Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 27

Morgunblaðið - 13.08.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 E 27 Svæðisstjóri á Austfjörðum X Öigerðin Egili Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða metnaðarfullan og hugmyndaríkan starfsmann til að hafa yfirumsjón með rekstri útibús Ölgerðarinnar á Austuriandi. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, geta unnið sjálfstætt og einnig að hafa innsýn í sölu- og markaðsmái. / Áhugasamir sendi greinargóðar uppiýsingar um menntun, reynslu og fyrrí storf til afgreiðsiu Mbl., merktar "Egiis-svæðisstjóri” fyrir 18. ágúst n.k. Farið verður með aliar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim ölium svarað. ...aö sjálfsögSu Ölgeröin Egill Skallagrimsson ehf. er stofnuð 1913. Ölgerðin framleiöir mikiö úrval öls, gosdrykkja og þykknis. Eriendir samstarfsaðilar eru m.a. Pepsi, Tuborg, Grolsch, Schweppes og Guinness. Megináhersla er lögö á gæöi hráefna og framleiðsluferils til aö skila gæðavöru. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins er 150. Borgarnes - Vefforritun íslensk upplýsingatækni ehf. óskar eftir að ráða vefforritara. Færni í HTMLforritun ásamst ASP, PHP eða Java nauðsynleg ásamt góðri þekk- ingu á vensluðum gagnagrunnum. Góð íslensku- og stafsetningarkunnátta mikil- væg. Umsóknir er einungis hægt að fylla út og senda af vef ÍUT; www.islensk.is Nánari upplýsingar um starfið veita Magnús Magnússon eða Bjarki Már Karlsson í síma 430 2200. íslensk upplýsingatækni ehf. er Internet-, frétta- og útgáfuþjónusta í Borgarnesi. Fyrirtækið hefur mikil umsvif á sviði vefsmíði og gagnagrunnstengdra veflausna og hýsir lén, vefi, netpóst og gagnagrunna. ÍUT er útgef- andi héraðsfréttablaðsins Skessuhorns og ann- ast fréttaþjónustu fyrir RÚV. MosfelJsbær Félagsmiðstöðin Ból Laus eru til umsóknar störf í Félagsmiðstöð- inni Bóli, Mosfellsbæ, frá 1. sept. nk. 100% staða aðstoðarforstöðumanns og 50% staða starfsmanns. Æskilegt er að umsækjendur hafi uppeldis- menntun eða sambærilega menntun og/ eða reynslu af starfi með ungu fólki. Laun greidd samkv. kjarasamningum starfs- mannafélags Mosfellsbæjar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður félagsmiðstöðvar, Edda Davíðsdóttir, alla daga frá 9 til 12 í síma 566 6058. IDNSKÓUNN (REYKJAVÍK Vilt þú kenna tölvufræði? Við Iðnskólann í Reykjavík er öflugt og metnað- arfullt nám á tölvufræðibraut. Nemendur sem útskrifast af brautinni eru eftir- sóttirtil ýmissa starfa tengdum tölvum, net- kerfum o.fl. Vegna mikillar aðsóknar að brautinni vantar okkur tvo kennara til viðbótar við þá mörgu tölvunarfræðinga, tæknifræðinga og verkfræð- inga sem þar starfa nú, til að kenna t.d. netkefi og forritun (t.d. java). Við bjóðum góða vinnuaðstöðu, góðan félags- skap, mikla vinnu, sveigjanlegan vinnutíma og ágætar tekjur. Umsóknarfrestur er til 18. ágúst. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma 552 6240. KRAFTVtLAR Viðgerðarmenn Kraftvélar ehf. óska eftir að ráða viðgerðar- menn á vélaverkstæði til viðgerða á þunga- vinnuvélum og lyfturum sem og öðrum smærri tækjum, sem fyrirtækið er með umboð fyrir. Fyrirtækið er í nýju húsnæði á Dalvegi 6—8 og er öll aðstaða til fyrimyndar. Mikil vinna er í boði og góð laun. Sölumenn Einnig óskar fyrirtækið eftir sölumanni til að annast innflutning og sölu fyrir nýtt vörumerki, sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Um er að ræða smáar vélar fyrir verslanir og iðnað. Starfskröfur: Enska — skrifa og tala. Almenn tölvukunnátta. Snyrtimennska. Lífleg og skemmtileg framkoma. Starfið hentar bæði konum og körlum. Nánari upplýsingar í síma 535 3500. Framkvæmdastjóri Félag heyrnarlausra óskar eftir framkvæmdastjóra. Félag