Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 63 FÓLKf FRÉTTUM ROBERT ZEMECKIS LÍKT og flestir aðrir eru Ieik- stjórar misjafnlega afkastamiklir. Kubrick þurfti hátt í áratug til að Ijúka við sínar myndir síðari árin, á hinn bóginn kemur Robert Zem- eckis með tvær stórmyndir í ár og er beggja beðið með mikilli eftir- væntingu. 21. júlí nk. verður frumsýnd hrollvekjan Wbat Lies Beneath, með Harrison Ford og Michelle Pfeiffer, og er henni spáð mikilli að- sókn. Ein jólamynda Fox verður síðan Cast A way, forvitnileg mynd um Róbinson Krúsó nútfm- ans, kaupahéðin (Tom Hanks) sem nauðlendir á eyðiey og verður skyndi- lega að fara að vinna fyrir sér með kjafti og klóm. Ekki svo lítil árs- framleiðsla hjá þessum dugnaðarforki, sem læt- ur ekki þar við sitja heldur er með fjórar myndir aðrar á ýmsum stigum sem framleið- andi: 13 Ghosts, endur- gerð samnefndrar mynd- ar B-hrollvekjukóngsins Williams Castle, sem mín kynslóð man úr Stjömubíói á sín- um tíma. Ekki síst sakir þrettán myndskeiða þar sem greina mátti titilpersónurnar með hjálp þar til gerðra þrívíddargleraugna. Þetta er önnur myndin úr dánarbúi Castle sem gerð er af endur- vinnslufyrirtæki Zemeckis, stór- framleiðandans Joel Silver og Terrys nokkurs Castle. Þar með er svarið komið við spurningunni hversvegna þetta nýja B-mynda- fyrirtæki stendur á bak við Castle- myndirnar, en sú þriðja, Macabre, er að fara af stað seinna í sumar. Fyrsta Castle-endurvinnslan frá Zemeckis og félögum, The House on Haunted Hill, var ekkert annað en nauðaómerkileg eftiröpun, en færði framleiðendunum fúlgur fjár. Clink Inc., og Revelation eru enn í forvinnslu og væntanlegar að ári. Robert Zemeckis fæddist í Chicago 1951, lauk námi við kvik- myndadeild Northwestern Uni- versity og hóf ferilinn í klippingar- deild NBC-sjónvarpsstöðvai-innar í borginni. Þaðan lá leiðin til svip- aðra starfa hjá Steven Spielberg, sem útvegaði Zemeckis fyrsta leik- stjórnarverkefnið, I Wanna Hold Your Hand (’77). Lftil mynd, fúll af eftirsjá genginna æskudaga og Bftlaheimsóknar til New York ára- tugi áður sýndi, þótt ódýr væri í framleiðslu, að meira bjó í þessum unga skjólstæðingi Spielberg. Hinn síðarnefndi réð hann si'ðan beint í 1941 (’79), nú sem handritshöfund, en myndin varð fyrsti skellur Spielbergs. Of mikið af öllu. Næsta leikstjórnarverkefnið var gaman- myndin Used Cars (’80) um tilraun- ir tveggja bílasala til að koma hvor öðrum á hausinn. Sögð fyndin en fékk takmarkaða dreifingu. Þá var röðin komin að fyrsta smellinum, og þvflíkur smellur! Romancing the Stone (’84), var ein- staklega vel heppnuð í alla staði og malaði gull. Ari síðar hófst vel lukkuð framleiðsla og leikstjóm fyrir sjónvarp með þáttunum Amazing Stories. Zemeckis, vinur hans Spielberg, Water Hill og fleiri kunnir leikstjórar eru einnig mennimir á bak við Tales From the Crypt, ámóta vinsæla og vel lukkaða þætti, sem enn em í full- um gaugi. Næsta verk komst hins- vegar á listann yfir mest sóttu myndir allra tíma. Aftur til fram- tíðar - Back to the Future er óvenju hugvitssamleg og fjörug tímaflakksmynd með Michael J. Fox og Christopher Lloyd. Svo vin- sæl að hún ól af sér tvær aðrar Zemeckis-myndir; Back to the Fut- ure Part II (’89), og III (’90). Inn á milli kom Who Framcd Roger Rabbit (’88), þar sem kom fram að Zemeckis var búinn að ná enn betri tökum á samspili leikinna og teikn- aðra þátta í sama atriðinu, tækni sem hann notaði skemmtilega í fyrstu myndinni. Zemeckis hefur löngum verið hallur undir hrollinn; Dcath Becomes Her (’91) er reyndar skemmtileg blanda hrollvekju, brellu- og gamanmyndar, þar sem allskyns sjónrænar brellur og uppvakningar leika lausum hala í einni bestu mynd leikstjórans. Meryl Streep leikur Hollywood-stjörnu sem er tekin að reskjast, en kemst að lcyndarmáli keppinautar síns og öf- undarmanns (Goldie Hawn), sem skyndilega yngist grunsamlega, missir m.a. hundrað aukakíló! Líkt og flestar afþrey- ingarmyndir Zemeckis stendur Death Becomes Her tals- vert upp úr fjöldanum, sakir góðr- ar leikstjórnar og hugmyndaríkrar þar sem nýjasta tækni er óspart notuð með góðum árangri. Zem- eckis er maður skemmtanagildis í úrvalsflokki, það sannaði