Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLKí FRÉTTUM MYNPBONP -*■ Baksvið meistara- verks RKQ281 ERLENDAR ooooo Hilmar Jensson gítarleikari skrifar um geisladiskinn NYC ghosts & flowers með banda- rísku hljómsveitinni Sonic Youth. A elliheimilinu Neðanjarðar Hilmar Jensson segir engin ellimerki vera að fínna á Sonic Youth. I) r a m a ★★★ Leikstjóri: Benjamin Ross. Handrit: John Logan, eftir heimildarmynd Richard Ben Cramer og Thomas Lennon. Aðalhlutverk: Liev Schrei- ber, James Cromwell, John Malko- vich. (103 mín.) Bandaríkin 1999. Skifan. Óllum leyfð. CITIZEN KANE er líklega sú mynd sem hvað oftast hefur verið talin sú besta í gervallri sögu kvik- myndanna. Orson Welles var einungis 24 ára þegar hann fékk tækifæri lífs síns - fullkomið listrænt frelsi til að gera sína fyrstu mynd. Slíkt tján- ingarfrelsi var óþekkt í kvik- myndaheiminum á ■*~mótum fjórða og fimmta áratugarins enda greip hinn metnaðarfulli Welles gæsina fegins hendi og nýtti sér til fullnustu, með eftirminnilegum ár- angri. Það er í sjálfu sér ekki gerð meistaraverksins sem er þungamiðja þessarar sérlega vönduðu HBO- sjónvarpsmyndar heldur meintar deilur sem brutust út milli höfundar- ins Welles og fjölmiðlakóngsins Williams Randolphs Hearst þegar sá orðrómur kvisaðist út að Welles og meðhöfundur hans Herman Man- _kiewizc hefðu byggt hið myrka og vafasama líf aðalsöguhetju myndar- innar, fjölmiðlakóngsins Charles Fosters Kanes, á lífi Hearst. Myndin rekur sterk viðbrögð Hearst og mis- lukkaðar tilraunir hans til að koma myndinni fyrir kattamef. Hvað svo sem satt og rétt kann að vera í þess- ari „sögulegu" mynd er viðfangsefnið sérdeilis skemmtilegt og umhugsun- arvert þar sem litríkar sögupersónur eru listilega túlkaðar af valinkunnum leikurum - öngvir þó betri en Schrei- ber, sem glettilega trúverðugur Wel- les, og Malkovich í líki Mankiewizc. Skarphéðinn Guðmundsson í GEGNUM tíðina hef ég fylgst með Sonic Youth svona með öðru auganu ef svo má að orði komast (reyndar með öðru eyranu líka ef út í það er farið). Raunverulega hef ég alltaf haft meiri áhuga á hliðar- verkefnum meðlima sveitarinnar en afurðum Sonic Youth sjálfrar. Jafn- framt því að vera einna áhrifamest þeirra sveita sem spruttu upp úr jarðvegi pönks og „no wave“ hafa þessir öldungar neðanjarðartónlist- arinnar verið iðnir við að vekja at- hygli á ýmiss konar tilrauna- og neðanjarðarmenningu síðastliðin 20 ár. Það hefur og sýnt sig að þeir hafa haft erindi sem erílði og hafa veitt fjölda listamanna athygli og tækifæri sem þeir hefðu annars ekki hlotið. Þekktasta dæmið er líklega þáttur þeirra í að koma Nirvana á framfæri. Mun mikil- vægari í mínum huga er þó sá áhugi sem þau hafa vakið á mörg- um spunatónlistarmönnum, lífs og liðnum, enda hefur tónlist þeirra ekki átt greiða leið að ungum hlust- endum almennt. Meðlimir Sonic Youth, þó sérstaklega Thurston Moore og Lee Ranaldo, spila iðu- lega á litlum New York-klúbbum á borð við Knitting Faetory og the Cooler með spuna- og tilraunatón- listarmönnum og laða fyrir vikið að unga hlustendur sem annars hefðu varla látið sjá sig. Mér hefur sem sagt hingað til þótt áhugaverðara að hlusta á Lee Ranaldo leika með William Hooker og dj Olive eða Thurston Moore leika með Loren Mazzacane Conn- ors en að hlusta á diska SY. Það skal þó fúslega viðurkennt að ég þekki ekki allar afurðir sveitarinn- ar og eins að diskar eins og Sister og EVOL þykja mér skemmtilegir. Nýjasti diskur Sonic Youth, sem ber heitið NYC ghosts & flowers, hefur þó hreyft rækilega við mér enda um frábæran disk að ræða. Ég hef grun um að ófarir sveitar- innar frá því í fyrra þegar nær öll- um hljóðfærum þeirra og tækjum var stolið úr hljómsveitarrútunni ráði nokkru um ferskleika disksins. Við stuldinn tapaðist