Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 55 FRÉTTIR KIRKJUSTARF Gervihnettir fylgjast með víkingaskipi Gervihnettir fylgjast með víkingaskipi. STEFJA hf. hefur í samvinnu við ís- lending ehf., Eimskip og Landssím- ann komið upp sjálfvirku eftirliti með ferðum víkingaskipsins Islendings. En Eimskip og Stefja hafa um nokk- urt skeið unnið saman að vef, þar sem hasgt er að fylgjast með ferðum skipa Eimskips. Notast er við gervi- hnattakerfið Inmarsat og vefforritið TracSeape, sem hannað er af Stefju. Um borð í íslendingi er senditæki, sem sendir staðsetningar sldpsins sjálfvirkt um gervihnött til Islands um stöðvar Landssímans og eru þær síðan birtar á korti á Netinu. Með venjulegum vafra eins og Internet Explorer er hægt að sjá nýjustu staðsetningar Islendings í félags- skap skipa Eimskips, auk annarra upplýsinga um ferðina. Hægt er að fylgjast með ferðum íslendings á TracScape vefnum af heimasíðu ferðarinnar, www.viking- 2000.com, heimasíðu Stefju, www.- trackwell.com, heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is, eða beint á www.tracscape.com/demo/applet/ map800.htm. Vilja aukið forvarnastarf FYRSTI fundur nýrrar stjórnar Sambands ungra framsóknarmanna sem kosin var á sambandsþingi SUF á Hólum í Hjaltadal 24. júní s.l. var haldinn 5. júlí. A fundinum var meðal annars kjörin ný fram- kvæmdastjórn SUF. Framkvæmda- stjórn SUF 2000-2002 skipa eftir- taldir: Einar Skúlason formaður, Snæþór Halldórsson varaformaður, Benedikt Magnússon gjaldkeri, Guðjón Jónasson ritari og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir ritstjóri. Þá var eftirfarandi ályktun sam- þykkt á fundinum: „Stjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) haldinn 5. júlí 2000 í Reykjavík harmar þá skoðun ungra Heimdell- inga að lögleiða beri fíkniefni hér á landi. Það er áhyggjuefni að aðilar innan ungliðahreyfingar Sjálfstæð- isflokksins skuli hafa slíkar áhersl- ur. SUF áréttar þá skoðun samtak- anna að einu raunverulegu úrræðin gegn fíkniefnavandanum séu aukið forvarnarstarf, svo og hert toll- og löggæsla. Jafnframt fagnar fundurinn þeim árangri sem náðst hefur í barátt- unni við fíkniefnadjöfulinn að und- anförnu. SUF hvetur ríkisstjórn íslands til áframhaldandi sóknar í þessum málaflokki og fagnar þeirri forgangsröðun sem Framsóknar- flokkurinn hefur stuðlað þar að. Nú þegar hafa farið um 430 milljónir af þeim milljarði sem Framsóknar- flokkurinn lofaði aukalega til þessa málaflokks fyrir síðustu kosningar. Þetta sýnir enn og aftur að flokkrn-- inn hefur fólk í fyrirrúmi." Styðja Sleipni HÚMANISTAFLOKKURINN lýs- ir fullum stuðningi við verkfallsbar- áttu Sleipnismanna, segir í fréttatil- kynningu. Einnig segir: „Barátta þeirra er mannréttindabarátta og mikilvægur vottur um að með verkalýðshreyf- ingunni er enn lífsmark. Þetta er mikilvægt nú þegar stór hluti hennar hefur lagst á sveif með atvinnurek- endum og peningavaldinu í landinu og samþykkt enn einu sinni kjör sem ekki nægja til lífsframfæris. Slíkir samningar eru brot á ákvæðum Mannréttindayfirlýsingar Samein- uðu þjóðanna." Safnaðarstarf Ilallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið íyrir sjúkum. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Fella- og Hólakirkja. Samveru- stund með litlu börnunum kl. 10-12. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorg- unn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrir- bænastund í dag kl. 12.30. Fyrir- bænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára böm í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára böm. Grindavíkurkirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT tíu-tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-19. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hh'ðasmára 5. Allir velkomn- ir. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr- inu. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. símí 533 3634 gsm 897 3634 Allan sóiarhringinn. IAV byggir nýjan grunnskóla ÍSLENSKIR aðalverktakar hf. (ÍAV) hafa undinitað verksamning við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ um byggingu fyrsta áfanga af þremur að nýjum gmnnskóla á vestursvæði íbúðabyggðar í Mosfellsbæ. Samn- ingurinn er að upphæð rúmlega 530 milljónir króna. Úm er að ræða lang- stærsta verksamning sem Mosfells- bær hefur gert um einstaka fram- kvæmd í bænum og er liður í uppbyggingu skólahúsnæðis og ein- setningar skóla. Áætlað er að skólinn taki til starfa haustið 2001. Samkvæmt Jóhanni Sigurjónssyni bæjarstjóra Mosfellsbæjar hefur skólanum ekki enn verið gefið form- legt nafn en gengur nú undir vinnu- heitinu Grunnskólinn á Vestursvæði. Með byggingu fyrsta áfanga hans verður náð því takmarki að einsetja grunnskóla Mosfellsbæjar og þar með uppfylla væntingar íbúa og grunnskólalög. Fullbúinn mun skól- inn verða heildstæður frá 1.