Morgunblaðið - 29.10.2000, Síða 30
30 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Bruce Willis og Samuel L. Jackson í hlutverkum sínum í Unbreakable.
Bardagaatriði úr stórmynd Ridleys Scotts, Gladiator eða Skylminga-
maðurinn.
Leitin að
Óskarnum
Fram til áramóta verða frumsýndar í
Bandaríkjunum flestar þær myndir sem
þykja helst koma til greina við útnefningar
til Oskarsverðlaunanna. Leikarar eins og
Kevin Spacey, Tom Hanks, Joan Allen,
Bruce Willis, Helen Hunt og Geoffrey Rush
berjast um hituna og sömuleiðis leikstjórar
á borð við M. Night Shyamalan og Philip
Kaufman. Arnaldur Indriðason kynnti sér
nokkra keppinauta og segir af fáeinum
haustmyndum frá Hollywood.
Reuters
Leikstjórinn Steven Soderbergh hefur farið mikinn að undanförnu. Hér
er hann ásamt helstu leikurum í mynd sinni Out of Sight með Jennifer
Lopez í miðið en að auki (f.v.) George Clooney, Steven Soderbergh,
framleiðandinn Danny DeVito and Ving Rhames.
Reuters
Leikaramir Kevin Spacey, Helen Hunt og Haley Joel Osment fara með
aðalhlutverkin í nýrri mynd, Pay It Forward, sem þykir koma til álita
þegar að tilnefningum til Óskarsins kemur.
REGLAN er yfirleitt sú að þær
myndir sem frumsýndar eru á
haustmánuðum í Bandaríkjunum
séu þær myndir sem eiga helst eftir
að bítast um Óskarinn. Frægasta
undantekningin frá reglunni er lík-
lega Lömbin þagna. Fyrr á þessu
ári voru Óskarsvænar myndir frum-
sýndar eins og Gladiator og Erin
Brockovich en flestir framleiðendur
fara eftir reglunni og stilla upp sín-
um vönduðustu og íburðarmestu
myndum síðustu mánuði ársins svo
þær séu enn í fersku minni Óskars-
akademíunnar þegar kemur að út-
nefningum i febrúar. Hér eru
nokkrar af þeim myndum sem
frumsýndar verða á næstunni og
talið er að munu vera ofarlega í
huga akademíunnar þegar kemur að
ákvarðanatöku.
Sadismi
Sá leikstjóri sem án alls efa kom
mest á óvart á síðasta ári var ind-
verskættaði Bandaríkjamaðurinn
M. Night Shyamalan, sem gerði
draugamyndina Sjötta skilningar-
vitið. Hann hefur þegar gert aðra
mynd um yfirnáttúruleg efni með
Bruce Willis á ný í aðalhlutverki.
Hún heitir Unbreakable og leikur
hasarhetjan öryggisvörð sem lifir af
hryllilegt lestarslys en dularfullur
maður í líki Samuels L. Jacksons
segir honum að það sé sérstök
ástæða fyrir því að hann lést ekki.
Shyamalan segir sjálfur að það sé
erfitt að gera betri mynd en Sjötta
skilningarvitið en telur engu að síð-
ur að það hafi tekist þama.
Drengurinn úr „Skilningarvit-
inu“, Haley Joel „ég sé dáið fólk“
Osment, fer með stórt hlutverk á
móti þeim Helen Hunt og Kevin
Spacey í myndinni Pay It Forward.
Leikstjóri hennar er Mimi Leder
sem gerði spennumyndirnar The
Peacemaker og Deep Impact fyrir
Steven Spielberg hjá DreamWorks.
Myndin segir frá kennara (Spacey)
sem fær grunnskólabekkinn sinn til
þess að hugsa upp ráð til þess að
láta gott af sér leiða og einn nema-
ndinn (Osment) tekur það sérstak-
lega alvarlega. Óskarsakademían
hefur sérstakt dálæti á Spacey og að
vonum en varla hreppir hann stytt-
una tvisvar í röð.
Leikstjórinn Philip Kaufman hef-
ur haft kyrrt um sig hin síðari ár en
sendir frá sér nýja mynd um jólin
sem heitir Quills og fjallar um hinn
kynferðislega úrkynjaða mark-
greifa af Sade. Ástralski leikarinn
Geoffrey Rush fer með hlutverk
greifans en Michael Caine fer með
hlutverk læknis á geðveikrahælinu
þar sem greifinn dvelur. Kate Wins-
let leikur unga stúlku sem annast
um greifann og Joaquim Phoenix er
presturinn sem rekur geðveikra-
hælið og reynir að halda stúlkunni
frá sadistanum. Hér er einstaklega
kræsilegur leikhópur á ferðinni sem
sjá má og þótt Kaufmann hafi verið
mistækur í seinni tíð (Óbærilegur
léttleiki tilverurmar er jafn frábær
og Henry og June er ömurleg) er
alltaf von á góðum myndum frá hon-
um. Quills er byggð á þekktu leikriti
Dougs Wright um markgreifann.
