Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMUNDUR
HALLDÓR
GUNNLA UGSSON
Guðmundur
Halldór Gunn-
laugsson fæddist á
Fáskrúðsfirði 21.
febrúar 1925. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Suðurncsja 1. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Karlína Stefánsdótt-
ir frá Fáskrúðsfirði,
’’ f. 5. aprfl 1891, d.
22. ágúst 1973, og
Gunnlaugur Jóhann
Guðmundsson skó-
smíðameistari frá
Reykjavík, f. 28.
ágúst 1890, d. 30.
nóvember 1950. Systkini Guð-
mundar eru: 1) Stefán Þórarinn,
f. 17. ágúst 1918, d. 9. september
1999, maki Hulda Andrésdóttir, f.
27. febrúar 1915, d. 13. október
1975. Börn þeirra eru
fimm. 2) Þóra Gyða,
f. 1. júlf 1928, maki
Árni E. Valdimarsson
fv. skipherra, f. 18.
febrúar 1922. Þau
eiga eitt barn. 3) Sig-
ríður Guðný Guðjóns-
dóttir, f. 4. nóvember
1917, d. 29. maí 2000,
maki Friðgeir Eiríks-
son, f. 26. ágúst 1921.
Börn þeirra eru þrjú.
Guðmundur kynnt-
ist eftirlifandi maka
sfnum, Ruth Vitu, í
Kaupmannahöfn
1946 og þau giftu sig
í Reykjavík hinn 8. febrúar 1947.
Börn þeirra eru: 1) Sigríður Sof-
fía, f. 26. júli 1948, maki Þorfinn-
ur Finnlaugsson, f. 25. september
1948. Börn þeirra eru fimm. 2)
Elsku afi, það er mjög erfítt að
skrifa þessi orð og kveðja þig sem
spilaðir svo stórt hlutverk í lífi okkar.
Allt frá því að við vorum h'til böm
varst það þú sem komst okkur til að-
stoðar og hjálpaðir okkur. Hvort sem
það var til að líma saman leikfongin
okkar eða skutla okkur niður í bæ.
Sækja okkur eftir skólaball eða á
næstu rútustöð. Það var aldrei vanda-
mál að fá þig til að hjálpa okkur, þú
varst ávallt til staðar. Takk fyrir að
vera okkur innan handar hvar og hve-
nær sem var.
Það eru margar ánægjulegar
stundir sem rifjast upp eins og það
þegar við fengum að sitja hjá þér inni
^ á skrifstofunni þinni og skoða mynd-
imar, bækurnar og myntsafnið þitt
og fá að hlusta á sögumar þínar sem
fylgdu með.
Líka hve notalegt það var að koma í
heimsókn til ykkar ömmu á sunnu-
dögum og borða með ykkur lamba-
steikina sem var engri lík. Þær stund-
ir sem við áttum heima hjá ykkur era
ótal margar og allar góðar eins og það
þegar við sátum saman í eldhúsinu
ykkar að spila yatzy og ýmis önnur
spil. Hvað þér þótti gaman að stríða
ömmu á meðan við voram að spila.
Hún tók því ávallt svo vel.
Það verður tómlegt án þín, elsku
afi. Hver á nú að hressa alla við þegar
það varst þú sem varst hrókur alls
fagnaðar og fáir eins lífsglaðir? Nú er
enginn afi til að líma saman brotin
sem koma upp í lífi okkar en minning-
in um þig lifir í hjörtum okkar. Við
gleymum aldrei þeim stundum sem
við áttum saman.
Takk fyrir að búa okkur stað að
Móavegi 11. Heimili ykkar ömmu sem
var miðja alls og kjölfestan í lífi okkar.
Samverastaður fjölskyldunnar á há-
tíðum og merkilegum stundum eins
og við skímir og fermingar.
Það var alltaf yndislegt að heim-
sækja ykkur á aðfangadagskvöld og
fá tertusneið og heitt súkkulaði og
njóta jólastundarinnar með þér og
ömmu.
