Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Mikil aukning
hjá FPI í Kanada
Tveir af 25,5 metra bátunum á framleiðslulínunni hjá skipasmíðastöð í Kína en Skipasýn hefur 11 þar í smíðum.
Ellefu bátar á vegum
Skipasýnar í Kína
MIKIÐ er um nýsmíði skipa og
báta í Kína um þessar mundir og
eru nú 16 bátar í smíðum í Kína. Af
þessum 16 bátum eru 11 hannaðir
af skipahönnunarstofunni Skipa-
sýn.
„Við erum núna með í smíðum
úti í Kína níu 21,5 metra báta, sem
er líklega stærsta sería sem hefur
verið smíðuð fyrir íslendinga í
mörg ár. Smíðin í Kína hefur geng-
ið vel, kannski það eina sem hægt
er að setja út á er skipulagið sem
mætti vera betra en allt handbragð
er eins og best verður á kosið,“
segir Sævar Birgisson, skipatækni-
fræðingur hjá Skipasýn, en tekur
jafnframt fram að engin reynsla sé
komin á þessa báta. „Eins er mjög
óvenjulegt að kínverska skipa-
smíðastöðin kemur til með að af-
henda bátana í Hafnarfírði en ekki
úti, sem er alveg einstakt en með
því er hún að taka á sig alla ábyrgð
sem tengist flutningum. Þrátt fyrir
þetta er verðið á þessum bátum
mun lægra en það sem gerist hér
vestar.“
Áætlað er að afhenda bátana níu
í haust en auk þeirra eru í smíðum
Mikil vinna
framundan
tveir 30 m langir togbátar í Kína
og 30 m langur línubátur í Póllandi
á vegum Skipasýnar. Báturinn sem
smíðaður er í Póllandi er að verða
tilbúinn og eru menn að fara utan
um næstu helgi til að sigla honum
heim. Skipasýn hannaði einnig
hafrannsóknaskipið Árna Friðriks-
son sem nýkominn er til landsins
en hann var smíðaður í Chile.
„Við höfum stækkað við okkur
með starfsemi í Póllandi og Dan-
mörku til að geta unnið stæn-i
verkefni en það hefur haft það í för
með sér að við þurfum fleiri verk-
efni og þeirra höfum við leitað að
miklu leyti erlendis, allt frá Bras-
ilíu til Norður-Noregs. Sú vinna
hefur skilað sér og nú erum við
með mörg verkefni á teikniborðinu
þannig að það er mikil vinna fram-
undan.
Mestöll hönnunarvinnan er unn-
in hér heima, stáluppbygging skip-
anna er ákvörðuð í Danmörku og
loks erum við með skrifstofu í Pól-
landi sem sér um allar stálteikn-
ingar og megnið af kerfisteikning-
unum,“ segir Sævar.
Ný gerð vinnsluskipa
Auk þess að vinna að þeim verk-
efnum sem liggja fyrir hefur
Skipasýn hannað nýja gerð
vinnsluskipa sem er talsvert frá-
brugðin eldri gerðum enda segir
Sævar að lítil þróun hafí orðið í
gerð togara undanfarin 30 ár. „Við
tókum okkur til fyrir ári og fórum
yfir hvað menn vilja sjá í vinnslu-
og frystiskipum. Þeu- þættir sem
skipta mestu máli eru afkastageta,
vinnslurými og geymslurými og í
framhaldi af því hönnuðum við skip
sem er ódýrara bæði í smíðum og
rekstri auk þess sem það er styttra
en hefðbundin vinnsluskip þrátt
fyrir að hafa sama vinnslu- og
geymslurými. Við nýttum mikið af
þessari sömu hönnun í hafrann-
sóknaskipið en það er mikið um
nýja þætti í því skipi. Skrokkurinn
er gott dæmi en hann er mótaður
eftir kafbátafræðum til að gera
skipið sem hljóðlátast," segir Sæ-
var.
TEKJUR Fishery Produet Internat-
ional (FPI), stærsta sjávai-útvegs-
fyrirtækis Nýfundnalands, á öðrum
fjórðungi þessa árs jukust um 15,6%
frá sama tíma síðasta árs. Tekjurnar
námu samtals um 186 milljónum
króna af um 10 milljarða króna veltu
á tímabilinu. Tekjur félagsins á sama
tímabili síðasta árs voru samtals um
48 milljónir króna en þá var veltan
um 8,6 milljarðar króna. Á fyrri
helmingi ársins voru tekjur FPI því
um 334 milljónir króna og veltan um
18,4 milljarðar króna. Á fyrri helm-
ingi síðasta árs voru tekjur félagsins
um 53 milljónir króna af um 17,2
milljarða króna veltu. Á efnahags-
reikningi FPI kemur fram að hluta-
fjáreign félagsins er nú um 10 millj-
arðar króna, rekstrarfé um 6,5
milljarðar króna og langtímaskuldir
þess rúmir 3 milljarðar króna.
