Morgunblaðið - 11.07.2000, Qupperneq 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 11 JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Brú til mynda-
söguheima
Zeta, l.tölublað, 1. árgangur. Gefið
út af Nordic Comics. Inniheldur
þýddar sögur um Lukku-Láka, Leð-
urblökumanninn, Júlíus Bosevert,
Hermínu, Titt, Beina, Sniglana,
Lalla lánlausa og Leonardó. Kostar
399 kr. og fæst í öllum bókabúðum
og bensínstöðvum. Heimasíða út-
gáfunnar er: www.nordiccomic.com.
ÞAÐ VAR fyrir um tíu árum síðan
sem erlendar hetjur myndasagnanna
hættu að tala íslensku. Súpermann,
Köngulóarmaðurinn, Tarzan o.íl.
sem höfðu verið í málkennslu hjá
prentsmiðjunni á Siglufirði fundu
ekki lengur jafngreiða leið inn á
heimili aðdáenda sinna og prentvél-
amar voru stöðvaðar. Þann atburð er
nánast hægt að kalla menningarslys í
bókmenntasögu Islands því ásamt
þeim örfáu titlum sem bókafélögin
voru að gefa út á þessum tíma voru
þar á ferð einu tengsl myndasagna
við yngstu lesenduma. Þó svo að sög-
urnar um Köngulóarmanninn og
Súpermann hafi verið langt frá því að
kallast bókmenntaleg afrek hrundu
þama snemma á síðasta áratugi
brýmar inn í víðari og litríkari bók-
menntaheim. Vissulega em tengslin
milli myndasagna og bama nauðsyn-
leg því eins og staðan er í dag er það
afar sjaldgæft að bókmenntaunnandi
sem kominn er yfir þrítugt taki allt í
einu upp á því einn daginn að byrja
að lesa myndasögur og því er þetta
myndasöguuppeldi bráðnauðsynleg-
ur liður til þess að afmá þá fordóma
sem fólk hefur á listforminu þó svo að
greina verði betur á milli þeirra
myndasagna sem era fyrir böm og
þeirra sem era fyrir fullorðna.
Útgáfufélagið Nordic Comic sem
hingað til hefur aðallega verið að gefa
út innbundnar þýddar myndasögur
frá Evrópu fyrir eldri lesendur hefur
nú byggt nýja brú að yngstu lesend-
unum. Það er tímarítið Zeta sem
kemur nú út á mánaðarfresti og er
stútfullt af þýddum myndasögum.
Um leið og útgáfan kynnir fyrir ís-
lendingum áður óþckktai' söguper-
sónur ber hún líka ábyrgð á endur-
komu þekktra andlita. I blaðinu rifja
þær sögupersónur sem umgangast
Leðurblökumanninn upp íslensku-
kunnáttu sína auk þess sem Lukku-
Láki glímir við Daltónbræður í áður
óútgefnu ævintýri.
Blaðið ætti að koma lesendum á
myndasögubragðið og þá sérstaklega
þá titla sem útgáfúfélagið hefur í hug
að gefa út í framtíðinni. En búast má
við því að innan skamms komi út áður
óútgefnar bækur um Ástrík, Lukku-
Láka, Hinrik og Hagbarð, Steina
sterka og Strumpana auk þess sem
félagið heldur áfram að aðstoða nýjar
hetjur við það að beisla íslenskuna.
Flestar sögumar eru nægilega
stuttar til þess að hægt sé að afgreiða
byijun og endi í sama hefti en þó eru
tvær framhaldssögur í blaðinu. Það
era sögumar um Leðurblökumann-
inn og Júlíus Bosevert en hann er
ungur ósjálfbjarga piltur sem neyðist
svo til þess að takast á við raunvera-
leikann.
Þessu fyrsta tölublaði er víst dreift
frítt til kynningar fyrir áhugasama
um áskrift og er hægt að nálgast
frekari upplýsingar um það á heima-
síðu útgáfunar, www.nordiccom-
ic.com. Útgefendur hafa einnig hug á
því að læða inn íslenskum myndasög-
um þegar þær verða tilbúnar. Húrra
fyrir því!
