Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 E 13
■MHMHMMWMMMMHNMHMHMMMMNNMMMMMMMMHMMMMMMMMi
Nasco er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki sem er sérhæft
í sölu á rækju og botnfiskafurðum og útgerð frystitogara.
Fyrirtækið var slofnað 1995 og er áætluð velta þess fyrir
árið 2000 um 5 milljarðar króna. Hjá fyrirtækinu starfa 20
starfsmenn í Reykjavfk og um 300 starfsmenn hjá
dóttur- og hlutdeildarfélögum innanlands og erlendis.
Fyrirtækið er með starfsemi í Bretlandi, í Kanada auk
skrifstofunnar í Reykjavík.
^NASCO
North Atlantic Seafood Company
Fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum
Vegna vaxandi umsvifa og nýrra verkefna
óskar Nasco að ráða í eftirtalin störf:
Skipstjórar
Starfssvið:
Vegna nýrra verkefna er leitað er eftir fiskiskip-
stjórum á erlend fiskiskip sem eru í rekstri og
viðskiptum hjá Nasco. Um er að ræða fiskiskip
undir fána Rússlands, Eistlands og Litháen.
Hlutverk fiskiskipstjóra um borð er dagleg ábyrgð
og stjórn með veiðum og vinnslu um borð. Nasco
flotinn er við rækju- og bolfiskveiðar á Flæmska
hattinum og í Barentshafi. Skilyrði er að umsækj-
endur hafi reynslu af rækjuveiðum.
Vélstjórar
Starfsvið:
Starfsvið vélstjóra er yfirumsjón með öllum vél- og
tæknibúnaði skipsins. Umsækjendur verða að vera
tilbúnir að starfa með með erlendum undirvélstjórum.
Vinnslustjórar
Starfssvið:
Vinnslustjórar hafa yfirumsjón með vinnslu og
bera ábyrgð á meðferð og framleiðsluferli hráefnis
um borð og þjálfun áhafnar. Vinnslustjóri hefur
einning umsjón með gæðastjórnun framleiðslu um
borð. Nasco leggur ríka áherslu á framleiðslu
hágæðavöru um borð í skipum fyrirtækisins.
Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers merktar „Nasco og
heiti viðkomandi starfs" fyrir 18. ágúst nk.
Upplýsingar veita Þórir Þorvarðarson og Ari Eyberg.
Netföng: thorir.thorvardarson@is.pwcglobal.com
ari.eyberg@is.pwcglobal.com
X
PrICÉWATeRHOUsEQoPERS j§
Höfðabakka 9*112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is
Laus störf á
Jafnréttisstofu
Jafnréttisstofa er ný stofnun sem sett var á
fót með lögum um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla, nr. 96/2000. Hún tekurtil starfa
á Akureyri 1. september nk. en hlutverk hennar
er að vinna að því að koma á og viðhalda jafn-
rétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla
og tryggja þannig jöfnun á stöðu kynjanna á
öllum sviðum samfélagsins. Til að ná þessu
markmiði skal stofan meðal annars sjá um
fræðslu á sviði jafnréttismála og vera stjórn-
völdum, stofnunum, fyrirtækjum auk einstak-
lingum og félögum til ráðgjafar á því sviði.
Jafnframt skal Jafnréttisstofa sinna rannsókn-
arstörfum og annarri upplýsingaöflun er lýtur
að jafnréttismálum.
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
Ráðgjafar/sérfræðingar á sviði
jafnréttismála
Tvær stöður ráðgjafa á sviði jafnréttismála eru
lausar frá og með 1. september nk. Ráðgjafi
skal hafa háskólamenntun auk grundvall-
arþekkingar og skilnings á jafnréttismálum
kvenna og karla. Góð mála- og tölvukunnátta
er mikilvæg. Viðkomandi þarf jafnframt að hafa
skapandi og gagnrýna hugsun, hæfileika til
að vinna sjálfstætt og búa yfir góðum sam-
starfs- og samskiptahæfileikum. Starfið felst
meðal annars í rannsóknarstarfi, ráðgjöf og
fræðslu- og upplýsingastarfi á sviði jafnréttis-
mála.
Fulltrúi
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu
af almennum skrifstofustörfum og rekstri/
bókhaldi, góða færni í íslensku máli, auktölvu-
og málakunnáttu í ensku og einu norrænu
tungumáli (dönsku/sænsku/norsku). Jafnframt
þarf hann/hún að hafa hæfileika til að vinna
sjálfstætt og búa yfir góðum samstarfs- og
samskiptahæfileikum.
Við ráðningar í ofangreind störf verður m.a.
tekið tillit til þess að hafa sem jafnast hlutfall
kvenna og karla á Jafnréttisstofu. Unnt er að
semja um stöðuhlutfall og upphafstíma starfs.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst nk.
Umsóknum skal skilað til:
Félagsmálaráðuneytisins, b.t. Valgerðar H.
Bjarnadóttur, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
150 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Jafnréttisstofu, Valgerður H. Bjarnadóttir í síma
862 8722, 462 7255 eða í tölvupósti:
valkahb@nett.is.
Tryggingamiðstöðin hf. óskar að ráða
vátryggingaráðgjafa í markaðsdeild.
Hæfniskröfur:
• Háskóla- eða tæknimenntun er æskileg.
• Góð framkoma.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Þjónustulund.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar
„TM - vátryggingaráðgjafi" fyrir 20. ágúst nk.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Netfang: katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com
PricewaTerhouseQopers H
Höfðabakka 9*112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is
HEIMILI, DÁGVIST, ENDURHÆFINGARÍBÚÐ, SUNDLAUG
Til þín sem vilt vinna
með okkur
Ertu sjúkraliði, nemandi á heilbrigðissvidi
eða starfsmaður með reynslu af aðhlynn-
ingarstörfum? Hefur þú áhuga á skapandi
og gefandi starfi þar sem unnið er með fötluð-
um á jafnréttisgrunni?
Við leitum að einstaklingum til starfa við að-
hlynningarstörf. Um er að ræða 100% starf og
hlutastarf. Unnið er á morgun- og kvöldvöktum
ásamt annarri hvorri helgi.
Einnig leitum við að einstaklingum til nætur-
vaktastarfa, þar er starfshlutfallid 70%,
unnar eru 5 vaktir og síðan 5 vaktir frí.
Gaman væri að heyra í ykkur sem allra fyrst
og væri þá upplagt að biðja um Þórunni Krist-
jánsdóttur, sem upplýsirykkur nánar um störf-
in. Sími 552 9133.
Sjálfsbjargarheimilið er ætlað hreyfihömluðu fólki er þarfnast aðstoð-
ar og umönnunar allan sólarhringinn. íbúar eru 39 og starfsmenn
um 45. Hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfar, þroskaþjálfi,
sjúkraliðar, læknar og aðrir starfsmenn vinna við heimilið. sérstaklega
er unnið að því að auka lífsgæði íbúa heimilisins. Boðin eru góð
starfskjör og gott starfsumhverfi á vinnustað i hjarta borgarinnar.