Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.08.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Islensk tunga á við í íslensk- um kaupstað Segja má að það sé vel við hæfí einmitt nú, sefflr Pétur Pétursson, þegar íslensk tunga á í vök að verjast, svo mjög að þeir, sem sökum lærdóms og þekkingar á gildi móðurmáls og feðratungu, telja sig þurfa að efna til fjársöfnuar til styrktar þjóðtungu, þá sé kjörinn áfangastaður að nema staðar við hús Stefáns Gunnlaugssonar landfógeta. Það var einmitt Stefán Gunnlaugsson land- fógeti sem í krafti em- bættis og þjóðrækni lét það boð út ganga úr embættisskrifstofu sinni og sendi þau „skilaboð" eins og nú er svo vin- sælt að nefna hverskyns tilkynning- ar, að íslensk tunga ætti við í íslensk- um kaupstað. Það gerði Stefán með þeim hætti að hann sendi næturvörðinn og kall- ara sinn. Sá brýndi raustina og hróp- aði á vegferð sinni: „Islensk tunga á við í íslenskum kaupstað, hvað allir athugi.“ Ef við hyggjum að því hvernig var ástatt í Reykjavík um þessar mundir, þá þurfum við ekki annað en að seilast í bókaskápinn, sækja þangað Pilt og stúlku, skáld- sögu Jóns Thoroddsens og kynnast því, hvemig sögupersónur hans tala, þar er annað hvert orð á herratungu þess tíma. Konan reykvíska sem sýn- ir sveitastúlkunni íslensku Sigríði í Tungu kaupstaðinn, mælir annað hvert orð á dönsku. Hún segir til dæmis „Gud Stine“, og annað eftir því. Ekki þarf að saka Jón Thorodd- sen um andúð á Dönum sem þjóð. Hann hafði sjálfur barist frækilega í her þeirra er ofurefli sótti að þeim á danskri grund. En skáldið sem kvað svo fagurlega um Hlíðina sína fríðu og „blágresið blíða“, gat ekki orða bundist, en lýsti af gamansemi og hárbeittu háði þjóðernislegum tvi- skinnungi og hringlandahætti í mál- fari samtíðar sinnar. Stefán land- fógeti átti við ramman reip að draga og sætti raunar aðkasti danskra kaupmanna. Þeir töldu sig eiga alls- kostar við lýðinn, sem slæptist á göt- unum eða lá letilega fram á búðar- borðin. Verslunarþjónar þeirra gerðu sér dælt við íslensku stúikum- ar eins og Kristján búðarmaður, sem sagði þegar hann gaf stúlkunni klút- inn: „Hafðu það fallegur stúlkurinn mín.“ Nú heyram við marg-siglda og fjölmenntaða háskólamenn segja í útvarpi, ekki bara einn, heldur fleiri, „small is beautiful“. Þetta gerðist tvo íaugardaga í röð. „Eins og Banda- ríkjamenn segja“ bættu þeir við til frekari skýringa. Jónasi Hallgríms- syni, sem var samtímamaður Stefáns Gunnlaugssonar kom annað í hug þegar hann fjallaði um það sem er smátt og fagurt. Hann sagði: „Smá- vinir fagrir foldarskart." Athvarf og aðsetur margra Húsið númer 1 við Amtmannsstíg heíúr tekið állmiklum stakkaskiptum síðan Stefán landfógeti bjó hér um sig fyrstur manna árið 1834. Síðan hafa margir átt hér athvarf og aðset- ur, hér var starfræktur veitingastað- ur, sem bar hið þjóðlega heiti „Bú- mannsklukkan“ og minnir á hinn forna sið að flýta klukkunni um eina ^klukkustund, sem freistaði líka sumra til að seinka henni á kvöldin Friðjón Jensson læknir og dóttursonur. og fá með þeim hætti sem lengstan vinnudag út úr hjúunum. Nú er hér „Humarhúsið." Ekki var málfarið betra á Akur- eyri. Guðrún Borgfjörð segir: „Heldra fólkið þar talaði hvorki dönsku né íslensku. Heldur sam- bland eða ekkert mál.