Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.07.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR11. JÚLÍ 2000 41 + María Sdlrún Jó- hannsdóttir fæddist í Reykjavík 2. apríl 1943. Hún lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur 4. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Jónsson og Júlíanna Bjarnadóttir. Þau eru bæði látin. Börn þeirra eru Guðmund- ur Reynir, ókvæntur; Sigbjörn Jón Bjarni, kona hans Anna Ingi- björg; Hildur, ógift; Lóa Björg, sambýlis- maður Bergsteinn; Svala Kristín, látin. Hálfbræður hennar, Ragn- ar, látinn, og Guðmundur E. María giftist Helga Ámasyni, f. 5. febrúar 1923, d. 11. nóvember 1972. Eignuðust þau þrjú böm. Þau eru: Vigdís Ingibjörg, f. 18. júlí 1962, eiginmaður Lárus Vil- hjálmsson, f. 11. október 1960, eiga þau íjögur böm. Elsta dóttir þeirra á eitt barn, f. 19. nóvember 1999. Jóhanna Júlíanna, f. 3. októ- ber 1966, á hún tvö böm úr fyrra sambandi, sambýlis- maður hennar er Heimir Þrastarson, eiga þau þijú böm. Ámi Guðni, f. 16. janúar 1968, sambýl- iskona Jóhanna Lo- vísa, f. 12. nóvember 1974, eiga þau þrjú börn. Eftirlifandi eiginmaður er Ingi- mar Magnússon, f. 30. júní 1933, þeirra sonur er Þormar Helgi, f. 26. mars 1975. Hún lauk námi úr Húsmæðraskólanum á Blöndósi og sást það vel á matargerð henn- ar og hannyrðuni. Á sínum yngri árum vann hún á Vífilstöðum og á Sólvangi. María fluttist með seinni manni sínum til Grindavíkur og tók hún virkan þátt í starfi Kvennadeildar Slysavarnafélags- ins og einnig í Kvenfélagi Grinda- víkur. títör hennar fer fram í dag, 11. júlí, frá Grindavíkurkirkju og hefst athöfnin kl. 13:30 og við þökkum fyrir allar þær gleði- stundir sem við áttum saman. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt Fyrst sigur sá er fenginn Fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (V. Briem.) Elsku mamma og tengdamamma, blessuð sé minning þín. Vigdís og Lárus. Elsku mamma, tengdamamma og amma. Þakka þér fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þót svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því Þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) MARÍA SÓLRÚN JÓHANNSDÓTTIR Nú er komin kveðjustund, miklu fyrr en mig gat grunað. Enda bjóst ég altaf við að þú stæðir yfir mold- um mínum. Þegar við hófum búskap fyrir tuttugu og sex árum vorum við bæði fullorðið fólk, þú móðir þriggja barna sem þú hafðir átt með látnum eiginmanni þínum, en ég hafði ekki áður verið í sambúð. Það tekur sinn tíma fyrir full- þroska fólk að slípast saman, en ég held að í áranna rás höfum við náð því. Allt sem þú sagðir í byrjun sambands okkar stóðst þú við til dauðadags enda varst þú bæði heið- arleg og góð kona. Vegna örorku þinnar hafðir þú síðustu árin ekki tök á að sinna heimilisstörfum eins og þú hefðir viljað, en samt gafst þú hvergi eftir þar frekar en annars staðar. Með þinni léttu lund tókst þú á móti gestum á heimili okkar og á sama hátt tókst þú á móti því sem lífið bauð, með þeim góða árangri að skila fjórum mannvænlegum börnum til framtíðarinnar. Eg man öll árin okkar, þau varpa ljósi á þau sem ég á eftir. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ingimar. Mín ástkæra móðir. