Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 47
MENNTUN
Tungumálaár í Evrópu
Erlend tungumál verða í brennidepli í
Evrópu á næsta ári. Ahersla verður á
kennslu á bæði erlendum tungumálum
s
og íslensku auk táknmáls. Arið 2001
er evrópskt tungumálaár ESB.
fvróps^1
EVRÓPURÁÐIÐ og
Evrópusarabandið
standa sameiginlega að
undirbúningi og skipu-
lagningu Evrópsks tungumálaárs
2001 og er ísland eitt þátttöku-
landa. Markmið tungumálaársins
er að vekja athygli á fjölbreytni
tungumála og menningar í
Evrópu, vinna að fjöltyngi
Evrópubúa og stuðla að símenn-
tun á sviði tungumála. íslensk
landsnefnd fyrir tungumálaárið
var skipuð í febrúar og er henni
m.a. ætlað að gera tillögur að
dagskrá og aðgerðum hér á landi.
I nefndinni eiga sæti fulltrúar
menntamálaráðuneytisins, Sam-
taka tungumálakennara á íslandi,
samstarfsnefndar háskólastigsins,
Islenskrar málnefndar og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Landsnefndin hefur ákveðið að
leggja áherslu á kennslu bæði er-
lendra tungumála og íslensku á
tungumálaári auk táknmáls. Jór-
unn Tómasdóttii' er verkefnis-
stjóri Evrópsk tungumálaárs
2001.
Hvað á að gera
í málinu?
Aðgerðum og dagskrá Evrópsks
tungumálaárs 2001 er fyrst og
fremst ætlað að höfða til almenn-
ings. Stefnt er að því að örva
áhuga jafnt fullorðinna sem ungs
fólks á að læra ný tungumál,
hvetja fólk til að auka fjölbreyti-
leika í tungumálanámi sínu og
kynnast nýjum menningarheimum
þannig að þeir verði hæfari bæði
heima og erlendis með tilliti til at-
vinnu, tómstunda og menningar-
læsis.
Aðild íslands mun felast í þátt-
töku í samevrópskum
sem og innlendum að-
gerðum. Opnunarat-
höfn Evrópsks tung-
umálaárs verður í
Lundi í Svíþjóð dag-
ana 18.-20. febrúar
2001 en lokaathöfnin
verður haldin í Brus-
sel í desember.
Evrópsk vika tungum-
álanáms innan fullorð-
insfræðslu stendur frá
5.-11. maí og
Evrópskur tungu-
máladagur verður
haldinn 26. septemr
ber. Einnig kemur
margt fleira til, s.s.
útgáfa handbókar fyrir tungumála-
nemendur, sameiginlegt merki og
slagorð.
Það er ljóst að ísland mun verða
virkur þátttakandi í ofannefndum
dagskrárliðum.
Góð dagskrá
á Islandi
Innlend dagskrá er enn í mótun
og ýmsar hugmyndir hafa komið
fram hjá landsnefndinni. Gera má
ráð fyrir að árlegir viðburðir hér-
lendis á sviði tungumála verði
tengdir tungumálaárinu, s.s. upp-
lestrarkeppni grunnskólanna,
frönsk Ijóðasamkeppni, þýsku-
þrautin og Dagur íslenskrar tungu.
Viðurkenning fyrir nýbreytni í
tungumálakennslu, Evrópumerkið
(European Label), verður veitt á
árinu.
Ráðgert er að halda ráðstefnu
um tungutækni og einnig er áætlað
að halda málþing um stefnur og
strauma í tungumálakennslu og
þörfina fyrir tungumálakunnáttu í
atvinnulífinu. Komið hefur fram
hugmynd um útgáfu bæklings um
sögu og stöðu íslensks máls sem
gefinn yrði út bæði á íslensku og
erlendum málum. Leitast verður
við að virkja fjölmiðla þannig að
þeir fjalli meira en gert hefur verið
um mikilvægi þess að kunna tung-
umál. Gert er ráð fyrir að opnun-
arhátíð tungumálaársins verði hér
um mánaðamót janúar og febrúar.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins veitir styrki til verk-
efna á tungumálaárinu og birtist
auglýsing þess efnis í Morgun-
blaðinu í september síðastliðnum.
Stjrrkupphæðin getur orðið mest
50% af styrkbærum heildarkostn-
aði við verkefnið og nema upp-
hæðir frá 700.000-7.000.000
króna. Reiknað er með að veita
styrki til u.þ.b. sam-
tals 150 verkefna í
þátttökulöndunum.
Þeir sem geta sótt
um styrki eru
mennta- og menning-
arstofnanir,. stofnanir
og samtök á vegum
bæjar- og sveitar-
stjórna, frjáls félaga-
samtök, rannsóknast-
ofnanir, aðilar vinnu-
markaðarins og
fyrirtæki. Fyrri um-
sóknarfrestur rann út
2. október en sá síð-
ari er til 15. febrúar
Jórunn 2001.
Tómasdóttir Jórunn Tómasdóttir
verkéfnisstjóri tung-
umálaársinshvetur alla þá, sem
tengjast tungumálakennslu, til
dáða um verkefni sem gætu orðið
hluti innlendrar dagskrár á
Evrópsku tungumálaári 2001. Þeir
fengju afnot af samevrópsku merki
ársins og slagorði. Það væri t.d.
tilvalið fyrir skólana að nýta þema-
vikur og opna daga í þágu kennslu
og náms í tungumálum. Þeir sem
hafa áhuga geta fengið allar nánari
upplýsingar hjá Jórunni Tómas-
dóttur, netfang:
jorunn.tomasdottir@mrn.stjr.is og
hjá Maríu Gunnlaugsdóttur, deild-
arsérfræðingi í menntamálaráðun-
eytinu, netfang:
maria.gunnlaugsdottir-
@mrn.stjr.is. Einnig er bent á
heimasíðu menntamálaráðuneýtis-
ins þar sem er að finna upplýsing-
ar um tungumálaárið.
