Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 42

Morgunblaðið - 11.07.2000, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Niels K. Svane fæddist í Reykja- vík 17. maí 1918. Hann lést á heimili sínu, Akralandi 3, 28. júni síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Guðjónsdótt- ir, f. 8. október 1890, d. 20. jan 1967, og Niels Christian Sva- ne, f. 1884, d. 1937 í yNew York. Bræður hans Ólafur, f. 1912, látinn, Karl, f. 1914, látinn, Carlo, lést í barnæsku, Carl, f. 1923, og Marteinn, f. 1928. Hinn 21. maí 1942 kvæntist Sva- ne Bergþóru Eiríksdóttur, f. 17. októbcr 1921. Foreldrar hennar voru Valgerður Halldórsdóttir Ar- mann og Eiríkur Hjartarson í Laugardal í Reykjavík. Börn Svane og Bergþóru eru: 1) Eiríkur Kristinn, f. 29.11. 1942, bifvélavirki, kvæntur Jónínu Egg- ertsdóttur, f. 13.7. 1946, gjaldkera hjá Sambandi íslenskra sveilarfé- laga. Þeirra börn eru a) Eggert Jó- hann, f. 1966, rafvirki. b) Berg- þóra, f. 1968, dýralæknanemi í Kaupmannahöfn. c) Sigríður Theodóra, f. 1974, starfsmaður í Is- al. Sambýlismaður hennar er Atli Örvar, smiður, og er dóttir þeirra Jónína Val- gerður, f. 1998. 2) Margret, f. 13.8. 1945, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi, gift Bjarna Snæbjörns- syni, f. 7.7. 1939, tæknifulltrúa hjá Vinnueftirliti ríkisins. Þeirra börn eru a) Bergdís Una, f. 1967, tölvunarfræðingur, gift Herði Andréssyni, líffræðingi. Þeirra börn eru: Andrea Malín, f. 1990, Katrín, f. 1994, og Kolmar, f. 1996. b) Kristbjörn Þór, f. 1969, bifvéla- virki, kvæntur Rannveigu Rut Valdimarsdóttur, fórðunarfræð- ingi. Dætur þeirra eru Sóllilja Rut, f. 1997, og Fanney, f. 1998. c) Bergþóra Fjóla, f. 1971, sjúkraliði, gift Pétri Arnasyni verkamanni og er þeirra sonur Bjarni Snæbjörn, f. 1994. 3) Una Jónína, f. 26.12. 1952, bókasafnsfræðingur, gift Hauki Gunnarssyni, f. 11.2. 1949, bflstjóra hjá Landsbanka íslands. Þeirra börn eru: a) Guðrún, f. 1973, ritari. b) Eir- íkur, f. 1977, laganemi, unnusta hans er Bergrún Kristinsdóttir, f. 1980. c) Kristinn, f. 1981, d. sama ár. d) Niels Svane, f. 1983, nemi. 4) Þor- geir Hjörtur, f. 27.2. 1961, hús- gagnasmiður, sambýliskona hans er Sigrún Þórðardóttir, f. 1954, bókari, sonur hennar er Birgir Stefánsson, f. 1979. Svane útskrifaðist frá Iðnskólan- um í Reykjavík árið 1943. Hann vann á verkstæði Egfls Vilhjálms- sonar til ársins 1949. I löngu verk- falli sem þá varö hóf hann sjálfstæð- an atvinnurekstur í bflskúr bróður síns Karls á Kirkjuteigi. Þar var verkstæðið í um eitt og hálft ár er hann flutti það á Háaleitisveg 39 þar sem þau bjuggu. Húsið og verkstæð- ið var fyrir skipulagi borgarinnar og 1968 var flutt í Skeifuna 5. Hann vann þarft og gott verk við upp- byggingu hússins og húsfélagsins í Skeifunni 5. Sonur hans Eiríkur rak fyrirtækið síðustu þrettán árin en hann kom þar á hverjum degi ýmist til að huga að húsinu eða fara í sendiferðir. Bifreiðaverkstæði N.K. Svane var lagt niður um síðustu ára- mót. títför Svane fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. NIELS KRISTINN SVANE Allt í einu snöggt en þó ekki snöggt er lífíð búið og