Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 52

Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 52
Cf52 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Próflestur hafínn á þingpöllum if í DAG ætla Röskvuliðar að hefja próflestur sinn á pöll- um Alþingis. Tilgang- urinn er að benda á það aðstöðuleysi sem Háskóli Islands býr við og ítreka kröfur stúdenta um að ríkið veiti aukafjárveitingu til byggingafram- kvæmda við skólann. Röskva berst gegn aðstöðuleysi Undanfarnar vikur hefur Röskva lagt mikla áherslu á bar- áttu fyrir aukafjár- veitingu til byggingaframkvæmda enda er aðstöðuvandi háskólans orðinn geigvænlegur. I október skiluðu forsvarsmenn Stúdenta- ráðs á þriðja þúsund póstkortum til menntamálaráðherra þar sem stúdentar skoruðu á hann að beita sér fyrir aukafjárveitingu. í kjölfarið hefur verið fundað með menntamálaráðherra, fjárlaga- nefnd og fulltrúum allra þing- flokka þar sem kröfur stúdenta hafa verið ítrekaðar. Mikill Iesaðstöðuskortur Nú er prófatímabilið við Há- skóla íslands að hefjast. Álagið á lesborðum á háskólasvæðinu er gríðarlegt og stúdentar slást nán- ast um borðin. Það má því segja að lesturinn á þingpöllunum sé ekki aðeins táknrænn, heldur hafi að nokkru leyti praktíska þýðingu, þar sem þingpallar Alþingis eru síst verr fallnir til lestrar en mörg sú aðstaða sem nemendum Há- skóla íslands er boðið upp á. Gríðarleg nemendafjölgun Við stúdentar höfum að undan- förnu bent á mörg dæmi um það aðstöðuleysi sem nemendur og kennarar búa við. Það þarf ekki annað en að líta á nemendaþróun °g byggingaframkvæmdir síðustu Þorgerður Benediktsdóttir 10 ára til að átta sig á stöðunni. Nemendum hefur fjölgað um u.þ.b. 50%, eða rúm- lega 2.000, á meðan einungis ein ný bygg- ing hefur bæst við húsakost Háskóla Is- lands sem hýsir 75 nemendur. Háskólinn hefur þurft að koma sífellt fleiri nemend- um fyrir í þeim bygg- ingum sem fyrir eru og afleiðingin er t.d. 500 manna námskeið í Háskólabíói og mikill skortur á lesaðstöðu. Ríkið rétti hjálparhönd Stúdentar hafa með afar skýrum hætti sýnt vilja sinn. Beðið er um aðstoð ríkisins við að vinna bug á hinu mikla aðstöðuleysi við Há- skóla Islands. Það er sjálfsögð skylda ríkisins að rétta háskólan- Fjárveiting Þingpallar Alþingis eru síst verr fallnir til lestr- ar, segir Þorgerður Benediktsdóttir, en mörg sú aðstaða sem nemendum Háskóla Is- lands er boðið upp á. um hjálparhönd þegar í slík óefni er komið. Það er óskandi að AI- þingi bregðist ekki þessari skyldu sinni heldur sjái mikilvægi þess að grípa til aðgerða og samþykki aukafjárveitingu til byggingafram- kvæmda á fjárlögum ársins 2001. Höfundur er formaður Röskvu. SKOÐUN • • KONNUNIN UM NÝTINGU FLUG- VALL ARS VÆÐISIN S NU ER talið lík- legt, að skoðanakönn- unin um framtíðarnýt- ingu flugvallarsvæðis- ins í Reykjavík fari fram helgina 3. og 4. febrúar næstkomandi. Ráðgert er að nefnd sú sem er að undirbúa valkostina, sem borg- arbúum verður boðið upp á að velja á milli, skili tillögum sínum til borgarráðs í lok þessa mánaðar - en það er að sjálfsögðu á endan- um ákvörðun borgar- stjórnar hverjir val- kostirnir verða, og á hvern hátt þeim verður fylgt úr hlaði. Valkostir í frétt Mbl. 11. febrúar voru þeir sjö valkostir kynntir sem eru til skoðunar. Valkostur 1 er sá flugvöllur sem nú er, þ.e. með þremur flugbrautum. Valkostur 2 er sá flugvöllur sem er í núgild- andi skipulagi og sem nú er verið að lagfæra, en með þessu er stutta flugbrautin, sem stefnir á Mikla- torgið, lögð niður. Valkostur 7 ger- ir ráð fyrir að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkur. Valkostir 3 og 4 fjalla um að flugvöllurinn verði áfram í Vatns- mýrinni, en ýmsar breytingar í legu og lengd flugbrauta verði gerðar. Valkostur 5 fjallar um byggingu nýs flugvallar sunnan Hafnarfjarðar. Valkostur 6 er loks tillaga um flugvöll á Lönguskerj- um í Skerjafirði, sem undirritaður setti fyrst fram 1974 og hefur síð- an oft komið til skoðunar á ýmsum vettvangi. Valkostur 4 er nýtt innlegg í umræðurna og felst í að norður- suðurbrautinni sem liggur nú yfir Kvosina og Tjörnina er hliðrað til vesturs upp að Skildinganes- byggðinni og um leið er brautin færð ca 1.300 m út í sjó, þ.e. út í Skerjafjörðinn. Með þessu er hægt að draga norðurendann, sem nú byrjar við Hringbrautina, alla leið suður á móts við núverandi flugstöð. Með þessu vinnst byggingarland í Vatnsmýrinni þó að Trausti reyndar verði mjög Valsson lítið hægt að byggja undir aðflugsfleti brautarinnar, - þ.e. alla leið frá Hringbrautinni og að gömlu flug- stöðinni. Aðflugslínan, sem nú liggur yfir miðja Kvosina og Tjörnina, færist nú lítillega til austurs og liggur u.