Morgunblaðið - 23.06.2000, Blaðsíða 78
78 FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
%
Útihljómleikar á Jónsmessunótt
Orgelkvartettinn
-• Apparat gangsettur
í NÓTT á meðan hálf þjóðin veltir
sér nakin upp úr dögginni ætla fjórir
vélstjórar að setja vélar sínar í gang,
vélar sem mynda eina heild sem
stjórarnir hafa kosið að kalla Org-
elkvartettinn Apparat. Gangsetning-
in mun fara fram í snotrum bakgarði
á léttvinshúsinu Sirkus við Klappar-
stíg. Vélstjórai'nir skýra verknað
sinn svo: „Fjórir organistar raða sér
upp í ferhyrning á sviðinu, hamra á
orgelin sín og framkalla þannig ótrú-
legustu hljóð og hljóðasamsetningar
- allt frá mínímalískum rafboðum í
loftskeytastíl yfir í tröllslegar drun-
ur, hljóðtruflaðar sagtannabylgjur
eða undurljúfan vélmennasöng."
Peir lýsa sköpunai'verkefninu sem
„urrandi hrúgu af kraumandi raf-
magnsleiðslum, oskillatorum, farfís-
um, gömlum blikkandi stofuskemmt-
Leiksýning Oyshi Oida
INTERROGATIONS
í Iðnó í kvöld
Miðasala í síma 530 3030
urum, hammondum og öðrum
vélrænum hljóðgjöfum.“ Fyrirbærin
eru síðan ekki einungis fyrir eyrun
heldur einnig augun því þau eru
skreytt ljósaperum og undarlegum
heimatilbúnum rafmagnsheilum sem
„suða, rymja, ískra og hjakka í takt.“
Hljóðin sem vélstjórunum, og um
leið organistum, hefur tekist að
framkalla úr vélunum era að sögn
vitna groddalega undurfögur og
engu lík.
Vélin var gangsett í fyi-sta sinn op-
inberlega á síðasta ári en síðan þá
hafa vélstjórarnir náð sífellt betur að
temja óargadýrið sem hún er og nú
er svo komið að tekist hefur að skapa
því verk og tónsmíðar til næringar.
Hinn merki atburður í iðnvæðing-
arsögu landsins fer eins og fyrr segir
fram í kvöld á Sirkusi en auk Appa-
rats munu hinir goðsagnakenndu
Lúdó og Stefán og rafsnillingurinn
Biogen stíga á svið. Þess má að lok-
um geta að Orgelkvartettinn App-
arat er um þessar mundir að vinna
að sinni fyrstu breiðskífu sem vænt-
anleg er síðar á árinu en næsta verk-
efni vélarinnar er að senda frá sér
hljóma á Kristnitökuhátíðinni á
Þingvöllum.
Miðasala S. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
Sýnt fim. 22/6 kl.20, uppselt
fös. 23/6 kl. 20, lau. 24/6 kl. 20
sun. 25/6 kl. 20
Sýningartími 50 mínútur.
T EIKFÉIAG ÍSimm
LKf/isIflBNN 552,3000
Sjeikspir eins og hann leggur sig
lau. 24/6 kl. 20
fös. 30/6 kl. 20
530 3O3O
Hádegisleikhús með stuðningi
Simans
BJÖRNINN
I dag fös. 23/6 kl. 12 örfá sæti laus
mið. 28/6 kl. 12 nokkur sæti laus
lau. 1/7 kl. 12 nokkursæti laus
Leiksýning Yoshi Oida:
INTERROGATIONS
[ kvöld fös. 23/6 kl. 20
Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga,
kl. 14-18 laugardaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Miðar óskast sóttír ( viðkomandi leikhús
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósöttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
KaííiLeikhúsfð
JL^?.affiPtu 3 llilfíVffflilffiliWi'i
Bannað að blóta í
brúðarkjól
föstudaginn 23. júní kl. 21
Fáar sýningar eftir
Ljúffengur málsverður fyrír sýninguna
MIÐASALA í síma 551 9055.
Æ
simi 587 6080
Dúndrandi dansleikur
með hljómsveitinni
Sín.