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farin frá mér. Eg vil kveðja þig með mínum orðum. Er nóttin svarta sígur á mun ljósið bjarta vera þér hjá, í Drottins örmum ertu, yfir langan veg mun hann þig bera. Móðurást þú gafst oss öllum, í hjartanu það öll við geymum. Er hönd þín snart oklnir var það svo blítt. í lífi oss munum það ætíð minnast. Móðurminning blíðust er og ætíð í hjört- um oss það við geymum. Sá dagur mun koma er við öll munum hitta hana að nýju hinum megin í Drottins garði. Móðir, með Drottins blessun og leiðarljósi hans kveð ég þig nú. En í hjarta mínu þú ætíð býrð og minningarnar þínar sönnu. Þinn ástkæri sonur, Þomiar Helgi Ingiinarsson. Elsku mamma mín. Ekki óraði mig fyrir að þurfa að kveðja þig svo skömmu eftir þær erfiðu fréttir að þú hefðir greinst með krabbamein. Samt varstu búin að eiga við erfið veikindi að stríða sl. sex mánuði, en erfiðlega gekk að finna út hvað væri að. Fjórum dögum eftir fregnina um sjúkdóminn ertu horfin frá okk- ur og eftir sitjum við og reynum að átta okkur á þessari bláköldu stað- reynd. Alltaf gat ég leitað til þín, þú varst mín stoð og stytta í sorg og í gleði. Tilhugsunin um að geta ekki grátið og hlegið með þér lengur er erfið, en þó veit ég að þú verður samt alltaf hjá mér þó að á annan hátt sé. Minningamar flæða um hugann og söknuðinn eftir návist þinni er mikill. Ferðirnar okkar saman einu sinni í viku í Bónus vora fjörugar og skemmtilegar og ömmustrákunum fannst alltaf svo gaman að fá að fara með þér í þessar ferðir og fá ís. Baksturinn fyrir jólin var fastur punktur í tilverunni og það var mik- ið bakað, svo mikið að oftast endaði restin í ruslinu eða í smáfuglunum þegar líða fór að vori. Alltaf fóram við og fylgdumst með kríunum í vorverkunum og áður en við vissum af höfðum við eytt nokkrum klukku- tímum saman þar. Manstu einu sinni þegar við fórum niður að höfn um klukkan fjögur um nótt og fylgdumst með öndunum með ung- ana sína og allt var svo stillt og hljótt. Fjölmargar svipaðar yndis- legar minrdngar á ég um þig, mamma mín, sem eru mér svo kær- ar og enginn getur tekið frá mér. Sorglegast finnst mér að ömmu- börnin fái ekki að njóta návistar og hlýju þinnar lengur. Með þessum orðum vil ég kveðja þig, elsku mamma, og þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem ég og fjölskylda mín höfum átt með þér. Eg er þess fullviss að pabbi og amma hafa tekið fagnandi á móti þér, því þegar sorgin er hérna meg- in yfir því að þú sért farin ríkir gleðin hinum megin yfir því að nú sért þú komin heim. Eg bið að Guð gefi okkur öllum styrk til að yfirstíga þá miklu sorg sem við upplifum eftir að þú ert far- in frá okkur, því mikill er söknuður okkar. Minning þín lifir með okkm’. Þín dóttir, Jóhanna og ijölskylda. Mín elskulega móðir og tengda- móðir. Nú kveðjum við þig með söknuð í hjarta. Það er sárt að missa þig svona alltof fljótt. En minningarnar eru yndislegar Hvíl í friði. Árni, Jóhanna og börn. Kær mágkona mín María Sólrún Jóhannsdóttir er látin, langt um aldur fram aðeins 57 ára gömul. Maja átti við veikindi að stríða síðustu tvö ár sem byrjuðu með lömun í andliti og þróaðist á þann veg að hún var lögð inn á Land- spítalann sl. haust til rannsókna og síðan Sjúkrahús Suðurnesja og búin að þurfa að dvelja á sjúkrahúsi má segja síðan þá, komst heim fyrir jól, síðan lögð inn á ný í mars, var í ei- Iífum rannsóknum. Engan grunaði að neitt alvarlegt væri á ferðinni fyrstu mánuðina, svo