“ Þótt Stefán landfógeti væri oft upp á kant við máttarstólpa Reykjavíkur meðan hann dvaldist hér í embætti, má þó segja að hann hafi „átt daginn" ef þannig má komast að orði. 6. sunnudag eftir Trinitatis árið 1839, þá streyma allir hefðarmenn Reykja- víkur ásamt frúm og fylgdarliði í dómkirkjuna. Þangað hefur borist gjöf frá frægasta syni Norðurlanda, Bertel Thorvaldssyni myndhöggv- ara, það er skímarfontur, gjöf frá þessum frægasta syni íslands. Guð- feðgin við þessa einstæðu skímar- athöfn, þegar sonur landfógetahjón- anna er vatni ausinn og skímarfonturinn vígður era Jón Thorsteinsen landlæknir, Ólafur Hjaltested skólastjóri Bamaskólans í Reykjavík og Ragnheiðm- Ólafs- dóttir yfirsetukona. Sveinninn ungi var skírður Bertel Högni, fyrra nafn- ið til heiðurs myndhöggvaranum, sem kallaður var Bertel, þótt íslend- ingar kysu að kalla hann Álbert. Landfógetahjónin sem hér fögn- uðu ungum afkomanda, urðu fyrir þeirri sorg að missa barn er þeim fæddust tvíburar þrem árum síðar og greinir Jónas Hallgrímsson frá því í bréfi er hann ritar í Reykjavík. Synir landfógetahjónanna sem lifðu og komust til mennta, þeir vora Ólafur og Bertel, þeir áttu eftir að reika um á bökkum stærri fljóta og straumþyngri en lækurinn var, er rann við túnfót landfógeta á æsku- heimili þeirra í Reykjavík. Ólafur varð ritstjóri stórblaðs í Parísarborg og var tíður gestur á Signubökkum. honum sem birtist í bókinni Carmina. Bertel Högni gekk á bökkum Pot- omacfljótsins, þar sem allt var með kyrram kjöram í þrælastríðinu. Kvenhyllli Friðjóns Þegar tekið er tillit til þess hve Amtmannsstígurinn er „vel í sveit settur“, ef þannig má komast að orði um götu í Reykjarvíkurborg, þá leiddi það af sjálfu sér að hingað leit- uðu nemendur úr lærða skólanum og síðar úr Menntaskólanum og tóku á leigu herbergi hjá húsráðendum meðan þeir stunduðu nám í höfuð- staðnum. Árið 1890 era hér t.d. skráðir þrír læknastúdentar, þeir era Jón Þorvaldsson, sonarsonur Jóns Guðmundssonar ritstjóra, Jón Jónsson síðar meir læknir og tann- læknir. Hann var tengdasonur séra Arnljóts Ólafssonar, sem var einn af þátttakendum í „pereatinu." Þriðji læknastúdentinn var Frið- jón Jensson, sem síðar verður læknir og tannlæknir á Eskifirði. Til er al- kunnur húsgangur sem sýnir vin- sældir Friðjóns: Eg vildi ég væri vasaklútur velmerkturmeð F.ogJ. eða fríður flöskustútur Friðjóns læknis varagoð. Friðjón læknir virðist hafa notið einstakrar kvenhylli ef marka má vísu þá sem kveðin var. Friðjón var bróðir Bjarna í Ásgarði í Dölum, sem var þjóðkunnur bændahöfðingi á sinni tíð. Ásgeir Bjamason fyrram forseti Alþingis segist telja sig hafa notið frændsemi við Friðjón er hann var í framboði til Alþingis í Vestur- landskjördæmi. Kveður hann aldrað- ar konur á Mýram hafa spurt sig um Friðjón. Þær mundu vel eftir honum og veru hans í Mýrasýslu en þa'r og í Hnappadalssýslu stundaði hann lækningar um fimm ára skeið, 1894- 1899. Síðar fluttist Friðjón til Akur- Lögreglumaður í Reykjavík flytur boðskap Stefáns landfógeta 1848. eyrar. Þar kvæntist hann Olgu dótt- ur Hendriks Schiöths bakarameist- ai-a. Svo misskipt var með þeim bræðram Bjarna bónda og Friðjóni lækni, að Bjarni í Ásgarði og kona hans Salbjörg Jónína Ásgeirsdóttir eignuðust 17 böm. Sum þeirra dóu í bemsku, en mörg urðu þjóðkunn. Friðjón læknir eignaðist ekki afkom- endui’ en fóstraði kjörböm. Séra Árni Þórarinsson fór lofsam- legum orðum um læknisstörf Frið- jóns. „Hann þótti góður læknir.“ Svo segir hann eins og vænta mátti af honum (Séra Árna): „Þá var eins og allir yrðu veikir og alltaf verið að sækja lækni, bæði Friðjón og lækn- inn í Stykkishólmi.