minningarnar þjóta fram hjá. Svarthærði brosmildi pabbi sem kom alltaf inn í morgunkaffi og tók telpuna í fangið. Þau horfðust í augu og hann spurði hvort hún væri væri „pabbadella“. Um það bil 25 árum seinna var ljóshærður hnokki sem gerði það sama, bakkaði í fangið á honum og vildi hvergi annars staðar ^vera. I umræðum okkar síðustu dagana var gott að rifja upp tímann okkar H H H H H H H H H H Erfisdrykkjur H H H H P E R L A N Sími 562 0200 Varanleg minning er meitluð ístein. !| S.HELGAS0NHF I STEITMSMIÐJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is uppi á Háaleiti, í sveitinni okkar, sem var sannkallaður unaðsreitur. Skjól- veggurinn sem hann setti upp fyrir okkur svo hægt væri að njóta sólar þar sem alltaf var eitthvað um að vera, margir í heimsókn og mikið hlegið. Verkstæðið og húsið var sam- ofið enda bara tvö skref á milli. Þar voru jeppamir sem hann tók í sund- ur og gerði upp. Ofáar ökuferðir voru farnar í þeim þótt vélar- og hjóla- lausir væru. Þai- er kannski komin skýringin á ólæknandi jeppadellu minni. Utanlandsferðin frábæra til Irlands 1962 og samvera okkar þar. Það var svo skemmtilegt samspilið þar þegar fólk tók okkur tali, hélt við værum öll systkin eða að mamma væri mamma okkar allra. Pabbi var svo ánægður með að vera svona ung- legur. Keyrsluferðin okkar fímm á ferð um írland er ógleymanleg. Mér er líka minnisstætt þegar Margret fékk píanóið en ég fékk kassann utan af því. Það voru sanngjörn skipti því pabbi hjálpaði mér að smíða lítinn kofa. Hann var arkitektinn að mestu, bjó til rammann en ég festi spýturn- ar. Úr varð flottasta lítið hús sem ég var mjög stolt af. En það var tíminn okkar í smíðunum og samveran sem var svo góð, leiðsögnin sem ég fékk um leið og við smíðuðum sem hefur ekki síst verið veganesti í lífinu. Hann var alltaf til staðar þegar við þurftum á honum að halda, klettur- inn okkar sem studdi við bakið á okk- ur og þau bæði. Það var mér mjög mikilvægt að geta þakkað honum all- ,an þennan stuðning og þá fengið í leiðinni áframhaldandi veganesti. Árin okkar í Reykjahlíðinni á menntaskólaárunum voru mjög sér- stök. Þegar við rifjuðum upp þennan tíma um daginn var svo gaman þegar hann sagði, já manstu". Oft um helg- ar vorum við tvö ein eftir mat áður en hann fór upp til afa. Það voru okkar bestu stundir að tala um heima og geima, pólitík og mannkynssögu, ár- in mín á Irlandi og dvölina í Dan- mörku. Fólkið sem ég hafði kynnst og hvernig það hafði reynst mér þannig að heimspeki kom einnig mikið við sögu. Hann kenndi mér á bíl, það var góður tími. Líka þegar ég hafði ekki lært á bremsuna, steig bara í botn og hann næstum farinn í gegnum framrúðuna. Við vorum svo heppin að honum var þolinmæði og rík kímnigáfa í blóð borin. Stundum var djúpt á kímninni því hann var hógvær og hafði sig ekki í frammi en seinni árin þegar meiri tími gafst var hann óspar á að leyfa okkur að njóta hennar. Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa gefíð mér góðan föður. Þín, Una. Elsku pabbi. Það er svo margs að minnast á vegferðinni gegnum lífið og af svo mörgu að taka að erfitt er að byrja. En þakklætið er efst í huga og leitar þá hugurinn fyrst til upp- vaxtaráranna á Háaleitinu þar sem mamma og pabbi höfðu komið sér upp heimili ásamt verkstæðisrekstri sem var órofanleg heild vegna nánd- ar verkstæðisins og þess að „strák- arnir“ sem unnu hjá pabba komu oft- ast í eldhúsið til okkar í kaffitímunum. Og þarna var líf, margt fólk í morgunkaffi og fjörugar umræður, hálfgerð sveit, hættuleg götuhorn og mikil umferð bíla en allt lærðist þetta. Þetta var „sveitin í Reykjavík “ um 1950-1968. Bústað- arhverfið og Gerðin voru í uppbygg- ingu, Trésmiðjan Byggir stóð við Miklubrautina og þar fyrir neðan voru sandgryíjur þar sem „óprúttn- ir“ unglingar fengu sér reyk af „Wings“ sígarettum en þá kostaði pakkinn 8 kr. Við höfðum flutt úr Laugardalnum úr faðmi afa og ömmu, úr örygginu í dalnum og í annað öryggi, faðm for- eldranna sem umlukti okkur systkin- in ástúð og umhyggju. Pabbi var einstakur maður, gædd- ur þvílíkri þolinmæði og seiglu sem maður bara gerði sér ekki grein fyrir fyrr en mörgum áratugum seinna. Hann var ekki maður sem hafði sig í frammi en stóð svo sannarlega á sínu og hafði skoðanir á hlutunum og hopaði ekki frá þeim en gat jafn- framt hlustað á og virt skoðanir ann- arra. Alltaf var pabbi tilbúinn að miðla öðrum af þekkingu sinni og reynslu. Hann var stoltur af börnum sínum og gladdist með þeim þegar vel gekk hjá þeim. Fyrir árið 1970 varð pabbi að leggja niður verkstæðisrekstur við Miklubrautina vegna skipulags- breytinga hjá Reykjavíkurborg og var þá farið út í það að koma upp byggingu í Skeifunni 5 neðan við Grensásveginn. Þarna var mikið færst í fang á erfiðum tímum því hálfgerð haftastefna var ríkjandi og margt til að ergja sig yfir. rfisdrykkjur í Veislusalnum Sóltúni 3, Akógeshúsinu, fyrir allt aó300 manns. einnig urrriiR hadegismatur MEDKAFFI OG TERTU A EtTIR - SAMA VERÐ . S<coá;a Ty.al,ré»o yá okkvr ° n°tinu! VEISLAN G3 Glœsilegar veitingar frá Veislunni Austurströnd 12 • 170 Sdtjarnornes • Sími: 561 2031 • Fax: 561 2008 VEITINGAELDHUS www.veislan.is _ _ — - eg Þá var það að pabbi ásamt nokkr- um öðrum hafði fengið lóð til að byggja á stórt „iðnaðarsambýli". Pabbi var vakinn og sofinn við bygg- ingarframkvæmdirnar og lagði nótt við dag ef með þurfti. Reyndist pabbi drjúgur við að koma saman reglum og fá því áorkað sem þurfti í sambandi við lán og önn- ur mál sem tengdust framkvæmdun- um. Einnig átti hann drjúgan þátt í stofnun húsfélags og þess að halda húsfundi og stuðla að því að allir „drægju vagninn í sömu átt“. Pabba féll nánast aldrei verk úr hendi, hann vann alla sína tíð langan vinnudag og ótrúlegt hvað hann ent- ist lengi en sjálfsagt má þakka það áhuga hans á starfinu og miklu jafn- aðargeði. Eiríkur bróðir minn tók við rekstri verkstæðisins N.K.Svane fyrir þrett- án árum en pabbi var þó alltaf með annan fótinn á verkstæðinu. Það var svo nú um síðustu áramót að Eiríkur varð að hætta rekstri sök- um alvarlegra veikinda. Þá var brugðið á það ráð að hætta rekstri og selja húsnæðið sem þó hefur ekki gengið nógu vel m.a. vegna nýrra laga um eignaskipti sameignarhúsa. Nú vona ég og óska að þú faðir