Morgunblaðið - 11.07.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
Biðlistapestin
Frá Atla Brynjarssyni:
ÉG ER einn af þeim fjölmörgu sem
eru að bíða eftir að komast í aðgerð
á bæklunardeild Landspítalans. Það
eru um það bil 54 vikur síðan ég var
settur á biðlistann margumtalaða.
Eftir því sem ráðherra segir eru
engir biðlistar þannig að ég reiknaði
með að komast fljótlega að. En
núna, 54 vikum seinna, er vitað jafn
lítið um það hvenær aðgerðin verður
framkvæmd. Ég álpaðist inn á
heimasíðu landlæknisembættisins
og fann þar samantekt yfír sjúk-
linga sem eru að bíða eftir aðgerð-
um hjá flestum ef ekki öllum sjúkra-
húsum landsins. Og þar fann ég mér
til skelfingar tölur yfir þá sem eru
að bíða eftir aðgerðum hjá bæklun-
ardeild Landspítalans. I feb. ’OO
voru 411 manns á biðlista eftir að-
gerð hjá bæklunardeild Landspíta-
lans og meðalbiðtími er samkvæmt
þessum lista 79 - já 79 - vikur. Ráð-
herra fullyrðir að það sé ekkert að.
Núna í vor var bæklunardeildin
minnkuð um helming eða meira og
færð yfir á aðra deild og ef ég heyrði
rétt var deildin að missa einhver
rúm um daginn í viðbót. Sennilega
hefur þessi meðalbiðtími breyst
töluvert til hins verra nú á vormán-
uðum. Mig langar til að spyrja ráð-
herra hvort hún telji það sé hag-
stæðara fyrir ríkið að hafa fólk
heima á örorku, dýi’um lyfjum, í
sjúkraþjálfun, allskonar stoðtækj-
um o.fl. o.fl. en að koma fólki sem
fyrst í aðgerð svo að það geti komist
sem fyrst út á vinnumarkaðinn aftur
og orðið nýtir þegnar á ný.
Ég veit um marga, þar á meðal
sjálfan mig, sem eru að missa allt út
úr höndunum á sér. Og ef fram fer
sem horfir blasir við örbirgð og erf-
iðleikar í nánustu framtíð. Ef það
dregst mikið lengur að ég komist út
á vinnumarkaðinn sé ég ekki fram á
að ég muni nokkurntímann ná mér,
hvorki andlega né fjárhagslega, aft-
ur. Svo má ekki gleyma því heldur
að því lengur sem aðgerðin dregst á
langinn, því meiri verður varanlegur
skaði og líkurnar minnka á því _að
komast á vinnumarkaðinn aftur. Ég
neita að trúa því að þetta sé það sem
ráðherra vill.
Það má ekki gleyma andlegu hlið-
inni, langvarandi verkir og hreyfi-
hömlun skapar á endanum allskonar
andleg vandamál. Sálfræðingar og
geðlæknar hafa ábyggilega nóg að
gera við að sinna þeim sem eru á
biðlistunum. Svo eru það öll geðlyf-
in. Allt kostar þetta ríkið stórar
fjárhæðir sem mætti minnka all-
verulega ef það yrði forgangsraðað
öðruvísi.
Það er alltént mín skoðun að það
ætti að koma fólki sem fyrst í aðgerð
til að laga það sem á bjátar og reyna
að komast hjá því að varanlegur
skaði verði memi en hann þyrfti að
vera. Ég sjálfur er búinn að ganga í
gegnum mikið niðurbrot og þung-
lyndi vegna skaða sem ég hlaut fyrir
hálfu öðru ári og að öllum líkindum
næ ég mér aldrei að fullu, hvorki
andlega né líkamlega. Varanlegan
skaða hefði mátt takmarka verulega
einfaldlega með því að taka mig í að-
gerð miklu fyrr, já, kanski 45 vikum
fyiT. Ef grannt er skoðað kemur í
ljós að þeir sem eru svo ógæfusamir
og neyðast til að vera á þessum bið-
listum fá á endanum viss einkenni.
Andleg, félagsleg og líkamleg. Það
má alveg líkja þeim sem eru á bið-
listum við alkóhólista. Biðlistapestin
er fjölskyldusjúkdómur. Biðin bitn-
ar ekki bara á þeim sem er að bíða
heldur á öllu umhverfinu, sama
hvaða nafni það nefnist. Það þjást
allir í kringum þann sem er með
biðlistapestina. Því betur sem pest-
in nær að grafa um sig verður erfið-
ara að komast til baka. Það sem í
upphafi var líkamlegur krankleiki
er orðið andleg bæklun sem kannski
verður aldrei hægt að bæta. Þetta
eru hugrenningar sem fóru í gegn-
um huga minn í síðasta verkjakasti.
Ég er með biðlistapestina.
ATLI BRYNJARSSON,
Einarsnesi 78, Reykjavík.
Sumarferð Dómkirkjunnar
Fimmtudaginn 13. júlí verður farin
árleg ferð eldri borgara. Farið verður kl. 13
frá Safnaðarheimilinu í Lækjargötu 14a.
Ekið verður að Skógum undir Eyjafjöllum
þar sem drukkið verður kaffi, byggðasafn-
ið skoðað og höfð helgistund í safnkirkj-
unni.
Innritun í ferðina verður í
síma 5622755 kl. 10-12
á mánudag og þriðjudag.
Gjald er kr. 800.
í
Ingólfsstræti
hæö
Sfmi
552
5450
afs
www
Ég er é leiðinni...
40 erlendir skiptinemar
koma til íslands í ágúst
Viltu kynnast...
... nýjum viðhorfum?
... framandi menningu?
... nýrri sýn á land og þjóð?
Viltu taka
á móti skiptinema?
Þú þarft ekki...
... að kunna ensku
... að eida í öll mál
... að vera með skemmtidagskrá
$
nMR
I
t í s k u v
Kauðarárstíg
hefst í dag kl. 9.00
Fréttagetraun á Netinu
0mbLis