Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Varasamt í hálkunni Héraðsdómur Reykjaness fellir einn þyngsta dóm í nútima réttarsögu Atján ára fangelsi fyrir hrottalegt morð og nauðgun RÚNAR Bjarki Ríkharðsson, 22ja ára Keflvíkingur var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í 18 ára fangelsi fyrir að hafa myrt Áslaugu Óladóttur á heimili hennar í Keflavík aðfaranótt 15. apríl sl. Pá var hann dæmdur fyrir tvö kynferðisbrot, þ.m.t. nauðgun á fyrrverandi sam- býliskonu sinni og vinkonu Aslaugar. Ennfremur var Rúnar Bjarki fundinn sekur um líkamsárás gegn sambýlis- manni Aslaugar. Atti sér engar málsbætur Fjölskipaður héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Rúnar Bjarki ætti sér engar málsbætur í þeim mál- um sem hann var ákærður fyrir. Ólöf Pétursdóttir dómstjóri og meðdóms- menn hennar, Finnbogi H. Alexand- ersson og Jónas Jóhannsson, kváðu upp dóminn. I dómnum kemur fram að aðfara- nótt laugardagsins 15. apríl sl. hafi Rúnar Bjarki brotist inn á heimili As- laugar með því að sparka upp úti- dyrahurð. Þar réðst hann á Áslaugu, sem þá var 19 ára gömul. I dómnum segir að hann hafi banað henni með Qölmörgum hnífsstungum í síðu, brjóst, höfuð og víðar á líkamanum. Alls fundust 35 áverkar á líki Áslaug- ar, þar af 28 stungusár. Ákærði bar fyrir dómi að ástæðan fyrir innbrotinu hefði verið e.k. hefnd gegn Áslaugu sem átti að felast í því að berja sambýlismann hennar. Þá kvaðst hann vera svolítið reiður henni vegna kæru sem hún lagði fram gegn honum vegna hótana sem bárust henni með SMS-skilaboðum. Hann hefur neitað að hafa sent þau skfla- boð. Áslaug gaf á sínum tíma skýrslu tfl lögreglunnar vegna fyrra kynferð- isbrots hans gegn sambýliskonu sinni. Framburði Rúnars Bjarka og kunningja hans sem var með honum í för umrædda nótt ber ekki saman. Þá greindi á um hvenær sá síðamefndi hefði komið inn í íbúðina og hvaða hlutverki, ef einhverju, hann hafi gegnt í umræddri atburðarás. Kunn- inginn bar fyrir dómi að þegar hann hafi komið inn í íbúðina hafi Áslaug þegar verið látin. Hann hafi ásamt sambýlismanni hennar síðan lent í átökum við Rúnar Bjarka. Þegar Rúnar Bjarki braust inn í íbúðina var sambýlismaður Áslaugar sofandi en hún var sjálf inni á baðher- bergi. Hann játaði fyrir dómi að hafa farið þar inn með hníf í hendi. Ástæð- una sagði hann vera þá að hún hafi hljóðað upp fyrir sig þegar hún sá hann inni í íbúðinni og hann vildi þagga niður í henni. Sambýlismaður hennar sagðist hafa vaknað þegar Rúnar Bjarki og kunningi hans stóðu yfir honum. Rúnar Bjai-ki hafi verið blóðugur og haldið á blóðugum hníf. Sambýlis- maðurinn réðst þá að Rúnari Bjarka sem mun hafa sveiflaði hnífnum til vamar. Hlaut sambýlismaður Ás- laugar við þetta nokki-a áverka. Árásin tilefnislaus, hrottaleg og heiftúðug í niðurstöðum dómsins segir að að- för Rúnars Bjarka að Áslaugu hafi veríð tilefnislaus, hrottaleg og heift- úðug. Hafi hann ekki skirrst við að ryðjast inn á heimili hennar að næt- urlagi og stinga hana margítrekað í höfuð, háls, bringu og víðar í líkama hennar þrátt fyrir að hún væri vam- arlaus, nakin inni á baðherbergi og hafi átt sér einskis ills von. Hróp hennar og köll hafi einungis orðið til að efla Rúnar Bjarka við ódæðisverk sitt. Komst dómurinn að þeirri nið- urstöðu að Rúnar Bjarki ætti sér eng- ar málsbætur vegna morðsins og nauðgananna. Við ákvörðun refsingar væri þó litið til ungs aldurs hans og þess að hann hefur ekki áður sætt