Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 76

Morgunblaðið - 23.06.2000, Side 76
16 FÖSTUD AGUR 23. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Brauð á grillið Ýmsir hafa beðið Kristfnu Gestsdóttur um uppskriftir að brauði á grillið og birtast hér þrjár af hennar uppáhalds- uppskriftum. Gormabraud 8 dl hveiti 1 tsk. salt ______1 tsk. sykur__ _____1 msk. þurrger 1 msk. matarolía 4 dl fingurvolgt vatn viSarteinungar. FÁTT er auðveldara en að baka brauð á grillinu. Nota má næstum hvaða mjöltegund sem tiltæk er og nota má þurrger, pressuger, lyftiduft eða sódaduft, eins ekkert ger, brauðið lyftist samt í hinum mikla hita. Bauðgerð hefur fylgt manninum frá ómunatíð, en upphaf- lega hafa brauðin ver- ið án lyftiefna og bökuð á steinum eða við glóð eins og ger- ist á grill- inu. Pítu- brauð, sem búin eru til úr hveiti, þurfa ekkert lyftiefni en lyftast og opna sig í hinum mikla hita. Islenskt flat- brauð opnar sig ekki, enda yfírleitt úr rúgmjöli sem lítið gluten er í, en gluten myndar eins konar grind eða holrúm í brauðin. Þegar við grillum er gott að byija á að baka brauðið meðan grillið er að hitna. Vefja síðan stykki utan um þau og stinga í plastpoka svo að þau haldist heit og mjúk meðan við grillum aðal- matinn. Þegar farið er í sumar- bústaðinn eða í útileguna er upp- lagt að setja mjölblönduna með geri og öllu öðru þurrefni í plastpoka og setja fingurvolgt 1. Blandið saman eins og segir hér að ofan. Rúllið deigið í lengjur og snúðið ums viðarteinunga. Gott er að smyrja þá með mataroh'u áð- ur. 2. Leggið á grindina á grillinu og snúið við þar til allt er bakað. Losið af teinungunum meðan brauðið er heitt. vatn út í á staðnum, nota má ögn af matarolíu út í eða sleppa henni alveg. Flöt brauð er auðvelt að móta með höndunum og kökukefli er óþarft. Látið börnin hjálpa til við að móta brauðin, þeim finnst það gaman. Hunangspartar á grillið 5 dl hveiti 2 dl heilhveiti 1 /2 dl hveitiklíð Gott ojn einfalt grillbrauð 1 msk. kúmen (má sleppa) 1 tsk. salt Vi msk. þurrger 5 dl hveiti 1 msk. hunang 1 tsk. salt 2 msk. matarolía 1 fsk. sykur 1 'Adlvelheittvatnfúrkrananum) 1 tsk. fínt þurrger 2dl mjólk 2 msk. maiarolía 2 Vi dl fingurvolgt vatn (úr krananum) 1. Setjið hveiti, salt, sykur og þurrger í skál og blandið saman. 2. Setjið matarolíu og volgt vatn út í og hnoðið deig. 3. Búið til kúlur úr deiginu á stærð við hænuegg. Þrýstið út og togið til með höndunum. Leggið á hveitstráð fat, leggið stykki yfir. 4. Kveikið á grillinu, bakið brauðin í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Vefjið í hreint stykki og stingið í plastpoka. 1. Setjið öll þurrefni í skál og blandið saman. 2. Mælið matarolíuna og setið út í. Mælið síðan hunangið án þess að þvo skeiðina, þá rennur það greiðlega úr henni. 3. Blandið saman heitu vatni og kaldri mjólk, hellið út í og hnoðið deig. 4. Fletjið út um 1 sm á þykkt. Skerið síðan í parta með kleinu- hjóli eða hnífi ekki alveg í gegn. Partamir eiga að hanga saman. Bakið á grillinu í um 3 mínútur á hvorri hlið. Vefjið í stykki og stingið síðan í plastpoka. ÍDAG VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags 0 Oliðlegur vagnstjóri VIÐ erum tvær 12 ára stelpur. Okkur langar að kvarta undan ákveðnum strætísvagnastjóra sem við lentum í. Þannig var að við stoppuðum á skiptistöð lengst úti í bæ, þar sem að við kunnum ekkert á kerfið. Við sátum þarna í strætis- vagninum þegar hann stoppaði og allt hitt fólkið fór