síðustu tvo mánuði sá maður að það væri eitt- hvað mikið að, þetta gat ekki verið eðlilegt, svo kom niðurstaðan, Ingi maðurinn hennar var kailaður á fund læknis á afmælisdegi sínum ásamt börnum hennar til að fá úrsk- urð. Þetta er krabbamein og ekkert hægt að gera, þvílíkt högg á fjöl- skylduna. Þetta var 30. júní sl., að- eins fjórum dögum seinna var hún látin. Maja vildi allt fyrir alla gera, var myndarleg húsmóðir með af- brigðum, tók sérstaklega vel á móti fjölskyldu sinni og vinum, hafði un- un af að hlusta á tónlist og taka í hin ýmsu spil. Þegar Maja var ung stúlka gekk hún í Húsmæðraskólann á Blöndu- ósi og bar heimili hennar þess vott, allt snyrtilegt og fallegt, hún hafði yndi af að prýða það með fallegum munum. Eins var með matreiðslu, hún var afbragðs kokkur, lagaði góðan mat, ekki vantaði upp á baksturinn, það var bakað í hverri viku og það ríflega, alltaf nóg með kaffinu og enginn fór svangur frá Maju og Inga. Smákökurnar sem voru bakaðar fyrir jólin dugðu langt fram á vor þótt alltaf væri verið að bera á borð fyrir gesti og gefa litlum munnum. Ommubömin vissu alltaf að þau + Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA PÁLÍNA VIGFÚSDÓTTIR, Eskihlíð 10, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum dagsins 7. júlí. Útförin auglýst síðar. aðfaranótt föstu- Jóhannes Gíslason, Guðrún Erla Skúladóttir, Nanna Eiríksdóttir, Kristín Valdimarsdóttir, Halldór Kjartansson, Björn Valdimarsson, Mariska von der Meer, Margrét Birna Valdimarsdóttir, Valur Símonarson, barnabörn og barnabarnabörn. fengju eitthvað gott í munn hjá ömmu og afa í Staðarvör 3. í lok júlí 1994 fórum við Jónsi minn, Júlla móðir hans, Maja, Ingi, Þormar, Lóa og Gummi norður og dvöldum öll saman í sumarhúsi í nokkra daga, keyrðum um alla sveit og komum víða við, hvað þær gleðja mann þær minningar í myndum frá þeirri ferð. Þegar Júlla tengdamóð- ir mín lá sína banalegu tóku þau Maja og Ingi hana inn á sitt heimili af miklum kærleika og gerðu allt til að henni gæti liðið eins vel og unnt var og skiptist fjölskyldan á að hjúkra henni Júllu minni og létta svolítið á heimilinu en það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir Maju og Inga, því það var alltaf einhver allan sól- arhringinn og lítið prívat fyrir heimilisfólkið. Þormar lét ömmu sinni eftir herbergið sitt, þetta þótti þeim öllum bara sjálfsagt og gáfu henni því öryggi þar til yfir lauk. Elsku Maja mín. Við náðum svo sérstöku og góðu sambandi síðustu tvö árin og orðið svo kært á milli okkar. Það eru sex ár síðan ég hitti þig fyrst, þú varst svo seintekin en trygg þeim sem þú tókst. Eg vil þakka þér hjartanlega fyr- ir hvað þú varst alltaf góð við hann bróðir þinn hann Jónsa minn og hvað þú varst alltaf vingjarnleg við börnin mín, sérstaklega hana Katr- ínu mína. Þú varst fársjúk að hugsa um og lést velja fyrir ykkur svo fall- egt vöggusett sem þú sendir litlu dótturdóttur minni þegar hún fædd- ist, þú lifðir fyrir að gleðja og gefa. Við komum svo oft saman syst- kinin, ég tel mig 1 þeim hópi, borð- uðum saman á þori'anum, einu sinni á sprengidaginn saltkjöt og baunir, svo grilluðum við saman á sumrin og alltaf var komið saman á heimil- inu ykkar, því þar var besta plássið. Elsku hjartans Maja mín, þú veist núna hvað mér þótti vænt um ykkur öll og mun ég sakna þess að þú komir ekki til okkar eins og þú gerðir meðan heilsa leyfði. Þú varst ótrúlega sterk í þínum veikindum, kvartaðh- aldrei og felldir ekki eitt tár, þvílíkur styrkur, eina sem þú sagðir við mig þegar ég kom til þín daginn eftir að við fengum að vita örlög þín, „þetta er svona Anna mín.