Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 72
Eignaskipti Itf7 Ráðgjöf ew
Gerð eignaskiptayfirlýsinga
Sími5886944
MORGUmABW,KRISGLUNSIl,mREYKJAVÍK,SÍm569im,SÍMBRÉFB69im,PÓS’mÓLF3MO,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: HnBTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 11. JULI2000
VERÐ ILAUSASOLU150 KR. MEÐ VSK.
Tölvumyndir með
75%ínýju
hugbúnaðarfyrírtæki
Stærsta
sinnar
tegundar
í heimi
NÝTT fyrirtæki á sviði hugbúnaðar-
gerðar fyrir sjávarútveg, MTS, hef-
ur verið stofnað í kjölfar sameining-
ar viðskiptalausnasviðs Tölvumynda
hf. og norska hugbúnaðarfyrirtækis-
ins MarEx í Ósló.
Að sögn forsvarsmanna hins nýja
fyrirtækis verður það hið stærsta
sinnar tegundar í heiminum, með
starfsstöðvar í fimm löndum og alls
um eitt hundrað starfsmenn. Auk
þess á fyrirtækið ráðandi hlut í Vis-
ion Software í Færeyjum.
Tölvumyndir eru stærsti hluthafi í
MTS, með 75% eignarhlut. Stefnt er
að skráningu hlutabréfa fyrirtækis-
ins á norskan hlutabréfamarkað inn-
an árs og skráning hlutabréfa Tölvu-
mynda á Verðbréfaþing íslands er
einnig væntanleg á næsta ári.
Fyrsta skrefíð
Friðrik Sigurðsson, forstjóri
Tölvumynda, segir að sameiningin
sé aðeins fyrsta skrefið í alþjóðavæð-
ingu MTS. „Verið er að skoða frek-
ari sameiningu í Noregi, sérstaklega
með tilliti til fiskeldisfyrirtækja, og
stefnt er að kaupum á eða samein-
ingu við fyrirtæki í Suður-Ameríku,
enda hefur MarEx til dæmis verið
með ágæt sambönd í Chile. Við mun-
um einnig sækja inn á Danmörku og
meginland Evrópu fljótlega."
■ Hundrað starfsmenn/19
---------------
ÚA birtir
afkomu-
viðvörun
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
sendi í gær frá sér afkomuviðvörun
vegna komandi hálfsársuppgjörs. I
henni segir að afkoman verði lakari
fyrri hluta yfirstandandi árs en
áætlanir gerðu ráð fyrir.
Arið 1999 nam hagnaður félagsins
á fyrri hluta ársins 180 milljónum
króna. Nú þykir sýnt að félagið verði
rekið með töluverðu tapi á fyrri
hluta ársins og veltufé frá rekstri
verði einnig lakara en árið áður.
Meginástæðurnar fyrir lakari af-
komu er sagðar vera verulegt geng-
istap, sölutap eigna, lækkandi af-
urðaverð og birgðasöfnun.
■ Afkoma ÚA/20
■
.
Setflutning-
ar í Mývatni
Á NÆSTU dögum er von á úrskurði
skipulagsstjóra um frekara mat á
áhrifum kisilgúrvinnslu á lífríki
Mývatns. Einn umtalaðasti þáttur
hugsanlegra umhverfisáhrifa hefur
verið áhrif á svokallaða setflutn-
inga í vatninu. Mýflugulirfur mynda
skán á botninum, sem er uppistaða
fæðis fyrir lífríki vatnsins. Verk-
smiðjan getur haft áhrif á það hvað
verður um það efni sem rofnar upp.
Ljósmynd/Náttúrurannsóknastofan við Mývatn
Þingvallanefnd skrif-
aði biskupsembættinu
Beðið með
auglýsingu
um em-
bætti sókn-
arprests
ÞINGVALLANEFND _ hefur
farið fram á að biskup íslands
auglýsi ekki að svo stöddu
embætti sóknarprests á Þing-
völlum, sem jafnframt er stað-
arhaldari í þjóðgarðinum, og
óskað viðræðna um framtíð
embættisins. Séra Heimir
Steinsson, sem gegndi em-
bættinu síðast, lést 15. maí síð-
astliðinn.
Karl Sigurbjörnsson biskup
tjáði Morgunblaðinu að fallist
hefði verið á ósk Þingvalla-
nefndar. Hann hefði falið
prestum á biskupsstofu að
þjóna Þingvallaprestakalli til
skiptis í sumar meðan viðræð-
ur færu fram um framtíð em-
bættisins. Séra Guðný Hall-
grímsdóttir þjónar embættinu
um þessar mundir en aðrir
prestar á biskupsstofu sem
taka það að sér eru sr. Þor-
valdur Karl Helgason, sr. Sig-
urður Árni Þórðarson og sr.
