Morgunblaðið - 11.07.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 33
LISTIR
Egill Sæbjörnsson með sýningu í gallerí oneoone
Snerillinn sem
varð að skógi
Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður
opnaði um helgina sýningu en neitar að
segja á hverju. Pétur Blöndal talaði
við hann um eitthvað allt annað.
„ÞAÐ er alltaf leyndarmál hvað
maður er að fara að sýna,“ segir Eg-
ill Sæbjörnsson ábúðarfullur í sam-
tali við blaðamann á kaffihúsinu Ar-
senal í miðborg Berlínar. Egill
opnar sýningu í dag í galleríinu
oneoone á Laugaveginum og segir
Grafík-
sumar á
Blönduósi
NÚ stendur yfír sýning grafík-
listakonunnar Marilyn Herdís-
ar Mellk í kaffihúsinu Við ár-
bakkann á Blönduósi. Þetta er
fjórða einkasýning listamanns-
ins en hún hefur einnig tekið
þátt í nokkrum samsýningum.
Marilyn er félagi í grafíkvinnu-
stofunni Áfram veginn.
Sýningin stendur yfir út júlí.
hana vera einkasýningu á tónlist.
„Ég er alltaf að monta mig af far-
tölvunni minni,“ segir hann og sýnir
blaðamanni dularfullar formúlur á
tölvuskjánum.
„Ég reyni að nálgast listina innan
frá,“ heldur hann áfram, „eins og
krakki sem teiknar myndir, leikur
sér með leir eða byggir úr sandi. Ég
fæ mesta ánægju út úr því að búa til,
sjá eitthvað verða til. Það er eins og
að vera í samræðum við sjálfan sig
og meta sig út frá eigin reynslu."
Lagasmíðar eins og myndlist
Hann segir lagasmíðar vera eins
og að teikna mynd og rökstyður það
með því að benda á skjáinn; ekki ber
á öðru en að snerillinn líkist tré.
Sem verður að skógi eftir því sem
laginu miðar áfram. Þannig fær
hvert hljóðfæri hlutverk á skjánum.
„Þegar maður horfir á mynd er það
eins og að horfa inn um glugga; það
sama gildir um lag,“ segir Egill.
„Þegar fólk velur geisladisk er
það að velja sér annan heim. Það
getur valið úr mörgum mismunandi
heimum sem þjappað hefur verið á
geisladiska. Jafnvel þótt diskarnir
sjálfír gefí ekkert til kynna búa þeir
yfir mörgum víddum. Éyrir mér eru
þeir einskonar sýndarveruleiki."
Það hefur verið í mörgu að snúast
hjá Agli undanfarið. Hann var með
gjörning á vegum íslenska sendi-
ráðsins í Haus der Kulturen der
Welt í Berlín í byrjun maí. Síðar í
mánuðinum opnaði hann sýningu í
gróðrarstöð í Kreuzberg þar sem
verkin voru til sýnis innan um plönt-
urnar.
Málari sem aldrei málar
Hann var einnig með verk á vef-
listarsýningu í Listasafni Islands
sem byggist á QTVR-tækni; ljós-
myndum er raðað saman í tölvu og
sýna þær umhverfið í 360 gráðum.
„I þessum verkum hef ég aðallega
verið að skoða svæði út frá hugsun-
um um rými; hvernig umhverfíð og
vitund okkar eru nátengd."
Loks tók hann þátt í tveim stórum
yfirlitssýningum á norrænni mynd-
list, annarri á Islandi og hinni í Vín-
arborg. Egill býr í Worpswede, litlu
þorpi rétt við Bremen, þar sem hann
er með vinnustofu, - og hann kallar
sig málara. „Ég sá verk nýverið þar
sem listamaðurinn sýndi myndir af
fjölskyldu vinar síns; af þeim átti
maður að verða einhvers vísari um
líf fjölskyldunnar. Þessi listamaður
kallaði sig málara.“
Morgunblaðið/Jón Páll
Agli Sæbjörnssyni er margt til lista lagt. Hér slær hann
taktinn á ónefndu götuhorni í útlöndum.
Egill dreypir á kaffi og önglar eft-
ir hugsuninni: „Mér finnst ég vera
málari af því að ég mála aldrei."
Blaðamaður er strax farinn að
hlakka til að setja þessa setningu í
greinina og veltir því fyrir sér hvort
maður þurfi ekki að vera listamaður
til þess að geta leyft sér að segja
svona lagað. „Ég vinn með ljós-
myndir og þær lúta sömu lögmálum;
það sem mótað hefur verið í mál-
verkum í gegnum tíðina hefur skilað
sér í myndlistina og er orðið að efn-
iviði allra listamanna."
ri-v M-2000
Þriðjudagur 11. júlí
l
MIÐBERGI
Pallas Athena
Fyrsti dagur ráðstefnu PATH samtak-
anna en gert er rðð fyrir að um 200
ungmenni frá öllum löndum Evrópu
sæki ráðstefnuna. PATH á uppruna
sinn á ísiandi en erstarfrækt í allri
Evrópu. Eitt helsta markmið samtak-
anna er að vera samnefnari forvarna-
og æskulýóssamtaka í Evrópu og
sameina ungt fólk í þeirri viðleitni
sinni að starfa á sviði forvarna. Hitt
húsið stendur að skipulagningu ráð-
stefnunnar sem stendur til 16. júlí.
www.reykiavik2000.is, wap.olis.is.
Mcizdu 323 S
Skúlagötu 59, sími 540 5400 www.raesir.is
Isafjöröur: Bílatangi ehf. Akureyri: BSA hf. Egilsstaöir: Bllasatan Fell Selfoss: Betri bllasalan Vestmannaeyjar: Bifreiöaverkstæöi Muggs Akranes: Bilás Keflavlk: Biiasala Keflavikur Homafjöröur: Vélsmiöja Homafjaröar
‘Mazda 323 S. Verö 1.530.000 kr. Meöalgreiðsla á mánuði m.v. 09.06.2000, 500.000 útborgun/uppitaka, bllalán ( 84 mánuði, 8% vexti og 4% verðbólgu.
i 8
a múnuöi*
veröur
Mctzdxi 323 S
— bíll
• ABS hemlalæsivörn TCS spólvörn
• Útvarp, geislaspilari og fjórir hátalarar
• Framsætisbak sem breyta má í hentugt borb
• Upphitabir og rafstýrbir hlibarspeglar
« Þriggja ára eba 100.000 km ábyrgb