Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Skipulögð
óreiða í
Straumi
Alan James er Breti sem fluttist hingað til
lands fyrir sjö árum. Síðustu ár hefur hann
fengist við myndlist og í vor hefur hann haft
aðsetur í listamannahúsinu Straumi. Inga
María Leifsdóttir tók sér far upp í hina
afskekktu Straumsvík og skoðaði málverk
Alans í galleríinu þar, sem mörg hver bera
heiti sem vísa í eitthvað matarkyns.
Alan James málar skipulagða óreiðu á stóra striga.
Morgunblaðið/Golli
í STRAUMSVIK er staðsettur lista-
mannabústaður í hinu gamla húsi
Straumi, þar sem inyndlistarmenn
hafa aðstöðu í mislangan tíma. Þar
er einnig gallerí sem ábúendur stað-
arins hverju sinni sýna verk sín í. Al-
an James hefur haft aðstöðu þar í
nokkurn tíma og sýnir nú olíumál-
verk í galleríinu.
Lærði á
Akureyri
„Málaraferliil minn hófst af alvöru
fyrir um það bil tíu árum, en ég hef
teiknað síðan ég var krakki," segir
Alan. „Fyrir sjö árum kom ég til Is-
lands með unnustu minni og við
fluttum til Akureyrar. Þá hóf ég nám
við myndlistarskólann þar.“ Alan út-
skrifaðist þaðan árið 1997 og hefur
síðan fengist alfarið við myndlist.
Hann hefur á síðustu tveimur árum
haldið tvær einkasýningar og er sýn-
ingin í Straumi sú þriðja. „Það er frá-
bært að vera hér. Ég fékk bústaðinn
í apríl og hef verið hér síðan. Hér er
mikill friður og þögn og gott að hafa
náttúruna allt í kring.“ Notar Alan
þá náttúruna að einhverju leyti í
myndir sínar, hefur staðurinn haft
áhrif á myndverk hans? „Ég er ekki
málari sem notar fyrirmyndir og ég
Custard collision, gerð í Straumi í sumar.
Morgunblaðið/Golli
ISLENSKI HLUTABREFASJOÐURINN HF.
Aðalfundur
Þriðjudaginn 25. júlí 2000 kl.i6:oo, Sunnusal, Hótel Sögu
Dagskrá:
1 Skýrsla stjórnar.
2 Staðfesting ársreiknings.
3 Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
4 Ákvörðun um hvernig ráðstafa eigi hagnaði fétagsins á liðnu reikningsári.
5 Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum félagsins.
6 Kosning stjórnar félagsins skv. 19. grein samþykkta.
7 Kosning endurskoðenda fétagsins skv. 26. grein samþykkta.
8 Önnurmál.
Erindi: „íslenskur hlutabréfamarkaður í evrópsku samhengi"
Ólafur Freyr Þorsteinsson sérfræðingur á eignarstýringarsviði Landsbréfa.
get unnið í gerviljósi. Margar mynd-
anna minna eru málaðar í mjög
þröngu rými, litlum íbúðum, bílskúr-
um og þess háttar stöðum. Hér aftur
á móti er mikið pláss og þegar ég er
latur við að mála fæ ég mér göngutúr
og horfi í hraunið. Ég held að það sí-
ist inn að vissu leyti. Allt sem maður
sér skilar sér að einhverju marki í
myndum manns.“
Kjarval og impressjónistar
Eru einhverjir sérstakir lista-
menn sem hafa haft áhrif á list Al-
ans? „Myndir mínar hafa þróast
nokkuð með tímanum. Ég er að gera
svipaðar myndir núna og þegar ég
byrjaði fyrir tíu árum, en þær hafa
orðið fíngerðari. En ég geri ráð fyrir
að ef einhver hefur haft áhrif á mig
af íslenskum myndlistarmönnum sé
það Kjarval. Svo hafa impressjónist-
ar alltaf verið í uppáhaldi hjá mér.“
Áhrifin leyna sér ekki. Myndir Alans
minna ef til vill nokkuð á myndir
Kjarvals hvað varðar form, þar sem
eitthvað rís úr mynstraðri óreiðu, og
áferð og pensiltök eru í anda im-
pressjónistanna. „Ég hef ekki séð að
neinn sé að gera svipaðar myndir og
ég um þessar mundir. Það sem
FUGLAHÚS
stendur svo til í framtíðinni hjá mér
er að stækka strigann enn meir.“
Heiti myndanna vísa í mat
Nokkrar myndanna á sýningunni
eru gerðar í Straumi, en Alan segir
að það taki um þrjá mánuði að gera
stóra mynd. Myndimar gerir Alan
þannig, að hann velur liti og skellir
þeim á strigann með stórum áhöld-
um. Þegar málningin er þornuð fer
hann að prjóna, eins og hann kallar
það. „Ég byrja í einu horninu og vinn
mig upp eftír striganum. Formin
sem hafa myndast við fyrsta lagið
nota ég til að þróa áfram og bæta við.
Svo fer ég fram og aftur yfir mynd-
ina yg er sífellt að bæta við og taka
út. Ég leitast við að fá lífræn áhrif í
myndirnar, næstum eins og hægt sé
að borða þær. Þess vegna eru mörg
nöfnin tengd einhverju matarkyns,“
segir Alan og bendir á mynd sem
nefnist Turtle soup, eða skjaldböku-
súpa á íslensku. Onnur nöfn á sýn-
ingunni eru til dæmis Tutti frutti,
sem Alan segir vísun í ístegund, og
Custard collision, sem vísar í enskan
eftirrétt.
Abstrakt skipulögð óreiða
Myndir Alans eru stórir strigar í
ljósum litum með smágerðu mynstri.
„Það er gaman að gera myndirnar,
en það getur orðið dálítið þreytandi
þegar maður er kominn inn í miðja
mynd en sér ekki enn fyrir endann á
verkinu." En er hægt að sjá eitthvað
út úr myndunum, leynast hlutir í
mynstrinu?„Þetta eru abstrakt
myndir, yfirborðsmyndir, einskonar
stýrð óreiða. En í sumum má sjá ein-
staka hlutbundið form, til dæmis
hér,“ svarai- Alan og bendir á músar-
höfuð sem leynast í mynd að nafni
Þrjár blindar mýs. „Fólki finnst
gaman að leita að hlutum og sjá eitt-
hvað út úr myndunum. Það er ekkert
að því, það gefur myndinni bara
meira gildi, en ég er yfirleitt ekki að
mála viljandi nein hlutbundin form.“
Sýning Alans er opin alia daga frá
kl. 16-21. Henni lýkur 16. júlí.
Garðprýði fyrir garða og sumarhús.
10 mismundandi gerðir.
PIPAR OG SAITÍI
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614
Hreinn kroppur
alltaf allsstaðar
.,Sturta"án vatns, sápu oq handklæðis ____________
1 :vcrything yoa need to wuh yoar body
8 stórir rakir.„5ports & Leisure Wash"
þvottaklútar.
Frábært í bílinn, fellihýsið, bakpokann,
bátinn, töskuna eða hvar sem er.
Verstöðin ehf.
Suðurlandsbraut 52, s. 588 0100