Bernharður Guðmundsson.
Sóknarbörn Þingvalla-
prestakalls eru aðeins fáeinir
tugir en undir embættið hafa
fallið verkefni á vegum þjóð-
garðsins sem í dag er einkum
skipt á milli framkvæmda-
stjóra Þingvallanefndar og
staðarhaldara. Hefur sóknar-
prestur sinnt síðarnefnda
starfinu en í því felst m.a. að
annast móttöku gesta og segja
frá staðnum. Fyrirhugaðar eru
viðræður milli forsætisráðu-
neytis, en undir það heyrir
Þingvallanefnd, og biskupsem-
bættisins en samkvæmt upp-
lýsingum biskups hefur ekki
verið settur ákveðinn tíma-
frestur til að ná niðurstöðu um
málið.
VIS hækkaði
iðgjöldin um 30%
i . ÍÍi|J
ACO flytur í
Skaftahlíð 24
Verslun ACO, skrifstofur og
verkstæði er flutt i Skaftahlíð 24
við gamla Tónabæ.
Komdu og kynntu þér úrval
hágæða tölvubúnaðar í nýrri og
glæsilegri verslun.
Opið 9-18 virka daga.
Skaftahlíð 24 • Sími 530 1800
Fax 530 1801 • www.aco.is
VÍS, Vátryggingafélag íslands hf.,
hækkaði lögboðin tryggingaiðgjöld
um að meðaltali 30% í gær. Þá hækk-
aði félagið kaskótryggingar um
17,8% að meðaltali. Iðgjaldabreyt-
ingarnar tóku gildi í gær við töku
nýtrygginga, en við næstu endurnýj-
un þeirra trygginga sem eru í gildi.
VÍS fylgir í kjölfar Sjóvár-AI-
mennra sem tilkynntu viku áður um
29% hækkun lögboðinna bifreiða-
trygginga og 15% hækkun kaskó-
trygginga.
Samhliða iðgjaldahækkunum ger-
ir VIS breytingar á áhættusvæðum,
líkt og Sjóvá-Almennar. Landinu
verður skipt í þrjú áhættusvæði fyrir
lögboðnar ökutækjatryggingar, en
ekki tvö eins og hingað til, og tvö
svæði fyrir kaskótryggingar. Mörg
landsvæði sem áður voru á 2.
áhættusvæði falla í 3. flokk, en nokk-
ur svæði í þéttbýli færast á 1. svæði.
Mest hækkun á Akranesi
og í Árnessýslu
Þar hækka því iðgjöld meira en
annars staðar. Mesta breytingin
verður á Akranesi og þéttbýlisstöð-
um í Árnessýslu, en iðgjöld þar
verða þau sömu og á höfuðborgar-
svæðinu. Selfoss, Hveragerði, Þor-
lákshöfn, Eyrarbakki og Stokkseyri
færast á áhættusvæði 1. Afslættir af
iðgjöldum lögboðinna ökutækja-
trygginga einkabifreiða verða hækk-
aðir hjá þeim viðskiptavinum VÍS
sem eru með F plús og Kjama fjöl-
skyldutryggingar.
Breytingar á kaskótryggingum
felast í því að áhættusvæðin verða
tvö í stað eins áður. Við það hækka
kaskóiðgjöld utan höfuðborgarsvæð-
isins meira en á því. Þá hækka ið-
gjöld á kaskótryggingum einkabif-
reiða hjá ungum vátryggingatökum
á aldrinum 17-21 árs meira en ann-
arra, þár sem tekið verður upp
aldurstengt álag á iðgjöld. Um leið
verður hækkaður afsláttur á iðgjöld-
um þeirra ungmenna sem sækja um-
ferðarfundi hjá VÍS.
„Tjónatíðni, sem er mæling á
fjölda tjóna sem hlutfall af heildar-
fjölda tryggðra ökutækja, hefur auk-
ist stöðugt. Hefur tjónatíðni hjá fé-
laginu aukist um 13,2% í tjónum
ökutækja í ábyrgðartryggingu,
18,6% í kaskótryggingum og 10,6% í
slysum á fólki sl. 2 ár. Þessi aukna
tjónatíðni frá árinu 1997 fram til
1999 eykur m.a. tjónakostnað VÍS
um 360 milljónir króna á árinu 2000.
Þessu til viðbótar hefur kostnaður
við hvert tjón hækkað frá því sem
gert var ráð fyrir við endurskoðun
iðgjalda vegna nýrra skaðabótalaga
vorið 1999,“ segir í fréttatilkynningu
VÍS.