“ Friðjón sat í sýslunefnd í Mýra- sýslu um skeið. Æskilegt að fækka framsóknarmönnum Þegar höfundur sat við samantekt þessa greinarkoms kom í hugann að leita til Ásgeirs Bjarnasonar, fyrram alþingisforseta, og spyrjast fyrir um ljósmyndir af Friðjóni lækni. I spjalli okkar kom fram að séra Árni Þórar- insson hefði talið að æskilegt væri að fækka fylgismönnum Framsóknai-- flokksins. Segja mætti að það væri lítt í samræmi við það að afkomendur hans væra fulltrúar Framsóknar- flokksins á Alþingi og utanríkisþjón- ustu. Ég freistaðist til þess að segja Ásgeiri ummæli sem Þórarinn Árna- son (Prófastssonur segir frá) hafði eftir föður sínum og greindi mér frá: „Það ætti að taka af lífi svo sem eins og 20 framsóknarmenn einu sinni á ári, bara öðram til viðvöranar." Ás- geir hló að frásögninni sem var ein- kennandi fyrir snöggsoðna hörku- dóma klerksins og vitnaði svo í skpðanakannanir. í lýsingu skólabræðra á Friðjóni segir: „Tæpur meðalmaður á hæð og samsvarar sér vel. Hæð og gildleik- ur, hann er dökkhárr, veleygur, fríð- ur í andliti og laglegur í vexti. Nám sitt stundaði hann mjög vel, einkum hin síðari árin. Drengur er hann hinn besti“ (Saga Reykjavíkurskóla, Heimir Þorleifsson). Til fróðleiks má geta þess að meðal bekkjarfélaga Friðjóns læknis vora Bjami Sæmundsson fiskifræðingur, Magnús Torfason sýslumaður og séra Ingvar Nikulásson, faðir Helga Ingvarssonar læknis og tengdafaðir Sveinbjarnar Sigurjónssonar, sem þýddi Internationalinn hérna hinum megin við lækinn meðan hann borð- aði plokkfiskinn hjá tengdamóður séra Bjama Jónssonar. Albert Sigurðsson Ef við tökum stökk til ársins 1933 og hyggjum að háskólamönnum, sem hér búa þá, era tveir skráðir leigj- endur, Jóhann Salberg Guðmunds- son, seinna sýslumaður á Sauðár- króki, sonur Guðmundur Bergsteins- sonar í Flatey. Hér býr þá einnig Albert Sigurðs- son bóndasonur úr Borgarfirði. Hann mun í hópi þeirra íslenskra námsmanna sem eiga hvað fjöl- breytilegastan námsferil að baki. Álbert innritaðist haustið 1928 í læknadeild Háskóla íslands, fór til Tékkóslóvakíu og las slavnesk mál og sögu við háskólann í Prag. Árið 1931 er hann í Danmörku og lagði þá stund á sögu og ensku. Hvarf heim til íslands og las hér Norrænu. Albert nam guðfræði við Hafnarháskóla. Al- bert var cand. mag. við Norrænu- deild Háskólans. Kenndi á Akureyri. Fór enn utan til náms, þá til Amer- íku, stundaði síðan kennslu þar og hér heima. Hjörtur Magnússon fyrrverandi skipaskráningastjóri var góðkunn- ingi Alberts, og kveður hann hafa verið einkar fjölfróðan og víðlesinn. Kunni Albert góð skil á prófeinkunn- um fjölda manna, vissi hvemig þeim hafði vegnað á prófum og úr þeim hefði ræst. Gilti einu hvort þar var um innlenda eða erlenda menn að ræða. Á öllu kunni Albert skil, en nýttist ekki þekking til fjárhagslegs ávinnings að sama skapi, en Albert var neyslugrannur og sparsamur við sjálfan sig, og kaus að verja flestum stundum við bóklestur og fræðasýsl. Um skeið tók Albert að sér að kenna í forföllum Brynleifs Tobías- sonar í Menntaskólanum á Akureyri. Þá lágu gagnvegir til góðvina í hús- mæðraskólanum á Laugum. Albert varð skotspónn glaðværra nemenda, sem töldu sig sjá yrkisefni og mynd- skreytingar í kærleiksríkri afstöðu Alberts til námsmeyja á Laugum. Lögðust háðfuglar skólans á eitt að semja gamanbrag og kvöddu frægan dráttlistamann til fulltingis er birti teikningu sína í Carmina, árbók nem- enda. Var rifjuð upp heimsókn að Laugum, en þar var talið að Albert hafi hugsað sér gott til glóðarinnar í fríðum flokki meyja. Svo fór að meyj- ar allar vora víðsfjarri faðmi Alberts

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.