refsingu. Þótti refsing hans engu að síður hæfilega ákveðin 18 ára fang- elsi. Hann var enníremur dæmdur til að greiða fómarlömbum og aðstand- endum alls um 3,5 milljónir króna í bætur með vöxtum. Auk þess allan sakarkostnað, þar með talin þóknun lögmanna fómai'lamba hans og mál- svarnarlaun veijanda hans, rúmlega 1,1 mflljón ki-óna. Tfl frádráttar refs- ingu Rúnars Bjarka kemur óslitið gæsluvarðhald frá 15. apríl sl. Verj- andi hans tók sér lögbundinn fjög- urra vikna frest til að ákveða hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Að því búnu féllust dómarar á kröfu ákæruvaldsins að Rúnar Bjarki yrði áfram hafður í gæsluvarðhaldi uns málinu lyki fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til 14. júm' nk. Tvö kynferðisafbrot Þá var Rúnar dæmdur fyrir kyn- ferðisafbrot gegn fyrrverandi sam- býliskonu sinni, fæddri árið 1980. Hann var fundinn sekur um að hafa þvingað hana til kynmaka á afviknum stað milli Sandgerðis og Keflavíkur 4. febrúar en þau höfðu þá slitið sam- vistum og einnig um að hafa nauðgað henni á heimili hans í Keflavík 5. mars sl. í seinna skiptið gætti stúlkan yngri systkina hans en foreldrar þeirra vom í útlöndum. Hún bar fyrir dómi að Rúnar Bjarki hefði tjáð henni að kvöldi 5. mars að hann ætlaði að hefna sín og að hefndin yrði af kyn- ferðislegum toga. Hún hefði reynt að komast undan honum en hann náð henni og dregið hana nauðuga inn í herbergi sitt. Þar hafi hann hótað því að hún hlyti verra af ef hún færi ekki að vilja hans. Því næst þvingaði hann hana til samræðis. Nauðgunina tók hann upp á myndband sem hann hafði áður komið fyrir í svefnherbergi sínu. Neitaði sakargiftum Rúnar Bjarki neitaði þessum sak- argiftum og bar að í hvorugt skiptið hefði samræðið verið gegn hennar vflja. Varðandi atvfldð á heimili hans hefðu galsafengin átök átt sér stað áður en til samfara kom. Héraðsdóm- ur segir að myndbandsupptakan sýni svo ekki verði um villst að um þvinguð kynferðismök var að ræða. Vitnis- burður vinnufélaga og kunningja styðji ennfremur þá niðurstöðu en þeir báru fyrir rétti að Rúnar Bjarki hefði greint þeim frá atburðinum. Tjáði hann þeim að hann hefði nauðg- að fyrrverandi sambýliskonu sinni og tekið atburðinn upp á myndband. Héraðsdómur taldi að þessi atriði ásamt áverkavottorði, umsögn sál- fræðinga og fleira styddi framburð stúlkunnar sem teldist trúverðugur. Því velkist dómurinn ekki í vafa um að Rúnar Bjarki hafi gerst sekur um að hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi og hótað henni og í beinu framhaldi þröngvað henni til samfara. Hann var einnig fundinn sekur um fyrra kyn- ferðisafbrotið. Framburður stúlk- unnar, Áslaugar Óladóttur og kunn- ingja Rúnars Bjarka voru einkum lögð til grundvallar sem og misræmi í framburði ákærða fyrir dómi. Harðir dómar í héraði mildaðir af Hæstarétti Dómurinn yfir Rúnari Bjarka Rík- harðssyni í Héraðsdómi Reykjaness í gær er með þeim þyngstu sem dæmdir hafa verið í héraði en þó ekki sá þyngsti, að sögn Jónatans Þór- mundssonar, prófessors í refsirétti við Háskóla íslands. Nokkrum sinn- um hefðu fallið dómar um ævflangt fangelsi í héraði en þeir verið mildaðir af Hæstarétti. Þannig hefðu tveir sakbomingar í Guðmundar- og Geir- finnsmálinu verið dæmdir í lífstíðar- fangelsi árið 1977 en Hæstiréttur hefði mildað refsinguna í 17 og 16 ára fangelsi. Þá hefðu tveir menn verið dæmdir í Sakadómi Reykjavíkur í 18 og 20 ára fangelsi fyrir morð á bens- ínstöð við