Elsku afi, þó að við kveðjum þig í
dag þá lifir minningin um góðan afa
>
+
Okkar ástkæra,
HULDA HERMANNSDÓTTIR,
Kumbaravogi,
áður Sólheimum,
Grímsnesi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
9. júlí. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólmfríður Sigmunds.
Móðir mín,
ÞÓRA HAFSTEIN,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
er látin.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jakob J. Havsteen.
+
Okkar ástkæra móðir, eiginkona, dóttir og
systir,
SIGRÍÐUR RÓSA GUNNARSDÓTTIR,
lést á sjúkrahúsi í Kongsvinger í Noregi mið-
vikudaginn 5. júlí sl.
Útförin fer fram í Kongsvinger fimmtudaginn
13. júlí.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á
Krabbameinsfélag fslands.
Helga Helgadóttir,
Gunnar Helgason,
Helgi Þórarinsson,
Gróa Eyjólfsdóttir, Gunnar Auðunsson,
Pétur Gunnarsson, Lísa Gunnarsson.
Gunnlaugur Karl, f. 10. maí 1950,
maki Agnes Agnarsdóttir, f. 14.
desember 1950. Börn þeirra eru
þrjú. 3) Guðmundur Ingvi, f. 24.
ágúst 1963, maki Dagný Haf-
steinsdóttir, f. 3. maí 1967. Þau
eiga eitt barn. Barnabarnabörn
Guðmundar eru fimm talsins.
Guðmundur lauk fullnaðar-
prófi við Ingimarsskóla í Reykja-
vík. Þegar skólagöngu lauk vann
hann fyrst við ýmis verslunar-
störf í Reykjavík. Síðan lá leiðin
suður á Keflavíkurflugvöll þar
sem hann starfaði fyrst hjá Varn-
arliðinu og loks hjá Flugmála-
stjórn en þar vann hann sam-
fleytt uns hann lauk störfum 70
ára að aldri.
Guðmundur starfaði að marg-
víslegum félagsstörfum. Hann
var virkur í Lionshreyfingunni
og gegndi fjölmörgum störfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ytri-
Njarðvíkurkirkja var honum alla
tíð mjög hugleikin og starfaði
hann í kringum hana frá upphafi
til dánardags bæði í sóknarnefnd
og kirkjukór.
Utför Guðmundar fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
og þær skemmtilegu stundir sem við
áttum saman.
Þið amma vorað akkerin í lífi okk-
ar.
Guð geymi þig.
Góði Guð, gefðu ömmu styrk til
þess að ganga í gegnum þessa erfiðu
stund og sendu henni ljúfa drauma og
fagrar minningar um elsku afa okkar.
Kristín, Pétur
og Hermann Bauer.
í dag kveð ég vin minn og afa kon-
unnar minnar, Guðmund Halldór
Gunnlaugsson. Það var fyrir tæpum
14 áram að ég hitti þennan heiðurs-
mann í fyrsta skiptið og mér varð það
strax ljóst að þar var einstakur maður
á ferðinni. Þrátt fyrir fjöratíu ára
aldursmun á okkur, náðum við
Gummi ágætlega saman. Eg tel að
Gummi hafi verið afar farsæll maður,
sem átti einstaka konu og fjölskyldu
sem þótti mjög vænt um hann. Heim-
ili Gumma og Vitu að Móavegi 11 var
sá staður sem fjölskyldan hittist á
þegar tækifæri gafst og þar kynntist
maður þessum heiðurshjónum. Á
milli þeirra hjóna var mikill kærleikur
sem ég dáðist að og maður fann það
hversu sterkum böndum þau vora
bundin hvort öðra. Þegar hringt var í
mig og mér tilkynnt um Gummi væri
dáinn þá átti ég erfitt með að trúa því.
Hann sem alltaf var svo sprækur og
hress. Það kennir okkur sem eftir
stöndum að það er ekkert sjálfgefið
hér í heimi. Nú er komið að kveðju-
stund í þessu lífi og vonandi hittumst
við aftur hinum megin.
Vita mín, missir þinn er mikill og er
það einlæg ósk mín að Guð geymi þig
og vemdi hér á jörðu, þangað til leiðir
ykkar Gumma liggja saman á ný. Fía,
Gulli, Ingvi og aðrir aðstandendur,
Guð styrki ykkur og varðveiti.
