlæti sem kristnir menn fá með því að tala Guðs orð eins og Jesús vill að við gerum. Við erum kallaðir ýms- um nöfnum. Nokkur umræða hefur farið fram um þátttöku fríkirkjusafnaða í há- tíðinni á Þingvöllum. Eg hef vitneskju um að biskup sendi bréfi til nokkurra safnaða um ósk að þeir tækju virkan þátt í há- tíðarhöldunum en ekki var vitað hvernig. Kristnihátíðarnefnd hafði áður tilkynnt að fríkirkjunum væri úthlutað samkomusvæði í Hestagjá þar sem aðalhátíðin var ekki stað- sett. Þessu var hafnað. Síðan óskuðu ft-íkirkjurnar eftir að taka einhvern þátt í hátíðinni og fá aðstöðu á völlunum. Það hefur verið í umræðunni að fríkirkjurnar væru á einhvern hátt að atast út í þjóðkirkjuna út af þessu. Það er misskilningur, aðeins var beðið um lausn á óskum þeirra og kristnir menn í sameiningu héldu hátíð. Þær gleðilegu frétth' hafa borist þegar þetta er skrifað og ég hef staðfest að Kristnihátíðarnefnd hef- ur orðið við þessum óskum og fá þeii' að taka virkan þátt í hátíðar- höldunum og einnig með aðstöðu á völlunum og dagskrá Hestagjár lögð af. Engin ástæða er því fyrir kristið fólk að sniðganga hátíðina. Þakka skal Júlíusi Hafstein og biskupi fyrir lausn þessa máls. Ástæða er fyrir Kristið fólk að biðja fyrir þeim og þeirra mikil- vægu störfum. Það er ósk mín að hátíð sem þessi verði Guði til dýrðar og engum öðr- um. Að engu ókristilegu verði leyft að koma þar fram í kvæðum eða leikritum. Eingöngu verði sungnir lofsöngvar um Jesú og þökk til hans að hafa komið með fagnaðarerindið til okkar syndugu manna. Mestu máli skiptir að þjóðin játi syndir sínar og taki ákvörðun um að fylgja Jesú. Það verður hver einstaklingur að gera með hjarta sínu og þjóðin hverfi þar með frá syndugu líferni sínu og hætti að deyða börnin sín, „því annars hverfur fiskurinn úr sjónum.“ Ég tek undir orð biskups að þjóð- inn eigi að sameinast í þökk og kær- leika til Jesú. Með því að Kristnir menn sam- einist á hátíð þessari og taki virkan þátt í henni getum við lofað Drottin og boðað Guðs orð kröftuglega þannig að þúsundir íslendinga taki á móti Jesú í sitt hjarta á Þingvöll- um. Guð blessi íslendinga. ÁRNI BJÖRN GUÐJÓNSSON, Eyjabakka 7, Reykjavík. Forðist sektir - Þekkið skyldur ykkar í umferðinni Frá Jóni Gröndal: NÚ ÞEGAR fjölmargir eru á ferð um landið með tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi er við hæfi að rifja upp það sem þarf að vera í lagi á bílnum og í eftirvögnunum. Lögreglan mun á næstunni herða eftirlit með þess- um hlutum. Það er óþarfi að bæta sektum ofan á ferðakostnaðinn. Dráttarkúlur þarf að skrá Tengibúnaður bílsins þarf að vera samþykktur af bifreiðaskoðun til að teljast löglegur. Þá er hann skráður í skráningar- vottorð og líka tilgreint hvað þú mátt draga þungan eftirvagn með eða án hemla. Ef þú hefur keypt bfl með dráttarkúlu getur þú séð hvort hann er samþykktur eða ekki í skráning- arvottorðinu. Sé hann það ekki verð- ur þú að fara á skoðunarstöð og láta skoða hann. Það kostar 1500 kr. Sé búnaðurinn ekki skráður getur tryggingafélagið átt endurkröfurétt á þig ef eitthvað kemur fyrir. exo. is éxc r> Fákafen 9, Reykjavík s: 5682866 Merkingar í föt og skó Laugalækur 4 • S: 588-1980 Ný sending frá ACO ^ rrkir\i na i nÁrvi/nAr>i Teg.: Cora Stærðir: 35-42 Litir: Hvítir, beige og svartir Verð: 3.495,- SENDUM í PÓSTKRÖFU Teg.: Cecil Stærðir: 35-42 Litir: Hvítir og svartir Verð: 3.495,- Teg.: Janina Stærðir: 35-42 Litir: Svartir og Verð. 2.995,- STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN DOMUS MEDICA - S. 551 8519 Reglur um eftirvagna Meginreglan er sú að bfll þarf að vera helmingi þyngri en eftirvagninn sem hann dregur því ekki er krafist hemla á svo léttum eftirvögnum. Þetta á við um bfla ailt að 3500 kg. Léttari eftirvagnar en 750 kg eru ekki skráningarskyldir en þurfa að vera með lögboðinn ljósabúnað, stöðuljós, hemlaljós, stefnuljós og númersljós ef við á. Bretti á að