minn fáir endurgoldið það sem þú gerðir fyrir Skeifuna 5 frá byrjun til enda. Þín elskandi dóttir, Margret. Mágur minn og vinur Niels Svane er látinn. Hann lést eftir stutta en allerfiða baráttu við illvíg veikindi. Svane, eins og hann var kallaður af öllum í fjölskyldunni, var einstakur öðlingur sem maður saknar sárt. Hann kvæntist Bergþóru, systur minni, fyrir nær sex áratugum og mér er það afar minnisstætt þegar þau fóru að draga sig saman. Hann var mjög hár, þrekvaxinn og mynda- rlegur og ég held að öll mín stóra fjölskylda hafi fljótt orðið hrifin af honum og þótt þessi ráðahagur hinn besti. Þau voru gift af séra Sigurgeiri Sigurðssyni biskup vorið 1942. I þá daga var oft mikið líf og fjör hjá fjöl- skyldunni í Laugardal, hún var stór og að auki var margt starfsfólk þar, sérstaklega yfir sumartímann. Það var iðulega farið í alls konar leiki eft- ir vinnutíma eða um helgar. Svane varð strax þátttakandi bæði í störf- um og leik af fullum krafti og eru þessar stundir í mínum huga mjög ljúfar. A þessum árum var mjög erf- itt að fá húsnæði. En þau gerðu í stand tveggja herbergja íbúð úr geymslu í landi Hafrafells, en það átti Malín fóðursystir okkar Berg- þóru. Ibúðin var lítil en mjög „kósí“. Þar bjuggu þau í nokkur ár eða þar til þau keyptu sér einbýlishús við Háaleiti. Það hús þurfti að fjarlægja vegna skipulags borgarinnar og var það rifið. Nokkru áður en að því kom fluttu þau til föður okkar í Reykja- hlíð 8. Hann var orðinn einn og al- draður og þurfti á aðstoð að halda. Þá aðstoð fékk hann svo sannarlega því Bergþóra og Svane hugsuðu sér- staklega vel um föður okkar og var Svane einstaklega natinn að hugsa um hann. Síðar fengu þau lóð við Norðurbrún og byggðu þar mikið og fallegt hús. Svane lærði bifvélavirkjun hjá Agli Vilhjálmssyni h/f og að námi loknu var hann strax gerður að verk- stjóra fyrir bílaverkstæði fyrirtækis- ins, en þegar hann hafði áunnið sér meistararéttindi hætti hann þar og setti upp sitt eigið bílaverkstæði. Það hafði hann ákveðið í upphafi því sjálf- stæður vildi hann vera. Svane var sérstaklega laghentur og vann sér traust viðskiptavina sinna þannig að það var alltaf mikið að gera hjá hon- um. A þessum árum var oft erfitt að fá varahluti og annað sem til þurfti fyrir viðgerðir á bílum, en Svane var meistari að bjarga málum og smíðaði iðulega það sem ekki tókst að útvega með öðrum hætti. Með eljusemi og miklum dugnaði byggði Svane stórt og myndarlegt verkstæði í Skeifunni þar sem hann vann nánast til ævi- loka. Bergþóra og Svane höfðu mikið samband við frændfólk okkar í Bandaríkjunum og Kanada og rækt- uðu það samband vel. Bæði með heimsóknum til þeirra og að taka á móti þeim hér heima. Eins og gengur lentu þau í ýmsum ævintýrum á þessum ferðalögum og var gaman að hlusta á Svane segja frá þeim, en hann kunni að segja sögur og var með afbrigðum minnugur. Þann hæfileika missti hann ekki þótt ald- urinn færðist yfir hann eins og oftast á sér stað. Svane var mjög skapgóður og já- kvæður maður. Það var stutt í brosið og ekki langt í kímnina. Hjónaband þeirra Bergþóru og Svane var afar gott og skemmtilegt. Þau