-10. bekkjar og geta sinnt um 500 nem- endum. í fyrsta áfanga verða 17 al- mennar kennslustofur ásamt öllum sérkennslustofum að undanskildum l Mosfellsbæ íþróttasal sem mun koma í öðrum áfanga, ásamt 4 kennslustofum til viðbótar. Efnt var til samkeppni við hönnun skólans en þar báru sigur úr býtum Úti&Inni arkitektastofa. Að sögn Jóns Þórs Þorvaldssonar arkitekts og annars eigenda Úti&Inni var það ætlun höfunda að byggingin, sem skipt er í tvær einfaldar samsíða norður- og suðurálmu, bæri með sér festu gagnvart nærliggjandi um- hverfi, og að staðsetning byggingar- innar tæki mið af aðhggjandi byggð ásamt aðkomu, göngustígum og sól- arátt. Opið svæði er í miðjum skólan- um sem skapar skemmtilega torg- stemmningu. Ennfremur var þess gætt við umhverfishönnun í kringum skólann að takmarka umferð við leiksvæði barna við skólann og má þar nefna að sérstök aðkoma er fyrir foreldra sem aka bömum sínum til og frá skóla, auk sérstakrar aðkomu fyrir skólaakstur. Eins og áður segir verður skólinn einsetinn og með því skapast mögu- leikar á samþættingu skólastarfsins við tómstundastarf. R A Ð G L V S I A R Skemmtibátur til sölu Báturinn er byggður í Noregi 1988 undir heitinu Fjörd Dolphin 775. Vélin er af gerðinni Volvo Penta, 200 hö, ganghraði 20 sml. miðað við 3200 snúninga af 3800 mögulegum. Svefnrými erfyrir 5 manns, salerni ásamt handlaug og sturtu og svo ágæt eldunaraðstaða með skáp- um og innbyggðum kæliskáp. Siglingatæki eru GPS 200, dýptarmælir og radar, svo og vegmælir. Bátur og búnaður er í góðu lagi og vel um genginn. Nánari uppl. í símum 892 3630 og/eða 893 9503. TIL 5ÖLU Geisladiskur - einsöngslög Geisladiskur með 15 jslenskum ein- söngslögum, sungin af Árna Jónssyni tenórsöngvara við undirleik píanóleikar- anna Fritz Weisshappels og Gísla Magnussonar, fæst nú í hljómplötu- verslunum. Tannsmíðaverkstæði Til sölu helmingshlutur (plast-deildin) ítann- smíðaverkstæði í fullum rekstri, miðsvæðis í Reykjavík. Upplýsingar í síma 566 8712, Anna. HÚSIMÆÐI í BOÐI Barcelona Fullbúnar íbúðir til leigu í hjarta borgarinnar í haust og vetur. Uppl. í síma 899 5863 f.h. (Helen). TIL LEIGU Einbýlishús í Hafnarfirði til leigu frá 1. ágúst. Húsnæðið sem leigist er um 170 fm með 4 svefnherbergjum, án bílskúrs og einstaklingsíbúðar sem leigist ekki með. Svör berist auglýsingadeid Morgunblaðsins merkt „Gott útsýni — 9863" fyrir 14. júlí. PJÓIMUSTA Raf-vit Löggiltur rafverktaki Nýlagnir, endurnýjun eldri lagna o.fl. Stór og smá verk. Upplýsingar í símum 896 2284 og 897 8510. DULSPEKI Skyggnilýsingafundur í kvöld, 11. júlí, kl. 20.30, á Soga- vegi 108, Rvík, 2. hæð (fyrir ofan Garðsapótek). Hús opnað kl. 20. Miðav. kr. 1.200. ÝMISLEGT Eflum Guðs ríki á jörð Vefslóð: http://www.vortex.is/~odinnp Óðinn Pálsson, Landsveit, sími 487 6500. FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Kvöldferð á Úlfarsfell 12. júlí kl. 20. Verð 500. Oagsferð á Bláfell á Kili 15. júlí kl. 8. Verð 2.700. Dagsferð til Krýsuvíkur, minjaferð um Krýsuvíkurtorfu 16. júlí kl. 10:30. Verð 800. Brott- för í dagsferðir F.í. er frá BSÍ og Mörkinni 6. Allir velkomnir. Helgarferð 15. — 16. júlí, gengið yfir Fimmvörðuháls. Bókið tímanlega á skrifstofu. Enn laust í örfáar Laugavegs- göngur. Sími á skrifstofu er 568 2533. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. Þriðjudagur 11. júlí kl. 20.30. Sumarfundur Jeppadeildar. Fundurinn að Hallveigarstíg 1. Fararstjórar mæta og kynna sumarleyfisferðirnar. Miðvikudagur 12. júlí kl. 20.30. Opið hús á Sólon Islandus. Til- einkað geysi velheppnaðri Jóns- messunæturgöngu yfir Fimm- vörðuháls sem 220 manns tók þátt í. Myndasýning úr ferðinni. Fjölmennið. Lifandi heimasíða: utivist.is STYRKUR UNGA FÓI.KSUVS Sími 533 1177 12. til 16. júlí kl._20.00: Tónleikar með Stephan Christ- iansen og Jesus Revolution i Menntaskólanum við Sund. 12. júlí verða sérstakir minn- ingartónleikar Sóknar gegn sjálfsvígum. Ég mæti, en þú? KENNSLA Myndþerapí - listmeðferð Viltu auka kærleikann í lifi þínu? Hugleiðsla. Þjálfun í teikningu og litameðferð. Að miðla af sér og deila með öðrum. Sjálfsþekking. Finndu það fegursta í sjálfum þér. Innritun og nánari upplýsingar í síma 520 6133.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.