Gummi minn, ég vil bara þakka fyrir
þá vináttu og þann hlýhug sem þú
sýndir mér alla tíð og eftir þau kynni
er ég ríkari maður.
Gunnar Oddsson.
Elsku Gummi afi, mig langaði svo
að kveðja þig með litlu bæninni sem
mamma kenndi mér. Það er erfitt en
ég veit að ég get talað við þig með því
að biðja bænimar mínar á kvöldin áð-
ur en ég sofna og sagt þér hvemig
mér h'ður. Eg veit að þú ert góður og
hress engili hjá Guði núna og kíkir
stundum niður til mín.
Vertu nú yfir og allt um kring,
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginniyfirminni.
(Sig.Jónsson)
Góði Guð, gættu elsku langafa
míns.
Þitt barnabamabarn
Adam Erik Bauer.
Genginn er Guðmundur Gunn-
laugsson.
Svo óljós era skilin milli heima að
fáeinum stundum fyrir andlátið ræddi
hann við vini sína um framtíðarætlan-
ir, hlaðinn lífsorku og kímnigáfu
þeirri sem einkenndi hann alla tíð.
Drenglundaður, vinafastur og
hjálpfús era þau lýsingarorð sem
fyrst leita á hugann þegar lýsa á Guð-
mundi, auk þess að vera meðvitaður
um skyldu sína við aðra, en fjöl-
skyldubönd vora honum heilög, hann
var einmitt það sem Rómverjar til
foma kölluðu „Bonus Pater Famili-
as“.
Starfshlutskipti hans urðu flugmál-
in, nánast fyrir tilviljun sagði hann
sjálfur, sem spönnuðu nær hálfa öld
eða frá þeim tíma sem Islendingar
hófu afskipti af málefnum Keflavíkur-
flugvallar.
Fjölmörg aukastörf tók hann sér
fyrir hendur og sennilega var ekkert
þeirra honum jafnkært og þjónusta
hans við Guð sinn, jafnt í safnaðar-
stjóm sem í ldrkjukór.
Guðmundur var maður síns tíma,
skildi sína samtíð og naut sín í henni.
Það era vissulega forréttindi að
hafa kynnst, starfað með og átt að vini
slíkan mann sem Guðmund Gunn-
laugsson.
Ólafur Ragnars.
Vinur okkar hann Guðmundur
Gunnlaugsson hefur kvatt okkur.
Glaðværðin hafði ávallt fylgt honum
og gerði til hins síðasta. Það er þægi-
legt að umgangast glaðvært fólk og
var Guðmundur þar engin undan-
tekning. Þá skipti litlu hvar Guð-
mundur var að vinna. Eg kynntist
+
MARTA SIGRÍÐUR JÓNASDÓTTIR,
frá Efri-kvíhólma,
Austurvangi 33,
Selfossi,
lést að kvöldi föstudagsins 7. júlí á Ljós-
heimum, Selfossi.
Aðstandendur.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÖGMUNDURJÓNSSON
járnsmíðameistari,
Eiðismýri 30,
sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn
5. júlí sl., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 14. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
ast hans, er bent á Hjartavernd.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Hreiðar Ögmundsson, Katrín Gunnarsdóttir,
Jón Ögmundsson, Anna Sigríður Indriðadóttir,
Birgir Ögmundsson, Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
en þeim, sem vilja minn-
honum mest í störfum fyrír Sjálf-
stæðisflokkinn og Lionsklúbb Njarð-
víkur. Hann stóð vaktina í kosninga-
baráttunni síðast eins og svo oft áður
og tók á móti fólki á skrifstofunni. Þar
var ávallt sama elskulega viðmótið,
sagðar skemmtisögur og boðnar veit-
ingar. Hann hætti í Lions fyrir
nokkra en hafði í fjölda ára starfað
þar af mikilli samviskusemi. Ef Guð-
mundur tók eitthvað að sér í félags-
málunum var óhætt að treysta því að
því væri vel sinnt. Það er eftirsjá að
slíkum mönnum sem Guðmundi. Fyr-
ir hönd Sjálfstæðisflokksins færi ég
honum mínar bestu þakkir fyrir mikið
og gott framlag til flokksins. Við
Lionsfélagar minnumst Guðmundar
með þakklæti.