heyrnarlausra er hagsmunafélag og vinn- ur að ýmsum baráttumálum heyrnarlausra m.a. að bæta aðgengi heyrnarlausra að sam- félaginu. Kröfur eru: • Táknmálskunnátta æskileg og þekking á samfélagi heyrnarlausra • Hugmyndaauðugur einstaklingur, sem er opin fyrir nýjum leiðum • Góð hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur er til 19. ágúst 2000. Umsóknum skal skila til formanns Félags heyrnarlausra Berglindar Stefánsdóttur, Kringlunni 87, 103 Reykjavík. Kaffístofur stúdenta þjónusta stúdenta við Háskóla íslands. Þær eru staðsettar ÍAðalbyggingu HÍ, Ámagarði, Eirbergi, Lög- bergi og Odda. Megin- markmið þeirra erað stuðla að heilbrigðu mataræði háskólastúdenta með því að bjóða fjölbreyttog gott vöruúrvalá lágmarksverði. Kaffístofur stúdenta er ein afsex rekstrareiningum Félagsstofnunar stúdenta sem er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða fjárhags- ábyrgð. Að henni standa stúdentar innan Háskóla íslands, HÍ og mennta- málaráðuneytið. Starfskraftur í kaffistofu Félagsstofnun stúdenta óskar eftir starfskrafti á Kaffistofu stúdenta í Odda frá og með 1. september n.k. Vinsamlega sendið skriflega umsókn til Atvinnumiðstöðvar- innar, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, 101 R., eða tölvupósttil atvinna@fs.is, fyrir 21. ágúst n.k. f W i Upplýsingar eru veittar hjá Atvinnumiðstöðinni í sima 5 700 888. ATVINNUMIÐSTÖÐ STÚDENTA atvinna@is.is Félagsstofnun stúdenta Sandgerðisbær i Sérkennarar Sérkennara vantarvið Grunnskólann í Sand- gerði næsta vetur. Vegna óvæntra forfall vant- areinnig íslenskukennara í efri bekki og mynd- menntakennara í 1/2 stöðu • í skólanum okkar eru yfirleitt tveir bekkir í árgangi og meðalfjöldi nemenda í bekk 16. • Við erum í samstarfi við rekstrarráðgjafa með það að markmiði að koma upp gæða- stjórnunarkerfi við skólann. • Kennurum er greitt sérstaklega fyrir samstarf við heimilin og vinnu að gæðakerfi. • Sérstakur samningur hefur verið gerður við kennara er varðar laun og aðra fyrir- greiðslu. Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri, í síma 423 7436 og Pétur Brynjars- son, aðstoðarskólastjóri, í síma 423 7717. Sími skólans er 423 7439. Leikskólinn Heklukot á Hellu auglýsir Leikskólakennarar! Leikskólakennarar athugið! Leikskólakennara vantartil starfa á leikskólann Heklukot á Hellu. Heklukot ertveggja deilda leikskóli með u.þ.b. 50 börnum. Hella er þorp í u.þ.b. 800 manna sveitarfélagi í aðeins 96 km fjarlægð frá Reykjavík. Á Hellu er öll þjónusta, góður grunnskóli, tónlistar- skóli, íþróttahús og önnur íþróttaaðstaða. Veitt verður aðstoð við að finna húsnæði ef með þarf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra leikskólakennara og sérsamningi við sveitarfélagið. Upplýsingar veitir leikskólastjóri eða aðstoðar- leikskólastjóri í síma 487 5956. Á.GUÐMUNDSS0N ehf Bæjarlind 8-10, Kópavogi. Húsgagnasmiðir verkamenn Vegna aukinna verkefna vantar okkur starfs- fólk, verkamenn og smiði til starfa við hús- gagnaframleiðslu. Framtíðarstörf. Upplýsingar veitir verkstjóri á staðnum. Gefandi starf Störf með börnum og unglingum eru gefandi og ánægjuleg. Kröftugt landslag milli fjalls og fjöru styrkir sálina og í hraðfara logni leiðist engum. Getum enn bætt við okkur kennara og skólaliða til að vinna með hressum nemendum og starfs- fólki Klébergsskóla í norðurbæ Reykjavíkur. Sigþór og Snorri veita nánari upplýsingar í símum 566 6083, 863 4266 og 699 2561 eða í netfangi sigthor@ismennt.is. Grunnskóli Vesturbyggðar Patreksskóli óskar eftir kennurum. Um er að ræða kennslu i 1. bekk og tölvukennslu. Upplýsingar veitir Ragnhildur Einarsdóttir skóla- stjóri í símum 456 1637 og 456 1665. *•'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.