Soderberghá
miklu flugi
Einhver athyglisverðasti leik-
stjóri sem nú starfar í drauma-
verksmiðjunni er Steven Soder-
bergh, en þrjár síðustu myndir
hans, Out of Sight, Erin Brockovich
og The Limey, eru með því betra
sem komið hefur frá Hollywood á
undanförnum misserum. Hann var á
sínum tíma útnefndur til Óskarsins
fyrir handrit fyrstu myndar sinnar,
Kynlíf, lygar og myndbönd, en hefur
ekki hlotið náð fyrir augum akadem-
íunnar síðan. Kannski það breytist í
ár. Hann hefur þegar sent frá sér
myndina um Erin en í lok árs verður
mynd hans, Traffic, frumsýnd með
Michael Douglas, Catherine Zeta-
Jones, Dennis Quaid og Benicio Del
Toro í aðalhlutverkum. Myndin
fjallar um fíkniefnaviðskipti og seg-
ir frá dómara í Bandaríkjunum sem
gerist eiturlyfjabarón og kemst að
því að dóttir hans er dópisti.
Sænski leikstjórinn Lasse Hall-
ström hefur starfað í Hollywood
nær eingöngu frá því hann gerði þá
góðu mynd Mit liv som en hund og
sendir frá sér nýja mynd í haust sem
heitir Chocolat. í fyrra var hann út-
nefndur til Óskarsins fyrir The
Cider House Rules en nýja myndin
er af nokkuð öðrum toga. Leikar-
arnir koma allstaðar að, Juliette
Binoche, Judi Dench, Johnny Depp
og Lena Olin (eiginkona Lasse) fara
með helstu hlutverkin, en myndin
segir frá ungri móður sem opnar
súkkulaðibúð beint á móti kirkjunni
í smábæ.
Þá skilar breski leikstjórinn John
Boorman nýju mynd sinni, Klæð-
skeranum í Panama, af sér fyrir jólin
en hún er með Geoffrey Rush og
Pierce Brosnan í aðalhlutverkum og
byggist á samnefndri skáldsögu eftir
njósnahöfundinn John Le Carré frá
1996. Sagan gerist í Panama
skömmu áður en Bandaríkjamenn
afhenda Panamaskurðinn stjórn-
völdum landsins til umráða og fjallar
um njósnir, svik og dauða á svait-
kómískan hátt. Þá hefur lítil bresk
mynd, Billy Elliot, vakið mikla at-
hygli, en hún er eftir kunnan sviðs-
leikstjóra í London, Stephen Daldry,
sem aldrei hefur gert bíómynd áður
og fjallar um dreng í breskum kola-
námubæ um miðjan níunda áratug-
inn, sem vill heldur læra ballet en
æfa box, föður hans til mikils ama.
Robinson Krúsó
Matt Damon er í tveimur mynd-
um haustsins, sem báðar þykja
koma sterklega til greina við Ösk-
arsútnefningarnar. Ónnur er eftir
Robert Redford og heitir The Leg-
end of Bagger Vance og segir af
manni sem tekur að spila golf á ný
eftir margra ára hlé, hvattur mjög
áfram af kylfusveininum sínum,
Bagger Vance, sem Will Smith leik-
ur. Hin Damon-myndin er All the
Pretty Horses er byggist á sögu eft-
ir Cormac McCarthy, en það er
Billy Bob Thornton sem gerir hana.
Hún gerist um aldamótin 1900 og
segir af kúreka sem verður ástfang-
inn af dóttur búgarðseiganda.
The Contender eftir Rod Lurie
þykir einnig efnileg Óskarsverð-
launamynd en hún er framleidd af
DreamWorks og er með Jeff Bridg-
es og Joan Allen í aðalhlutverkum.
Ef Öskarsakademían skuldar ein-
hverjum Óskar þá er það Bridges,
en hann leikur forseta Bandaríkj-
anna í þessari mynd sem fjallar um
konu er stefnir á varaforsetaemb-
ættið en þá er byrjað að rifja upp
gamalt kynlífshneyksli sem hún átti
hlut að.
Akademían hefur einstakt dálæti
á Tom Hanks svo sem kunnugt er.
Hann leikur í nýiTÍ mynd í haust
sem heitir Cast Away. Leikstjóri er
Robert Zemeckis en saman gerðu
þessir tveir Forrest Gump sællar
minningar. Nýja myndin segir frá
manni sem lifir af flugslys í Kyrra-
hafi og lendir einn með sjálfum sér á
eyðieyju og verður að draga fram
lífið við þröngan kost. Hanks er
sagður hafa tapað 25 kílóum á því að
leika þennan nútíma Robinson
Krúsó. Zemeckis gerði drauga-
myndina What Lies Beneath á með-
an Hanks var að grenna sig og hélt
svo áfram með Cast Away eins og
ekkert hefði í skorist.
Hér hefur aðeins verið tæpt á
nokkrum áhugaverðum myndum en
mun fleiri verða frumsýndar í haust
í Bandaríkjunum sem ugglaust eiga
eftir að bítast um hinar eftirsóttu
Óskarsútnefningarnar. Hver niður-
staðan verðúr í þvi máli er ómögu-
legt að segja, en hún verður ljós í
febrúar næstkomandi.
Og svo er það auðvitað spurningin
hvað Myrkadansarinn og Björk ná
langt þegar Óskarsakademían tekur
að deila útnefningum sínum.