út. Við biðum eftir að vagninn færi aftur á stað, en þá stóð vagnstjórinn upp og gekk i átt að dyrunum. Við kölluðum á hann og spurðum hann hvort þetta væri endastöðin. Hann leit á okkur, þagði, gekk út og lokaði dyrunum. Þarna sát- um við í 20 mínútur læstar inni í strætó í algjöru kasti. Á meðan var vagnstjórinn inni að fá sér kaffi eða að spjalla við hina bílstjórana. Svo kom hann aftur eftir 20 minútiu-, lét eins og ekkert væri og ók af stað. Þvi mið- ur fengum við ekki tæki- færi til þess að segja hon- um til syndanna þá, en hér er tækifærið okkar. Okkur finnst að hann hefði getað spurt okkur hvort við ætl- uðum út hérna (í stað þess að læsa okkur inni) eða að minnsta kosti svara okkur þegar við spurðum hann. Sá tekur þetta til sín sem á. Miðvangur 6, Hafnarfirði KONA hringdi í Velvak- anda og vildi lýsa yfir áhyggjum sínum vegna barna á þríhjólum á bíla- stæðinu við Miðvang 6 í Hafnarfirði. Að hennar sögn er allt morandi í litlum börnum á þríhjólum og mjög erfitt fyrir bílstjóra að sjá bömin. Vill hún hvetja foreldra til þess að láta bömin hjóla á ömggari stað. Flugvélahávaði í Vesturbænum INGIBJÖRG hafði sam- band við Velvakanda og vildi koma því á framfæri, að það sé alveg óþolandi að sitja úti í góða veðrinu í Vesturbænum og hafa flug- vélamar sveimandi yfir höfði sér. Það sé ekki hægt að njóta veðurblíðunnar og hávaðinn frá þeim sé hrika- legur. Dagskráin og fdtboltinn ÉG ER ellilífeyrisþegi og er neydd til þess að borga afnotagjald af ríkissjón- varpinu. Ég er rosalega óánægð með dagskrána hjá þeim og þó sérstaklega 17. júní. Þá var fótbolti og aft- ur fótbolti og síðan sýndu þeir eldgamla bíómynd. Það leið langur tími þangað til að þeir komu með fréttir af jarðskjálftanum. Við elli- lífeyrisþegar höfum ekki efni á að borga tvær stöðv- ar, nema kannski einn og einn. Ellilífeyrisþegi. Fyrirspurnir EIRÍKUR hafði samband við Velvakanda og langaði að koma á framfæri tveim- ur fyrirspurnum: Af hverju eru sundlaugar í Reykjavik lokaðar 17. júní? Vegna hvers? Hvar fást gróf pylsubrauð í Reykjavík? Eiríkur, sími 533-4247. Tapað/fundið Gult hjól f óskilum HEFUR gula hjóhð þitt verið týnt í nokkrar vikur? Upplýsingar í síma 568- 1868 eða 553-5332. Bíllykill fannst 17. júní BÍLLYKILL fannst í Hall- argarðinum 17. júni. Upp- lýsingar í síma 581-3966. Dýrahald Hundar í óskilum TVEIR labradorhundar, svartur og ljós, em í óskil- um á Hundahótelinu að Leirum. Eigendur eru vinsamlegast beðnir að vitja þeirra strax. Upplýs- ingar í síma 566-8366. Skógarköttur fæst gefins FJÖGURRA ára skógar- köttur fæst gefms á gott heimili vegna breytinga á heimilishögum. Hann er mjög þrifinn, blíður og góð- ur. Upplýsingar hjá Bryn- dísi í síma 564-2668. Perla er týnd PERLA er 12 ára gömul læða. Hún hvarf 31. maí sl. frá heimili sínu að Hrísmó- um 1 í Garðabæ. Hún er þrílit, hvít, brún og svört og með svart nef. Hún er eyrnamerkt og gegnir nafninu sínu. Það hefur sést til Perlu við Silfurtúnið og er fólk vinsamlegast beðið að reyna að fanga hana og hafa samband strax við eigandann í í síma 565-9508 eða 698-4730. Morgunblaðið/Amaldur Úti að ganga. Víkverji skrifar... VÍKVERJI dagsins er nýfluttur í Þingholtin og hefur gamall draumur hans um að búa í vöggu reykvísks menningarlífs því loks ræst. Allt er eins og best verður á kosið utan eitt atriði er valdið hefur Víkveija nokkrum heilabrotum og eru það lögmál framboðs og eftir- spurnar á bflastæðum í miðbænum. Svo virðist sem þeir