vera yfir dekkjum. Bflnúmerið á að vera aftan á eftirvagninum ef hlassið skyggir á skráningamúmer bflsins. Eftirvagnar (tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi) sem eru þyngri en 750 kg eiga að vera skráðir og hafa skráningarnúmer. Þá á að skoða eft- ir sömu reglu og bfla þ.e.a.s. fyrst 3 ár eftir 1 skráningu síðan eftir 2 ár og árlega eftir það. Þeir þurfa að hafa hemla. Ekki er þörf á neyðar- hemli ef eftirvagninn er undir 1500 kg. Skilyrðislaust ber þó að hafa ör- yggiskeðju. Aukaspeglar nauðsynlegir Skylt er að hafa framlengingu á speglum ef fellihýsið eða hjólhýsið byrgir útsýn aftur fyrir. Svo mun vera raunin á fólksbflum og sumum minni jeppum. Sektir fyrir að hafa ekki spegla ef þú sérð ekki í baksýn- isspeglum eru skv. 73 gr. umferðar- laga 4000 kr. Speglasett kosta til dæmis rúmar 3.500 kr. í Bílanaust svo dæmi sé tek- ið. Lögreglan mun á næstunni herða eftirlit með þessum atriðum. Sektir og afskipti lögreglu eru ekki skemmtileg, sérstaklega ekki í upp- hafi sumarferðar með fjölskyldunni. Verum lögleg! Tökum ekki áhættu! Ekkert liggur á! Munið að það er 80 km hámarks- hraði á þjóðvegum með fellihýsi, hjólhýsi og tjaldvagna. JÓN GRÖNDAL, umferðaröryggisfulltrúi Suðurnesja. vínmngarnir fást (^IQO HAPPDRÆTTI Vinningaskrá 8. útdráttur 22. juní 2000 íbúðavinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 6 4 9 4 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 1 78 79 40707 4 9459 5766 1 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (U 1331 17247 39046 43292 50347|70620 12332 27545 42607 48123 59776 | 72391 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldu 1023 12839 22645 31432 37902 46688 58723 72150 1390 14059 22672 32248 38361 46890 60457 73652 3473 15295 22957 33199 39315 47728 61010 73739 3845 16655 23022 33530 39698 47921 61691 73990 4245 18323 23064 34235 40176 48029 61887 74450 4721 18356 2411 1 34434 40663 49062 62319 74581 6987 19501 27312 35405 41063 50865 62623 75628 7816 20023 28242 3631 1 41900 51247 65315 78113 8314 20175 28467 36396 43205 51361 66600 78362 8577 20559 30537 36864 43305 52250 68143 1 0907 20778 30734 36926 43904 5271 8 69176 11100 21093 30947 37155 44599 57840 69483 11851 22156 31323 37875 46679 58668 70082 Húsbúnaðarvi Kr. 5.000 Kr. 10.1 nnmgur 231 9754 20289 29565 40856 50838 62134 72634 1099 9806 21025 29654 41102 51177 62166 72994 1817 10211 21120 29765 41325 51263 62322 74182 2224 10530 21340 29935 41868 51622 62518 74307 2393 10596 21463 30572 42293 51841 62519 74629 2524 10612 21729 30756 42961 52164 62936 75503 2850 11025 21820 31473 43132 52839 63078 75529 2933 11089 218 5 0 31823 44004 52888 64281 75877 2943 11401 22116 31824 44135 53122 65050 76419 3161 1 1 504 22149 32380 44256 54355 65851 76581 3487 11986 22214 33080 44372 54940 66241 76878 3534 12211 22443 33243 44520 55869 66316 76902 3737 12637 22523 34539 45941 56172 66565 77381 3785 13010 22591 34544 46169 56523 66728 77434 3826 13326 22997 34858 46191 57161 67084 777 18 3969 1 3395 23031 35247 46223 57463 67443 77850 4533 13629 23572 35333 46553 58207 67943 77872 4605 13683 23966 35555 46735 58884 68188 77889 5900 13934 2431 8 37404 47078 59168 68448 78066 5999 14158 25110 37649 47142 59359 68828 78619 6580 14876 25588 37870 47437 59847 70092 78669 6636 15552 26516 38182 47678 59972 70165 78766 6694 16182 27298 38866 47745 60114 70198 78805 6714 1 6534 27347 39140 47788 60309 70229 78867 7248 16573 28219 39257 47976 60642 70238 78920 7729 17238 28393 39397 48359 60800 70352 79100 7826 1 7340 28581 39467 49031 61058 70387 8143 17380 28645 39782 49559 61127 70925 8503 17793 28781 40109 49750 61305 7 1339 8628 17809 28857 40146 49951 61349 71668 8841 18449 29257 40153 50353 61378 71991 8961 19631 29260 40725 50645 61519 72125 Næsti útdráttur fer fram 29. júní 2000 Heimasíða á Intemeti: www.das.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.