Birgir Örn Steinarsson
Notaðir bflar
á frábæru verði
Nissan Almera - árg. 1999
Ekinn 32.000 km - Verð kr. 1.320.000,
VW Passat 1.6 GL - árg. 1998
Ekinn 59.000 km - Verð kr. 1.260.000,-
Nissan Primera - árg. 1999
Ekinn 8.000 km - Verð kr. 1.590.000,-
I >nr
Nissan Micra - árg. 1998
Ekinn 20.000 km - Verð kr. 950.000,-
Ford Focus 1.6 - árg. 2000
Ekinn 4.000 km - Verð kr. 1.590.000,-
Nissan Maxima - árg. 1997
Ekinn 50.000 km - Verð kr. 1.670.000,
Greiðslukjör
við allra hæfi
Opið:
mán.-fös.
kl. 09-18
lau.
kl. 12-17
h,i,i iiij aate,u| íp*
B!O^RÆíA\R;BÍ|[LA\SmA\JNI fflWiBWjiwBI II11 sTwwil slslsl S’SVSIai'
MYNDBOND
Kredda eða
kraftaverk?
Ljósið í myrkrinu
(The Darkest Light)
D r a m a
★★’A
Leikstjórn og handrit: Simon
Beaufoy. Aðalhlutverk: Kerry Fox,
Stephen Dillane og Keri Arnold. (92
mín.) Bretland 1999. Bergvík.
Öllum leyfð.
LJÓSIÐ í myrkrinu er ekki auð-
veld mynd áhoríúnar og síður en svo
upplífgandi. Það á þó ekki að þurfa að
fæla frá unnendur
vandaðra og krefj-
andi mynda því hér
er glímt við erfið
málefni af tillits-
semi og nærgætni.
Ung og óstýrilát
stúlka býr með for-
eldram sínum í litlu
og trúuðu sveita-
samfélagi. Stúlkan
telur sig upplifa kraftaverk sem sann-
færir hana um að fárveikur lítill bróð-
ir hennar sé á batavegi. Vonlitlir for-
eldramir og aðrir í samfélaginuskella
í fyrstu við skollaeyram en þegar
fram líða stundir fer móðirin að efast.
A köflum hreyfir þessi harmræna
saga við manni en þó ekki nægilega
mikið til að hægt sé að fella sig við
heildarmyndina. Eins og svo oft vill
verða með breskar myndir þá er það
því frammistaða leikara sem upp úr
stendur.
Meðalveg-
urinn lygni
Beinasafnarinn
(The Bone Collector)_______
Spennulryllir
★★
Leikstjóri: Phillip Noyce. Handrit:
Jeremy Iacone. Aðalhlutverk:
Denzel Washington, Angelina Jolie.
(117 mín.) Bandaríkin 1999. Skífan.
Bönnuð innan 16 ára.
HÉR ER róið á mið Seven og Sil-
ence of the Lambs, eða réttar sagt
sigldur meðalvegur milli þeirra og
og það er lygnt i
sjóinn. Þetta er
ágætis spennu-
mynd - svona í
meðallagi góð. Á
sína kosti og galla.
Gallamir eru
óframleg og fyrir-
sjáanleg saga með
úrlausnum sem
valda vonbrigðum
og era loðnar í meira lagi. Myndin
sver sig þar að auki um of í ætt við
ofannefndar myndir og stendur þeim
vel að baki. Þá er ógetið frammi-
stöðu annars burðarleikarans, nýj-
asta óska(rs)barns Hollywood, Ang-
elinu Jolie. Hún veldur engan veginn
hlutverki sínu - er vissulega falleg
og fönguleg - en alls ekki nægilega
trúverðug sem bráðefnileg og kýr-
skýr rannsóknarlögregla. Kostimir
era nokkrir. Heildarútlit myndar-
innar er vel útfært og flott. Dranga-
legur og spennandi stígandi heldur
manni vel við efnið. En það er þó
nærvera Denzels Washingtons sem
lyftir henni á hærra plan.
Skarphéðinn Guðmundsson