þ.b. eftir Þing- holtsstræti í staðinn. Suðurendi brautarinnar mun liggja alveg fram fyrir mynni Fossvogsins og enda nokkuð vestur af Kársnesinu, - eða í 500 m fjarlægð frá því. Kostur er að flugumferð yfir Kárs- nesið minnkar, en hins vegar verð- ur sigling skipa til hafnarinnar þar og sigling skútna, t.d. um vogana inn af Skerjafirðinum, meiri tak- mörkunum háð. Stóri ókosturinn við þessa nýju hugmynd um Reykjavíkurflugvöll er, að enn yrði flugvöllurinn á núverandi svæði, með flestum þeim annmörkum sem því fylgja. Af þeim má nefna aðflugsfleti fyrír Þingholtin, Öskjuhlíð, sjúkrahúsið í Fossvogi, sem og innri hluta Kópavogs og Breiðholts. Athuga þarf að örygg- isflugfletir liggja ekki aðeins út frá endum flugbrauta, heldur líka til beggja átta út frá flugbrautunum sjálfum. Hvað þetta takmarkar mikið hve hátt má byggja í ná- Skráðu húsnæðið þitt hjá Leigulistanum þér að kostnaðarlausu. Með aðeins einu símtali er húsnæðið þitt komið á skrá hjá okkur og þar með ert þú komin(n) í samband við fjölda leigjenda. Skráðu (búðina núna áður en hún losnar og komdu f veg fyrir að hún standi auð og arðlaus. Skráning í síma 511-1600 EIGULISTINN LEIGUMIÐLUN Skipholti 50B, • 105 Reykjavík Reykjavík N-S brautar valkostur, segir Trausti Valsson, er spor í rétta átt en er í raun eitrað peð. grenni flugbrauta, t.d. á háskóla- svæðinu, er fáum kunnugt. Út í Löngusker Þegar undirritaður setti fram hugmyndina um flugvöll á Löngu- skerjum fyrir 26 árum, fólst í hug- myndinni að þar yrðu byggð skýli, flugstöð, o.s.frv. Fyrir nokkrum árum varð und- irrituðum hins vegar ljóst að betra væri, að einungis flugbrautirnar yi'ðu úti á skerjunum. Með þessu nýttust áfram ýmsar þær fjárfest- ingar sem þegar eru á flugvellin- um, svo sem flugturn, flugstjórn- armiðstöð og slökkvistöð. Einnig er betra að flugstöð framtíðarinn- ar yrði einnig í landi, í góðum tengslum við borgarlífið og stræt- isvagnakerfið. Það húsnæði sem þyrfti úti við flugbrautirnar yrði að mestu fellt ofan í uppfyllinguna. Með þessu myndu flugbrautarupp- fyllingarnar nánast ekkert sjást frá landi og nánast ekkert skyggja á útsýni frá byggðinni. Einn stærsti kosturinn við þessa hugmynd er, að hávaða-, mengun- ar-, aðflugs- og hættusvæði núver- andi flugbrauta myndu flytjast út á sjó. Einnig yrðu takmarkanir á hæð, og þar með þéttleika byggðar, vegna öryggisflata flugbrautanna, mjög litlar. Kostnaður og ávinningur I frásögninni af Lönguskerjaval- kostinum í Mbl. greininni er reikn- að með upphaflegri hugmynd und- irritaðs, þ.e. að á skerjunum yrði reistur fullbúinn flugvöllur og er því tilgátan 17-18 milljarðar, nefnd sem kostnaður. Augljóst er hins vegar, að ef að- eins brautirnar og vegur í land yrði lagður, er kostnaðurinn að- eins hluti af þessari upphæð. Kostnaðurinn við lengingu N-S flugbrautarinnar um 1.300 m út í Skerjafjörð á móts við Kópavog, er hins vegar ekki nefndur, en upp- fylling þar yrði hlutfallslega miklu dýrari en á skerjunum, því þar er dýpi miklu meira. Hvað umhverfisáhrif þessara tveggja valkosta varðar, má benda á að umhverfisáhrif valkostsins með nýrri N-S braut, eru í ýmsu óheillavænlegri en yrði með Lönguskerjavalkostinum. Þegar er búið að nefna hávaða, mengun og slysahættu, en áhrifin á vatns- skiptin í firðinum eru heldur ekki mjög jákvæð með N-S brautinni, því hún lokar fyrir allstórt vatns- þversnið fyrir mynni Fossvogsins, því þar er dýpið það mikið. Ofan á skerjunum er hins vegar lítið vatnsþversnið, enda er hér í raun aðeins verið að endurreisa eyju, sem þar til fyrir ekki löngu var í miðjum firðinum og er nú komin, endurreist, inn í nýtt Svæðisskipu- lag höfuðborgarsvæðisins. Vegur- inn til lands yrði með fjölda gegn- umstreymis-röra, þannig að hann myndi ekki trufla vatnaskiptin í firðinum verulega. Og eftir sem áður færi langmestur hluti vatna-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.