“ Eg veit að vel hefur verið tekið á móti þér þegar þú gekkst inn í eilífa ljósið og ég bið algóðan Guð að vaka ávallt yfir þér. Ég vil þakka öllum sem önnuðust hana mágkonu mína í hennar erfiðu veikindum og sér- staka hlýju og kærleika frá lækni hennar og og hjúkrunarfólki á Sjúkrahúsi Suðurnesja. Einnig elskulegheit í okkar garð svo og einlæga hluttekningu á erfiðri stundu. Elsku Ingi minn. Þormar minn, Vigdís mín, Jóhanna mín, Árni minn og fjölskyldur. Algóður Guð styrki ykkur og blessi okkur öll. Bless í bili elsku Maja mín. Þín mágkona, Anna Ingibjörg Benediktsdóttir. Elsku amma og langamma okkar. Nú ertu farin frá okkur. Það er erf- itt að sætta sig við það að nú sért þú farin og að við sjáum þig ekki aftur, það voru nú lítil kynni á eina langömmu- barninu sem kom í heiminn í nóvember 1999 og svov kom annað barnabarn í desember 1999. Sagt er að tíminn lækni öll sár og þó svo hann geri það þá læknar hann ekki söknuðinn sem mun sitja í hverju okkar hjarta. Við eigum eftir að sakna þess að geta ekki heimsótt þig og ekki geta gert allt sem við gerðum saman. Það var mjög erfitt að koma upp á spítala og sjá þér hraka niður eftir hvert skipti sem við komum til þín. En núna verðum við að láta okkur nægja að hugsa um þig og það mun- um við alltaf gera. Við misstum ekki einungis þig heldur einnig bestu ömmu sem nokkur gat átt. Þú varst okkur öllum svo yndisleg og góð og gafst okkur svo margar fallegar .A. minningar og fyrir þær munum við ætíð elska þig. Elsku amma og langamma, áður en við kveðjum þig viljum við þakka þér fyrir okkur en mest af öllu viljum við þakka þér fyrir að hafa verið amma okkar og langamma. Megi Guð geyma þig. Valdís,Vilhjálmur, Anný María, Hjörtur Freyr og langömmubarn Andri Snær. Elsku amma mín. Hún amma mín * var voða góð kona. Hún kallaði mig alltaf Blómu. Mér fannst hún alltaf mjög góð við mig og okkur öll. Ég elska þig enn í dag. Mér þykir rosa- lega vænt um ömmu mína. Amma, ég elska þig og mun alltaf gera það. Nú ætla ég að kveðja þig með smá ljóði, Sár er sorgin sú, Sem á okkur hvílir nú Mikill er okkar missir Já, ef þú bara vissir, hve sárt við söknum þín. Þín, Anný María Lárusdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER HARALDSDÓTTIR SIGURÐSSON, Árskógum 6, lést föstudaginn 30. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Alexandersson, Haraldur Viggó Ólafsson, Ólafur Ólafsson, Erna Jónsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Sveinn Bergmann Rúnarsson, Bertha Þyrí Bergmann Sveinsdóttir, Jón Ólafsson, Lilja Dóra Jóhannsdóttir, íris Katla Jónsdóttir, íris Ólafsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, ÞÓRÐUR HALLDÓR JÓHANNSSON, Nönnustíg 5, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum i Fossvogi laugar- daginn 8. júlí. Jóhanna Stefánsdóttir og börn, María Jóhannesdóttir, Jóhann Th. Þórðarson, Hulda Kristinsdóttir, Jóhanna V. Jóhannsdóttir, Ingi K. Ingibergsson, Jóhann M. Jóhannsson, Ragnhildur Svavarsdóttir, Hermann F. Jóhannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.