Markmið ársins
Stefnt er að því að:
• örva áhuga fólks á að
læra ný tungumál.
• Hvetja fólk til að auka
fjölbreytileika í tungumála-
námi sínu.
• kynnast nýjum menning-
arheimum þannig að fólk verði
hæfara bæði heima og erlend-
is.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
Endurmenntunarnám-
soOTtJ" fyrir tungumála-
kennara.
Sókrates-menntaáætlun ESB
veitir styrki til tungumálakennara á
grunn- og framhaldsskólastigi til að
sækja endurmenntunarnámskeið í
einu ESB landi í 2-4 vikur. Nánari
upplýsingar og umsóknareyðublöð
www.ask.hi.is, ask@hi.is.
EES-Vinnumiðlun
Á árlegri haustráð-
stefnu EES-Vinnu-
miðlunar var fjallað
um aukna samþætt-
ingu við starf
svæðisvinnumiðlana.
Svæðisvinnumiðlanir
á Islandi og EES-Vinnumiðlun til-
heyra kerfi Vinnumálastofnunar.
Þetta á sérstaklega við um leit að
starfsmönnum á Evrópska efna-
hagssvæðinu fyrir atvinnulífið, en
með því að víkka út leitina fæst
breiðari hópur.
Það sem einkum hefur gengið vel
þetta haust eru ráðningai1 liðlega 70
starfsmanna frá EES-löndum til 8
sláturhúsa í öllum landshlutum.
Meirihluti þessa hóps kom frá hinum
Norðurlöndunum, einkum Svíþjóð.
Einnig sést vaxandi áhugi á garð-
yrkju- og landbúnaðarstörfum á ís-
landi einkum meðal Norðurlanda-
búa.
EES-borgarar sem koma til vinnu
á íslandi þurfa ekki atvinnuleyfi og
Islendingar eiga rétt á því sama vilji
þeir nýta sér tækifæri á atvinnu-
mörkuðum hinna EES-landanna.
Allar nánari upplýsingar á vef-
síðu: www.vinnumalastofnun.is
Opnunarhátíð
* * * í tilefni af opnun nýrrar
landsskrifstofu Ungs fólks
í Evrópu verður opnunar-
hátíð í Hinu húsinu
ucT^ifU, fimmtudaginn 23. nóvem-
ber milli klukkan 16 og 18.
Hin nýja UFE-áætlun verður kynnt
og boðið verður upp á skemmtiatriði
og veitingai1. Allar nánari upplýsing-
ar á vefsíðu: www.ufe.is.
Iðnaðar- og efnistækniáætlun
Iðnaðai1- og efn-
-k-S-rg4.J istækniáætlun
ESB óskar eftir
umsóknum í eftirfarandi:
6.2 Aðferðafræði fyrir mælingar
og prófanir.
6.3 Stuðningur til að þróa löggilt
tilvísunarefni fyrir prófanir
(CRMS).
7.1 Stuðningsverkefni fyi’ir stórar
(eða-sérstæðarýrannsáknaaðstoður...
7.2 Stofnun sýndarstofnana (virtu-
al institutes).
7.3 Tilvísunargagnabankar.
74. Mælingar og innviðir gæða-
stjórnunar.
Umsóknarfrestur er til 15. mars
nk. Umsóknargögn er að finna á eða
í síma 515-5800.
Euro Info-netverkið
Ársfundur Em-o Info
Centre-netverksins verð-
ur haldinn í Tékklandi í
lok nóvember nk. Eitt af
aðalumræðuefnum fund-
arins verður stækkun Evrópusamb-
andsins til austurs og áhrif þess á lít-
il og meðalstór fyrirtæki.
skólar/námskeið
tungumál
■ Enskunám í Englandi
Bjóðum enskunám við einn virtasta mála-
skóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði
og húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða alhliða ensku 18 ára og
eldri og viðskiptaensku.
Unglingaskóli í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir,
sími 862 6825 eftir kl. 18.00.
Árshátíðarfatnaður
Mikið úrval
Verðdæmi: Kjólar frá 3.900
Pils frá 2.900.
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Léttur og meðfæriiegur
með innbyggðiim prentara
[ Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á íslandi
Hlíðasmára 10
Kópavogi
Sími 544 5060
Fax 544 5061
snjallkort og segulrandarkort
Hraðvirkur hljóðlátur prentari
%
Síðustu sætin
um jólin til
Kanarí
með Heimsferðum
Heimsferðir kynna nú glæsilega vetraráætlun sína með spennandi
ferðatilboðum í vetur og stórlækkað verð frá því í fyrra. Nú þegar er
uppselt í fyrstu ferðimar og hver að verða síðastur að tryggja sér sæti
um jólin. Beint vikulegt flug alla þriðjudaga í allan vetur. Þú getur
valið um þá ferðalengd sem þér best hentar, 1,2, 3,4 vikur eða lengur,
og nýtur þjónustu okkar reyndu fararstjóra á meðan á dvölinni stendur.
Aldrei lægra verð
Val um 1 viku, 10 daga, 2 eða 3 vikur
Hvenær er laust?
• 17. des 31 sæti
• 19. des 8 sæti
• 26. des 41 sæti
• 2.jan 19 sæti
Verð kr.
65.035
9 nátta ferð, 17. des., hjón
með 2 börn, Volcances, íbúð
með 2 svefnherbergjum.
Verðkr. 78.830
2 í íbúð, 9 nátta ferð, Tanife,
17. des.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is