hann best í næstu mynd og sinni bestu til þessa dags, Forrest Gump (’94). Hún olli straumhvörfum. Hér fengu bestu hæfileikar Zemeckis að njóta sín og kunnáttusemi f notkun tækninnar þar sem Ieik- stjórinn er frumkvöðull, skrefi á undan starfsbræðrunum. Contact (’97) er byggð á hinni frægu vi'sindaskáldsögu Carls Sag- an, áhugaverð en snýst upp í langdregið drama með dágóðum lokaspretti. Slæm persónusköpun skemmir fyrir og handrit Zemeckis er slakara en leikstjórnin. Bókin reyndar erfíð viðureignar. Með- fram hefur Zemeckis skrifað hand- rit, fyrir aðra (Trespass ’92), fram- Ieitt ógrynni af sjónvarpsefni og nokkrar kvikmyndir. I dag er staða hans ótvíræð; Zemeckis er með eft- irsóttustu leikstjórum hcims. Robert Zemerckis (t.v.) að leikstýra Michelle Pfeiffer og Harrison Ford í myndinni What Lies Beneath sem er væntanleg í kvikmyndahús. Forrest Gump er ein af myndum liðinnar aldar og vann urmul af Óskur- um og öðrum verðlaunum. Sígild myndbönd FORREST GUMP (1994) ★★★★ Vel skrifað og leikstýrt uppgjör miðaldra Bandaríkjamanns sem lítur til baka aftur til sjötta áratugarins með augum titilpersónunnar. Forr- est Gump (Tom Hanks) er sérstæður einstaklingur. Barnslega einfaldur og hógvær en metnaðarfullur og stál- heppinn lukkunnar pamfíll sem upp- lifir helstu atburði og persónur ofan- verðrar 20. aldarinnar. Upplifir einnig sérstakt ástarævintýri, stríðs- reynslu í Víetnam, pílagrímsferð um Bandaríkin, stórgróða í útgerð og tölvuiðnaði. Nefndu það og okkar maður kemur kemur við sögu. Hittir Presley og Nixon, svo nokkrir séu nefndir. Myndin er síðan krydduð hárréttum topplögum frá hverjum tíma, afbragðsaukaleikurum en Hanks trónir yfir öllum í ógleyman- legri túlkun á titilpersónunni. Ein af myndum síðasta áratugar og hlaut urmul verðlauna, m.a. fjölda Oskara; sem besta mynd ársins, fyrir bestan leik í aðalhlutverki (Hanks), Eric Segal íyrir handrit og Zemeckis fyrir leikstjórn. WHO FRAMED ROGER RABBIT? (1988) ★★★% Tímamótamynd í notkun tölvu- vinnu í kvikmyndum. Efnislega stór- skemmtileg skopmynd um Holly- wood rétt fyrir miðja öldina. Teiknimyndafígúrur eru raunveru- legir kvikmyndaleikarar, heldur niðurdregnar. Ein þeirra, Roger Rabbit, ræður einkapæjara (Bob Hoskins), til að fylgjast með létt- lyndri konu sinni. Spæjarinn, sem er meinilla við fígúrumar, kemst í leið- inni að yfirvofandi samsæri þar sem á að þurrka þær út af yfirborði kvik- myndaborgarinnar. Við sögu koma, auk hóps ágætra gamanleikara, margar af kunnustu teiknimynda- fígúrum Wamer og er samruninn, sem hefur verið margnotaður síðan, t.d. í Space Jam (’96), með fyndnari afleiðingum tæknigaldra samtímans. ROMANCING THE STONE (1984) ★★★% Allt leggst á eitt um að skapa óvenjuheilsteypta afþreyingu. Bráð- fyndið handrit þar sem kemur við sögu dularfullt landakort sem rekur á fjömr rithöfundar (Kathleen Tum- er), frá látnum mági hennar í Suður- Ameríku. Systur hennar er rænt þar‘ ~ neðra og verður skáldið að halda suð- ur á bóginn með kortið góða sem lausnarfé. Er þangað kemur fléttast í atburðarásina vafasamt karlmenni (Michael Douglas) og óvænjulævís skálkur (Danny De Vito). Samleikur- inn er einstaklega eftirminnilegur og hafa aðalleikararnir þrír sjaldan eða aldrei verið skemmtilegri, enda ól myndin af sér framhald, The Jewel of the Nile (’85), sem var nokkru síðra, enda enginn Zemeckis við stjóm. Sæbjörn Valdimarsson Verslunarmannahelgin á Costa del Sol 3.-7. ágúst frá kr. 29.955 Nú getur þú tryggt þér glæsilegt tilboð til vinsælasta áfangastaðar íslendinga í sólinni, Costa del Sol. Hvergi fínnur þú þvílíkt úrval veitinga- og skemmtistaða og fyrir hina ferðaglöðu er einstakt tækifæri að kynnast Granada, Aífíku, Gíbraltar eða spænsku sveitinni með fararstjórum Heimsferða á staðnum. Þú bókar núna, og 4 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir. Verðkr. 39.955 M.v. hjón mcð 2 böm, 2-11 ára, 4 nætur með sköttum. HEIMSFERÐIR vnkr. 39.990 M.v. 2 í studio, 4 nætur, mcö sköttum. Völ á lengri dvöl. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is KARLMEM Laugavegi 74 • Sími 551 3033 ílyalan hefst á lorguii A fSLENSKIR V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.