fjöldinn allur af verðmætum gíturum sem allir voru stilltir mismunandi og voru lykillinn að sérstökum hljómi sveit- arinnar. Hljómsveitin þurfti því nánast að fara á byrjunarreit. Það er samt enginn byrjendabragur á þessum nýja diski. Hér fer samt saman ákefð og spilagleði byrj- andans og yfirvegun hins reynslu- mikla. Eins er handbragð upptökustjór- ans og tónlistarsnillingsins Jims O’Rourke áberandi. Jim, sem er líklega einhver mikilvægasti ein- staklingur sem fram hefur komið á sjónarsvið neðanjarðartónlistar hin síðari ár, stýrir upptökunum styrkri hendi. Ekki svo að skilja að hann umbylti hljómi sveitarinnar á neinn hátt en nærvera hans er auð- heyrð. Sérstaklega er hin yfirveg- aða nákvæmni hans áberandi, ná- kvæmni sem þó dregur ekki úr ákafanum, kraftinum og ástríðunni nema síður sé. Það er einfaldlega þannig að hvert hljóð er svo vel tímasett og svo vel staðsett í hljóð- myndinni að unun er á að hlýða. Þetta eru ekki tilraunir vegvilltrar og leitandi hljómsveitar heldur af- urð sveitar sem fyrir löngu hefur skapað sinn persónulega hljóm og þekkir styrk sinn og takmörk. Við bætist svo „elektróník“ meistara O’Rourkes sem aldrei er ofaukið en fyllir dásamlega út í rammann. Á diskinum er að finna átta lög, mis- góð eins og eðlilegt er, en þó öll vel fyrir ofan meðallag og vinna á við frekari hlustun. Free city rhymes, nevermind og side2side eru frábær. En allra best eru lokalögin tvö, nyc ghost & flowers og lightnin’. Þau bera af. Titillagið byrjar á við- kvæmu strengjaplokki ásamt ljóða- lestri og endar í guðdómlegum há- vaðavegg. Án efa magnaðasti punktur disksins. I lokalaginu fléttast saman „el- ektrónísk“ hljóð, gítarar, magnara- suð og trompet, þar til Kim Gordon lokar laginu með sínum skemmti- lega „tal-söng“. Diskurinn er mjög mátulega langur eða 42 mínútur. Persónulega leiðist mér þegar tón- listarmenn halda að þeir þurfi að fylla hverja einustu af þeim rúm- lega 70 mínútum sem geisladiskur rúmar, þó eru á því einstaka und- antekningar. Umslagið er glæsilegt og það prýðir áhrifarík mynd eftir William heitinn Burroughs. Semsagt glæsi- legur diskur og þótt Sonic Youth sé gjarnan kölluð „the grandparents of altemative rock“ er engin elli- merki að finna á ömmunni og öfun- um á elliheimilinu Neðanjarðar. Tunqumálanám vistaJ^change VISTASKIPTI & NÁM Lækjargata 4 • 101 Reykjavík Sími: 562 2362 • Fax: 562 9662 info@vistaskipti.is Með ört vaxandi alþjóðasam- skiptum er þess krafist að fólk geti tjáð sig á fleiru en einu tungumáli. Vistaskipti & Nám er leiðandi fyrirtæki í þekking- arferðum og er i samstarfi við málaskóla víða um heim. Nútímalegar kennsluaðferðir tryggja góðan árangur og ánægjulega dvöl. Valmöguleik- arnir eru í raun ótæmandi, en með sérhæfðri þjónustu og nánu samstarfi sjáum við til þess að þú finnir málanám sniðið að þínum þörfum. * ALMENN NÁMSKEIÐ “ * HRAÐNÁMSKEIÐ ; * VIÐSKIPTANÁMSKEIÐ i r * SÉRHÆFÐ NÁMSKEIÐ “ * MENNING OG LISTIR * MÁLANÁM & ÍÞRÓTTIR * EINKAKENNSLA * TUNGUMÁLAPRÓF * UNGLINGANÁMSKEIÐ Ferðir til Prag, 4. ágúst Vikuferð til Prag í beinu leiguflugi, örfá sæti laus. 25. ágúst Vikuferö til Prag í beinu leigufiugi. UPPSELD 7 eða 8 daga ferðir til Prag. 04., 11..17., 24. og 31. oktðber: Flogið veröur til Frankfurt og ekiö þaðan samdægurs (ca. 8 tíma akstur) til Prag. Par veröur svo gist næstu 6 nætur (5. nætur í ferðinni 11. okt.) en á næst síðasta degi verður ekið áleiðis til Frankfurt með viðkomu í Karlovy Vary, sem er einn þekktasti og fegursti heilsubaðstaður í Tékklandi. Gist verður síðustu nóttina í Þýskalandi. r T Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar. eða á vefsíðu www.gjtravel.is Guðmundur Jónassson ferðaskrifstofa, Borgartúni 34, sími 5111515.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.