Stóragerði í apríl 1990 en Hæstiréttur mildað dómana í 17 og 16 ára fangelsi. Ennfremur var maður dæmdur til ævilangrar fangelsisvist- ar eftir að hann varð mannsbani öðra sinni í ágúst 1993, en er hann framdi ódæðið var hann á reynslulausn eftir að hafa afplánað helming 14 ára fang- elsisdóms, sem hann hlaut fyrir að verða manni að bana á nýársdag 1983. Hæstiréttur mildaði hins vegar dóm- inn og breytti ævilangri fangelsisvist í 20 ára fangelsi. Einn hæstaréttar- dómarinn af fimm skilaði sératkvæði og vfldi staðfesta niðurstöðu Héraðs- dóms um ævilangt fangelsi. Jónatan sagði að aldrei hefði verið dæmt í ævi- langt fangelsi í hinum endanlega dómi, í Hæstarétti. Yfirleitt hefði rétturinn slakað á og mildað þyngstu fangelsisdóma undirréttar. HÁLKA er víða mikil á götum og gangstéttum en beinbrot sem rekja má til þess er menn hrasa á hálkunni hafa þó ekki verið óvenju mörg samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítala í Fossvogi. Jón Baldursson yfirlæknir segir færið slæmt og að ungir sem gaml- ir hafi hlotið margs konar bein- brot eða brákast. Kvaðst hann hafa séð siðdegis í gær hand- arbrot, brákaðan olnboga hjá stúlku og brotna mjöðm hjá full- orðnum manni. Hann segir gær- daginn hafa verið mjög rólegan og sagði rétt að brýna fyrir fólki að fara sér hægt í önnum sínum næstu daga enda væri færið vara- samt, eins og sjá má á myndinni, sem tekin var í vesturhluta Reykjavíkur. Morgunblaði/Þorkell 1,5 milljónir í sekt fyrir sölu á klámi HÆSTIRETTUR hefur dæmt 32 ára mann til greiðslu 1,5 milljóna króna sektar fyrir að hafa flutt inn klámmyndir og fjölfaldað þær til sölu í verslun sem hann rak. Með dóminum voru einnig gerð upptæk tæplega 2.600 myndbönd, geisla- diskar og stafrænir myndadiskar. Við húsleit í verslun mannsins í miðborg Reykjavíkur í nóvember 1998 lagði lögreglan hald á rúmlega 700 myndbandsspólur og átta staf- ræna myndadiska, auk tölvu og ell- efu myndbandstækja, sem talið var að hann notaði til fjölföldunar myndbanda. í ársbyrjun 1999 flutti maðurinn verslun sína um set í mið- borginni og þar var gerð húsleit í apríl 1999. Þá lagði lögreglan hald á rúmlega 1.700 myndbandspólur og 13 stafræna myndadiska. Tollgæsl- an í Reykjavík lagði einnig hald á um 120 myndbönd og diska, sem maðurinn fékk sent frá Bandaríkj- unum í maí og júní 1999. Hæstiréttur sagði brot mannsins varða við hegningarlög og dæmdi hann til að greiða 1,5 mflljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Hins veg- ar hafnaði rétturinn kröfu um upp- töku tölvubúnaðar og myndbands- tækja, enda tókst lögreglunni ekki að nota búnaðinn til að fjölfalda diska eða myndbönd. Sagði Hæsti- réttur því varhugavert að telja fylli- lega sannað gegn neitun mannsins að búnaðurinn hafi verið notaður í þessu skyni. Við ákvörðun refsingar leit rétt- urinn sérstaklega til þess að mað- urinn rekur enn verslun sína og hef- ur auglýst starfsemi sína í blöðum og tímaritum og eins á heimasíðu fyrirtækis síns á Netinu. Garðabær Hátt í 600 umsóknir um 45 lóðir MIKIL eftirspurn reyndist vera eftir lóðum í Garðabæ þegar 45 lóðir í Ásahverfi vora auglýstar til úthlutunar í síðasta mánuði. Alls bárust 593 umsóknir um lóðirnar. Listi yfir um- sækjendur hefur verið lagður fram í bæjarráði Garðabæjar, en reiknað er með að lóðunum verði úthlutað í næsta mánuði. Lóðirnar sem verður út- hlutað eru við Eikarás, Fura- ás, Greniás og Grjótás.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.