Nærri 30% aukning
í botnfiski og skelfíski
Betri árangur á öðrum ársfjórð-
ungi má m.a. rekja til aukinnar sölu í
þremur meginþáttunum í rekstri fé-
lagsins. Aukningin varð mest í sölu
óunninna botnfiskafurða og skelfisk-
afurða sem jókst um 29,8% frá sama
Stafnbúi
kominn út
STAFNBÚI, félag sjávarútvegs-
nema við Háskólann á Akureyri,
hefur gefið út sitt árlega blað,
Stafnbúa. Þetta er í áttunda sinn
sem Stafnbúi kemur út en mark-
miðið með útgáfu blaðsins er að
auka fróðleik og umræðu um
sjávarútvegsmál.
Margt góðra greina er að finna í
blaðinu og meðal annars skrifar
Ágúst Einarsson um aðgerðarrann-
sóknir í sjávarútvegi, Arne Vagn
Olsen um íslenskan hlutabréfa-
markað, Vigfús Jóhannsson um lax-
eldi og Jóhann Örlygsson um spá-
líkön fyrir geymslu á ferskum fiski.
í ritstjórnarspjalli blaðsins segir
að í Ijósi framfara og þróunar í sjá-
varútvegi aukist þörf fyrirtækja sí-
fellt fyrir vel menntað starfsfólk til
að fyrirtækin geti lifað og dafnað.
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Ákureyri hefur það að markmiði að
mennta starfsfólk í öllum undir-
stöðugreinum íslensks sjávarútvegs
og á það að vera fært um að vinna á
flestum sviðum sjávarútvegs sem og
tímabili síðasta árs og nam alls um
3,8 milljörðum króna. Aukninguna
má m.a. rekja til þess að veiðar á
krabba og rækju hófust óvenju-
snemma, auk þess sem veiðiheimild-
ir á hörpuskel voru meiri en í fyrra.
Þá jókst sala unninna afurða um
8,4% og var alls um 2,8 milljarðar á
tímabilinu. Viðskipti með sjávarfang
numu um 3,3 milljörðum og jukust
um 8,1%, einkum vegna hagstæðari
markaðsskilyrða fyrir hlýsjávar-
rækju.
Fimm hluthafar eiga nú um 64%
hlut í FPI. Þ.ám. á Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna um 14,6% hlut og
kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið
Clearwater um 9% hlut. Þessi félög
stóðu m.a. að tilboði sem NEOS
Seafood gerði í allt hlutafé FPI í nóv-
ember á síðasta ári. Tilboðinu var
hafnað þar sem lög í Nýfundnalandi
kveða á um 15% hámarkseignaraðild
einstaklinga eða félaga í fyrirtækj-
um þar í landi. Eins og greint hefur
verið frá í Morgunblaðinu kom fram
á aðalfundi FPI fyrir skömmu að fyr-
irtækið stendur á fjárhagslega
traustum grunni en engu að síður er
stjóm þess að skoða samrunamögu-
leika.
að stunda sérhæft framhaldsnám.
Jafnframt segir í ritstjórnarspjalli
að blaðinu er ekki eingöngu ætlað
að fjalla um þá þætti sjávarútvegs
sem ber hæst á hverjum tíma held-
ur einnig þau málefni sem líklegt er
að varði íslenskan sjávarútveg og
tengdar greinar i framtíðinni. Auk
þess er í blaðinu að finna kynningu
á því námi sem sjávarútvegsdeild
HA hefur upp á að bjóða.
Palomino
Vinsælasta fellihýsið á Islandi
wmm'Áim
Palomino PONY
skemmtilega fjölskylduhýsið
ÚTB0RGUN
Palomino YEARLING
glæsilega fjölskylduhýsið
ÚTB0RGUN
meðagreiösla á mánuði 160 mán
‘staðgreiðsluverð 589.900
meðagreiðsla á mánuði f 60 mán
'staðgrelðsluverð 828.200
YEARLING
EYJARSLÓÐ
Glitnir býður Frjálsu bílalánin
til fjármögnunar á nýju
fellihýsi frá Seglagerðinni
SEGLAGERÐIN ÆGIR