áttu barna- láni að fagna, eignuðust fjögur góð og dugleg börn og mörg barnabörn. Við Þorgerður, konan mín, þökkum fyrii- margar góðar samverustundir og biðjum fjölskyldu Svane guðs blessunar. Hjörtur Eiríksson. Það mun hafa verið árið 1964 sem ég kynntist væntanlegum tengdafor- eldrum mínum þeim Bergþóru Eir- íksdóttur og Niels K. Svane en þá höfðum við Margret ákveðið að eig- ast. Mér var vel tekið af öllum í fjöl- skyldunni en með eðlilegri varúð vegna þess að ég var sex árum eldri en heimasætan og átti þar að auki bai'n með fyrri kærustu. Og ekki bætti úr skák að ég var sveitamaður og framsóknarmaður í þokkabót. En allt fór nú vel og á samning í bifvélavirkjun fór ég hjá tengdaíoður mínum. Reyndar var ég að mig minnir að- eins tvö ár á samningi hjá honum en vann svo þessi hefðbundnu þrjú ár að sveinsprófi loknu til að fá meistara- réttindi. Það hlýtur að hafa verið mjög erf- itt fyrir hann að hafa mig í vinnu á þessum tíma, hann þessi rólegi seiglumaður með óþijótandi úthald og svo ég skorpumaður með alls kon- ar hugdettur. Við áttum ekki alltaf skap saman en það var með mig eins og aðra sem kynntust honum, virð- ing fyrir frábærum fagmanni með áratuga reynslu og þekkingu. Eftir því sem árin liðu og ég ekki eins „hornóttur“ áttum við meiri samleið og meðan ég rak eigið verk- stæði fór ég oftar en ekki í „smiðju“ til hans til öflunar fróðleiks. Hann var ekki bara tengdafaðir, hann var lærifaðir minn í lífsstarfinu ogvinur. Þau hjónin gáfu oft góðar gjafír en besta gjöf þeirra til mín var dóttirin Margret sem nú eins og bróðir henn- ar Eiríkur berst við illvígan sjúkdóm. Langri og farsælli starfsævi er lokið, góður maður genginn sem hugsaði fyrst og fremst um heill fjöl- skyldunnar. Svane og Bergþóra veittu sér lítið en öðrum í fjölskyld- unni þeim mun meira. Svane og ég töluðum talsvert sam- an síðustu vikurnar fyrir andlát hans þar sem hann rakti sögu sína og lífs- hlaup í stórum dráttum og er þetta varðveitt á hljóðsnældum. Tengda- faðir minn gerði sér fulla grein fyrir að hverju stefndi hjá honum og var sáttur við endalokin en þótti miður að geta ekki sjálfur gengið frá vanda- málum Skeifunnar 5. Honum voru vel ljós veikindi Eir- íks og Margretar og bað fyrir þeim. Hann hélt fullri hugsun til síðasta dags og ef til vill lýsir það tengdaföð- ur mínum best, það sem hann sagði við mig meðan hann mátti mæla: „Bjarni minn farðu vel með þig svo þú getir hugsað um Margreti." Hann átti stórbrotna konu, Berg- þóru Eiríksdóttur, sem stóð við hlið hans alla tíð. Ég votta tengdamóður minni dýpstu samúð fyrir missi lífsföru- nautar. Ég veit að hún er sú manngerðin að brotna ekki en hún getur bognað. Bjami. Þegar mér bárust fréttirnar af andláti afa míns var mér óneitanlega brugðið þrátt fyrir það að ég vissi að að þessu kæmi. Mér var brugðið vegna þess að nú hvarf stór hluti af lífi mínu, hann afi minn Svane. Afi minn var mér mjög mikilvægur og leit ég alltaf mjög upp til hans, bæði vegna stærðar hans og persónuleika. Ég man alltaf eftir afa sem mjög rólegum og yfirveguðum manni og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.