Húsið opnaó kl. 23.00.
Frítt inn til kl. 23.30.
FÓLKí FRÉTTUM
Tyson til
búinn í
slaginn
ÞUNGAVIGTAR-hnefaleikamaður-
inn Mike Tyson heilsaði upp á aðdá-
endur sína í Glasgow í Skotlandi í
vikunni. Kappinn hefur verið að æfa
stíft fyrir bardaga sinn við Lou Sav-
arese í Hampden Park sem fram fer
í kvöld. Megi betri maðurinn vinna.
AP
Arnold ætlar að leika tortímandann aftur.
Kemst Indiana Jones
aftur á hvíta tjaldið?
Af tortímendum og
fornleifafræðingum
SVO VIRÐIST sem hvert kvik-
myndagoðið á fætur öðra sé að berj-
ast við að finna leið sína aftur á hvíta
tjaldið.
Arnold Schwarzenegger hefur nú
gefið frá sér opinbera yfirlýsingu um
að hann ætli að leika T800-módelið í
þriðju framhaldsmyndinni um Tor-
tímandann. Framleiðendur myndar-
innar verða Andrew Vajna og Mario
Kassar sem eru þessa dagana ásamt
Amold að smjaðra fyrir James Ca-
meron, leikstjóra fyrri mynda
flokksins. Það era framleiðendurnir
sem eiga einkaréttinn á Tortím-
andanum og hafa þeir fullyrt að
myndin verði gerð þó svo að leik-
stjórinn ákveði að vera ekki með.
Áætlað er að tökur hefjist næsta vor
og að myndin verði sumarsmellur
ársins 2002.
Einnig eru nú í gangi all háværar
sögusagnir um að Steven Spielberg,
George Lucas og Harrison Ford séu
nú loksins búnfr að dusta rykið af
uppáhalds fomleifafræðingi kvik-
myndasögunnar. Eftir áralangar
þreifingar til þess að finna holur á
vinnuáætlun allra lykilmanna á loks-
ins að vera komin hreyfing á fram-
leiðslu fjórðu myndarinnar um Ind-
iana Jones. Sagt er að Spielberg hafi
fengið M. Night Shyamalan, hand-
ritshöfund og leikstjóra „The Sixth
Sense", til þess að skrifa handrit
fjórðu myndarinnar um kappann.
Hamson er víst afar spenntur fyrir
því að fá að setja upp hattinn og
sveifla svipunni á ný. Ovíst er hvað
George Lucas mun koma mikið ná-
lægt myndinni því eins og allir vita er
hann afar upptekinn við það að klára
Stjörnustríðsbálkinn. Allir hafa þeir
þó sagt að Sean Connery muni mjög
líklega taka upp afturhlutverk föður
Indy í nýju myndinni. Eins og staðan
er nú er áætlað að hefja framleiðslu
myndarinnar árið 2002.
Jónsmessu-
dansleikur
í Rauða Ijóninu laugar-
dagskvöldið frd kl. 23.
Hljómsveitin Hot & sweet heldur
uppi jjörinu fram d rauða nótt.
Enginn aðganseyrir
Boltinn í beinni d risoskjd
Boxið d Sýn
Djasstríó Árna
Heiðars spilar
á Nauthöli
JÓNSMESSUNÓTT er ein af mögn-
uðustu nóttum ársins, henni fylgir
ýmis þjóðtrú, svo sem sú að kýrnar
tali og að selir
fari úr hömum
sínum.
Hið magnaða
Djasstríó Árna
Heiðars ætlar að
nýta sér töfra-
mátt næturinnar
og spila á kaffi-
húsinu Nauthóli
við Nauthólsvík
frá miðnætti til
tvö um nóttina. Tríóið skipa þeir
Matthías trommuleikari, Tómas R.
Einai'sson á kontrabassa og Árni
Heiðar píanóleikari. Munu þeir félag-
ar leika djass við allra hæfi og mun
andi Carlos Jobin og Cole Porters
meðal annaira svífa yfii' vötnunum.
Árni Heiðar.