Kæra Ruth, böm og aðrir ættingj-
ar, mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Blessuð sé minning Guðmundar
H. Gunnlaugssonar.
Kristján Pálsson.
Já,núrennatármmín.
Þau falla niður kinnamar eins og kristallar.
Hvert þeirra er þungt af ást og þrungið af
ljósi,
því ég felli þau vegna þín.
(G.R.Ó.)
Elsku afi minn. Eg settist héma
niður og ætlaði að reyna að setja sam-
an litla minningargrein um þig, en ég
veit ekkert hvað ég á að segja. Hugur
minn og hjarta er fullt af minningum
og myndum af þér, en ég kem engu í
orð. Orðin era svo vanmáttug á stund-
um sem þessari. Mér finnst engin orð
nógu falleg til að lýsa þér. Þú varst
svo yndislegur, afi minn. Enda er
söknuðurinn í hjörtum okkar allra
mikill. Eg man þig svo skýrt, ég man
allt sem þú gerðir dags daglega og sé
þig Ijóslifandi fyrir mér, spila yatzy,
horfa á fréttir, sitja í stólnum þínum
og hlusta á útvarpið og sofna öðra
hvora út frá því. Eg heyri röddina
þína kalla „Vita mín“. Ég heyri rödd-
ina þína líka eins og hún hljómaði í
síma. Ég man lyktina af þér og hvem-
ig var að halda utan um þig. Ég gæti
fyllt öll heimsins dagblöð af yndisleg-
um minningum um þig, en ég þarf
þess ekki, því að ég man þig allan, afi
minn, eins og þú varst. Og ég er svo
þakklát fyrir að eiga þessar minning-
ar vel varðveittar í hjartanu mínu.
Ég vil bara segja þér eitt: Þú varst
langbesti afi í öllum heiminum. Takk
fyrir að hafa alltaf verið svona glaður.
Takk fyrir að hafa alltaf verið svona
bh'ður og takk fyrir að hafa alltaf ver-
ið svona góður. Takk fyrir að hafa
verið afi minn.
Mundu að ég elska þig og ég mun
alltaf sakna þín.
Guð gefi þér góða nótt, elsku afi.
Elsku amma, megi góður Guð
senda bestu og fallegustu englana
sína til að vera hjá þér og gefa þér
styrk í sorginni.
Guðný Ruth.
Á fógram sólríkum sumardegi
frétti ég að vinur minn og samherji
Guðmundur H. Gunnlaugsson væri
látinn. Ég ætlaði ekki að trúa því.
Fyrir aðeins örfáum dögum hitti ég
hann síðast. Þá var hann svo glaður
eins og hann var alltaf og mikill hugur
í honum að efla Sjálfstæðisflokkinn
og kirkjulegt starf í Njarðvík. Ég var
svo lánsamur að starfa með Guð-
mundi í Sjálfstæðisflokknum í áratugi
hér í Njarðvík og Guðmundur var
einn af þeim traustu, góðu og já-
kvæðu liðsmönnum sem vora alltaf
boðnir og búnir ef til þeirra var leitað.
Nú í síðustu þingkosningum var hann
skrifstofustjóri flokksins hér í
Reykjanesbæ og stóð sig með prýði
að venju.
Ég vil nota tækifærið og þakka
þessum góða dreng fyrir mjög fóm-
fúst starf fyrir sjálfstæðisfélagið
Njarðvíking í áratugi, þar sem hann
var formaður í nokkur ár og vann í öll-
um kosningum hér í Njarðvík eftir að
hann flutti með fjölskyldu sína hing-
að.
Ég kveð þig, kæri samherji og vin-
ur, og votta eiginkonu þinni, bömum,
bamabömum og öðrum ættingjum
innilega samúð.
Minning um góðan vin og félaga
mun lifa með okkur.
Megir þú hvíla í friði og Guð blessi
minningu þína.
Ingólfur Bárðarson,
formaður Njarðvfldngs.