fjölmörgu starfs- menn íyrirtækja og stofnana sem eru á því svæði sem kennt er við póst- númerið 101 hafi þann hvimleiða vana á vinnudögum að leggja öku- tækjum sínum í bflastæði sem eru ætluð íbúum. Hefur þetta valdið Vík- verja og nágrönnum hans þó nokkru hugarangri, enda fer ávallt langur tími í að hringsóla um svæðið í leit að bílastæðum og þá loks er eitt ftnnst mætti ætla að málin væru leyst. Því fer þó fjarri þar sem íbúar nálægra húsa neyðast til að aka sama hring eftir hring í leit að bflastæði og flnna kannski eitt slíkt fjarri sínum slóð- um. Þetta er óviðunandi ástand sem Víkverji vill eigna þeim starfsmönn- um fyrirtækja og stofnana sem kjósa fremur - eðli málsins samkvæmt - að leggja bflum sínum í stæði þar sem engrar greiðslu er krafist. Að vísu bjóða borgaryfirvöld upp á öruggt stæði til lengri tíma í bflastæðahús- um borgarinnar en þar sem kostnað- urinn er á fárra einstaklinga færi mælist Víkveiji til þess að stjómend- ur fyrirtækja og stofnana greiði slík bflastæði fyrir það starfsfólk sem svo kýs. Víkverji veit til þess að þetta fyr- irkomulag er viðhaft í nokkrum fyrir- tækjum og er því mælst til að fleiri stjómendur sýni slíka forsjálni. Myndi það leysa ærinn vanda starfs- manna, íbúa og ekki síst gangandi vegfarenda er oft þurfa nánast að klofa yfir bifreiðir sem lagt hefur ver- ið langt uppi á gangbrautum. xxx NOKKUÐ hefur verið greint frá því að undanfömu að fyrirtæki og stofnanir útvegi starfsfólki sínu tölvubúnað og nettengingu gegn vægu eða engu gjaldi. Þetta er af hinu góða, enda verður það æ mikil- vægara fyrir fólk í flestum störfum að vera vel upplýst í málefnum er varða starfssvið þess. En þó eygir Víkveiji einn galla á gjöf Njarðar og hann er sá að ekki er óvarlegt að ætla að stjórnendur ætlist til að starfs- fólkið inni í auknum mæli af hendi vinnu í heimahúsum. Á þetta ekki síst við um þá ört vaxandi stétt manna sem era á svonefndum flötum laun- um. Tölvumar og tenginguna fá þeir með það að markmiði að minnka fjar- vera frá fjölskyldunni en á móti koma e.t.v. auknar kröfur sem þurfa ekki endilega að vera taldar til tekna. Víst er að mörgum kann að finnast þetta fyrirkomulag ákjósanlegt en Vík- verja þykir það þó miður ef góðsemin kemur niður á fjölskyldulífinu á þeim heimilum þar sem mæður og feður þurfa að sinna fyrirtækinu á milli matseldar og hreingeminga. Væri þá ekki bara betra að vera óupplýstur? XXX VÍKVERJA brá heldur betur í brún í liðinni viku er hann fór inn á skyndibitastað í miðbænum og leit þar ijómann af íslenskri æsku. Staðurinn var sneisafullur af ungl- ingum og starfsfólk var auk þess allt innan við tvítugt og áttu allir sem þarna voru samankomnir það eitt sameiginlegt að þeir virtust vera að þvi komnir að rifna af fitu. Víkverja fannst hann vera genginn inn á töku- stað einhverrar bandarískrar grín- myndar því bágt líkamlegt atgervi stórs hluta íslenskra ungmenna er nokkuð sem Víkveiji hafði ekki mikið leitt hugann að fyrr. En svo virðist sem skyndibitamenningin sé komin til að vera og það sem meira er; farin að bera ávöxt - ef ávöxt skyldi kalla. Skyndibitafæði er afar orkuríkt og hentar einna best fyrir göngugarpa og fólk í erfiðisvinnu. Þetta fæði hentar engan veginn unglingum - eða fullorðnum - sem forðast allt líkamlegt erfiði og eyða bróðurhluta dagsins sitjandi. Er það slíku fólki beinlínis hættulegt og full ástæða til að vara við afleiðingum þess.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.